Þjóðviljinn - 24.12.1953, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 24.12.1953, Blaðsíða 17
Jólin 1953 P JÓÐVl L J 1 N N SÓLSKRÍKJAN (Framhald af bls. 7). fara um hana alla og heyrði hana grípa andann á lofti. Síðan lét hún fallast hægt niður á sængina, ofðálaust og eðlilega, eins og fæturnir væm of veikir til að bera hana. Ifann heyrði musterisklukkurnar liringja tiL morguntíða, of snemma. Dagsbrún færðist á loft og Húngníang kom til að sækja húsmóður sína. Inging reis upp og klæddist í fölri morgunskimunni. Hún hagræddi hári sínu lauslega með hendinni og gekk á búrt með þernunni. Þreyta og viðkvæmni lýsti sér í svip hennar. Hurðin fcll hljóðlega að stöfum. Alla nóttina haíði hún ekki mælt orð frá vörum. Hann hafði sagt það sem tálað var, og þegár hann lýsti tilbeiðslu sinni á henni, svaraði hún aðeins með andvötpum og heitri og raltri sncrtingu vara sinna. Júan settist skyndilega upp og fannst sem þetta hefði allt saman gerzt í draumi. En sterk ilmvatnsanganin lá enn í loflinu og i handklæöinu voru farðablettir. Þetta hafðíverið raunyeruleikur. Þessi dularfulla stúlka, upphafin og ósnert- anleg að því er virtist, hafði bugazt fyrir ústríðu, sterkari cn hún fengi móti spornað. Var það ástríða — eða var það ást? Húii hafði komið til hans án þess að blygðast sín. Hann minnlist þess, hve mikinn þunga hún hafði lagt í orðin sem hún mælti til hans liið fyrra sinni: „Yðúr myndi slcjátlast, 17 ef þér hélduð, að ég hafi stefnt yður til móts í nokkrum ósæmilogum tilgangi. Misskiljið inig ekki“. llvað vakti fýrir henni með þcssu? Nú, húji hafði komið, og það var nóg. Kvöldið áður hefði hann ekki trúað, að það gæti átt sér stað. Þvílíka hamingju hafði hann aldrei þekkt; hann var skyndilega hrifinn inn í aðra veröld, stóð á ókunnum landa- mærum nýrrar fegurðar og svimandi sælu. Ilann taldfttund- irnar fram til miðnættis, þegar hún myndi birtast aftur í iaiæklega herberginu háns eins og lýsandi pcrla eða hlýr og glóandi jadissteinn, og breyta því í paradís með töframætíi ástar sinnar. En hún hafði ckki gefið honum í skyn á neinn hátt, að hún myndi koma aftúr næstu nótl. Það er mjög trúlegt, áð stúlkan hafi hrapað að þessari heimsókn í skyndilegu ástríðukasti. Einnig má vera, að hún hafi viljað gefa sér tíma til þess eftir fyrstu nóttina að áttá sig á þessu ævintý'ri, sem hún hafði stofnað til af svo lítilli forsjá. Júan gáfst upp við að reyna til að skilja konur. Hams vakti og beið nótt eftir nótt, blóðið hamraði í áeðum háns, og stöðugt gerði hann sér von um að álfadrottningin myndi aftur sækja liann heim. Var þessi bið ennþá einn af duttl- ungum hennar? Hafði hún komið á fund hans til þess eins að láta eftir löngun sinni og kenjum? Allár nætur sat hann einsamall uppi í hérbergi sínú. Ilann hafði keypt reykelsi í tilcfni, af komu hennar og horfði á kalda Öskuna falla niður í brennslukerið. Hann reyndi að leiða hugann frá bið sinrii, sem virðast mátti vonlaus og BABÚSKA; Langt í burtu, góðu menn; langt í burtu í Bctlehem. SJÖUNÐI: Betlehcm, gamla kona — hvar er Betlehem? ÁTTÚNDI: Hef aldrei heyrt þann stað nefndan á minni lífsfæddri ar:vi. En þú? HINIR: Aldrei. NÍUNDI: Hvað heitir þú, garrila min? BABÚSKA: Babúska, lierra. TfUNDI: Babúská? Neí, þú veröur áð loita annarsstaðar fyrir þér, Babúska. íteyndu lengra úti í borginni. A.LLIR: Já, þreifaðu fyrir þérlengra úti í borginni, Babúskn. Lengra í burtu. I3ABÚSKA: Þetta segja allir. ELLEFTI: Komum, bræður, við verðum að fara að snúa oitkúr að verzlunarmálunum. BABÚSKA: Lengra í burtu, Babúska! Reyndu lengra í burtu! Alltaf lerigra í burtu. Ég íinn hann aldrei. En inig langaði svo mikið til þéss. Mig langáði svo mikið að gefa hopum þessi litlu leikföng. Það cru einmitt svona hlútir sem btii’n háfa svd gaman af. En harin fær þaii aldréi .... aldrei .... nldréi .... 1 BöRNIN: Aumingia Babúska. * ; ....... , .04-91 dl5» MAMMA: Hún hélt ófram íerð sinni, og spurði og spurði, en það var alltaf sama svarið. ÍVAN: Þetta er sorgleg saga. MAMMA: Nei, ekki svo mjög þegar alls ér gaett. Friðar- konungurinn sýndi Babúsku miskunn, eins og hann sýnir öllum. Babúska elskaði hanii, og leitaði hans, og vlldi gefa honum gjafir — og þéssvegha sendir liann haria cnn í dag til barnanna, þegar jÓlin koma, með léikfong í skjóðurini sinni. Og of þau eru sofandi þá leggur bún þau á svæflana þeirra, og brosir; og heldur síðan áfrám. út í snjóinn og sogir — hvað liaídiö þið hún segi? BÖRNIN: Áfram, Babúska, longra. Lengra. MAMMA: Já. Og svona var nú sagan. Og farið þið nú að liátta, öll saman. Babúska verður glöð ef þið verðið sofnuð þegar hún kemur. Það er það minnsta sem þið getið gert fyrir hana. BÖRNIN: Góða nótt, mamma. MAMMA: Ég kem upp með ykkur .... RÖDD BABÚSKU ÚR FJARSKA: Áfram, Babúska, áfrám. Lengra, Babúska, lengra. Alltaf lengra og lengra.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.