Þjóðviljinn - 08.11.1953, Blaðsíða 8
S)— ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 8. nóvember 1953
SXFUR UTANGARÐS
33. DAGUR
Bóndinn í Bráðagerði
Sk'ít með baf, sagði bóndinn. Mig gildir einu hvort maður-
-’nn h.iitir ráðherra og er það ekki, eða hann er það án þess að
iieita því naini Ég er híngað kominn til þess að tala við ein-
hvern, sem á eitthvað undir sór.
Komið þér aftur á morgun, sagði maðurinn. í dag eru allir
rtjórar og ráðsmenn hættir vinnu fyrir laungu og komnir heim
: il kellínga sinna.
Það kom fyrir ek’.ci, þótt Jón skírskotaði til þess að hann væri
kominn alla leið norðan úr Vegleysusveit til þess að tala við það
opinbera, í téðu húsi fyrirfannst ekki svo mikið sem ein undir-
tylla af lægstu gráðu svo síðla dags, og ennþá síður þeir sem
æðri voru að mannvirðíngu. Hiaut Jón því að hverfa þaðan við
svo búið og þótti ferð sín ekki góð. Flaug honum í hug að heim-
sækja þíngmann sinn öðru sinni á þessum deg:, en þarsem dags-
birta var að hverfa af himni, var hann ekki viss um að rata
þvíað í skini náttbirtunnar varð allt annarlegra helduren um
dag. Hér lilaut hann einnig að horfast í augu við þann vanda að
leita sér gistíngar, því hæpið mundi að treysta á þann náttstað
er han í hafði g:st nóttlna áður. Eftir þeim húsakosti að dæma,
eem þaraa var samankomin á landsvæði, sem slagaði hátt uppí
Bráðagerðislandareignina, þurfti hann tæpast að kvíða því að
iiggja úti. En þegar hann tók að þreifa fyrir sér í nærliggj-
aftdi húsum um möguleika á gistíngu, varð útkoman önnur. Var
jafnvel.ekki örgrannt um, að svör sumra húsráðenda væru
styttíngslegri helduren íslenskri gestrisni hæfði.
Mltt í þessum vanda mætti Jón fulltrúa stéttar, sem hafði
skotið yfir hann skjólshúsi nóttina áður.
Heyrðu mig um hálft orð, góðurinn! sagði Jón. Þú getur
vænti ég ekki, vísað mér á stað þarsem ég get feingið að vera
í nótt?
Þessi gullhnappaði fulltrúi réttvisinnar reyndist viðmælandi í
betra lagi. Stakk uppá þeim stað er hann nefndi Borgina,
< n eftirað hafa virt bóndann fyrir sér, taldi haán þó hæpið að
þreifa fyrir sér me.ð slíkt í því húsi, hinsvegar væri ekki úr
vogi að reyna á Hernum.
Ilvaða lier? spurði Jón. Ég vissi ekki að’við værum í stríði.
Eg á við Hjálpræðisher'nn, sagði lögregluþjónninn. Þeir eiga
það til að hýsa húsnæðisleysíngja þegar vel liggur á þeim.
Jón varð þessum upplýsíngum allshugar feginn. Gaf vel-
gerðarmanni sínum í nefið og kvaddi með handarband’. Lög-
regluþjónninn sagði honum skilmerkilega til vegar, svo Jóni
tókst von bráðar að finna umræddar herbúð’r. Skorti þar ekki
á reisn hið ytra. Bar hann upp erindi sitt við konu eina, er
hann hitti fijótlega innan -dyra, en þegar hún krafði hann um
greiðslu lángt framí tímann tók að fara íllilega um bóndann.
Hafði hann'líka fulla ástæðu til tortryggni í peníngasökum
vegna nýfeinginnar reynslu í þeim efnum. Lá við sjálft að hann
hlypi á dyr, til þess að forðast þriðju féflettínguna á einum
sólarhríng, en í sömu andrá kom úngur maður á vettváng. Var
andlit hans svo forklárað, að augljóst var að í hugrerufngum
hans átti eing’n synd heima. Tókst honum að telja bóndanum
hughvarf og samdist með þeim, að Jón greiddi fyrir eina viku
framí tímann. Eftirað hafa innt greiðsluna af hendi var honum
fylgt til herbergis. Voru tvö rúm þar inni, en annars fátt liús-
gagna. Var honum tjáð að í öðru byggi farandsali einn, sem
, ætti það til að koma se'nt í háttinn.
Jón minntist þess ekki að hafa öðru sinni orðið fegnari að
rláta líða úr Lmum. Poka sínum skutlaði hann svo lángt undir
rúmið að aðgæslu þurfti til þess að uppgötva hann, en sjálfan
sig lagði hann ofaná rúmið strax og hann var einn. Rann
honum fljótt í brjóst, því ofaná nauman svefn síðustu nótt,
hafði dagurinn ver:ð lýjandi framyfir líkindi.
