Þjóðviljinn - 27.06.1954, Side 8

Þjóðviljinn - 27.06.1954, Side 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 27. júní 1954 Sumarbústaður og félagsheimili Blöðin hafa skýrt frá því undanfarna daga, að Stokks- eyringafélagið hafi gefið Páli ísólfssyni mjög myndarlega og verðuga afmælisgjöf í heiðurs- skyni fyrir ágæt listræn verk, en Páll er sem kunnugt er Stokkseyringur að uppruna og hefur ævinlega haldið mikilli tryggð við æskustöðvar sínar. Gjöfin er reisulegur sumarbú- staður, og hafa birzt myndir af honum í blöðum, en hann var byggður með fjárframlög- um Stokkseyringa einna saman, og er þó félag þeirra hvorki fjölmennt né mjög fjársterkir menn sem að því standa. En þetta er dæmi þess hvað unnt er að gera með góðum samtök- um. Morgunblaðið, Vísir og Tím- inn hafa öll skýrt frá þessu mikla framtaki Stokkseyringa — en svo undarlega hefur brugðið við að þeim ágætu bíöðum hefur láðst að geta þess að sumarbústaðurinn sé raunar byggður fyrir fé frá Bússum eða einhverjum öðrum framandi þjóðum. Þó hafa þessi sömu blöð klifað á því undan- íarnar vikur að samtök ís- ienzkra manna séu einskis megnug á þessu sviði. Þannig hafa þau haldið því fram að islenzkir sósíalistar, þriðji stærsti flokkur landsins með á annan tug þúsunda atkvæða á bak við sig, hljóti að vera þess ómegnugur að kaupa hús fyrir samtök sín. En er það þá hugs- anlegt að fámennt félag geti á þann hátt byggt bústað fyrir einn ágætan meðila sinn? At- hyglisvert væri að fá ljósa skýringu frá Morgunblaðinu, Tímanum og Vísi — svo að Stokkseyringafélagið og Páll ís- ólfsson fái þá einnig um það ótvíræða vitneskju hvort á- kærurnar um getuleysi íslend- inga nái einnig til'þeirra aðila. SéjfMp til Stjórnir Norræna félagsins og Sænsk ísl. félagsins í Svíþjóð hafa ákveðið að veita fimm ís- lenzkum leikurum styrk til kynnidvalar í Svíþjóð. Fjórir styrkir eru 1.400.00 sv. kr. hver og einn 700.00 sv. kr. Eeikurum, sem hljóta styrki þessa verður gefinn kostur á að koma fram opinberlega til listflutnings og greiða stjórnir félaganna fyrir þeim eftir föngum svo þeir megi hafa sem mest not af dvöl sinni í landinu. Þeir,. sem vilja sækja um styrkinn sendi umsóknir sín- ar til Guðlaugs Rósinkranz þjóð- leikhússtjóra fyrir 15. júlí og taki jafnframt fram ef hægt er, á hvaða tíma þeir óska að fara. Stjórnir Norræna félagsins og Þjóðleikhússins ákveða í sam- einingu hverjir hljóti styrkina. (Frá Norræna félaginu). >5r ÍÞRÓTTiR RJTSTJÓRl. FRlMANN HELGASON Fimfeikaflokkur KR sýnir á eimi elzta og stærsta fimleikamóti Norðurlanda Málaranemi og sveinn óskast ~ nú þegar Vilhjálmur Ingólfsson, málarameistari. Sími 4624. Þjóðvil jami vantar imglieg til að bera biaðið til kaupenda við LAU6ABÁS V£G. Talið v'ú afgreiðsluna. Sími 7500 Gullmedalrahafar Olympíuleikanna 1948 sýna í Tívolí í dag og í kvöld Aögöngumiðar selldir í Tívolí frá kl. 2. Aðgangur kr. 3,00 fyrir börn og kr. 10,00 fyrir fullorðna. Enginn má missa af að sjá þesas heimsfrœgu meistara. Glímufélagið Ármann Lögtök Eftir kröfu ríkisútvarpsins og sam- kvæmt úrskurði uppkveðnum í dag, verða lögtök látin fara fram til tryggingar ógreiddum afnota- gjóldum af útvarpi fyrir árið 1953, á ábyrgð lög- taksbeiðanda, en kostnaö gjaldenda, að liðnum átta dögum frá birtingu þessarar auglýsingar. Borgarfógetinn í Reykjavík, 25. júní 1954. Kr. Kristjánsson. Dagana 3.—8. júlí næstkom- andi fer fram 15. landsmót Norðmanna í finileikum að Ilalden í Noregi. Fyrsta landsmótið fór fram í Fredrikshald 1886. Landsmót þessi hafa hverju sinni verið mesti fimleikaviðburður hvers árs, og að þessu sinni safnast saman í Halden um 6000 karlar og konur til þátttöku í mótinu, sem er það fjölmehnasta,' sem um getur í sögu nörskra fim- leika. Norska fimleikasambandið hef- ur boðið til þátttöku í mótinu flokkum frá öllum Norðurlönd2- unurri. Fyrir hönd fslands mætir 10 manna fimleikaflokkur frá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur. Flokkur þessi hefur æft áhalda- leikfimi síðan 1949 og er nú bú- inn að ná lengra en nokkur hér- lendur flokkur hefur áður náð í alhliða getu. Norðmenn hafa æft áhaldaleik- fimi (Turn) í rúmlega 100 ár og oft átt mjög góða flokka og ein- staklinga á alþjóðamælikvarða. ] Fróðlegt verður því að fylgjast með, hvaða dóma K.R.