Þjóðviljinn - 17.03.1954, Qupperneq 3
2) — ÞÍlöáÐVÍLJÍNN — Miðvikudagur 17. márz 1954
Kóngurinn og dýrin
Sjatar konungur sat að ríki sínu
sem áður, og þó cingin stórtíð-
indi gerðist þar, þá var þó ekki
alveg tíðindalaust fyrir því.
Hann fór ckki margar veiði-
ferðir eftir þetta, en hann fór
þeim mun oftar um ríki sitt til
að gæta laga og rjettvísi og
líta eftir störfum þjóna sinna,
sem hann setti þegnum sínum
til verndar. Hann fór um landið
þegar að uppskerunni kom og
leit sjálfur eftir því, að sá
skatíur gyldist refjalaust, sem
hann hafði sett til uppeldis fá-
tækum ‘mönnurn. Ilann gaf
helmíng af öllum tekjum sínum
til uppeldis sjúkum mönnum og
gerði það síðan margur að hans
dæmi. En merkilegust af öllu
voru þau lög, sem hann setti til
verndar dýruníim. Hann bann-
aði allar skemmtiveiðar á hverj-
um tíma árs sem var. Hann
bannaði og að særa eða lífláta
nokkura móður, sem afkvæmið
fylgdi, hvort sem það væri fugl
með úngum, ær með lambi eða
hind með kálfi, og eins og gera
úngviðinu nokkurn skaða með-
an það fylgdi mæðrum sínum,
og enn nú eitt bannaði hann:
Hann lagði stránga hegníngu
við að nokkurri skepnu væri
mein gert eða hún svift lífi frá
því sól geingi undir og til þess
sól risi upp, ,,því guðirnir hafa
gefið nóttina öllum skepnum til
friðar, sem á jörðinni lifa“.
Þetta og margt annað fleira
leiddi hann i lög í ríki sínu ..
'(Þorsteinn Eriingssori: Málleys-
írigjar).
-.J 1 dag er, miSvikudagurinn 17.
™ marz. Gcirþrúðardagur. — 76.
dagur ársins. — Sóiarupprás kl.
6:41. Sólarlag kl. 18:33. — TUngl
í hásuðri kl. 23:29. — Árdegishá-
flæði ld. 4:26. Síðdegisháflæðl kl.
16:42.
Esperantistafélagið AtJRORO
heldur mikilvægan fund i Eddu-
húsinu, uppi í kvöld klukkan 9.
— Ríkisstjórn Austurríkis hefur
3ýst‘ sig reiðubúna að gera esper-
anto að skyfidunámsgrein í skól-
um landsins, ef fjögur ríki önnur
gera það samtimis. — Þetta nýja
viðhorf verður rætt á fundinum
og hugsanlegar aðgerðir i málinu,
og er því náuðsyn’egt-, að félagar
fjölmenni. Einnig eru allir aðrir,
sem áhuga hafa á hugmyndinni
um alþjóðamál velkomnir á fund-
inn.
Eæknavarðstofan
er í Austurbaajarskólanum. —
Simi 5030.
Næturvarzla
er í Laugavegsapóteki. Sími 1618.
Breíðfirðingafélagið
hefur féiagsvist í Breiðfirðinga-
búð lt). 8.30 í kvetd. Dans á eflir.
Síðastiiðinn iaug-
a.njag vofu’ gefin
saman í hjónaband
af séra Árelíusi
Níelssyni ungfrú
Margrét Þorbjörg
Jafetsdóttir og
Ósltar Óllafsson frá Hurðarbaki.
Heimili þeirra er að Skipasundi 29.
f’ykkbæingar
halda skemmtikvöid í Edduhús-
inu næstkomandi laugardagskvöld
kl. 8:30.
Bæjarbókasafnið
Lesstofan er opin alia virka daga
kl. 10—12 árdegis og kl. 1—10 síð-
legis, nema laugardaga er hún
opin 10—12 árdegis og 1—7 síð-
degls; sunnudaga kl. 2—7 síðdegis.
