Þjóðviljinn - 01.11.1953, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 01.11.1953, Blaðsíða 8
S) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 1. nóvember 1953 — I '&LFUR UTANGARÐS 27. DAGUR Bóndimi í Bráðagerði Ætli ekki, ansaði Jón að bragði, og láttu okkur ekki bíða leingi, ljúfan, því ég er lángsoltinn einsog útigángshestur .á einmánuði. Og helst eitthvað, sem stehdur við í manni. Stúlkan skildi að mikið lá við og skundaði burt. Jón gaf ferð- um hennór gaum, sá að hún gekk að glugg einum ekki stórum á bakvegg og kallaði eitthvað í gegn. Skjótlega réttu ósýnilegar hendur rjúkandí diska í gegnum gluggið í fáng stúlkunnar, sem bar þá síðan á borð fyrir þá félaga. Þessi fyrsti réttur var súputegundax- kaffibrúnn á lit og leðjuþykkur með Ijósum, blá- glærum dropa í miðju, sem átti að heita í ætt við mjólk. Jón lét þegar hendur standa framúr ermum við að slökkva sárustu suitarkvalirrar, og hvað sem öllum samsetníngi matarins leið, '.'ar þetta lystugur og bragðgóður réttur. Úmm! sagði borðnautur Jóns og andlit hans ljómaði er hann ieit yfir dtsk sinn. Við erum lánsmenn 1 dag. Þrír fjórðu hlutar þrumari og þriðjúngurinn fransari, vínarbrauð og gott ef ekki terta. Það mætti líka segja mér að ein og ein rúsína hefði slæðst með. Það er næstumþvi einsog það séu jólin. Ekki svo afleitt, ekki svo afleitt, samsinnti Jón, þótt hann hefði öðru að sinna en hefja lofræður um fæðuna, enda ástæðu- laust, því hún mælti með sér sjálf. Það _var ekki fyrr en ,hann liafði hroðið disk sin*i og sogið úr skegginu það sem ‘þar hafði ient að óvilja í flaustrinu, að hann rétti úr sér og ropaði á- nægjulega. Gaman hefði ég að vita, hvað grautur þessi héti, sagði hann svo. Ekki svo að skilja að það hafi þýðíngu útaf fyrir sig, heldur hitt, að hann sé saðsamur og lystugur. En Gudda mín hefur alltaf gaman af því að vita, hvað ég hafi feingið að borða annarstaðar. Ekki veit ég nafn hans í kokkabókum, ansaði borðnautur Jóns. En við getum kallað hann þrumara í fljótandi ásigkomulagi. Sem sagt: þrumarasúpa á íslensku, sagði Jón. Þá veit maður það. En hvað sem öllum nöfnum líður lángar mig í meira. Viltu gefa mér aftur í skelina, heillin! kallaði hann í kvenn- manninn. Þetta er ekkert, sem tollir á í einu. Stúlkan varð við beiðninni og Jón gekk til verks af eingu minni elju en fyrr. Stóðst það á endum, að haiin hafði lokið viðbót sinn i sama mutid og borðnautur hans kláraði sinn upphaflega skammt.. Þetta er eingin matarlyst sem þú hefir, góðurinn! sagði Jón. Það er list útaf fyrir sig að neyta fæðu sinnar af lyst, ansaði maðurinn. Jafnvel svo hversdagsleg athöfn verður að vera ixm- blásin af list, svo lystin geti notið sín. Lystin fyrir listina, maður m!nn, hvað sem öðru líður. Ég geri eingan mun á list og lyst, sagði Jón, ég veit bara það, að ég hefi lyst á meiru. Og ég trúi því ekki, að þú sért hætt- ■ur við spónamat'nn alveg nýbyrjaður, Þarmeð tók Jón diskana, rétti þá að stúlkunni og bað hana blessaða að gefa þeim