Liðið var á kvöld þegar Jón vaknaði. Stóð þá maður við
rúmstokk hans, og var þar kominn úngi maðurinn með synd-
lausa andllt’ð. Jóni varð snöggvast felmt við og settist fram-
aná, seildist eftir kylli sínum og fékk sér í nefið, átti svo að
heita vaknaður.
Hvað er þér á höndum, góði ? spurði hann svo.
Pdturinn sagðist vona, að hanu misvirti ekki truflunina. Við-
hafði nafngiftina bróðir, en Jón brást ókunnuglega við þessari
frændsemi.
Þú verður að ‘virða mér það til vorkunnar, góðurinn! þó ég
kann:st ekki við það, að við séum skyldir. Ég vissi ekki til þess,
að pápi sálugi hefði borið niður utan Vegleysusveitar, og allra
f-ízt eftirað hann tók að linast til slíkra athafna.
Ongi maðurinn sagði að allir væru bræóur og systur í Jesú,
allur annar skyldleiki ætti ekki rétt á sér. En erindi hans til
þessa lángtaðkomna bróður væri það, að í húsakynnum stofn-
58 menn hafa kastað
spjóti yfir 7 0 metra
Á þessu sumri hafa orðið
miklar framfarir í spjótkasti.
Það vakti fádæma undrun þegar
Bandaríkjamaðurinn Bud Held
kastaði 80,41 m, og áður en
keppnistímabilinu lauk kom á-
líka ótrúleg frétt um að 20 ára
gamall piltur í Póllandi hefði
líka kastað yfir 80 m (80,15).
Auk þessara tveggja afreks-
manna hafa 13 nýir spjótkasíarar
bætzt á árinu í hóp þeirra, sem
kastað hafa yfir 70 metra.
Alls hafa 58 menn kastað
spjóti yfir 70 m. Þar eru Finnar
langflestir eða 16, enda hafa
þeir verið fremsta Þjóð í spjót-
kasti um áratugi. Næst kemur
Svíþjóð með 10, Bandaríkin 8.
Sovétríkin 6, Þýzkaland 4, Pól-
land 3, Júgóslavía 2, Noregur 2,
Ungverjaland 2, Tékkóslóvakia,
Chile, Argentína, Austurríki og
Sviss með 1 hyert.
Það er athyglisvert að af 20
beztu spjótkösturum ársins eru
4 aðeins 20 ára gamlir, en það
eru Egil Eanielssen frá Noregi
Janis Sidlo fxá Póllandi, Vainö
Kuisma Finnlandi og Janos
Kraszna; Ungverjalandi. Vafa-
laust er það Pólverjinn Sidlo, er
mesta mögúléika hefur til að
bæta heimsmetið af þeim sem
nefndir hafa verið. Danielsen hef-
ur kastað 70,77 m, Krasznai 70,33
m, Vainö Kuisma 70,84 m og á
hann vissulega mikið eftir til
að bæta met Nikkanens, sem er
78,70 m.
Sjálfsagt munu þessir garpar
etja kappi á EM í Bern næsta
sumar.
Ef athuguð er heimsmetaskráin
í spjótkasti eru meðal þeirra 18
nafna, sem þar eru skráð eru
14 finnsk nöfn og 3 sænsk. Svi-
inn Erik Lemming var fyrsti
maðurinn, sem skráður var
heimsmethafi, en 1912 kastaði
hann 62, 32 m. og það met.stóð
í 7 ár, er Finninn Myraa kastaði
66,10 m. Enn liðu 5 ár þar til
annar Svij kom til skjaianna og
kastaði 66.62 m.
Árið 1927 fóru menn alvar’ega
að nálgast 70 metrana, er Finn-
inn Einu Pcnttila kastaði 69,88
m. Það varð bó Svínn Erik
Lundquist sem fvrstur kastaði
yfir 70 m í ágúst 1928 (71.09 m).
Þessu næst kom hinn glæsilegi
Jerill Matti Járvinen, sem bætti
hemsmetið hvorki meira né
F”amhald á 11. t-íðu
Dómaranámskeið í frjáls-
um íþróitum
Frjálsiþróttadómarafélag R.vík-
ur hefur ákveðið að halda dóm-
aranámskeið í frjálsiþróttum fyr-
ir áhugasama Reykvíkinga og ut-
anbæjarmenn, sem vilja starfa að
frjálsíþróttamótum. Kennsla hefst
-miðvikudaginn 11. þ. m. í skrif
stoíu íþróttabandalass Reykja-
víkur, Hólatorgi 2. Kennari verð
ur Guðmundur Þórarinsson í
þróttakennari. — Kennsla er ó-
keypis.
Væntanlegir þátttakendur gefit
sig fram, fyrir þriðjudagskvöld
10. þ. m. við Þórarin Magnús-
son, Grettisgötu 28 b, sími 3614
og 7458.
KnöHsfjyrniifréftir
Finnska landsliðið tapaði fyr-
ir Torpedo í Moskva með 3:1.
í hálfleik stó'ðu leikar 1:0 Finn
um í hag.
Ilolland vann Belg'u 3:1 í
leik. sem nýlega fór fram í
Rotterdam.