Ótláuadeildín er opin alla virka
daga kl. 2-10 síðdegis, nema laug-
ardaga kl. 2-7 síðdegis. Útlán fyrir
börn innan 16 ára kl. 2-8.
Húsmæðrafélagsfunctar um
áhugainál hcimilanna
Húsmæðuf! Munið fundinn hjá
Húsmæðrafélagi Reýkjavikur i
kvöld klukkan 8.30 í Borgartúni
7, uppi. Þar verða rædd mÖrg á-
hugamál heimilanna, svo sem
mjólkurheimsending, sjúkrasam-
Lag, kjöt og ávcxtir.
Sjötugsafmæli
70 ára er i dag Alexander Jóhann-
esson, skipstjóri, Grettísgötu 26
hdr í bæ.
FUNDUR í kvö’.d kl.
19. Athugið breyttan fur.darstað.
STUNDVISI.
Bókmenntagetraun
Björn Haldórsspn er neíndur
höfundur kvæðisins sem kom hjá
okkur í gær, og mun þar vcra
Björn Hal.ldórsson i Sauðlauksdai
Fylgir það sögunni að kvæðið liafi
hann ort nóttina áður en hann
gifti sig, sbr: Kvíðir þú komandi
degi, koibrýnda nótt, eins og ég
Hver orti þetta:
Var eg drengur deigur,
dofinn ti!l hyggju steins,
hvorki vitur né veigur
að verja málið sveinsr
því ol’i öfundar geigur
annars málmareins.
Fyriv það vat- hann feigur,
að fær var ei til neins..
Sorgartreginn setzti
sveið úm hyggjurann,
bolt á barmia festi
burðugur sýslumann,
dæmdí dóm án fresti
dauðaverðan hann,
kynti eld iiieð kesti,
kola svo til brann.
Millílandaflugvél
Loftíeiða er vænt-
anleg frá N.Y. kl
4 5 nótfc” Geft er
ráð fyrir að vélin
haldi áfram til
Stafangurs, Kaupmannahafnar og
Hamborgar eftir tveggja stunda
viðdvöl í Reykjavík.
Leiðrétting
1 trúlofunarfrétt í blaðinu i gær
var nafn Gunnars Adoifssonar
ranghermt. Var hann nefndur Ax-
elsson og eru hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar á mistökun-
um.
1 Vík var- fyrir mörgum árum
gefið út blað. Eitt sinn hiafði
ritstjóri blaðsins þau ummæli
um Guðmund bónda á Hóli, að
hann „gengi um i þorpinu og
dinglaði rófunni".
Guðmundur reiddist gífuryrð-
um þessum, stefndi ritstjóra
blaðsins, og varð ekki sætzt á
má’.ið.
Dómur féll þannig í málinu,
að ritstjórinn var dæmdur í
sekt og ummæ’.in ómevk, með
þeim forsendum, „að þar sem
upplýst hefur verið fyrir rétt-
inum, að Gúðmundur á Hóli
er rófu aus, þá hefur hann
þar af leiðandi engri rófu get-
að dingiað". (Islenzk fyndni).
Gengisskráning
Eining Sölugengi
Sterlingspund.
Bandaríkjadollar
1
1
1
100
100
100
100
Arthur Miller
Hann er, eins óg við vitum öll,
höfundur leikritsins, Sölumaður
deyr, sem kvikmyndin er gerð
eftir, sú sem Stjörnubíó frum-
sýndi í gærkvöld. Standi myndin
leiknum ekki að baki ættu sem
flestir að sækja hana. Væntanlega
segir Þjóðviljinn frá henni ein-
hvern daginn.
Dagskrá Alþingis
sameinaðs Alþingis miðvikudiag-
inn 17. marz 1954, klultkan 1.30
miðdegis. •
'Fyrirspurnir.
a. V.crnd hugverka o. fl.
b. Greiðslugeta atvinnuveganna.
Sjónvarp.
Vinningar í liappdrætti Karia-
kórsins.
