Þjóðviljinn - 17.07.1954, Blaðsíða 6
6)
ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 17. júlí 1954
-<$>
þlÓOVIillNN
tjtgefandlc’JSamelning-arflokkur alþýfiu — Sósíallstaflokkurina.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), SigurQur Guðmundsson.
Fréttastjórl: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónssor.. fijarni Benediktsson, Gu8-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmHJja: íSkólavörðustíf
•19. — Síml 7600 (3 línur).
‘ Askriftarverð kr. 20 é mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 11
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
„Bjargráð" ríkissljérnarinnar
Það fer ekki mikið fyrir skrifum stjórnarblaðanna um
eitthvert alvarlegasta ástand sem dunið hefur yfir íslenzkt
atvinnulíf: stöðvun togaraflotans. Yfirleitt láta þau eins
og ekkert hafi gerzt og að það sé sjálfsagður hlutur að
afkastamestu framleiðslutæki landsmanna séu ónotuð á
sama tíma og betri og víðtækari markaðir bjóðast en
nokkru sinni fyrr. í gær rýf;ur Tíminn þó þögnina — til
þess eins að bera sig upp undan því að Þjóðviljinn skuli
sífeldlega vekja athygli þjóðarinnar á þessu mikla vanda-
máli og krefst þess að ríkisstjórnin láti af skemmdar-
verkum sínum.
Tíminn segir að Þjóðviljanum farist ekki að tala því
sósíalistar hafi haldið „því fast fram á sínum tíma, að
þessir nýsköpunartogarar væru svo fullkomnir að með
tilkomu þeirra væru öll rekstrarvandamál úr sögunni“H
Þessi kenning er aðeins tilgreind hér til aö sýna hversu
iila Tímamenn eru á sig komnir andlega, en hún gefur
raunar tilefni til að rifja annað upp.
Þegar núverandi stjórnarflokkar börðu gengislækkun-
ina í gegnum Alþingi, var sú aðgerð rökstudd með því að
hún myndi koma sjávarútveginum á heilbrigðan grund-
völl. Ráðamennirnir viðurkenndu að vísu að gengislækk-
unin skerti kjör allrar alþýðu að mun, en sú skerðing
væri óhjákvæmileg vegna atvinnulífsins. Gengislækkunin
mvndi tryggja það að bátaflotinn og togararnir myndu
geta starfað á fullum afköstum — og lofsöngur stjórn-
arflokkanna um þessa framtíð blekkti marga. Sósíalistar
bentu hins vegar á það þá þegar að þessi kenning væri
blekking. Gengislækkunin hefði í för með sér að allur
kostnaður við útgerðina myndi aukast svo stórlega að
það^meira en æti ábatann upp. Stjórnarflokkarnir héldu
sarrít fast við sitt, skertu krónuna svo stórlega að erlend-
ur gjaldeyrir hækkaði um 75%, rændu sparifé og lækk-
uðu raunverulegt kaup.
Reynslan hefur nú sannað að sósíalistar höfðu á réttu
að standa. Hagur útgerðarinnar var aldrei verri en eftir
þetta margauglýsta „bjargráð“. Fljótlega kom að því að
bátaflotinn komst algerlega í þrot og var þá enn vegið
í sama knérunn með bátagjaldeyrisokrinu, sem nemur
nú nær 100 milljónum króna á ári til útvegsins. Það sam-
svarar um 50 aura hækkun á fiskverðinu til bátaflotans
— en togararnir fá ekki eyri af þeirri stóru upphæð.
Og nú er röðin komin að þeim til að sýna þjóðinni
hversu haldgóð eru „bjargráð“ stjórnarflokkanna. En al-
menningur hefur lært svo mikið að stjórnarflokkunum
mun ekki takast einu sinni enn að vega í sama knérunn.