Frakkland og Egyptaland
skildu jöfn 0:0 er þau áttust
við í Miðjarðarhafsbikarkeppu-
inni nýlega. Franska liðið var
miklu betra og áttu margar
góðar sóknarlotur, en vörn
Egypta var mjög sterk og varð
ist öllum áhlaupum.
Beztu afrek Svía í
frjálsum íþróttum
í ár
Sænskir frjálsíþróttamenn hafa
verið mjög sigursæ’.ir á þessu
ári og sigraö öll þau lönd er
þeir hafa háð landsleiki við.
Hvað snertir beztu afrek í ein-
stökum greinum voru afrekin
betri í fyrra á 11 greinum. Þess
má raunar geta að Rolatid Nils-
son keppti ekki með í ár en
hann var í Bandaríkjunum í
sumar. Hér fer á eftir listi
yfir bezta. árangur í hverri
grein en tölurnar í svigum sýna.
árangurinn frá í fyrra:
100 m. Carlsson, Bránnström,
Trollsás 10.7 (10.7).
200 m. Bránnström 21.5
(21.6).
400 m. Wolfbrandt, Brámn-
ström, 47,4 (47.6).
800 m. Ekfelt 1.49 (1.50).
1500 m. Sune Karlsson 3.44.2
(3.46.4).
3000 m. Albertsson 8.20.6
(8.16.8).
5000 m. Albertsson 14.15.6
(14.15).
10 000 m. Albertsson 30.42.6
(29.23.S).
110 m. grindhl. Lundberg
14.7 (14.8).
400 m. grmdhl. Eriksen,
Ylander 52.2 (52.2).
3000 m. hindrunarhl. Söder-
berg 8.58 (8.55.6).
Hástökk Nilsson 2.01 (2.02).
Stangarstökk Lundberg 4.35
(4.44).
Langstökk Pettersson 7.31
(7.28).
Þrístökk Norman 15.15 (15.21).
Kringlukast Arvidsson 49.36
(52.60).
Kúluvarp Nortl. 15.90 (16.64).
Spjótkast Bengtsson 71.53
(72.04).
Sleggjukast Ringström 54.51
(54.66).
Fyrsfa handksiaft-
Tékkóslóvakía vann Rúmeníu
í forkeppni HM-keppninnar með
1:0. Markið kom í f. hálfleik.
Með sigri þessum hefur Tékk-
óslóvakía tryggt sér réttinn til
keppni í úrslitaviðureign móts-
ims næsta ár.
Frétflr írá ISÍ
Blaðið Dagur á Akureyri hefur
sent ÍSÍ 350 krónur t’l lamaða
íþróttamanmsins sem honum var
þegar afhent. — Er hann mjög
þakklátur fyrir gjafirnar og bið.
ur að flytja gefendum beztu
þakkir.
Ævifélagar ÍSÍ eru nú orðn'r
372 að tölu. Þeir sem óska að
gerast æviíelagar Sambandsins,
eru vinsamlega beðnir að láta
skrásetja sig á skrifstofu. ÍSÍ,
Amtmannsstíg 1, Reykjavík,- —
Skrifstofan er opin daglega frá
kl. 10 til 12, og eltt til fimm.
Finnski knattspyrnumaðurinn
Lethovirth^, hefur gerzt at-
vinnumaður hjá franska félag-
inu Rauða stjarnan. Er hann
byrjaður æfingar og væntir fé-
lagið mikils af honum enda
teknískur mjög. Það er aðeins
einn erfiðleiki með hann og
það er að hann talar aðeins
finnsku og rússnesku ,,svo eng-
inn getur sagt neitt við hann“,
eins og það er orðað.
Allir leikmenn sem léku í FI
FA — England leiknum fengu
til mynja forláta vekjara-
ldukku, gullroðaða í knattarlög-
un.
Chelsea liel'ur boðið Dyna-
mo að koma til London næsta
vor og keppa þar. Sagt er að
boðinu hafi verið tekið og Chel-
sea muni fara til Moskva á
eftir.
í kvöld kl. 8 hefst fyrsta hand-
knalt’eiksmótlð á þes.su nýbýrj-
aða keppnistímabili, en það er
hraðkeppnismöt H, K. R. R.
Ei- þetta úk.siáttárkeppni 'og
stendur mótið því ekki yfir nema
2 kvöid, í kvöld og mánudags-
kvöld.
Mótið fer að sjálfsögðu fram í
húsi 1 B. R. að Hálogalandi.
Verður aðeins keppt í meistara
flokki kvenna og karla.
I kvennakeppninni verða aðeins
tvær sveitir, sigurvegararir frá
í fyrra, Fram, og svo Valur.
I karlaflokki eru það aftur á
móti 8 lið, og keppa fyrri daginn
sem hér segir: Fram — Víkingur,
Valur — F. H., Ármann ■— K. R.
og I. R. — Þróttur. í fyrra vann.
Valur þetta mót. Keppt verður
eftir hinum nýju reglum þar sem
hindrun með örmum er ólögleg.
Verður gaman að siá hvernig
flokkarnir eru, og hverju þeir
lofa.