Þjóðviljinn - 05.12.1953, Qupperneq 6
6) — ÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 5. desember 1953
illÓOVIUINN
TJtgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (ób.), Sigurður Guðmundssoa
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Asmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnúa Torfi Ólafsson.
Auglýsinga^tjóri: Jóns'teinri Haraldsson.
Kitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
19. - Simi 7500 (3 línur).
Askriftarverð kr. 20 á mánuði i Reykjavík og nágrenni; kt. 17
annars Btaðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Sekir og hræddir fulltrúar
Fyrir nokkrum dögum barst bæjarráði Reykjavíkur á-
skörun undirrituð af íbúum smáíbúðahverfisins við
-Suöurlandsbraut um að bætt veröi úr þeim tilfinnanlega
skorti á frums'tæðustu réttindum og þægindum sem þetta
íbúöahverfi hefur búiö viö um margra ára skeið. Fara
íbúarnir þess á leit að húseigendur í hverfinu fái venju-
leg lóðaréttindi meö húsum sínum, gengið veröi hiö fyrsta
frá skipulagi hverfisins, nothæf vatnsleiðsla lögö, frá-
rennslisleiöslum komiö í viöunandi horf og götuíýsing
hverfisins bætt.
Þessar kröfur íbúanna í hverfinu sýna ljóslega til hvers
konar útlegðar fólkiö sem þarna býr hefur verið dæmt af
bæjaryfirvöldum íhaldsins. Eins og aðrir bæjarbúar verð-
ur þaö aö inna af hendi alla skatta og skyldur til sameig-
iftlegra þarfa bæjarfélagsins. En því er neitað um allan
þann rétt sem fylgja á skyldunum og aörir íbúar Reykja-
víkur njóta þótt í misjöfnum mæli sé. Aðstaða þess fólks,
sem þarna hefur komið sér upp íbúðarhúsum, þrátt fyrir
réttleysi, byggingabann og lánsfjárskort stjórnarvald-
anna, kemur gleggst í ljós með því að birta þá greinar-
gerö sem fyígdi áskoruninni til bæjarráös. Er hún svo-
'nljóöandi:
„Eins og bœjarstjórn er kunnugt vísaði bœrinn okkur
hingað til að byggja okkur íbúðarhús, og höfúm við
flestir af litlum efnum, reynt að vanda til þeirra eftir,
föngum, í trausti þess að bœrinn léti okkur njóta sömu
réttinda og þœginda og íbúa annarra hverfa í bœnum
hvað snertir lóðaréttindi, rafmagn, vatn og götur, en elck-
ert af þessu er enn komið í viðunandi horf.
Langtímum saman hefur t.d. skort vatn í miklum hluta
hverfisins, og má öllum Ijóst vera hve miklum örðugleik-
um bundið er að viðhafa nauðsynlegt hreinlœti við slík
skilyröi, þegar ekki er hœgt að þvo þvotta og jafnvel ekki
börnunum áður en þau eru háttuð á kvöldin. Frárennsli
er ekkert annað en gamlar lagnir frá liernum, og það sem
íbúarnir hafa lagt sjálfir. Götur milli húsanna eru ekki
aðrar en þœr sem íbúarnir hafa sjálfir lagt.
Við fáum ekki skilið hvers við, íbúar smáíbúðahverfis-
ins við Suðurlandsbraut, eigum aö gjalda hjá bœjarstjórn-
inni. Við greiðum okkar útsvör og .skatta til bœjarins, án
þess að njóta í staöinn þeirra sjálfsögðustu réttinda og
þœginda sem ibúar annarra bæjarhverfa njóta fyrir þau
gjöld.
Við vonum fastlega að bœjarstjórn brégði nú fljótt og
vel við framanskráðum óskum og kröfum um jafnrétti
við aðra bœjarbúa.“
Þessar sanngirniskröfur fólksins í smáíbúðahverfinu
við SuÖurlandsbraut flutti Ingi R. Helgason, bæjarfull-
trúi Sósíalistaflokksins, í tillöguformi inn á bæjarstjórn-
arfund í fyrradag, en áöur haföi borgarstjóri neitaö
kjörnum fulltrúum hverfisbúa um aögang aö bæjarráös-
fundi til þess aö skýra kröfurnar og fylgja þeim eftir.
