Þjóðviljinn - 31.03.1954, Side 7

Þjóðviljinn - 31.03.1954, Side 7
 "y..;» 7r-rm:”7rv:'*:.\y r v------- Miðvikudagur 13. marz 1954 — ÞJÓÐVILJXNN — (7 ■ .>. .i*j"• •’//>:(/ /./Juir/VK Ásmundur Sigurðsson: Verkcxlýður og bændur eiga sameiglnlega hagsmuni Nú selst framleiðsla bænda upp fyrir aukin við- skipti og markaði og ríflegri atvinnu við sjóinn Fyrir fáum dögum var birt hór í blaðinu frásögn frá að: alfundi Mjólkurbús Flóamanna. Komu þar m. a. fram þær upplýsingar er formaður þess gaf í skvrslu sitini að fram- leiðslan á svæðinu hefði auk- izt um 20% á sl. ári frá því, sem var næsta ár á undan. Ennfremur var getið þeirrar staðreyndar að þrátt fyrir þennan mikla vöxt framleiðsl- unnar hcfði einmitt létt af þeirri sölukrepp’u sem skapazt hafði undanfarin ár og há- marki náði á árinu 1952. Og lýsti þetta sér í því að sala neyzlumjólkurinnar óx og meira en það: sala vinnsluvar- anna hefur einnig vaxið, svo að nú eru minni birgðir af þeim hjá búinu en um sama leyti á sl. ári. Hafa áhrifin síðan orð- ið þau, að þrátt fyrir þá lækk- ■un á útsöluverði neyzlumjólk- ur, sem um var samið í sam- bandi við lausn verkfallsins í des. 1952, þá gat búið hækkað verðið til bændanna um 15 aura pr. lítra og komið allri aukningu á sölumarkað. Þessar niðurstöður eru svo merkilegar og bregða svo skýru Ijósi yfir hin efnahags- legu viðhorf alls almennings i • landinu, . að yert er að gera þeim nokkru nánari skil. ^ Söluaukning lækk- uninni að þakka. Á það atriði lögðu hinir tveir ræðumenn, er málið reifuðu á íundinum mesta áherzlu. En það voru þeir Egill Thoraren- sen kaupíélagsstjóri, formaður mjólkurbúsins, og sr. Svein- , björn Högnason prófastur, for- maður mjólkursamsölunnar. Komst annar svo að orði „að i 12 aura lækkunin hefði komið aítur nieð 100% vöxtum“, en hinn „að hið aukna magn seld- ist allt og gæfi bændum 12 millj. kr. hærri tekjur en næsta ár á undan“. Báðir hafa þessir menn rétt fyrir sér, en þó mun sagan ekki öll sögð með þessu og skal vikið að því síðar. En staðreynd er það að það samkomulag sem gert var í des. 1952 í sambandi við lausn verkíallsins til að stöðva verð- hækkun ýmissa helztu nauð- synjavara og lækka sumar í veéði, hefur haft áhrif til að auka kaupgetu neytendanna, og áuka þannig sölumöguleika iandbúnaðarafurðanna. En hart er það að þriggja vikna verk- fall skyldi þurfa til þess að fá gerðar ráðstafanir, sem svo augljóslega hafa reynzt al- menningi og þar með þjóðinni allri til hagnaðar, þess hagn- aðar, að draga ofurlitið úr dýr- _ tíðinni. Og- fátt sýnir betur skilningsleysi þeirra stjórnar- valda sem íslandi ráða, en það að jafnvel hefur yerið hótað að koma á stofn herliði til að kúga fólk til að falla frá kröf- um um svo sjálfsagðar að- gerðir. ^ Þegar allt var kom- ið í óefni. Þótt sízt skuli úr því dregið, að þessar aðgerðir hafi átt sinn miki!va.-ga þátt í breytingu þeirri, sem hér gr á orðin, þá hefðu þær einar ekki náð að skapa þá rniklu söiuaukningu sem hér hefur orðið. Þar hef- ur einnig komið til annað at- riði, sem . ekki verður gengið er mikilv*?