Dregið var hjá borgarfógeta hinn
15. þm. í happdrætti því er Karla-
kór Reykjavíkur efni til í sam-
bandi við hlutaveltu í Listamianna
skálanum hinn 14. þm., og komu
upp eftirtalin númer: 23828 (flúg-
far til Kaupmannahafnar), 33452
(farmiði til Kaupmannahafn'ar á
1. farrýmí með Gullfossi), 34049
(málverk), 145 (lifandi kálfur),
5149 (Silex kaffikanna), 37585
(glasgsett), 29279 (ballkjóU),
25931 (sykurkassi), 36096 Csveskju
kassi), 37962 (kexkassi), 23148 (1
poki jarðepli), 15425, 35153, 12132,
14498 (súrsað hvalrengi í kútum),
6399, 7590, 8441, 2505, 11664, 19511,
6396, 7402, 549, 1697 (saltfiskur).
Þeir, sem hafa hlotið númer
þessi, eru beðnir að hafa sam:
band við formann kórsins, hr.
Svein G. Björnsson. — (Birt án
ábyrgðar)
Kanadadollar
Dönsk króna
Nor.sk króna
Sænsk króna
Finnskt mark
Franskur franki 1.000
Belgiskur franki 100
Svissn. franki 100
Gyllini 100
Tékknesk króna 100
Vesturþýzkt mark 100
Líra 1.000
Gullverð ísl. kr.: 100 gullkrónur =
738,95. pappírskrónur,
45,70
16,32
16.94
236,30
228.50
315.50
7,09
46,63
32,67
374.50
430,35
226,67
390,65
28,12
Kl. 8:00 Morgunút-
varp. 9:10 Veður-
fregnir. 12:10 Há-
degisútvarp. 15:30
Miðdegisútvarp.
16:30 Veðurfregnir.
18:00 íslenzkukennsla I. fl. 18:25
Veðurfregnir. 18.30 Þýzkukennsla
II. fl. 18:55 Tómstundaþáttur
barna og ungiinga.. 19:15 Þing-
fréttir) 19:45 Auglýsingar. 20:00
Fréttir. 20:20 Islenzk má’þróun
(Halldór. Halldórsson dósent). —
20:35 Islenzk tóniist.: Lög eftir
Sigfús Einarsson (pl.) 20:50 Er-
índi. Dagur Patreks helga (eítir
Seamus MacCall. — .Sveinbjörri
Jónsson leiklistarráðunautur þýð-
ir og flytur). 21:15 Með kvöld-
lcaffinu. 22:00 Fréttir og veður-
fregnir; passíusálmur. 22:20 Út-
varpssagan. 22:45 Undir Ijúfum
lögum: Alfreð Clausen syngur
nokkur gamalkunn lög. — 23:15
Dagskrárlok.
Óháði fríkirlijusÖfnuðurinn
Félagsvist annaðkvöld kl. 8 að
Borgartúni 7. Takið með ykkur
spil.
FÖSTUMESSUR 1 KVÖLD
CivV&’flP Dómkirkjan Föstu
guðsþjónusta í
kvöld kl. 8:15. Sr.
Jón Auðuns.
Uaugarnesklrkja
Föstuguðsþjónusta
í kvöld kl. 8-:20. Sr. Garðar Svav-
arsson.
Fríkirkjan
Föstumessa í kvöfld klukkan 8.30.
Séra Þorsteinn Björnsson.
•"Svj hófninní*
Sambandssktp
Hvássafell fór frá Akranesi í gær-
kvöld til Vestmannaeyja; kemur
þangað í dag. Arnarfell er í
Reykjavík. Jökulfell fór frá New
York 12. þm ,til Reykjavíkur.
Dísarfell er: á Þórshöfn. B’áfell
kemur væntari’ega til Leith í dag
frá Rotterdam.
Ríkissitip
Hekla fer frá Rvik á morgun vest
ur um land í hringferð. Esja fór
frá Rvík í gærkvöld austur um
land í hringferð. Herðubreið fer
frá Rvik á morgun austur um
land til Þórshafnar. Skjaldbreið
er á Vestfjörðum- á suðurleið.