Verkalýðssamtökin hafa lýst yfir því skýrt og skorinort að
þau muni ekki þola neina nýja kjaraskeröingu og þau
hafa gert sérstakar ráðstafanir til að hefja tafarlausa
gagnsókn ef sú leið verður reynd. Jafnframt hefur ríkis-
stjórninni verið bent á aö af nógu er aö taka hjá millilið-
um þeim sem hirða arðinn af ‘útgerðinni, bönkum, fisk-
kaupmönnum, olíufélögum, tryggingafélögum, heildsöl-
um og öðrum slíkum. Ríkisstjórninni er ljóst að verka-
lýðssamtökunum er alvara — og af því stafar allt ráð-
leysiö og fátið. Það tók ekki langan tíma aö berja gengis-
lækkunina í gegnum þingið, en það vefst fyrir erindrek-
um auðmannastéttarinnar að taka yfirboðurum sínum
blóð og þaö verður að gerast á mjög mildilegan hátt!
Og á meðan er togarafloti landsmanna bundinn. En
hver dagur sem líður er nýr áfellisdómur yfir stjórnar-
flokkunum ,,bjargráðum“ þeirra og getuleysi ef ekki er
talið fært að ráðast á lífskjör almennings. Það er óhætt
að fullyrða að 1 engu landi heims — nema íslandi —
myndi ríkisstjóm treysta sér til að sitja við völd ef hún
hefði stöðvað mikilvægustu atvinnugrein þjóðarinnar án
þess að hafa manndóm til að benda á nokkur haldgóð
úrræði.
f Vestur-Þýzkalandi er mikil andstaða gegn hervæðingunni. Myndin sýnir lögreglu í Munclien
ráðast á mótmælafund verkamanna gegn Evrópuherssamningunum
Evropuher - þrætuepli Vesturveldanna
OsamkomulagiS milli Frakklands annars
vegar en Breflands og Bandarikjanna hins
vegar fer stöSugt vaxandi
F1 ftir þrjá daga sést, hvort
stjórn Pierre Mendés-
France í Frakklandi verður
lengra lífs auðið eða hvort
hún verður aðeins mánaðar
gömul. Þegar Mendés-France
myndaði stjórn um miðjan
júní lýsti hann yfir, að hann
myndi einbeita sér að því að
ná samningum um vopnahlé í
Indó Kína fyrir 20. júlí eða
segja af sér ella. Utanríkis-
ráðherrar allra stórveldanna
nema Bandaríkjanna eru nú í
Genf í Sviss að ræða þessa
samningagerð. Viðræður allar
hafa verið leynilegar upp á
síðkastið og fregnir blaða-
manna, sem þykjast hafa
fengið einhverja nasasjón af
því, sem ráðherrunum hefur
farið á milli á leynifundunum,
eru allt annað en samhljóða.
Þó ber þeim saman um að
Mendés-France sé bjartsýnn
á að samningar takist, Bret-
arnir telji það undir hælinn
lagt hvað ofaná verður og hin
höfuðlausa, bandaríska sendi-
nefnd telji öll tormerki á því
að semjist um frið í Indó Kína.
Hyfestu máli skiptir í þessu
efni, hvað ráðherrum
Vesturveldanna hefur farið á
milli í París fj'rr í vikunni,
þegar Dulles skundaði þangað
til að hitta Eden og Mendés-
France. Heita mátti að Banda-
ríkjamenn drægju sig út úr
samningaviðræðunum í Genf
þegar Mendés-France afréð í
óþökk þeirra að ræða einslega
við Sjú Enlæ, forsætis- og ut-
anríkisráðherra Kína, og Pham
Van Dong, utanríkisráðherra
stjórnar sjálfstæðishreyfing-
arinnar í Indó Kína. Banda-
rískir ráðamenn hafa hvað
eftir annað lýst yfir andstöðu
við friðarsamninga í Indó
Kína. Hinsvegar hafa þeir
ekki viljað lofa Frökkum, sem
háfa ekki lengur bolmagn til
að berjast þar einir, aðstoð
bandarískra hersveita. Þetta
varð til þess að stjórn Laniels
og Bidaults, sem var litlu fús-
ari til samninga en Banda-
ríkjamenn, féll og Mendés-
France, sem árum saman hafði
krafizt friðar í Indó Kína,
Er lend
tíðindi
v ______________✓
komst til valda. Eftir er að
vita hver loforð Dulles hefur
tekið af honum í París til end-
urgjalds fyrir þá tilslökun að
senda aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Bedell
Smith, til Genf.