*;-. a-Ui r, l»amiÍK \ar mjólkin autflýst þeg- ar búið var að þrýsta kauþgetu almennlngs niður á það stig að fólk var farið að spara mjólk við sig og börn sín framhjá. Það eru hinir nýju og miklu markaðir fyrir íslenzkar útflutningsvörur, sem opnuð- ust á sl. ári með viðskiþta- samningunum við Sovétríkin, og gerbreytt hafa aðstöðu okk- ar allri á sviði útflutningsfram- leiðslunnar. Alla tíð síðan 1948 að gengið var inn í Marshall- samstarfíð og eldri viðskiptin við Sovétríkin féliu niður, hafði markaðurinn verið að þrengjast fyrir íslenzkar fisk- afurðir, einkum freðfiskinn. Þegar þar við bættist löndun- arbannið í Bretlandi fyrir ís- fisk, sá hin íslenzka ríkisstjórn fyrst í hvert óefni var komið. Hraðfrysti fiskurinn hlóðst upp í geymslum frystihúsanna, veið- arnar voru beinlínis að stöðv- ast og stórkostlega dregið úr framleiðslunni, miðað við möguleika alla. Þá var það loksins viður- kennt af hinum háu stjórnar- vöidum að eina leiðin út úr öllum þessum ógöngum væri sú að taka upp viðskiptin við Sovétríkin að nýju. Því hverj- um manni með sæmilegri skyn- semi mátti vera ljóst hvert stefndi með þjóðarbúskap ís- lendinga, ef framleiðsluvörum sjávarútvegsins væri hlaðið upp í geymsluhúsum hans og framleiðsluvörur landbúnaðar- ins sendar heim til bændanna aftur frá vinnslustofnunum hans. Viðskiptasamning- ar við Sovétríkin. Hver voru þá ákvæði þessa samnings, sem svo gjörsam- lega hefur breytt aðstöðu okk- ar íslendinga í utanríkisvið- skiptum og markaðsmálum? í stuttu máli þessi, sam- kvæmt tilkynningu ríkisstjórn- arinnar, sem birt var um það leyti sem samningurinn var undirritaður en það var gert 1. ágúst sl. sumar 1953. A næstu 12 mán., miðað við gildistökudag, seljum við til Sovétríkjanna eftirtalið vöru- magn: I. 21 þús. tonn freðfiskur. II. 100 þús. tunnur söltuð Faxasíld. III. 3000 tonn fryst Faxasíld. . IV. 80 þús tunnur Norðurl.sild. Til frekari skýringar má geta þess að öll framleiðsla okkar af freðfiski hefur mest orðið um 35 þús. tonn á einu ári. Sýnir það glöggt hvað hér var um mikinn markað að ræða. Móti þessu vrar síðan samið um kaup á eftirtöldu vöru- magni frá Sovétríkjunum: I. 200 þús. tonn brennslu- olíur og benzín. II. 3000 tonn rúgmjöl. III. 2100 tonn hveitiklíð. IV. 360 tonn hrisgrjón. V. 300 tonn kartöflumjöl. VI. 160 tonn stej'pust.járn. VII. 2000 tonn járnpípur. VIII. 50 þús. tonn sement. Hér má bæta við þeim skýr- ingum, að í þessu er fólginn all- •ur okka'r innflutningur af brennsluolíum og benzíni, enn- fremur af sementi. Auk þess er hér um að ræða mikinn hluta matvöruinnflutningsins og nokkuð af járnvörum. Það er því ekki lítill hluti af nauð- synjavörum okkar, bæði neyzlu- •og.- •rekstrarvör.um ..sem ..við ..