Þjóðviljinn - 16.06.1954, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 16.06.1954, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVIUINN — Miðvikudagur 16. júní 1954 --— Það er þó bót í máli að við erum menn — Eg hef ekki komið til ís- lands áður. Eg er meðili í tón- listarfélagi í Færeyjum, og Páll ísólfsson bauð mér að koma hingað og sitja Norrænu tón- listarhátíðina þótt við séum ekki formlegir aðilar að tón- skáldaráðinu. Eg hef líka hugs- að mér að skrifa um ísland í 14. september, blaðið sem ég starfa við. Við erum setztir hvor gegnt öðrum 1 herberginu hans á Gamla Garði. Hann er meðal- maður á hæð, þrekvaxinn en ekki feitur, brúnn yfirlitum — og það er eitthvað óbifanlegt í fari hans, einhver kyrrð, sú staðfesta sem býr bakvið upp- nám daganna eins og klettur- inn undir foksandi. Eg hef krotað upp á blað einar 17 spurningar, og ber hina fyrstu upp: — Hvernig stendur taflið í færeyskum stjórnmálum núna? — Tveir stærstu flokkarnir í svipinn eru Fólkaflokkurinn og Sámbandsflokkurinn; þeir eru báðir afturhaldsflokkar. Sambandsflokkurinn fylgir fast fram sambandi við Danmörku. Fólkaflokkurinn er formlega andvígur sambandi, en í raun er hann jafnafturhaldssamur og hinn. Hann skartar með þjóð- legum slagorðum, en það nær ekki lengra. Hann er ekki flokkur alþý?Sunnar þrátt fyrir nafnið, hann er flokkur kapital- istanna. Hann byrjaði sem verkamannaflokkur og hét þá Vinnuflokkurinn. Hann var ekki ánægður með það fylgi sem hann hlaut í þessu hlut- verki; þá skipti hann um nafn og þóttist um leið verða þjóð- legur flokkur. Það var nafnið tómt. Þessir tveir flokkar hafa meirihluta í Lögþinginu og sitja saman í stjórn: Landastýrið. í stjóminni er einn sambands- maður og er hann um leið lög- maður landsins og æðsti emb- ættismaður þess; Fólkaflokk- urinn á tvo menn í stjóminni. — Hverjir em aðrir flokkar í Færeyjum? — Gamli Sjálvstýrisflokkur- inn hjarir ennþá, en hann er fámennur og áhrifalítill. Hann hefur þó fulltrúa í Lögþinginu. Sósíaldemókrataflokkurinn, er heitir á færeysku Javnaður- flokkurinn, hefur einnig full- trúa á þingi; og er alláhrifa- mikill. Að lokum er Tjóðveld- isflokkurinn. Það er tiltölulega nýr flokkur, vinstrisósíalískur. Stefnumark hans er: fullkomið sjálfstæði og lýðveldi í Færeyj- um. Hann hefur tvo fulltrúa á þingi. — Er mikið að gerast í fær- eyskum stjómmálum? — Það eru kosningar í haust. Þær geta orðið mjög spenn- andi og valdið miklum breyt- ingum á styrkleikahlutföllum flokkanna. Tjóðveldisflokkurinn er í örum vexti. Þó þessir þrír Viðtal við William Heinesen rithöfund síðarnefndu flokkar séu allir í andstöðu við stjómarflokkana, hafa þeir því miður ekki getað orðið ásáttir um sameiginlega baráttulínu. Erlendur Patursson er formaður Tjóðveldisflokks- ins; hann er einnig formaður William Heinesen sjómannasambandsins: Fiski- mannafélagsins ■— og aðhyllast sjómenn pólitíska stefnuskrá hans í æ ríkara mæli. Erlend- ur er ritstjóri 14. septembers. Það blað keraur oftar út en önnur blöð í Færeyjum, eða þrisvar í viku. — Hvernig eru lífskjörin hjá ykkur? — Þau eru ekki góð; þó má segja að þeir komist vel af sem eiga sjálfir báta, en það er vitaskuld ekki á allra færi. Seinnipartinn í vetur varð sjó- mannaverkfall. Gerðardómur- inn í Kaupmannahöfn fylgdi útgerðarmönnum að málum og dæmdi sjómenn til að greiða fjórðung milljónar í skaðabæt- ur, þar eð verkfallið hefði verið ólöglegt. Annars