Þjóðviljinn - 24.11.1953, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 24.11.1953, Qupperneq 8
b) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 24. nóvember 1953 iLFUR UTANGARÐS 46. DAGUR Bondinn í Bráðagerði öllum aungum þegar kippt var í spotta. Ég er' illa svikinn, et Jón ýngsti í Bráðagerði á ekki eftir að hafa gaman af þessu skripi þegar þarað kemur sagði Jón og stakk þessum ángaláog í vasa sinn. Strax og dansinn hófst hýrnaði heldur betur yfir Jóni, því þarna þekkti hann aftnr polka, ræl, marsúrka og aðra þá dansa, sem hann hafði stigið af kunnáttu á úngdómsárum sínum. Beið hann ekki boðanna Ivddur stikaði rakleitt til þíngkonunnar og hneigði sig djúpt. Þingkonan brosti bliðlega við honum, sveif í fár.g hans og þyrluðust þau útá dansgólfið. Kom brátt í Ijós að hann var ennþá sænnilega að sér tirfotánna, þótt skemmtanir - af þessu tagi gerðus; sjaldgæfar í Vegleysusveit í seinni tíð. Pótamennt þíngkonunuar var einnig í besta lagi. Tóku þau gólf- ið í háum stökkum og hríngsnerust ýmist réttsælis eða ráng- sælis svo hratt að va"t mátti auga á festa. Fékkst Jón ekki um, hótt téð viðbrögð orsökuðu hrundíngar nokkrar við þá, sem voru svo óforsjálir að verða á vegi þeirra. Þegar dansinum lauk, j.iddi hann þíngkonuna til sætis af hofmannlegri kurteisi og Jékk sér siðan sæti við hlið hennar, tók upp rauðdropóttan vasaklút og þurrkaði af sér svitann, fékk sér þaráeftir í nefið. Bæriiega tókst okkur upp, sagði liann svo og púaði, því sannast sagna hafði hann mæðst eigi alllítið. Einhverntíma hefði maður þó ekki blásið úr nös eftir smásprett á boi’ð við þenna. Litaraft þíngkonunnar sýndi ljóslega, að dansinn hafði komið hlóði hennar á meiri hreyfingu en atvinna hcnnar orkaði að jafnaði, var því ekki láandi, þótt hún væri ívið andstyttri 1 Iielduren hún átti vanda til. Það er líka hverjum manni vorkunnarlaust að spretta úr spori með svo léttstiga dís í fángi og þú ert, heillin, hélt Jón afram. Ég vissi ekki meira af þér en puntstrái. Mér er eiður sær, að ég hafi nokkru sinni komist í kast við kvenmann, sem ir liprari í snúníngum en þú. Þíngkonan galt honum gullhamrana með tilliti, sem tjáði launúngarlaust, að hún kunni að meta riddaramennsku þeirrar íegundar, sem Jón var fulltrúi fyrir. Hjölnðu þau saman um stund og veik Jón þá að ræðu þing- honunnar fyrr um kvöldið. Leiddi hann skilmerkileg rök að þeirri skoðun sinni, að kona ætti aðeins að vera kona, í hæsta Ingi þíugkona. Mundi það lítílli gæfu stýra að raska því fyrir- komulagi, sem skaparinn hafði r upphafi talið gott og gilt í þeim rfnum, og jafnfráleitt og það, að kallmaður yrði nokkru sinni :íiunað en kallmaður. Ekki vildi þíngkonan fallast á sjónar- mið bóndans og hélt einarðlega fram þeirri skoðun sinni, að «11 ógæfa mannkynsins væri sprottin af þeirri rót, að konur heföu ætið verið undirlægjur kallmanna. En nú mundi sú ó- svinna upprætt með öllu, því hún hefði í samníngu frumvarp þaraðlútandi og ef samþykkt yrði gæti fljótlega rekið að því, : ð róttækar breytíngar yrðu á lögmáli því, er híngaðtil liafði ráðið í téðum efnum. Þrátt fyrir byltíngarkennd sjónarmið þíngkonunnar í sambúð icynjanná, sá Jón einga ástæðu til þess að láta slíkt leiða til vinslita að þessu sinni. Hann söðlaði því yfirí léttara hjal milli þess, er hann brá sér framá gólfið með þíngkonuna í fánginu. Reyndist hann flestum úthaldsbetri og heimtaði meira líf og íjör, ef honum þótti slá á gleðskapinn. Meira líf og fjör! kölluðu strákarnir upp eftir honum, og spöruðu eltki að ýta undir bóndann. Þú ert meiri kallinn! sögðu þeir einhverju sinni við hann, er Jón tók sér augnabliks hvíld til þess að þurrka af sér svitann og fá sér í nefið. O, þetta er þó ekki nema svipur hjá sjón hjá því sem ég gat, þegar ég var úngur, sagði Jón. Gamlir hrútar mæðast fljótt, það íinn ég á sjálfum mér. Það skal þurfa traustar gólffjalir til þcss að þola dans af þessu íagi, sögðu strákarnír. Á duggarabandsárum mínum voru gárúngarnir vanir að segjá, nö loftið í þínghúsinu heima væri í meiri hættu helduren gólfið, þegar ég fékk mér shúníng, ansaði Jón. Þá var maður léttur á sér, dreingir mínir. Hún var ekki nein uppgerð lífsgleðin hjá únga folkinu í þá tíð. En það sem á að hcita úngt núna hengsl- ast áfram og dillar