Þyril'l er á Vestfjörðum á riörð—
urleið. Baldur fer frá Rvik i dag
til Gilsfjarðar.
Eimskip
Brúarfoss, Dettifoss, Fjallfoss og
Goðafoss eru i Roykjavik. Gull-
foss' fór frá Reykjavík 13. þm til
Hambprgar og Kaupmannahafnár.
Lagarfoss er um það bil að fara
frá Ventspie’s til Reykjavikur.
ReykjaÆoss fór frá Siglufirði 14.
þm til Hamborgar, Hull og Rvik-
ur. Selfoss fór í gœr frá Reykja-
vík til Graverna, Lysekil og
Gautaborgar. Tröllafoss er í Ne\y
York; fer þaðan til Reykjavikur.
Tungufoss fór frá Santos 15. þm
til Recifc og Reykjavíkur. Vatna-
jökuCl leslar í New York um
þessar mundir til Reykjavíkur.
H'anne Skou lestar í Kaupmanna-
höfn og Gautaborg um þes3ar
mundir. Katla lestar í Hamborg
um þessar mundir til Rvikur.
Krossgáta nr. 323
Lárétt. 1 þjóðardýrgripir 7 fæddi
8 vin 9 á kjól 11 klæði 12 ár-
mynni 14 skst. 15 lof 17 sérhlj.
18 tæki 20 löngunina
Lóðrétt. 1 hæð 2 fæða 3 lézt 4
efni 5 feJlur i Dóná 6 stauts 10
gekk 13 veiki 15 taða 16 eyði 17
mittisband 19 skst.
LausJi á nr. 322
Lárétt; 1 bókin 4 h|e 5 ýt 7 eta
9 inn 10 ull 11 nam 13 in 15 aa
16 útnes
Lóðrétt: 1 bæ 2 kot 3 ný 4 Heiði
6 tálga 7 enn 8 aum 12 ann 14
nú 15 as
ú'1 . :í I ftlr skáidsöf i i Ch» rles de' €©st«rs •& • Ti dkr.ins áff fUrí.jBíeleéJ
, • ->* • i ,. -! ■ >. -v. sfy V :
293. dagur
Lambi og Ugluspegill gengu inn í kirkjuna.
Tötrumklædd ungmenni og nokkrir full-
orðnir menn, sem enginn vissi deili á,
þyrptust saman framan við krossinn, gerðu
einhver merki og grettu sig hver íraman
I annan.
Einn þeirra spurði hvort María væri hrædd
úr því hún fælist bakvið grindverk. —
Hún er minnsta kostl ekki hrædd við þig,
þítt leiða apakattarfés, sagði Ugluspegill
þá og tók heldur óþyrmiíega í öxl náung-
ans.
Gætið ykkar vel, sagði Ugluspegill við hina
kyrrlátu kirkjugesti: þessir óróaseggir hér
eru ekki Flæmingjar þó þeir láti svo. Þeir
eru svikarar sem er borgað fyrir að steypa
okkur í glötun.
Hinir ókunnu tóku nú að æpa og öskra
hver upp í annan. Hin heilaga jómfrú var
umræðuefni þeirra: Hún er í snotrum
kjóli, hún María! Og ekki spillir lcórónan
fyrir hennl! Ég held ég verði að gefa
henni dóttur mini^ietta fagra höíuðdjásn!
Aflabrögð í
sunnanlands
Vestmannaeyjar:
Frá' Vestmannaeyjum eru nú
gerðir út 84 bátar, þar af 9
trillubátar. Gæftir hafa verið
góðar það sem af er mánuðin-
um, en afli yfirleitt fremur treg-
ur, en þó misjafn. Mestur afli
i róðri í net varð yfir 30 lest-
ir. Aflahæstu bátar yfir
lietta tímabil hafa um 80—100
smál., en aflahæstu bátar yfir
vertíðina hafa um 200 smál.