Viðbrögð íhaldsins urðu meö venjulegum hætti. ÞaÖ vís-
aði tillögunni til bæjárráðs gegn atkvæðum allra fulltrúa
minnihlutaflokkanna þriggja. Þar skulu brýnustu hags-
munamál þessara útlaga bæjarstjórnaríhaldsins kistulögð
viö hliöina á fjölmörgum öörum nauðsynjamálum Reyk-
víkinga.
En umræðurnar á bæjarstjórnarfundinum í fyrradag
sýndu svo ljóst sem verða mátti að nú er íhaldið hrætt.
Það voru hræddir og sekir fulltrúar sem stóöu upp hver á
fætur öðrum til þess að afsaka slóðaskapinn og aðgerða-
leysið sem einkennir öll afskipti bæjarstjórnarinnar af
helztu hagsmunamálum reykvískrar alþýðu. Ótti íhalds-
ins kom ekki sízt fram í þeim endurteknu fullyrðingum,
að sósíalistar flytji mál fólksins inn í bæjarstjórn nú
vegna þess eins og kosningar séu í nánd!
Væntanlega sanna Reykvíkingar íhaldinu að ótti þess
er réttmætur og á rökum reistur. Allir framfarasinnaðir
Reykvíkingar þurfa að sameinast í bæjarstjórnarkosn-
ingunum í vetur um að létta hinni dauöu hönd íhaldsins
af þeim margháttuöu framfaramálum sem velferð og hags
munir almennings krefjast að hrundið verði í fram-
kvæmd af framsýni og myndarskap.
Forsprakkar Alþýðuflokks og Þjóðvarnar á
Akurevri halda áfram að skemmta skrattanum
j
Kafna tilboði sósíalista sem hefði tryggt vinstn
flokkunum meirihluta í bæjarstjérn fikureyrar
24. nóvember s.l. seridi Sósí-
alistafélag Akureyrar A þýðu-
flokksfélaginu þar á staðnum
og Þjóðvamarfé’aginu tilboð
um samvinnu í bæjarstjórn-
arkosningunum í vetur. Bentu
sósíalistar á að samkvæmt úr-
slitum Alþingiskosninganna í
sumar liefði þessa þrjá flokka
aðeins vantað nokkur atkvæði
til þess að fá sameiginlegan
meirihluta í bænum og Því
marki ætti a* vera auðvelt að
ná með samstarfi í bæjar-
stjórnarkosningunum. Einnig
lögðu sósíalistar fram í bréfi
sínu drög að málefnasamn-
ingi þessara Þriggja flokka.
Þetta ti'.boð vakti mikla at-
hygli alinennings og fékk hin-
ar beztu undirtektir stuðn-
irigsmanna þessara þriggja
flokka, og vitað var að einnig
ýmsir forustumannanna voru
sömu skoðunar og vildu
hætta að „skemmta skrattan-
um“ eins og Bragi Sigurjóns-
son komst að orði. Ed stjórn'r
flokksfélaganna báru tilboðið
undir floKksklikurnar hér í
Reykjavik og fengu algert
bann. A þýðuflokksfélag Ak-
ureyrar sagði í svari sínu aö
það „vísi til ályktunar Al-
þýðuflokksstjórnarinnar varð-
andi samstarf við Sós’:a'ista-
flokkinn" og bætti síðán við
hinu venjulega geðbilunar-
tali um Rússa! Og Þjóðvarn-
arflokkurinn spurði fyrst A1.-
þýðuflokk'im hvernig liann
ætti að svara og tók svo sömu
afstöðu.
