Þjóðviljinn - 27.06.1954, Qupperneq 1
Sunnudagur 27. júní 1954 — 19. árgangur — 140. töiublað
andarílun segja að árásarstráð á
®
Fcngu samþykkt í Öryggisráðimi ineð nanmom meiriíiluta (fulltrai
Sjang Kajséks reið baggamnniim) að vísa kærn Guatemala frá
Á fundi Öryggisráðsins í fyrrakvöld fengu Bandaríkin
riauman meirihluta ráðsins til að vísa frá kæru stjcrnar
Guatemala um að tilmælum ráðsins til aöildarríkja SÞ
um að forðast íhlutun í styrjöldinni þar hefði ekki verið
hefjast, gerðu þrjár flugvéia?
innrásarliðsins sprengjuárás é
Gúateraalaborg. Þær skutu
einnig úr vélbyssum á íbúðar-
hverfi í bænum og á júrnbraut-
arlest og drápu 7 raanns. Ein af
kirkjum borgarinnar skemmdist
í árásinni.
Boðað hefur verið til mót-
mælafunda í Suður-Afríku
vegna þeirrar ákvörðunar fas-
istastjcrnar Malans að flytja
58,000 þeidökka menn með
valdi úr vesturhverfum Jóhann-
esarborgar. Það eru sámtok
Afríkumanna sem gangast fyr-
ir þessum fundahöldum, og
ieiðtogi þeirra, Ntuli, sagði í
gær, að frelsisbaráttu hinna
þræíkuðu íbúa Suður-Afríku
mundi haldið áfram, þar til yf-
ir lyki.
Nehru o g Sjú
rœddusf Wð /
ehirúrni
finnt.
Kæru Guatemala var vísað
frá með 5 atkvæðum gegn 4, en
2 sátu hjá. Fulitrúar Bandaríkj-
anna, Kólumbíu, Brasilíu,
Tyrklands og Sjang Kajséks
greiddu frávísunartillögunni
atkvæði, en fulltrúar Sovétríkj-
anna, Danmerkur, Nýja Sjá-
lands og Líbanons greiddu at-
kvæði gegn henni. Fulltrúar
Bretlands og Frakklands sátu
hjá við atkvæðagreiðsluna.
Kemur SÞ ekki vifí!
Henry Cabot Lodge, fulltrúi
Bandaríkjanna, sem er form.
ráðsins þennan mánuð, sagði
áður en gengið var til atkvæða
að ríkin í Ameríku teldu ekki,
að SÞ hefðu rétt til að skipta
sér af málum, þar sem þau ein
ættu í hlut. Hann hótaði því,
að ef Örvggisráðið tæki af-
stöðu í Guateinaladeiiunni, sem
bryti í bága við þetta sjónarmið,
gæti það þýtt að SÞ leystust
upp.
Brot á stofnskrá SÞ.
Sovézki fulltrúinn, Tsarapkin,
sagði að ef Öryggisráðið færi að
vilja Bandaríltjanna í þessu
máli, mundi það þýða, að fram-
ið væri freklegt brot á ákvæð-
um stofnskrár SÞ, þar sem að-
ildarríkjum væri tryggður rétt-
ur til að snúa sér til samtak-
anna, og biðja um aðstoð, ef
á þau væri ráðizt. Bandaríkin
virtust álíta, að stofnskrá SÞ ;
hefði ekkert gildi á vesturliveli
jarðar.
Bíðiu: átekta.
Þegar kæru Guatemala hafði
verið vísað frá, bar Lodge fram
tillögu um það, að ráðið skyldi
bíða átekta, þar til það hefði
fengið í hendur skýrslu þeirrar
nefndar, sem sarntók Ame-
ríkuríkjanna hafa skipað til að
„rannsaka" stríðið í Guatemala.
I þessari nefnd hafa Bandarik-
in tögl og hagldir. Tillagan var
samþj’kkt með 10 atkv. gegn
atkvæði sovétfulltrúans, sem
sagði að slík nefnd, ef send yrði,
ætti að vera á vegum SÞ.
Nefndin fær ekki að Itonia
til Guatemala.
Fulltrúi Guatemala hjá SÞ,
Arriola, skýrði frá því eftir sam
þykkt þessarar tiliögu, að
stjórn Guatemala hefði ákveð-
ið að neita nefnd þessari um
lcyfi til að korna til landsins.
Er því ekki annað sýnna en að-
Öryggisráðið, þar sem fulltrúi
Sjang Kajséks hefur oddaað-
stöðu, muni láta árásina á
Guatemala afskiptalausa, a.m.k.
fyrst um sinn.
Lítið barizt.
Ekkert frcttist af bardögum
í Guatemala. Innrásarliðið held
ur því fram að það hafi náð
bænum Chiquimula (9000 íb.),
sem er rúmlega 30 km frá
landamærum Honduras og 100
km frá höfuðborginni, á sitt
vald. Herstjórn Guatemala seg-
ist alls staðar hafa undirtökin
í viðureigninni við innrásarlið-
ið og hefur ekki viðurkennt, að
her hennar hafi hörfað úr
Chiquimula.
