Þjóðviljinn - 26.06.1954, Qupperneq 5
Laugardagur 26. júní 1954 — ÞJÖÐVILJINN — (5
Vísindameim hættu að reykja
við niðurstöðu rannsóknar
Sígareitureykingar magna lungnakrabba
og hjartasjúkdóma, stytta ævina verulega
Þrír bandarískir vísindamenn skýrðu nýlega frá niöur-
stöðum rannsóknar á áhrifum sígarettureykinga á heilsu-
far manna. Fyrsti árangurinn af rannsókninni varð að
allir sem að henni stóðu steinhættu að reykja.
Deila MeCarthys öldungadeildarmanns og Bandaríkja-
hers hefur gefið enska blaðateiknaranum Gabriel hug-
myndina að þessari skopteikningu.
Lyftudrengurinn við Dulles: Verið ekki aö gera yður réllu út af þvi ráðherra góður,
þótt yður tœkist ekki í Genf að koma af stað stríði, það er allra myndarlegasta
stríð háð hér heima.
Geimðcsr er í smíðum hjá sov-
ézkum flugfræðingum
RáSstefna i hausf um smiSi gervitungls
í blaðinu Literaturnaja Gaseta í Moskva birtist nýlega
grein um starfsemi nýstofnaðrar geimsiglingadeildar
Flugklábbs Sovétríkjanna. Er af henni ljóst að þaö eru
engir smámunir sem geimsiglingamennirnir tilvonandi
hafa á prjónunum.
Greinarhöfundur skýrir frá
því að nú þegar sé hægt að
senda út í geiminn til athugana
fjarstýrð flugskeyti búin marg-
brotnum rannsóknartækjum.
Karlkyiis
kvenJkyiis?
Ungur vélfræðingur í borg-
inni Senlis, rétt hjá París, hefur
unnið sigur í deilu við skrif-
finna á ríkisskrifstofum borgar-
innar um það hvort honum
skyldi leyfast að kvænast heit-
mey sinni. Ástæðan til mót-
þróa yfirvaldanna var sú
að þau voru í vafa um hvort
maðurinn væri ltarlkyns eða
kvenkyns.
Deilan hófst fyrir 23 árum síð-
an, þegar faðir vélfræðingsins,
innflytjandi frá Póllandi, lýsti
þýí yfir við sóknarprestinn að
hið nýfædda sveinbarn hans héti
Marian Kinaek. En sóknarprest-
urinn skrifaði í kirkjubækurnar
skýrt og greinilega að nafn
barnsins væri Marianne Kinack.
Allt gekk þó slysalaust þar til
fyrir nokkrum vikum síðan,
þegar hinn ungi Marian ætlaði
að kaupa leyfisbréf fyrir sig og
heitmey sína. Honum var neit-
að um það af þeim sökum að
hann væri sjálfur kvenmaður.
Hinn hrjáði Marian benti á að
kvenkyn hans hefði ekki staðið
í vegi fyrir því að hann var
tekinn í herinn og barðist 18
mánuði í franska hernum í
Þýzkalandi. En allt kom fyrir
ekki.
Um daginn fékk hann þó til-
kyríningu frá yfirvöldunum um
að þau hefðu ákveðið að breyta
nafni hans úr Marianne í Mari-
an.
í haust heldur geimsiglinga-
deildin ráðstefnu, þar sem vís-
indamenn í ýmsum greinum
flugtækni munu bera saman ráð
sín um möguleikana á því að
byggja úti í geimnum gervihnött,
sem mun snúast í kringum jörð-
ina eins og tunglið og verða
bækistöð geimrannsókna.
Áhrifin á menn rannsökuð
Frá því er skýrt að í Sovét-
ríkjunum sé eitt tilraunageimfar
nú þegar í smiðum og verið sé
að kanna möguleikana á að senda
slík tæki út í geiminn með menn
innanborðs.
Líffræðingar vinna að því að
kynna sér, hver áhrif geimferða-
laga yrðu á mannslíkamann.