þúið,..scndan..heinj .til baka % formi ýmiskonar vinnsluvara og undanrennu. En á sama tíma sem viðskiptasamningur- inn við Sov'étríkin fór að verka í atvinnu- o" viðskiptalífinu, svo sem fyrr er lýst, þá hættu þessar heimsendingar allt í einu. Það þarf ekki mikla yfir- sýn til að greina einnig sam- hengið hér á milli. Samkvæmt reikningum Flóabúsins 1 vorut birgðir vinnsíuvara um sl. árá- mót að verðmæti 2 millj. og 900 þús. kr. í staðinn fyrir 2 millj. og 20 þús. við næstu ára- mót áður, eða birgðaaukning SesnMvataði ,880 þús. kr. Þetta sýnir’* >að sú markaðsaukning sem fékkst fyrir áhrif verk- fallsdeilunnar nægði ekki . til að gera hvorttveggja, jafna hinn vaxandi halla sem áðui-' var, og jafnframt taka við 20%> framleiðsluaukningunni. Þejta ■ er sannarlega ekki sagt tii að kasta rýrð á þann árangur sem þarna náðist. Þær aðgerð- ir hafa sannanlega haft sína þýðingu, en þurfti bara meira til. Hins vegar upplýsti formað- ur búsins það, að svo vel hefðí gengið með sölu síðan um ára- mót að nú, 17. marz, þegár fundurinn var haldinn, væru minni birgðir en á sama tíma í fyrra. Það þýðir, að sé það íímabil tekið út af fyrir sig. þá hefur allt framleiðslumagn- ið selzt og meira til. tjþm inn frá Sovétríkjunum samkvæmt þessuni samníngi, eins.og það er stór hluti af útílútningsframleiðslu okkar sem við f]ytj\im út til þeirra gamkvænit honum. En þar við bætist einnig að hvað verðlag snertir er hér um að ræða einn allra hagstæðasta viðskipta- samning okkar, sem bezt sánn- ast á því að á þennan freð- íiskútflutning þarf ekki áð leggja npinn bátagjaideyri, og t. d. lækkaði verð á sementi, þegar þessi innflutningur hófst. Hitt er svo annað mál að nauð- synjavörur þessari gætu verið ennþá ódýrari í útsölu hér ef ekki væri okrað á þeim af hinu intilenda verzlunarkerfi.- En það er -pnnur saga, sem e.t, v. verður betur rakin síðar. Landbúnaóarfram- leiðslan selst upp Á si. hausti hófust svo verzl- unar\'iðskiptin samkvæmt .þess- um samningi. Birgðir frystihús- anna véku úr geymslunum og rýmt var þannig til fyrir nýrri framleiðslu. Þannig óx at\'inna bæði við veiðar og vérkun, óg. ennfrefn- ur við aðra þætti aukinnar framleiðslu og viðskipta s, ,s. fermingu og affermingu, bíl- flutninga og annað sem fylgir vaxandi athafnalífi. Þar kemur til greina hinn En um leið og þetta gerðist þátturinn, aukin viðskipti ]>á gerðist einnig önnur saga meiri markaðir, aukin atvinna ekki ómerkileg. Bændurnir á Samnefnari beggja verður síð- svæði Mjólkurbús Flóamanna an sú heildarútkoma sem fyrr höfðu undanfarin kreppuár er fengið talsverðan hluta þeirr- ar mjólkur, seín þeir sendu i Framhald á 8. síðu. Frá Púertó Ríkó: Undanfarna daga hafa birzt hér á síðunni nokkrar myndir frá Púertó Ríkó sem gefa hugmynd um lífið í þessari bandarísku nýlendu, örbirgð íbúanna og lúxuslíf erlendrar yfirstéttar. En fólkið á eynni lœtur ekki kúga sig án andspymu; þar er háð sjálfstœðisbarátta við' hin erfiðustu skilyrði. Bandarískt hernám slið reynir að halda þessari baráttu í skefj- um með hvers kyns kúgunaraðgerðum, og er myndin frá húsrannsókn í sambandi. við árásina á Truman forseta 1951.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.