i^angi allt að óskum ætti
^ vopnaviðskiptum að ljúka
í Indó Kína um næstu mán-
aðamót. Myndi þá fljótt
hljóðna um atburðina austur
þar eins og Kóreu á sínum
tíma. Enginn vafi er á því,
hvert athygli þjóðanna myndi
beinast næst. Fyrirætlanirnar
um að hervæða Vestur-Þýzka-
land myndu verða brennidepill
heimsmálanna. Það var fyrir
rúmum tveim árum, í maí
1952, sem fulltrúar frá Banda-
ríkjunum, Belgiu, Bretlandi,
Frakklandi, Hollandi, Italiu,
Luxemburg og Vestur-Þýzka- s
lands komu saman í Paris og
undirrituðu tvenna samninga.
Aðrir fjalla um það, að Vest-
ur-Þýzkaland sku4i fá fullveidi
og hernámi þess ljúka að nafn-
inu til þótt hernámsliðið eigi
reyndar að vera um kyrrt og
hafa rétt til að grípa fram í
þróun innanlandsmála undir
nánar tilteknum kringumstæð-
um. Hinir samningarnir fjalla
um það að þau þessara ríkja,
sem eru á meginlandi Evrópu,
stofni sameiginlegan her, sem
nefnist Evrópuher. Hluti af
þeim her verði hersveitir, sem
komíð verði á laggirnar í
Vestur-Þýzkalandi. ■— Þessir
tvennir samningar eru tengd-
ir á þann hátt, að Vestur-
Þýzkaland fær ekki fullveldi
fyrr en allir aðiiar hafa full-
gilt samningana um Vestur-
Evrópuher.
^íll aðildarríkin að þessum
” samningum nema tvö hafa
nú fullgil't þá. Undantekning-
arnar eru Frakkland og ítalía.
Horfur eru á að samningarnir
verði samþykktir á ítalska
þinginu seint og um slðir en
í Frakklandi er meirihluti
þingmanna þeim andvígur.
Landvarnanefnd, utanríkis-
málanefnd og laganefnd þings-
ins hafa með miklum meiri-
hluta samþykkt nefndarálit,
þar sem lagt er til að þingið
hafni samningunum. Engu að
síður hafa allar ríkisstjórnir,
sem setið hafa í Frakklandi
síðan samningarnir voru gerð-
ir, lýst yfir fylgi við þá. Þetta
breyttist ekki fyrr en Mendés-
France tók við stjórnartaum-
unum. Hann hefur í stjórn
sinni bæði fylgismenn og and-
stæðinga samninganna og
skipaði sinn ráðherrann úr
hvorum hópi til að bera ráð
sín saman og reyna að komast
að því, hverjar breytingar
þurfi að gera á samningunum
til þess að verulegur meirihluti
þingmanna geti sætt sig við
þá.
amningarnir um Evropu-
herinn voru gerðir að
frumkvæði Bandaríkjamanna,
sem kröfðust þess að Vestur-
Þýzkaland yrði hervætt. —
Stjórnir Vestur-Evrcpuríkj-
anna dröttuðust með af fylgi-
spekt við Bandaríkin. Liðið
er ár síðan Dutles utanrikis-
ráðherra tók að hóta því að
stefna Bandaríkjanna gagn-
vart Vestur-Evrópu yrði tekin
til gagngerðrar endurskoðun-
ar ef samningarnir úm Evr-
Framhald á 8. siðu.