Þessi neitun hefur vakið
mikla gremju allra vinstri
sinn.aðra kjósenda á Akureyri,
og þeirri skoðun vex nú ört
fylgi að alþýðan verði sjálf
að tryggja þá einingu sem
misvitrir foringjar hafna með
því að fylkja sér um eina
flokkinn seni býður og skipu-
leggur samvinnu. Það er svar
almennings við sundrungar-
starfi því sem ' unnið er í
þágu afturhaldsflokkar.na
einna.
Þjóíviljanuin þykir rétt að
kynna lesendum sínum hvað
þaft var sem forsnrakkar Al-
þýðuflokksins og Þ.jóðvarnar-
flokksins á Akureyri höfruðu
og birtir bréf sósíalista
í heild liér á efilr:
=fiSS?5=í
..Hér í bænum er ríkjandi
mikil og vaxandi óánægja um
þá meðferð og stjóm, sem
málefni bæjarins hafa hlotið á
kjörtímabili þeirrar bæjar-
stjómar, er lætur af störfum
nú eftir áramótin. Þessi rétt-
mæta óánægja stafar fyrst og
fremst af þvi, hve fráfarandi
bæjarstjórn hefur verið sinnu
lítil um að rækja það mikil-
væga hlutverk sitt að tryggja
bæjarbúum næga atvinnu, og
hefur að meirihluta lagzt
gegn þeim tillögum, sem mi'ð-
að hafa í þá átt. Ennfrem-
ur að þrátt fyrir litlar at-
vinnulegar framkvæmdir hafa
útsvarsbyrðar bæjarbúa og
önnur gjöld farið síhækkandi
og að ýmsar frumskyldur bæj
arstjórnar gagnvart íbúum
bæjarin3 og afkomu bæjarfé-
lagsi.ns hafa verið illa ráíktar-
Sjálfstæðisflokkurinn og
Fraiðsóknarflokkurinn bera
sameiginlega ábyrgð á stjórsi
bæjannálanna á síðasta kjör-
tímabili, þar sem þeir kusu
bæjarstjórn sameiginlega og
hafa síðan stýrt bænum sam-
eiginlega. Munu þeir án alls
vafa gera það framvegis. svo
fremi ,að þeir hljóti nægilegt
kjörfylgi í komandi kosning-
uffi-
Það er ciú orðið vaxandi í-
liugunarefni al’ra frjálslyndra
og framfarasinnaðra bæjar-
búa, hvernig við því verði
spornað, að þessum tveim
flokkum takist enn á ný að
ná tökum á stjórn bæjarmál-
anna og lialda áfram þeirri
stefnu kyrrstö'ðu og aftur-
hald3, sem hér hefur ríkt und
anfarið, og hvort ekki sé
finnanlegur grundvöllur fyrir
samhentari baráttu vinstri
aflanna en verið hefur, og þá
jafnframt, hvort unnt væri
að mvnda samhentan og sam-
starfshæfan meirihluta að
kosningum loknum á fram-
farasinnuðum grundvelli.
Vér teljurn að þetta sé
mögulegt. MáleSralegur á-
greiningur meðal vinstri
manna um máiefni bæjarins
er ekki það miki’I, að hann
þurfi að standa i vegi fyrir
nánu samstarfi þeirra. Sigur-
mögnleikar- slíkrar samvinnu
ver'ða að teljast allmiklir. þar
sem bá þrjá flokka. Sósíalista
flokkinn, A'býðuflokkinn og
Þjóðvainarflokkinn. sem hér
gætu komið til greina, skorti
í síðustu Alþingiskosningum
aðeins örfá atkvæði til bess
að koma að sameiginlega
fimm brfiarfulltrúum, ef um
bæjarstiórnarkosningar hefði
verið a'ð ræða, og vitað er. að
afturhaldsfiokjínrnir hafa báð
ir’ stórtapað fvlgi síðan þær
fóru fram.