Allflestir bátar eru núbyrjaðir
netjaveiðar og munu flestir hafa
tekið netin frá 10.—15. þ.m. Síð-
•ustu daga hefur afli verið mjög
góður á handfæri eða allt að
9 smál. i róðri. Beitt var með
loðnu og síid og gaf loðnan
mun betri árangur.
Stokkseyri:
Þaðan hafa róið 4 bátar með
línu og net. Gæftír hafa verið
sæmilegar, en afli nokkuð treg-
ur en þó misjafn eða frá 1—20
smál. í róðri. Flest hafa verið
farnir 10 róðrar. Heildarafli bát-
anna á þessu tímabili er um 160
smá) í 37 róðrum.
Eyrarbakki:
Þaðan hafa róið 4 bátar með
línu og net. Gæftir hafa verið
allsæmilegar, en afli mjög rýr.
Flest hafa verið farnir 13 róðr-
ar. Afli bátanna á bessu tíma-
bili er 120 smál. í 45 í'óðrum.
Þorlákshöfn:
Frá Þorlákshöfn iróa 7 bátT
ar með línu og riet. Gæftir
hafa verið ágætar og afli all-
sæmilegur. Mestur afli í róðri
á línu varð 15 smál., en mestur
afli í net hefur orðið 26—29
smál. þann 9. og 10. þ. m. Farn-
ir hafa verið flest 14 róðrar.
Heildarafli bátanna á þessu
tímabili er um 660 smál. í 94
róðrum. Beitt var bæði með
loðnu og síld og veiddist mun
betur þau skiptin sem unnt var
að fá loðnu til beitu.
Stykkishólmur:
Frá Stykkishólmi róa 7 bátar
með línu. Gæftir hafa verið
sæmilegar og afli oft allgóður,
en þó misjafn. Flest hafa verið
farnir 9 róðrar. Afli bátanna á
þessu tímabili er um 380 smál. í
53 róðrum. Beitt hefur verið ein-
göngu með si)d, þar sem ekki
hefur verið unnt að fá loðnu
f.yrr en nú að beitt er með henni
í fyrsta sinn í dag.
Grindavík:
Frá Grindavík róa 19 bátar
með linu, en riú eru 17 bátar,
sem stunda netjaveiðar frá 10.
þ.m. Gæftir hafa verið allgóðar
og afli góður fram að því að
loðna gakk á miðin en eftir
það mjög misjafn , og frekar
tregur afli bæði á línu og net.
Flest hafa verið farnir 12 róðr-
ar. Heildarafli bátanna á þessu
timabili er um 1300 smál. í 210
róðrum.
Sandgerðl:
Þaðan róa 15 bátar með línu.
Gæftir hafa verið góðar, flest
hafa verið farnir 14 róðrar, en
almennt 12 róðrar. Afli hefur
\’erið allgóður, en síðustu dagana
liefur afti verið mjög rýr. Beitt
verstöðvum
1.—15. marz
var með síld fram til 8/3., en
síðan hefur verið beitt með
loðnu. Veiddist vel á loðnuna í
fyrstu róðrunum, en síðan loðn-
an kom á fiskimiðin hefur fisk-
urinn gengið upp í sjó eftir
loðnunni, og er það orsök, þeirr-
ar fiskitregðu, sem verið heíur
síðustu daga. Mestur afli í róðri
varð 9/3 21,7 smál. Heildarfli
bátanna á þessu tímabili er
1384 smál. í 156 róðrum.
Keflavík:
Frá Keflavík róa 27 bátar með
línu, en 10 með net. Gæftir hafa
verið allgóðar, hafa almennt ver-
ið farnir 12 róðrar, en flest 13.
Afli var allgóður í byrjun mán-
aðarins, en hefur orðið mun
rýrari og mjög misjafn eftir að
loðnan gekk á miðin. Mestur afli
á bát á tímabiUnu er 133 smál.
í 11 róðrum. Heildarafli línu-
bát-anna á sama tíma er 2610
smál. í 279 róðrum. Um afla-
magn netjabátanna er ekki vitað
með vissu en afli þeirra var
mjög rýr fyTst í mánuðinum, en
hefjur glæðzt nokkuð siðustu
daga.