agnarögn í viðbót. Stúlkan ansaði að raunar tíðkaðist það ekki að bæta á disk hjá sama mann! oftar en einu sinni, lét þó tilleiðast eftirað Jón hafði svarið, að hann hefði aldrei á ævi s:nni borðað þvílíkan spónamat, svo væri hann óvenju matarþurfi, því ekki hefði hann bragðað mat 5 fulla tvo sólarhrínga. Eftirað hafa hesthúsað þriðja skammtinn af súpunni góðu voru sárustu sultarkvalirnar teknar að linast, svo hann gat ■dokað við á meðan félagi hans lauk síniun skammti. Aðeins það að virða fyrir sér hvernig hann gekk að fæðunni hlaut að sannfæra sjáandann um, að hann væri mikill listamaður í sinni grein. Við hverja munnfylli brá fróunarkenndri uppljómun l’fir andlitið, og augnatillit þau er hann sendi fæðunni Voru úpp- tendruð einsog í ástfaungnum fimmtán ára piltúngi. Þá getur maður farið að taka t!l við þurrmetið, sagði Jón. Var þess líka skammt að bíða, að þjónustan bar á borð fyrir þá hrokaba diska. Kom þar, að Jóni veittist ekki auðveldara að nafngreina þenna rétt en hinn fyrri. Bólaði þó á kartöflum í svipuðu hlutfalli og vigahnöttum i heilu sólkerfi. Namma namm! sagði borðfélagi Jóns. Það lítur út fyrir að jól- in beri uppá páskana í ár. Það væri ekki nema eftir öðru hér í Reykjavík, ansaði Jón. En slík hátíðabrigði þekkjum við ekki he:ma í Vegleysusveit. Matur þessi heitir glás á góðri íslensku, upplýsti félagi Jóns. Mjög lystugur og nærandi matur enda listilega tilbúinn. Skyldi þetta heita kjöt? spurði Jón eftir stutta rannsókn í inni- hald hrúgunnar á diski sínum. Ég hefði gaman af að vita, hvað skepnan hét á meðan hún lifði. Glás er ekki af neinni sérstakri skepnu, ansaði maðurinn. Get- Fundur sambandsráðs ÍSl Fjánnál — Dóms- og reísiákvæði — Olympíuneínd íslands — Kpppnisleyfi Gunnars Huseby — Framlag til íþróttasjóðs um fulltrúa frá hveí’ju sérsam- bandj fSI að endurskoða starfs- reglur Clympíunefndar Islands og leggja fyrir næsta sambands- ráðsfund, þar sem gengið verði frá kjöri í Clympíunefnd |s- lands. Eins og sagt var frá hér í síð- ustu viku var 10. sambandsráðs- fundur ÍSÍ haldinn hér í Reykja- vík um síðustu helgi. Margar tillögur voru sam- þykktar á fundi þessum og verð- ur sumra þeirra getið hér nán- ar síðar. Ekki tsá fundUrinn ástæðu til að- gera ályktun varð- andi samskiptin við setuliðið, og þó munu þeir finnast í ráði þessu sem ekki vilja telja ÍSÍ í neinu lakara en UMFÍ. Svo gæti verið að öðrum væri ósárt um það að ÍSf skildi ekki sinn vitjunartíma. Fróðlegt hefði verið að vita hvaða skoðun íþróttafulltrúi rík- isins hefði haft i þessum málum á fundinum. Fara hér á eftir nokkrar af til- lögum þeim sem samþykktar voru: Fjármál /s/ Samþykkt var að kjósa 7 manna nefnd til þess <að gera tillögúr og athuga, hvaða leiðir væru heppilegastar til þess að skapa öruggan íjárhagsgrund- völl fyrir ÍSf og sérsambönd þess, og á hvern hátt mætti ná beztum árangri í innheimtu ár- gjalda o. s. frv. Nefndinni var ætlaður starfs- tími fram að næsta fundi sam- bandsráðs eða til auka