leystist d«ilan þannig að Lögþingið hét sjó- mönnum 800 króna lágmarks- launum á mánuði. Til þéss að þetta yrði hægt var búinn til sérstakur skattur, sem leggst raunar á þjóðina í heild, þar á meðal sjómennina — og á hann að tryggja þeim þessi lág- markslaun! Ef úrskurði gerðar- dómsins verður nú framfylgt, þá þýðir það að þjóðin í heild borgar útgerðarmönnum þessa upphæð, en margir þeirra eru milljónungar. Eg held að eng- inn sætti sig við slíkt, og þess- vegna held ég að dómnum verði ekki framfylgt. Auðurinn í Færeyjum safnast á æ færri hendur. Það 'er til dæmis ein útflutningsmiðstöð fyrir fiskaf- urðir. Þeir sem hafa þar töglin og hagldirnar eru forríkir menn og ráða æ meiru að tjaldabaki. William Heinesen er maður óformlegur í framgöngu; og af því undirritaður vill gjarnan vera það lika, þá verða nú hlutverkaskipti hjá okkur að frumkvæði hins fyrrnefnda. Hann fer að spyrja mig um ís- lenzka pólitík, og áður en varir er tíminn floginn frá okkur eins og hann er vanur. Eg kemst ekki að með spurning- arnar mínar 17, en áður en við skiljum inni ég þó eftir fær- eyskum_ ,bókmenntum. — Það er fyrst í lok fyrri aldar sem tekið er að rita fær- eyskar bókmenntir. En við eig- um allmikið af kvæðum frá miklu eldri tímum, aðallega svo nefndum danskvæðum, er geymdust á vörum fólksins þó ekkert væri skrifað. Síðan hafa verið samin ýms góð verk hjá okkur; ég nefni til dæmis bræð- urna Djurhuus og þeirra verk. Heinesen vill ekki tala um sinn eigin skáldskap, en segir þó: — Sögur mínar eru sósíalar að innihaldi og efnismeðferð. Lífsviðhorf flestra helztu höf- unda okkar markast af sósíal- ismanum og boðun hans. Eg nefni t. d. Heðin Brú sem mun vera allkunnur hér á landi. — Bækur þínar hafa verið þýddar á ýms mál? — Sumar sögur mínar hafa verið þýddar á tungur grann- þjóðanna. En það er ekki um- talsvert — það eru allar bækur þýddar nú á dögum. — Eru íslenzkar bókmenntir eitthvað þekktar hjá ykkur? — Við höfum haft töluverð kynni af fornbókmenntum ykk- ar. Við höfum líka lesið Gunnar Gunnarsson og Halldór Lax- ness, í dönskum útgáfum og þýðingum; en við erum alltof ókunnir hinum yngri bók- menntum ykkar í heild, allt frá Jónasi Hallgrímssyni og til þessa dags. Óskólagenginn Fær- eyingur les ekki ísjenzku, held- ur aðeins dönsku og norsku. En það væri mjög auðvelt fyrir okkur að læra íslenzku okkur til gagns. Það er ekki annað en sljóleiki að láta bað ógert, stafar af ónógum áhuga fyrir hinum sameiginlega norræna menningararfi. „Við depender- um af þeim dönsku.“ — Hvað eru Færeyingar margir? — Við erum aðeins um 30 þúsund — en við erum þó menn eins og aðrir, og það er mikil bót í máli. B. B. LIGGUB LEIUEU Sópransöngur í Vestur-íslenzk söngkona, Thorá Matthiasson að nafni (Þóra Gunnarsdóttir) efndi til hljómleika hér í höfuð- staðnum föstud. 11. þm. Söngurinn hófst á nokkr- um lögum eftir gamla meist- ara: tveim lögum úr kór- (verkum eftir Handel, lagi eftir Giuséppi Torelli og öðru eftir Francesco Dur- ante. Allt var þetta prýði- lega flutt. Annar kafli efnis- skrárinnar hafði að gejmia lög eftir frönsk tónskáld: tvö eftir Debussy, annað, ,Mando- line', sérlega skemmtilegt, „Serenade" eftir Gounod, for- kunnarvel flutt af söngkon- únni, og „Chére nuit“ eftir -Alfred Bachelet. Þá komu fjögur lög eftir enn yngri tónskáld, að því er ætla má, þó að flest þeirra séu undir- rituðum með öllu ókunn: Vitt- orio Giannini (f- 1903), Po- well