Enn er ekki vitað, hve lengi
úfrýnta fuglum
í fréttaskeyti frá Tokio
segir, að japanskir skógar-
verðir haíl orðið varir við,
að vissum tegundum af far-
fuglum, t.d. svölum, iiafi
fækkað mjög þar frá því í
fyrra. Auk þess hafa óvenju-
margir fuglar af þessum teg-
undum furtdizt dauðir eftir
komuna til landsins. Taíið ei
að þetta stafi af geisíavcrk-
unum frá vetnissprengingum
Bandaríkjamanna. Það er
m.a. ráðið af því, að sumir
hinna dauðu fugla hafa vcrið
svo geislavirkir, að liægt hef-
ur verið að mæla geislunina
frá þeim með geigerteljur-
um.
menn munu þola að hafast við í
farrými geimfars, en „öll skil-
yrði eru fyrir hendi til að senda
fjarstýrð flugskeyti út í geiminn",
segir Literaturnaja Gaseta.
Sjónvarpstæki
Slík mannlaus geimför er hægt
að búa útvarpstækjum og jafn-
vel sjónvarpstækjum, sem myndu
senda til jarðar það sem getur
að llta úr geimfarinu.
Eitt af því sem vísindamenn
vinna að er að kanna það, hvern-
ig geimförum verði haganlegast
séð fyrir vistum.
Engin vandkvæði eru á því að
smíða hentuga hreyfla í geimfor
segir blaðið.
Dr. Rodger Cameron, sem
stjórnar tilraunum og rannsókn-
um á vegum Krabbameinsfélags
Bandaríkjanna, flutti erindi um
rannsóknina á fundi bandariskra
lækna.
Hann sagði að rannsókn á
200.000 karlmönnum á aldrinum
50 til 70 ára hefði sýnt að þeir
sem reykja sigarettur verða mun
skammlífari en þeir sem ekki
reykja eða reykja aðrar tóbaks-
tegundir.
Munurinn á langlífi þessara
tveggja hópa, sígarettureyginga-
manna og þeirra sem ekki reykja
sígarettur, stafar af því, hve
hjartasjúkdómar og krabbamein
i lungum er tíðara meðal síga-
rettureykingamannanna. Niður-
staðan, að sígarettureykingar
stórauka hættuna á hjartasjúk-
dómum og krabbameini, er svo
ótvíræð að dómi læknanna sem
rannsóknina gerðu, að þeir
steinhættu allir að reykja.
Vara þarf æskuna við
Dr. Cameron kvað læknum og
foreldrum bera skylda til að gera
unglingum ljóst, hvílíkt heilsu-
tjón þeir baka sér ef þeir taka
að reykja. Erfitt mun að venja
langvana reykingamenn af siga-
xettunum en heilsutjónið sem
þær valda er svo rækilega stað-
fest að unglingar, sem gerð er
grein fyrir staðreyndunum,
hljóta að hika við að hefja reyk-
ingar, sagði dr. Cameron.
Finna þarf meinvaldinn
Hann kvaðst sennfærður um
það, að þegar nýjustu niðurstöð-
ur læknavísindanna um skað-
semi sígarettureykinga verða al-
mennt kunnar, muni reykinga-
venjur gjörbreytast.
Það sem næst liggur fyrir vís-
indamönnunum er að finna það
eða þau efni í sígarettunum, sein
valda krabbameini og hjarta-
bilun, sagði dr-. Cameron.
„ASsíoð" skal varlð flS oð
koma offramEeiðslu ð verð
Óseljanlegum, bandarískum landbúnaðar-
aíurðum troðið upp á aðrar þjóðir
Bandarísk þingnefnd hefur ákveðið að rúmur sjöundi
hluti af dollara-,,aöstoð“ Bandaríkjanna við önnur ríki
skuli bundinn því skilyrði að landbúnaðarafurðir af of-
framleiðslubirgöum Bandaríkjastjórnar séu kej'ptar fyrir
féð.