dyntinum einsog sauðkind með fjöruskjög- i:r. Þaö verður ólíklega borubrátt komið á minn aldur. Hvernig ferðu að því að vera svona fjörugur, gamli minn? spurðu strákamir. Það er enginn vandi, greyin mín, ansaði Jón. Sá, sem er úngur í anda verður aldrei gamall. Þegar' hér var komið slitnaði uppúr viðræðunum, því Jón sá Pnlll IEK ITSTJÓRI. FRÍMANN HELGASON nLeikur aldarinnar" Bretar bjartsýnir eftir jafntefli Ungverja við Svía Um engan' knattspymuleik hefur verið meira rætt og rit- að en leik Bretlands og Ung- verjalands, sem fram fer á Wembley á morgun. Brezkir sérfræðingar hafa verið æði svartsýnir á leik þcnnan fyrir Breta. 1 leiknum viö Wales og síðan við FIFA-liðið náðu þeir jafntefli á vítaspyrnu sem kvik- myndir hafa sannað að var röng, og það sem merkilegra var að það átti að dæmast aukaspyrna á Breta sem lék ,,rullu“ sína svo vel að dómar- inn sá ekki við honum, og telja ýmsir að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem Breta þessum hefur tekizt að leika á dómarana. Síðan hafa þeir svo kcppt við Norður-Irland. og eftir þann leik ráku sérfræðingarnir upp óp mikið í blöðum og vildu burt með. allt liðið og að finna yrði nýtt lið gegn Ungverja- landi. Þetta lið mundi stórtapa 25. nóv. á Wembley. Þegar að því kom að Svíþjóð skyldi keppa við Ungverja brugðu forráðamenn FA, enska knattspyrnusambandsins, og auðvitað blaðamctin sér austur fyrir „járntjald“ til þess af eigin raun að sjá þetta lið sem ógnáði svo mjög knattspyrnu- heiðri brezka heimsveldisihs, sem ekki hefur tapað knatt- spyrnuleik heima fyrir nokkru landsliði hingað til. Eftir jafn- tefli Ungverja við Svía hefur blaðið snúizt alveg við. Nú eru Bretar jafnöruggir að sigra eins og þeir voru áður vissir um að tapa, og að það verði þeir sem bindi enda á sigur- göngu ungverska landsliðsins í 3-4 keppnistimabil þar sem það hefur ekki tapað í 24 leikjum í röð. Nú vilja þeir litlar breyting- ar á liðinu, sem mun verða þannig: Merrick, Richardy, B. Wrigth, Eckersley, H. John- stone, Jim Dickensen. Fram- herjar: Finney, Hassall, Loft- house, Ernie Taylor, Matthews. 776 kr. og 698 kr. fyrir 10 rétta Úrslit leikjanna á síðasta get- raunaseðli komu mörg nokkuð að eklti er einhlýtt að vera vel á óvart og sýndi það enn á ný, kunnugur félögunum, því að á- valt gerist eitthvað óvænt í knattspymu. Bezti árangur sið- ustu leikviku var aðeins 1-0 réttir og reyndist sá árangur hjá 4 þátttakendum, var af voru 2 með tvöfaldan vinning, hlýtur annar ?76 kr. fyrir 2/10 oglO/9, en hinn 698 kr. fyrir 2/10 og 8/9. Vinningar skiptust þannig: 1. vinningur: 193 kr. fyrir-10 rétta (6). 2. vinningur: 39 kr. fvrir 9 rétta (59). Stanley Mortensen er talinn eiga „heiðurinn“ af víta- spyrnunni sem Englepdingar fengu dæmda á slðustu- mínútu leiksins við FlFA-liðið h haust. Hann leikur ekki með enska liðinu á morgun. „England vinnur“ Sérfræðingamir sem fóru til Búdapest segja m.a. í skeytum til blaða sinna: Skemmtilegar fréttir frá Búdapest. Þú getur lagt alla peningana þina á. Breta því að England vinnur leikinn 25. nóv. Sé liðið, sem barðist við Svía í dag, þar sem úrslitin urðu 2:2, hiö rétta. landslið, þá litur út fyrir að liðið hafi verið ofmetið. Það verður enginn vandi fyrir enska liðið með sterkum hindrunum og ágengni að eyðileggja þennan stutta leikandi samleik, etr knattmeðferðin er frábær. Hinn e.nski þjálfari sænska liðsins sýndi hvernig á að taka þá, og það á enska liðið líka að gera. Og það sem Svíar geta eigum við að geta líka, og svolítið betur. „Við verðum að leika betur á Wembley“ Annars virðist sem heppniit hafi ekki verið með Ungverj- um í leiknum við Svia. Á Framhald á 11. síðu. TILKYNNIN6 um umferð í Reykjavík Samkvæmt ályktun bæjarstjórnar Reykjavíkur hefur verið ákveöinn einstefnuakstur um Skóla- strœti, frá Bankastræti að Amtmannsstíg. Jafn- framt eru bifreiðastööur bannaöar í nefndu stræti. Ennfremur hefur bæjarstjórnin samþykkt aö banna bifreiðastööur viö Nýlendugötu, norðan megin götunnar. Þetta tilkynnist hér meö öllum, er hlut eiga aö máli. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 24. nóvember 1953 Sigurjón Sigurðssön. Rauðrófur í V2 kg. dósum MATBOR© Lindargötu 46 — Símar 5424 og 82725

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.