Akrancs:
Frá Akranesi róa 18 bátar
með línu. Gæftir hafa verið á-
gætar, liafa almennt verið farn-
ir 12 róðrar, en flest 13.. Afli
var góður í fjTstu viku mánað-
arins, en varð mjög misjafn og
rýr eftir að loðnan kom á mið-
in. Mestur afli á bát á þessu
tímabili er um 101 smál. í 13
róðrum. Heildarafli bátanna á
sama tíma' nemur um 540 smál'.
í 220 róðrum.
Námsstyrkur í
Bandaríkjunum
Ríkisstjórn Bandarikjanna
mun á þessu ári veita fimm ís-
lendingum styrki til náms vest-
an hafs. Eru styrkir þessir fyrir
fólk, sem lokið hefur háskóla-
námi og vill fara til eins árs
framhaldsnáms í Bandaríkjun-
um, hvort sem það er beint
frambald af öðru námi eða við-
komandi tekur sér árs frí frá
störfum til námsins. Umsækjend-
ur verða að hafa gott vald á
ensku og mega ekki vera eldri
en 35 ára.
Styrkir þessir ná yfir ferða-
kostnað og allan nauðsynlegan
kostnað við árs dvöl við ame-
rískan háskóla.
Íslenzk-ameríska félagið mun
taka við umsóknum um styrki
þessa í skrifstofu sinni í Sam-'
bandshúsinu kl. 4—5 síðd. í dag.
Rauðmoga-
veiðar
á Húsavík
Húsavik i gær. Frá frétta-
rltara I>jóðviljans.
Afli liefur verið talsverður
hér að undanförnu, einkum á
stærri Ixita sem geta sótt la.ngt
til fiskjar. Fjórir stærri bátar
eru gei-ðir út liéðan. en sá
fimmti fer á stað á næstunni
og leggja þeir upp í frystihús-
ið. Nokkur atvinna er hér í
sambandi við þsssar veiðar, en
þó engan vegin nægileg. Rauð-
magaveiðar eru byrjaðar hér
og er talsvert af aflanum salt-
að.
Veður er hér gott og snjór
óðum að þiðna.
AðaHundwr Trésmiðalélags Reykjavíkur:
A-lisiinn sigraði með 170 atkv.
Lagabreytingar samþykktar með 159
atkvæðum gegn 144
Trésmiðafélag’ Reykjavíkur hélt aðalfund sinn sunnu-
daginn 14. marz s.l.
Pétur Jóhaimesscn fonnaður,
setti fundiun og flutti skýrslu
félagsstjómai’.
í upphafi minntist hann
þeirra félaga, er látizt höfðu á
árinu, fundarmenn risu úr sæt-
um og vottuðu hinum látnu
virðingu s'sia.
Á árinu höfðu 40 nýir félag-
ar gengið í fclagið, þar af 26
nýsveinar. Atvinnuástand hjá
húsasmiðum var m.ð betra
móti síðastliðið ár o» axkonia
þvd yfirleitt góð.
Þá gat formaður þess, að fé-
lagsstarfsexni öil hefði staðið
með mikiurn blóma, heföi t.d.
verið starfandi málfundadeild,
sera haldið hefði fundi reglulega
hálfsmánaðarlega yfir vetra.i-
mánuðina. Einnig hefði verið
endurvakin pöntunardeild fé-
lagsins og starfaði liún nú til
mikilla h-agsbóta fyrii’ félags-
menn.
Þá gat formaður þess, að far
in hefði verið gróðursetningar-
ferð í Heiðmörk og gróðursett-
ar þar 3000 trjáplöntur, hvatti
hann menn til a.ð fjölmenna í
hinar árlegxi gróðursetningar-
ferðir.
Formaður skýrði og frá helztu
störfum iðnþings þess, er háð
var sl. haust. Að lokinni skýrslu
formanns var lýst kjöri stjórn-
ar, endurskoðenda og trúnað-
armannaráðs, fyrir \-firstand-
andi ár.
