Þjóðviljinn - 18.07.1954, Síða 5

Þjóðviljinn - 18.07.1954, Síða 5
Sunnudagur 18. júlí 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Plógurinn er 55oo ára gamall Plœging. Ævaforn klettarista frá Bohuslan í Svíþjóð. Milljónaradóttir velur úr níu biðlum: Skorcði þé á héisn í drykkju, hnefaleik ®g relmennsku Mörg ung stúlka hefur fj’rr og síðar átt erfitt með að gera upp á milli biðla sinna, en bandaríska milljónara- dóttirin tJladys Fitzburgh kunni ráð til að velja úr þeirn. Elzta mynd af plógi sem menn þekkja fannst þar sem nú heitir Irak og er talin 5500 ára gömul, segir norski mann- fræðingurinn og þjóðfræðing- urinn prófessor Gutorm Gjess- ing í grein í danska tímaritinu Vor Viden. Þá bjó þarna þjóð sem hét Súmerar. Engin vissa er þó fyrir að þeir hafi fund- ið plóginn upp, því að tækið sem myndin er af er svo vand- að að það hlýtur að hafa átt sér aldalanga þróunarsögu. Drógu plóg með halanuin. Það er þó nokkurnveginn víst að plógurinn hefur breiðzt út frá Mið-Austurlöndum til annarra hluta Asíu, Norður- Afríku og Evrópu. Víða hefur hann lítið sem ekkert breytzt fram á okkar daga. Húsdýrahald og plógurinn fylgdust að. Fyrsta dráttardýr- ið var uxinn, hann þekkist á mörgum klettaristum af plæg- ingu frá Norðurlöndum. Oftast eru uxarnir með ok á herðum, en stundum virðist plógnum hafa verið fest aftan í halann á vesalings skepnunum. Gerði menningarlíf mögulegt. Áður en plógurinn kom til sögunnar erjuðu menn jörð- ina með grefi. Það var. sein- legt og erfitt verk, plógurinn var margfalt stórvirkara tæki. Akrarnir stækkuðu og uppsker- an jókst. Bóndinn gat fram- leitt meira en hann þurfti til viðurværis fyrir sig og sína. Þar með hafði skapazt grund- völlur fyrir mvndun borga og verzlunarviðskipti. Öþekktur í Amerílm. Fornu menningarríkin í Asíu og Evrópu hefðu ekki getað myndast ef ekki hefðu komið Ðunrmni Franska heilbrigðisstjórnin hefur skipað lyfsölum að skila tafarlaust öllum birgð- um af nýju kýlalyfi, stalin- on, sem'reynzt hefur stór- hættulegt. Að minnsta kosti 20 manns hafa þegar látizt af því að taka það inn. Stalinon eru töflur, sem innihalda bæði tin og brenni stein. Lyfjaeftirlitið sam- þykkti í janúar í vetur að hefja mætti sölu á lyfinu. Voru þúsundir askja með töflunum komnar til lyfsal- anná þegar tilraunir á músum leiddu í ljós að stal- inon veldur banvænni heila- bólgu. Nær samtímis fóru fréttir að berast af fyrstu mannslátunum af völdum til bóndinn og plógur hans. En hvergi meðal Indíána í Amer- íku, ekki einu sinni í háþróuð- ustu menningarríkjum þeirra í Mexíkó og Perú, þekktist plóg- urinn áður en Evrópumenn komu þangað. Þótt ótrúlegt sé er það engu síður satt, að indíánaþjóðirnar, sem lifað hafa af á nokkrum lándskikum í Bandaríkjunum, kynntust ekki plógnum fyrr en á fjórða áratug. þessarar ald- ar, þegar stjórn Roosevelts geríi ráðstafanir til að bæta hag þeirra. Það af þessum efnum, sem athygli geðlæknanna beinist einkum að sem stendur, er tví- ethylamíd lysinsýrunnar, oftast nefnt LSD 25. Tveir svissneskir vísindamenn, Stoll og Hoffman, fundu