I fyrradag, um það leyti sem
fundur Öryggisráðsins var að
Argentínuþing heitir stjórn
Guatemala fulltingi sínu
Báðsr deildir þingsins í Arg-
entínu hafa samþykkt ályktun,
þar sem lýst er yfir stuðningi
við stjórn Guatemaia í viður-
eign henns.r við innrásarliðið og
henni heitið fulltingi Argentínu.
I ályktumnni er lagt til að rikin
í rómönsku Ameríku tald hönd-
um saman til að aðstoða Guate-
malastjórn við að koma aftur
á friði í iandinu.
Þing TJruguay og Chilo liafa
þegar samþykkt sams konar á-
lybtanir.
Sju Enlæ fór um Nyju Deihi
í gær í fylgd með Nchru að sjá
mcrkisstaði í borginni. Síóan
ræddust þeir við í einrúmi í
nokkrar klukkustundir. Auk
þeirra var aðeins túlkur við-
staddur viðræðurnar. Sjú Enlæ
mun halda af stað áleiðis til
Peking á morgun en mun koma
við í Rangún í boði forsætisráð-
hérra Burma.
manna um a
s
Ríkisstjórn hernámsflokk-
anna hefur lýst yfir þeirri á-
kvörðun sinni að drita her-
stöðvum og spillingarbælum
Bandaríkjamanna niður á öll-
um landshornum.
Mennirnir, sem þvert ofan í
svardaga sina árum saman
um að aldrei skyldu vera hér
herstöðvar á friðartímum,
laumuðu bandarísku her-
námsliðinu hér á land eina
vornótt meðan þjóðin svaf.
Lengi vel þagði hún sem
vendilegast um að hún ætlaði
að leggja alla fjórðunga
landsins undir bandarískar
herstöðvar, en smátt og smátt
hefur hún neyðst til að játa.
Auk þess að $jálfstæðis-
flokkurinn og Framsókn hafa
afhent bandaríska hernum
suðurhluta Reykjanesskagans
og herstöð í Hvalfirði, var
í fyrra byrjað á
rískri herstöð í Aðalvík á
Vestfjörðum, ennfremur á
vegalagningu að fyrirhugaðri
herstöð á Langanesi og loks
við Horn í Austur-Skaftafells-
sýslu. Þetta allt auk fyrirhug-
aðra flugvalla. Og Framsökn
hefur sérstaklega dreymt um
að láta herinn byggja sér
höfn í Þorlákshöfn. Að lokn-
um ýtarlegum athugunum^
mun herraþjóðin hafa hafnað
því að láta þetta eftir þjón-
um sínum og mun heldur
kjósa að leggja undir sig
landshöfnina í Njarðvík.
Á bandariska spillingarbæl-
inu í Hornafirði hefur Fram-
sóknarflokkurinn sérstaka
í dag heldur áfram útiskemmtun Æskulýðsfylkingar-
innar í Botnsdal í Hvalfirði. Ferðir á skemmtunina verða
frá Ferðaskriístofu ríkisins, kl. 8 og 11 árdegis.
______________________________ Dagskráin hefst með því að
Lúðrasveit verkalýðsins leikur
nokkur lög undir stjórn Haralds
Guðmundssonar. Þvínæst flytur
Bjarni Benediktsson ávarp;
nokkur pör úr hópi Búkarest-
fara sýna þjóðdansa, hina sömú
og þau sýndu þjóðum á Heims-
mótinu; þá flytur Karl Guð-
mundsson gamanþátt; Söngfélag
verklýðssamtakanna syngur und-
ir stjórn Sigursveins D. Krist-
inssonar; þá er handknattleikur
milli Fylkingarinnar og íslands-
meistaranna Ármanns, og að
lokum verður dansað á palli
fram eftir kvöldi.
Þrátt fyrir kalsaveður í gær
bjuggust margir til að ■ gísþa
uppfrá í tjöldum í nótt; en 'eíns.
og áður segir eru ferðir upp
eftir frá Ferðaskrifstofunnl kf.
8 árdegis í dag og kl. 11.
Það er vafamál að deginum
verði betur varið til annars en
sækja þessa fjölbreyttu skemmt-
un Fylkingarinnar.
velþóknun á því það er þar
sem hernámsdeild SÍS fær að
græða á innflutningi hol-
lenzks sands, vatns og vinnu.
Myndin hér að ofan er af'
herstöð Bandaríkjamanna við
Horn í smíðum. Neðri mynd-
irnar eru frá Höfn í Horna-
firði. Á myndinni til vinstri
scst hafnarbakki þessa frið-
sæla staðar meðan börnin
leika sér þar enn óáreitt. Á
myndinni til hægri er sami |
hafnarbakkinn þakinn stríðs- * 1
undirbúningi Bandaríkja- |
manna.
Ólga í Túnis
Ólgan í nýlendum Frakka í
Norður-Afríku fer dagvaxandi.
I gær tilkynnti landstýóri
Frakka í Túnis, að lierinn hefði
tekið við öryggisgæzlu í fjalla-
héruðum í vestur-, suður- og mið
hluta landsins af lögreglunni.