Fram höfðu komið tveir list-
ar, A-listi, borimi fram af upp-
stillingamefnd og B-listi, bor-
inn fram af Þorbrandi Sigurðs-
syni o.fl. Atkvæðagreiðsla fór
fram í skrifst.ofu félagsins 6.
og 7. marz. Á kjörskrá voru 526
menn, af þeim greiddu atkvæði
356 og féllu atkvæði þannig, að
A-listi hlaut 170 a.tkvæði og
alla rnenn kjöma, en B-listi 166
atkvæði, 20 seðlar voru auðir
og ógildir._____________
Samkvæmt jxeim urslitum era
því eftirtaldir meníi réttkjörnir
fyrir yfirstandandi ár:
Benedikt Davíðsson, formað-
ur; Magnús Ingimundarson,
varafonmaður; ÍBergsteinn Sig-
urðsson, ritari; Sigurður Pét-
ursson, vararitari; Ólafur Ás-
mundsson, gjaldkeri.
Varastjórn: Benedikt Einars-
son, Hjörtur Hafliðason, Art-
hur Stefánsson.
Endurskoðendur: Toi-fi Her-
Framhald á H. siðu
t Áíiðyikpdagpr 17. ,marz: 1954 — S»JjÓ£^yiJYJINN — .(S
54 þúsund ki’ónur fyrir
björgun Boðasteinur
Eigendur og vátryggjendur færeyska kúttersins v.s.
Boðasteinui- voru í fyrradag dæmdir í Hæstarétti til að
greiða eigendum og áhöfn v.b. Muggs frá Vestmanna-
eyjum og Skipaútgerðinni og áhöfn varðskipsins Óðins
54 þús. krónur í björgunarlaun.
Mál þetta reis út af björgun
kúttersins i marzmánuði 1951.
Hafði vél bátsins bilað, er hann
var á leið til íslands frá Fær-
eyjum, en annar færeyskur
kútter, Carlton, kom til hjálp-
ar og dró Boðasteinur áleiðis
til Vestmannaeyja. Þegar skip-
in vom komin inn fyrir Bjarn-
arey slitnaði dráttartaugin og i
sömu svifiun bilaði véi Cxrlton1’
svo að hann gat eicki frekar
aðstoðað Boðasteinur, sem rak
óðfluga undan allmiklum (sjö
stiga) vindi í áttina til lands.
S.xipverjar á Boðastemur sáu
nra þetta leyti m.b. Mugg und-
an Klettsnefi á leið inn í höfn-
ina. Skutu þ-eir þá flugeldimi tii
þess að báturiníi kæmi ti! að-
stoðar.
Áhöfn Muggs brá þegar við,
setti á xulla ferð og stefndi til
skútunnar. Lagði Muggur að
skútunni svo nærri til kuls :-cm
á.höfnin þorði, og var þegar
gerð tilraun til að kasta iínu
yfir í skútuna en það mistókst.
Skipstjórinn á Magg sneri siðan.
bátnum austuram á fullri ferð
og hugðist taka hring og lcggja
aftur að skútyimi, cn cr hanu
hafði tekið stefnuna á land varð
hann þess var, að þeir voru.
komnir mjög nærri landi og
setti vélina á fulla ferð afturá-
ba’x. Sló þá framundan vcstur-
um undan vindinum svo fram-
endi Muggs liorfði á afturenda
Boðasteinur. Var þá sett á fulla
ferð áfram og stefnt afturfyrir
skipið, svo nærri að skipverjar
á Boðasteinur gátu auðveldlega
rétt dráttartaug yfir í Mugg.
Allmikil alda var og kveður á-
höfn Mxigg’s að hryggjað hafi
undir bátian, er þeir voru fyr-
ír a.ftan skútuna, svo nærri
landi 'hafi þeir verið kornnir.