efnið árið 1938. „Lísa í Undralandi“ Fyrstu verulegu tilraunirnar með LSD 25 fóru þó ekki fram fyrr en nú nýskeð í geðveikra- hælinu Powick í Englandi. — Læknarnir sem beittu þvi við sjúklinga sína hafa skýrt frá reynslu sinni. Þeir stinga upp á því að lyfið fái nýtt nafn, Lísa í Undralandi, eftir sögu- hetjunni í barnasögunni frægu. Lísa varð fyrir hinum kynleg- ustu myndbreytingum í Undra- landi. Vitundin klofnar Áhrif LSD 25 eru einkum fólgin í því, að sá sem tekur það inn getur lifað aftur löngu liðna atburði, fundizt að þeir séu að gerast og þó vitað að þeir eru ekki v.eruleiki. Þetta er ekki ósvipað því, þega-r menn dreymir en vita jafnframt af því að draumurinn er draumur. Reynt á 3(5 sjúklingum Ensku geðlæknarmr Sandi- son, Spencer og Whitelaw, sem reyndu LSD 25 við 36 sjúk- linga, segja í grein í lækna- blaðinu Journal of Mental Sci- ence, að það sé áhrifaríkast allra slíkra lyfa, sem þe;r hafa spurnir af. Venjulegur skammtur, sem þeir gáfu sjúklingunum, var TiU til Picasso málverka úr- skurðað tilefn- islaust Dómstóll í París hefur vís- að frá máli sem kona nokkur höfðaði til að krefjast 37 mál- verka eftir Picasso, sem sýnd hafa verið í París undanfarnar vikur, en tilheyra söfnunum í Moskva og Leníngrad. Konan, frú Irone Kesser- Stjúkín, er dóttir rússnesks iðnrekanda, sem fór úr landi eftir byltinguna. Hún heldur [)ví fram að faðir sinn hafi átt málverkin og sovétstjórnin hafi náð þeim af honum með rang- indum. Dómarinn úrskurðaði að kæra og málflutningur frúar- innar væru ekki á minnstu rök- um byggð. 25 míkrógrömm. Fyrstu áhrif- in eru lík og af neyzlu hashish. Neytandinn fer að flissa eða gráta, svo þagnar hann en rekur öðru hvoru upp óp. Hann titrar og svitnar og sýnir öll merki um nagandi kvíða. Síð- an hefst „reynsla" hans, sem getur verið margskonar. Allt Ijóst og skýrt Stundum lifðu sjúklingarnir á ný löngu liðna atburði eins skýrt og þeir væru að gerast á ný. Kona nokkur komst svo að orði: „Mér varð ljóst að ég var að lifa aftur atburð, sem gerð- ist þegar ég var lítil og við vorum í sumarleyfi....... Ég varð ekki hið minnsta hissa þótt ég horfði á höndina á mér og handlegginn minnka, þangað til þau urðu eins lítil og á sjö til átta ára barni, og mér fannst ég vera úti með mömmu að fara í búðir. Hún hafði gengið spölkorn á undan mér, og þegar ég varð þess alit~i einu vör að ég gat ekki fundið hana, fannst mér ég vera svo einmana og yfirgefin“. Aftur í aklir Öðrum finnst þeir fara langt aftur í tímann: „Það var eins og hluti af mér væri skilinn frá mér.... Þegar ég horf ði á höndina á lækninum, sá frá- skildi hlutinn hana eins og hún var, hinn hlut'nn fylltist hryll- ingi.... höndin var svo forn að hún hefði getað verið til frá örófi alda.... það var sand- ur og skærir litir.... egypzk skreyting og sfinx“. Ungfrú Fitzburgh er nítján ára gömul og dóttir forríks kaupsýslumanns í Pittsburgh. Hún átti níu pilta að nánum vinum, og allir vildu fegnir giftast henni — og milljónun- um. Vildi fá mann sem væri sér meiri. F.n Gladys litla vissi hvað hún vildi, það kom ekki til mála að hún gæfi öðrum hönd sína en þeim, sem væri henni meiri. En slíkir karlmenn eru sannarleg ekki á hverju strái, þvi að Gladys Fitzburgh er ekki fisjað saman. 