Utanríkismálanefnd fulltrúa-
deildarinnar gerði samþykkt
þessa einróma og gildir hún um
500 milljónir dollara af 3.440
milljónum, sem lagt er til að
veittar verði á fjárhagsárinu
1954—1955 til „gagnkvæmrar ör-
yggisaðstoðar“, sem áður nefnd-
ist Marshallaðstoð.
Mælist Ula fyrir
Ríkisstjórnirríar, sem fá þessa
aðstoð, verða að skuldbinda sig
til að verja fénu til kaupa á
landbúnaðarvörum, sem íæynzt
hafa óseljanlegar eftir venjuleg-
um viðskiptaleiðum og fylla nú
vörugeymslur Bandaríkjastjórn-
ar svo að útaf flóir.
að koma landbúnaðarframleiðslu
sinni í verð dregur auðvitað úr
sölumöguleikum á framleiðslu
annarra lándbúnaðarlanda.
Bitnar það harðast á ýmsum
bandamönnum Bandaríkjanna,
svo sem Kanada, Danmörku og
Hollandi. Ríkir þar mikil gremja
ýfir þessum söluaðferðum og
tala menn mjög um óheiðarlega
samkeppni.
Eins og kunnugt er var því
harðlega neitað þegar bandariska
„aðstoðin“ við önnur lönd hófst,
að hún stæði í nokkru sambandi
við þörf Bandaríkjanna fyrir
markaði erlendis. Nú er sjálft
Bandaríkjaþing búið að staðfesta
að þeir sem héldu þessari skoð-
HanÉaka í Mont-
esssnálinu í Róm
Fyrir rúmum mánuði bar
Posilide Ganzaroli, sem er 33 ára,
vitni í eiturlyfjamálinu i Róm.
Fyrir nokkru var hún handtekin,
sökuð um falskan vitnisburð.
Ungfrú Ganzaroli hafði lýst yfir
í tímaritsgrein að hún hefði að-
fararnótt 10. apríl 1953 séð
nokkra menn fleygja liki Wilmu
Montesi í flæðarmálið skammt
frá Róm.
Handtaka Ganzaroli er hin
fyrsta í máli nýfasistans og
blaðamannsins Silvano Muto, en
það mál ;er eitt hið mesta
hneyksli í sögu Ítalíu. Máli
manns' .þessa hefur þó verið
frestáð umtóákveðinn tíma.
Muto hélt því fram að lög-
reglan hafi reynt að leyna dauða
Wilmu Montesi, vegna þess að
lát hennar hafi borið að höndum
í eiturlyfja- og svallsamkvæmi
sem margir háttsettir menn hafi
átt hlut að. Lögreglan hafði lýst
því yfir að hún hafi drukknað
af völdum slyss.
Snjóar i
Englandi!
Fólk í Bedfordshire í Eng-
landi ætlaði ekki að trúa sínurn
eigin augum sunnudaginn í síð-
ustu viku, þegar það kom út
um morguninn. Það hafði faliið
snjór um nóttina! Úrkoma hef-
ur annars verið óvenjumikil í
Englandi í þessum mánuði,
enda þótt ekki hafi snjóað
nema þessa einu nótt í þessu
eina héraði. Sums staðar var
rigningin svo mikil fyrstu tvær
vikur mánaðarins, að úrkoman
var þegar orðin meiri en í
nokkrum öðrum júnímánuði síð-
an 1917.
Þessi háttur Bandaríkjanna á . un fram böfðu rétt fýrir sér,
Átta ára gamall
Tarzan
Seinni part dags í síðustu viku
sáu vegfarendur í Kaupmanna-
höfn lítinn drenglinokka, S—9
ára gamlan, uppi á þaki Niku-
lásarkirkju. Snáðinn hafði klifr-
að upp eftir niðurrennunni, en
þegar hann ætlaði niður sömu
Ieið, brast hann kjark. —
Slökkviliðið kom á vettvang og
bjargaði honum niður á jörði’iá
aftur.