Drátta.rtaugin var síðan fest og
haldið af stað á mjög liægri
ferð skáhalt undán vindi. Tókst
Mugg að fjariægja skútuna frá
landi. Skipstj. á 'Boðasteinur
óskaði að skútan vrði dregin inn
á höfnina, en skipstj. á ‘Mugg
taldi það ekki gerlegt vegna
þess hve dráttartaugin var veik
og ákvað að draga skútuna inn
fyrir Eiði.
Þegar Muggur var komiim
með skútuna dálítið áleiðis kom
varðskipið Óðinn á vettvang, eti
það hafði heyrt í talstöð sinni
er Boðasteinur kallaði Vest-
mannaeyjaradíó upp og beiddi
um skjóta hjáJp. Muggur hélt
áfram hægt og sígandi með bát
inn í eftirdragi út flóann, en
þegar skipin voru stödd fyrir
optiu Faxasundi slitnaði drátt-
artrossan. Óðinn sigldi þá að
færeysku skútunni, kom taug
yfir til hennar og dró hana sið-
an inn fyrir Eiði, þar sem lagst
var fyrir aiikeri.
Hæstiréttur skipti björguna.r-
laununum þamiig að eigendur
og áhöfa Muggs hlutu 2.á hluta
fjárhæðarinnar (.54 þús. krón-
ur), en eigendur og áhöfn v.s.
Óðins t;>, hluta hennar. Segir
svo um það í dóminum:
„Fallast bcr á rök héraðs-
dóms fyrir þ\ í, áð hjálp sú er
\-.l». Muggur veitti v.s. Boða-
steiimr, hafi verið björgun í
merkingu 299. gr. siglingalag-
anna.
Er v.s. Boðasteinur slitnaðl
aftan úr v.b. Mugg, voru skip-
in, stödd á hættulegum stað,
m.vrkt var af nóttu, veðurhæð
mikil og áhöfn v.s. Boðasteinur
ókuunug staðháttum. Verður
því að telja, að af hendi v.s.
Öðins hafi einnig verið iuuiið
björgunarstarf i merkingu sigl-
ingalaganua.“
Iðnrekendnr vilja erlent f jármagn
Þing Félags íslenzkra iðnrekenda hefur samþykkt eft-
irfarandi um útvegun erlends fjármagns til aöstoöar iðju-
reksturs hér á landi:
„Ársþingið lýsir ánægju
sinni yfir þeim visi að stór-
iðnaði, sem risinn er hér á
landi með opnun nýju áburð-
arverksmiðjunnar.
Jafnframt lýsir þingið því
sem almenmi skoðun iðnrek-
enda. að stefna beri að því að
koma upp’ strriðnaði á Islandi
í Feiri greinum efmiiðnaðar,
en samkvæmt nýloknum athug-
unum innlendra og erlendra
tæknifræðinga, viiðast niiklir
möguleikar iiggja ónotaðir á
þessu sviði hérlendis, í sam-
bandi við nýtingu jarðhitans
og vatnsorkunnar.
Þar eð innlent fjármagn til
stórframkvæmda er mjög tr.k-
markað. álitur þingið nauðsýn-
legt til uppbyggingai störiö'n-
aði i.nnnnlands að opr.aðar séu
leiðir til þess að erlgnt fjár-
mngn fáist til slíkra fiam-
kvæmda, á saina hátt og tíðk-
ast í nágrannalöndunum.
Telur þingið nauðsynlegt að
landslögum sé breytt í þe.ð horf
að unnt sé áð fá erlent fjár-
magn til uppbyggingar stóriðn-
aði í landi’.m. með útflutning
að markmiði.“
íiakkunnnÉ
ORÐSENDING
frá Sósíalistafélagi
Reykjarikur
Atihygli skal vakin á að út hafá
verið gefin ný skirteini og breytt
um fyrlrkomulag á greiðslu.
f okksgjalda. Nauðsynlegt er þvi
að flokksféflagar kynni sér þetta
strax ti! þess að auðvelda inn-
heimtustarfið. —■ Greiðið floklcs-
gjöld ykkar skilvislega i skrifstofu
félu gsins, Þór.-gotu 1, opið frá kl.
10-32 og 1-7 al a virka daga. - Stj.