200 gestum boðið til keppninnar. I húsi föður síns, sem er í raun og veru höll, efndi ungfrúin til Lifðu aftur fæðingu sína Enn öðrum fannst þeir verða að vinum sínum e!a ættingj- um. Allmargir héldu sig vera mæður sínar, en vissu þó að svo var ekki, og tve’r lifðu aft- ur fæðingarstund sína með allri þeirri reynslu, sem henni fylgdi. Ensku læknarnir segja að LSD 25 hafi sjálft engan lækn- ingamátt en geti þó komið að miklu gagni við lækningu geð- sjúklinga. Það hvetur J)á til að túlka ímyndanirnar, sem þjaka hug þeirra, og minningarnar sem rifjast upp koma læknun- um að haldi við að ákveða frek- ari meðferð sjúklinganna. Af 23 sjúklingum, sem hlotið höfðu fulla meðferð með LSD 25 og geðiækningum, telja læknarnir 14 albata og einum að auki fór mik:ð fram. einstæðrar keppni. Hún skoraði biðlana níu á hólm í þrem greinum, drykkju, hnefaleik og reiðmennsltu. Sá einn, sem yrði meynni yfirsterkari í þessu þrennu, gat talizt þess verður að fá hennar. Tvö hundruð gesturp var boðið að horfa á keppnina. Sló tvo í rot. I hnefaleikahringnum sigraði Gladys sjö af biðlunum, tvo með rothöggi en fimm á stig- um. Tveir sigruðu hana á stig- um. Dómnefnd úi'skurðaði að einungis einn af karlmönnun- um sæti betuf hest en Gladys. Drakk alla undir borðið. Þá var komið að drykkjunni. Þar reyndist telpa ósigrandi. Hún drakk biðlana alla með tölu undir borðið. Þegar því var lokið hafði hún innbyrt tvær flöskur af viskí og hálfa aðra flösku af gin. Atvinnulaus blaðamaður. Þegar farið var að reikna út eftir keppnina kom í ljós, að eini pilturinn sem sigraði Glad- ys í reiðmennsku var annar af tveimur sem höfðu borið hana ofurliði í hnefaleikum. Hann varð einnig seinastur til að detta undir borðið í kapp- drykkjunni. Þetta er atvinnu- laus blaðamaður, og hann vann kvenmanninn. Fannst Eagið falskt Nágrannar kirkju nokkurrar í Amsterdam í Hollandi sendu sóknarnefnd kirkjunnar tilmæli um það fyrir skömmu að stunda klukka kirkjunnar yrði látin leika annað lag er hún sló. Þeir gátu ekki lengur þolað að heyra á hverri klukkustund lagið: „Hamingjusamir og frjálsir við lifum á Holland3 kæru jörð“. Tilmælin voruiund- irrituð af föngunum í aðalfang- elsi borgarinnar. TJm daginn gerði ægilegt þrumuveður á Sjálandi. Því fylgdi eitt mesta haglél, sem komið hefur í manna minnum í Danmörku. Höglin voru svo stór að þau brutu gluggarúður og rotuðu fugla. Stærð þessara risahagla má rnarlta af liöndum stúlkunnar, sem heldur á nokkrum þeirra. „Ég horfði á höndina á mér minnka þar til hún varð eins og á sjö ára barni44 Nýtt lyf lœtur menrt lifa aftur HSna atburSi Á síð'ustu áratugum hafa vísindamenn fundi'ö ýmis efni, sem geta haft hin kynlegustu áhrif á hugarástand manna og sálarlíf ef þeir neyta þeirra. Tekið er að beita sumum þessum efnum við geðlækningar með töluverðum árangri.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.