-flokkur- inn fær í Noregi. Stjómum 12 fimleikasambanda á Norðurlöndum er boðið til mótsins, þar með talið boð til forseta íþróttasamþands íslands. Verndari mótsins er konung- urinn, Haakon VII, og heiðurs- forseti Olav, krónprins. Mótið stendur yfir frá kl. 8 f. h. til kl. 7 e. h. alla dagana. Helztu atriði mótsins eru: 1. Sýningar erlendra og norskra flokka, frá barna- tU öldunga- og húsmæðraleikfimi. 2. Keppni í áhaldaleikfimi milli Dana, og Norðmanna í ungl- ingaflokkum, aldur 17 ára og yngri og 18—21 árs. 3. Norska meistaramótið í flokka Fimleikamaður úr IÍR og einmenningsleikfimi fyrir karla ag konur í I., II. og III. flokki. fslenzki flokkurinn sýnir á opnunardaginn þann 4. júlí kl. 2 e. h. Þetta er í fyrsta skipti, sem íslenzkur flokkur sýnir áhalda- fimleika erlendis á stórmóti á öllum áhöldum öðrum en boga- hesti. Vonandi fylgir flokknum góður hugur fslendinga um að vel farnist. Flokkurinn flýgur til Osló þann 30. þ. m. Þeir, sem fara, eru: Arni Magnússon, Jón Júlíus- son, Jónas Jónsson, Þorvaldur Veigar Guðmundsson, Ólafur Guðmundsson, Helgi S. Jóhann- esson, Hörður Albertsson, Sigur- jón Gíslason, Vigfús Guðmunds- son, og kennari flokksins og fararstjóri, Benedikt Jakobsson. Mikið byggt af íþrótta- mannvirkjum í Póllandi ÆCISBf'Ð Vesturgötu 27, tilkynnir: Camelsigarettur pk. 9,00 kr. Crv. appelsinur kg. 6,00 kr. Brjóstsykorspk. frá 3,00 kr. Atsúkknlaði frá 5,00 kr. Ávaxta-heildósir frá 10,00 kr Ennfremur allskonar ódýrar sælgætis- og tóbaksvörur. Nýjar vörur ðaglega. Æ6ISBÚÐ' Vesíurg. 27 Á síðustu árum hafa orðið stórstígar framfarir í, íþrótta- málum Póllands. í tíð alþýðu- stjómarinnar hafa verið byggð- ir um 70 stórir leikvangar og fjöldi annarra minni íþrótta- valla í borgum landsins. í sveit- unum hefur verið lokið við byggingu yfir þúsund knatt- spyrnuvalla, 3 þús. blakvalla og á sjötta hundrað frjálsíþrótta- svæða. Hinir nýju leikvangar eru flestir stórir og á mörgum þeirra em svæði fyrir allt að 100 þús. áhorfendur. Á þess- um íþróttasvæðum em auk knattspyrauvalla, hlaupa- og stökkbrauta, tennisvellir, fim- leikasalir, svæði fyrir blak og fjölmarga aðra knattleiki. Stefna alþýðustjórnarinnar í íþróttamálunum hefur þegar leitt til þess að Pólverjar hafa eignazt marga afreksmenn á heimsmæiikvarða. Nægir að minna á hinn unga spjótkast- ara Sidlo, sem kastað hefur spjótinu yfir 80 metra. Bob RicSiards slekkor 4Ji m á stöiig Mjög góður árangur náðist á meistaramóti Bandaríkjanna sem fór fram um s.l. helgi í St. Louis. Á móti þessu stökk séra Bob Richards 4.66 í stangar- stökki, sem er bezti árangur sem náðst hefur í heiminum í ár í þeirri grein. Erne Shelton stökk 2.07 í há- stökki og Jack Davis vann 120 yard grindahlaup á 14.0, en Barry O' Brien kaataði „aðeins“ 17.97. Sidlo íyrir leíkiim •Heimsmeistarinn Rocky Marc- iano fékk 40% af tekjunum, sem inn komu á leik hans og Ezzards Charles á dögunum, eða um 246 þús. dollara (rúm- lega 4 millj, ísl. kr.). Charles varð að láta sér nægja 20% eða 123 þús. $ (um 2 millj. kr.). Svíþjéð—Sovét- ríkin í september Fyrsti landsleikur Svíþjóðar og Sovétríkjanna í knattspyrnu verður héður 8. sept. í haust i Moskva. Fyrir byltinguna háðu Svíar og Rússar tvo landsleiki. Var annar háður í Moskva 1913 og lauk með sigri Svía 4t—1, síðari leikurinn fór fram í Stokkhólmi ári síðar og varð jafntefli 2—2.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.