Weaver, Emest Charles og Amy Worth. Síðast komu svo tvö íslenzk lög: „Drauma- landið“ eftir Sigfús Einarsson og „Vögguljóð" eftir Sigurð Þórðarson, bæði flutt af næm- um skilningi og með furðu- góðum framburði, og svo „Norsk fjældsang“ eftir W. Thrane. Minnisstæðust verður Gamla bíó undirrjtuðum meðferð þessa norska f jallasöngs,aukalagsins „Londonderry air“ og „Söngs Sólveigar" eftir Grieg, sem einnig var flutt utan efnis- skrár. Hin þýða og blæfagra rödd söngkonunnar og hin mikla kunnátta hennar og listmæt túlkun naut sín þar til fullnustu. — Jórunn Við ar aðstoðaði söngkonuna af smekk og háttvísi. Vér þökkum Þóru Gunnars- dóttur fyrir þessa ógleyman- legu kvöldstund. B. F. <■'------------------- Áiidspyrmi- hreyfingm hefur skrifstofu í Þingholts- stræti 27. Opin á mánudögum og fimmtudögum kl. 6—7 e. h. Þess er vænzt að menn láti skrá sig þar í hreyfinguna. s.____________________> Bréf frá fjögra barna móður — Ókurteisi barna við fullorðna — Vanræksla foreldra - kemur foreldrum í koll FJÓGRA BARNA móðir sendir kæmi á hverjum degi inn eftirfarandi bréf: skaddað og rifið. Kæri Bæjarpóstur. Mig hef- ur lengi langað til þess að minnast á það í dálkum þínum, hvað mikil brögð eru orðin að því að foreldrar og mæður vanræki að kenna börnum sín- um tillitssemi og virðingu fyr- ir fifllorðnu fólki. Hér í ná- grenni við mig er átta ára dreng ur, ódæll og mikill fyrir sér, og hann hefur lagt fjögra ára dóttur mína í einelti svo að barninu hefur ekki verið vært hér í kring. Þegar ég vandaði *um þetta við drenginn, svaraði hann auðvitað ónotum einum, og vegna þess hvað þetta* var alvarlegt talaði ég um þetta við móður drengsins, ef ske kynni að hún gæti fengið drenginn til að hætta að hrekkja og meiða telpuna. En þar var hið sama uppi í teningnum, móðirin svaraði ónotum einum og taldi enga ástæðu til að vanda um við-drenginn, kallaði mig jafn- vel öllum illum nöfnum svo að drengurinn heyrði, með þeim af- leiðingum að hann notar orð móðurinnar til að senda mér tóninn á götunni síðan. Og það sem verra er, hin börnin í göt- unni taka þetta eftir honum, og nú hafa þau tekið litlu telp- una svo fyrir, að henni var ekki vært heima og ég þurfti að senda hana annað til þess að eiga ekki á hættu að barnið ÉG HEF ÁTT fjögur börn um dagana og þetta er í fyrsta skipti sem ég hef orðið fyrir því að stærri krökkum sé látið haldast það uppi að leggjast á minni máttar og sýna fullorðnu fólki dónaskap og virðingar- leysi. Hér áður reyndu mæður þó yfirleitt að koma í veg fyrir hrekkjapör barna sinna í stað þess að mæla ósómann upp í þeim og bókstaflega ýta undir þau að æpa að fullorðnu fólkí og senda þvi tóninn. Þetta dæmi, sem ég nefndi áðan, er því miður ekkert einsdæmi; foreldrar leggja áreiðanlega minni áherzlu á það en áður var að börn sýni fullorðnu fólki virðingu. En þetta hefnir sín og á eftir að snúast gegn for- eldrunum sjálfum. AUÐVITAÐ eru flestir foreldrar viðkvæmir fyrir sinum eigin börnum, og Vnargir þola illa að þau séu gagnrýnd. En venju- lega kvartar fólk ekki við for- eldra barnanna fyrr en í fulla hnefana og foreldrar ættu að minnsta kosti að hafa vit á því að láta börnin ekki heyfa þeg- ar þau bera blak af þeim og kenna öðrum um yfirsjónir þeirra. Það hefur ekki góð á- hrif á börnin og það á eftir að koma foreldrunum í koll. Fjögra barna móðir. TAKIÐ VÍRKAN ÞÁTT í LOKASÓKNIMNZ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.