íþrótta- þings ef það yrði haldið. Þá var samþykkt að þakka fyrrverandi menntamálaráðherra og núverandi menntamálaráð- herra fyrir stuðning þeirra við að fá hækkað framlag ríkissjóðs til ÍSf og skorað á fjárveitinga- nefnd Alþingis og fjármálaráð- herra að fallast á að styrkur til fsf verði 45000.00 kr. Svo og var samþykkt heimild fyrir framkvæmdastjóm fsf að boða til aukaíþróttaþings, ef Leningrad Zenith keppir í Noregi og Svíþjóð Um 10. nóv. kemur sovézka knattspymuliðið „Leningrad Zenith“ til Noregs eftir að hafa leikið 3 leiki í Finnlandi. Lið þetta er talið eitt með sterkustu liðum Sovétrikjanna. Þess er getið að heimsókn þessi sé til orðin fyrir milli- göngu félaga í Finnlandi og Noregi. Knattspyrnusamband Sovét- ríkjann,a hefur gefið samþykki sitt til fararinnar og að „Zenith“ e:gi að vera fulltrúi sovézkrar knattspyrnu í þessari ferð. Enn- fremur á með ferðinni að fá nokkurn -samanburð á finnskri knattspyrnu og sovézkri, þar sem finnska landsliðið átti; að keppa í Leningrad nokkru eftir að leyfið var gefið. talin verður þess börf vegna fjárhagserfiðleika fsf. Ymsar aðrar tillögur í fjár- málúm voru og samþykktar. f fjárhagsnefnd voru kjörnir: Gísli Ófafsson, BragL Kristjáns- son, Lúðvík Þorgeirsson, Sigur- jón Jónsson, Gísli Halldórsson, Þorvaldur Ásgeirsson og Jens Guðbjörnsson. Endurskoðun dónis og refsiákvæða /S/ f framhaldi af ályktun íþrótta- þings 1953, um endurskoðun dóms og refsiákvæða ÍSf, sam- þykkir sambandsráð fsf að kjósa fimm manna nefnd til að endurskoða dóms- og refsiákvæð- in og skal nefndin hafa lokið störfum eigi síðar en mánuði fyrir haustfund sambandsráðs 1954. í nefndina voru kjörnir: Kon- ráð Gíslason, Þorgeir Svein- bjarnarson, Bi'ynjólfur Ingólfs- son, Einar B. Pálsson, Haraldur Guðmundsson. Endurskoðun starfsreglna Ólympíunefndar /slands 10. fundur Sambandsráðs ÍSÍ 25. okt. 1953 samþykkir að fela framkvæmdastjórninni og ein- Kepprdsleyfi Gunnars Huseby Fundur í Sambandsráði fþróttasambands fslands, hald- inn 24. og 25. okt. 1953, sam- þykkir að veita Gunnari Huse- by keppnisieyfi að nýju samkv. heimild í dóms og refsiákvæðum ÍSf frá 1. jan. 1952. Áskorun á Alþingi að hækka framlag til íþróttasjóðs Fundur í Sambandsráði fþrótta sambands fslands haldinn 24. "og 25. okt. 1953, samþykkir að skora á háttvirt Alþingi og rik- isstjórn að hækka framlag til íþróttasjóðs í kr. 1000.000.00, eina milljón króna. Carl Olsson vann Turpin í heimsmeistaraheppni f síðustu viku börðust Banda- ríkjamaðurinn Carl Olsson og Bretinn Randolph Turpin um heimsmeistaratitil í millivigt. Vann Olsson örugglega á stig- um. Turpin var tvisvar sleginn í gólfið og í 9. lotu bjargaði tím- inn honum frá því að vera tal- inn út. Turpin var þó betri Framh. á 11. síðu nn l Ullarkópur J ■ Nýsending M / Markoðurinn % Laugaveg 100 co 1 Silki i peysufatasvimtur / 1 Markaðurinn I ^ Bankastræti 4 ivorur írá Helena Rubinstein íást í Markaðnum Haínarstiæti 11.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.