I samræmi við þiað, sem
hér hofur verið s&ert. .teJur
Sósíalistaflokkuri.nn. að. hags-
munir vinnandi fólks í bænum
leggi vinstri flokkunum þá
skvldu á herðar að reyna til
þess ýtrast.a að sameina Imafta
sína e.g bera fram til sigurs
friálslvnda umbótastefnu í
málefnum bæjarins Sósíalista
félag Akurevrar þvður því hér
með Alþýðuflokksfélagi Akur-
eyrar og Þjóðvamarfé'agi Ak-
urevra" samstarf við næstu
bæjarst'iórnarkosn’rigar á eft-
irfarandi grundvelli:
1. Félögin bjóði fram sam-
eiginlegan lista við kosning-
arhar, sem sé skipaður eftir
nánara samkomulagi þeirra í
milli-
2. Félögin geri með sér
málefnasamning, er bæjarfu1!-
trúar hin-, sameiginlega lista
starfi eftir á næsta kjörtíma-
bili og séu aðalatriöi hans
þessi:
Atvinnuleysi í bænum verði
útrýmt eftir því sem stendur
í valdi bæjarstjórnar, m’ a.
með eftirfarandi aðgerðum:
Byggt verði hraðfrystihús,
sem geti fullunnið verulegan
hluta af afla togaranna og
verði það vísir áð fulikomnu
fiskiðjuveri, er hafi með hönd
um niðurlagningu og niður-
suðu fiskafurða og fleiri verk-
unaraðferðir til fullrar vinnslu
á sjávaraflanum.
Togaraflotin.n verði aukinn
um a. m. k. einn nýjan tog-
ara- Aðstaða togaraútgerðar-
innar verði bætt með því að
komið verði upp fyrirhugaíri
togarabry gg j u.
Dráttarbraut, sem geti tek-
ið allt að 1200 smálesta skip
til viðgerðar og viðhalds,
verði byggð.
Bæjarstjórn beiti sér fyrir
því með öl'um tiltækilegum
ráðum, að tunnuverksmiðjan
verði starfrækt hálft árið- •
Allt ræktanlegt land í eigu
bæiarins verði tekið til rækt-
unar og fulínýtt á þann hátt,
s»m flestum bæiarbúum komi
að gagni. Aðstaða þeirra, er
kvikfjárrækt stuada, verði
bæt.t.
Öll hafparskilyrði verði
bætt með það fyrir augum,
að Akureyri geti orðið um-
hleðsluhöfn í vaxandi mæli.
Örvað verði framtak félaga
og einstaklinga til hess að
koma á fót nýjum iðnfvrir-
tæírjum með a]lri þeirri aðstoft
og ívilnunum, sem fært verðui-
að veita.
Gengið verði fast eftir því,
að Akureyri hljóti réttmæta
hlutdeild í atvirmilr.gum fram
kvæmdum ríkisins og hugsan-
legri aðstoð þe=s við atvirau-
framkvæmdir bæ.iarfélaganra-
Samráð verði haft við verk-
lýðssamtökin í bænum um at-
vinnumálin.
Byggt verði e?a, stnðning-
ur veittur líknarfélösum til
að koma unn elliheimili.
Barnaskóli verði byggður á
Oddeyri Su.ndhöllin verði full-
gerð. Hrað^ð verði fram-
kvæmdum við íbróttasvæðið.
Bæia;rstió"ri beiti áhrifum
sínum til þess að bæiarfélögin
fái aukna tekiustofna svó að
unnt verði aft létta á útsvars-
byrðunum. Útsvör og fast-
eignagiöld verði færð til rétt-
látari skimmar en nú er. IJig-
tekjur verði með öllu útsvars-
frjálsar-
Flýt.t verði skipulag'ningu
miðbæiarms og Oddeyrar.
Strandgatan verði fullgerð og
hafin framhaldsbvgging Skipa
götu. Viðhald vega verði stór-
bætt og 'eif.ast við að gera
helztu götur úr varanlegu
efni
Byggingalánasjóður verði
aukinn. Bærinn bvggi eigið
húsnæði fyrir skrifstofur sín-
ar.
3 Ráðiin verði nýr bæjar-
stjóri rg væri æskilegast að
bæjarstjóraeftii hins sameig-
Framhald á 11. síðu