Þjóðviljinn - 18.07.1954, Síða 8
Elziti bifzeiðahamleiðendur
heims sýna
Gerð 300,
bifreið hinna
vandlátustu
MERGEDES-BENZ
; ■
bifreiðir á sérstakri sýningu,
sem haldin verður í K.R-húsinu
við Kaplaskjólsveg, dagana 27.,
28. og 29. júlí 1954.
Sýndar verða eftirtaldar
hifreiðir:
4ra dyra, gerð 180
4ra dyra, gerð 180 D (dieselvél)
2ja dyra, gerð 220 A
4ra dyra, gerð 300
5 tonna vörubifreið ( dieselvél)
UMIMOG-landbúnaðarvél
Vér ráðleggjum yður ein-
dregið að kynna yður kosti þessara bif-
reiða áður en þér festið kaup á annarri
bifreið.
Einkanmbeð á íslandi fyrir
DAXM£BJT-S21ir.Z ;ftK.TXBlirG.BSB.X.BSCTA
STUTTGAaT-UNTERlUBKHEIM
RÆSIR H.F, Skúlagötu 59.
8) ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 18. júlí 1954
A ÍÞRÓniR
RITSTJÓRI FRlMANN HELGASON
Knaffspyrna:
íþréti í öldudal
Inngangur
Með landsleik Noregs og Is-
lands um daginn má segja að
hámarki vorkeppnistímabilsins
hafi verið náð, síðan kemur
um mánaðarhvíld þar til leikir
hefjast aftur. Er ekki úr vegi
að staldra örlítið við og virða
fyrir okkur þetta nýliðna vor-
keppnístímabil. Ef við hlerum
samræður áhorfendanna eru þær
flestar á þá lund að aldrei hafi
knattspyrna Reykjavíkurfélag-
anna verið eins léleg og í vor,
og ef við rifjum upp fyrir okk-
ur áhorfendafjöldann á leikjum
Reykjavíkurfélaganna þá fáum
við sönnun fyrir því, að áhorf
endur eru óánægðir og vilja ekki
nema takmarkað horfa á þá
léiki. Það eru. ekki sterk rök
að slá því fram að áhorfendurn-
ir kunni ekki að meta knatt-
spyrnu. Það sannar. okkur bezt
aðsókn þeirra að íþróttavellinum
þegar erlendir flokkar keppa hér
og eins þegar lið Akraness kepp-
ir. Að þeir fjölmenna þá er ein-
ungis vegna þess að þeir fá
góða skemmtun.
Ef við flettum upp í um-
sögnum blaðanna um leiki reyk-
vísku liðanna verður niðurstaðan
svipuð þegar allt kemur tijl
alls, og staðfestingu á þessu öllu
saman má finna þegar rifjaður
er upp leikur úrvalsliðs Reykj-
vikur við Norðmenn um daginn.
Allt þetta er vert að hafa í
huga þegar rætt er um þessi mál
„því sjaldan lýgur almannaróm-
ur.“ Því verður sem sagt ekki
móti mælt að knattspyrnan í dag
er í djúpum öldudal hér í
Reykjavík. Og menn spyrja
hvernig á þessu standi. Meira að
segja forustumennirnir í sjálfum
félögunum virðast ekkert botna
í þessu. Leikmennirnir eru alveg
eins, þeir horfa undrandi hver
á annan og skilja ekkert í því
hvað leikurinn var lélegur, og
þegar þeir sjálfir koma í keppn-
ina endurtekur sagan sig og hin-
ir sem áður léku eiga ekki orð!
Sannleikurinn er sá að höfuðá-
byrgðina bera forustumennirnir
í félögunum, og leikmennirnir
sjálfir. Inn í þetta grípa svo
önnur atriði, svo sem aukin pen-
ingageta, óregla og vissar
skemmtanir sem teknar eru
fram yfir Skemmtun félagslífsins.
Við þetta bætist svo að sjálf
knattspyrnan hér hefur afvega-
leiðst á síðustu árum og er það
einn þátturinn í þeim leikleiða
sem virðist þjá flesta reykvíska
knattspyrnumenn í dag.
Á sama tíma má benda á að
reykvískir knattspyrnumenn hafa
aldrei búið við betri skilyrði við
knattspyrnuæfingar og einmitt
nú.
Þeir hafa aldrei séð eins mik-
ið af erlendum knattspyrnu-
mönnum og á síðustu árum.
Þetta virðist því allt fara í öfuga
átt við það sem eðlilegt verður
að kalla. Það er því ekki ástæðu-
laust að reyna að gera sér grein
fyrir þessum málum. Knatt-
spyrnuíþróttin er það vinsæl í-
þrótt og iðkun hennar það góð
dægradvöl að hún verðskuldar
Framhald á 11. síðu.
Sex Ungverjar í heimsiiðimi
í sambandi við HM-keppnina í
Sviss hefur franskt blað gert
sér það til gamans að velja
heimslið, eða 11 sterkustu leik-
mennina sem fram komu á mót-
inu. Lið blaðsins er þannig skip-
að: Grosics (Ungverjal.), Andr-
Sandor Kocsis.
ade (Uruguay), Giacomazzi
(ítalia), Boszik (Ungverjaland),
Liebrich (Þýzkaland), Martinez
(Uruguay), Julinho (Brasilía),
Kocsis, Hidegkuti, Puskas og
Czibor (allir frá Ungverjal.), þ.
e. 6 frá Ungverjalandi, 2 frá
Uruguay og einn frá hverju land-
anna Brasilíu, Ítalíu og Þýzka-
landi.
Blaðið hefur einnig dregið
fram ýmsar niðurstöðutölur frá
rnóti þessu sem hafa að geyma
vissan fróðleik um keppnina.
Nær þessi skýrsla aðeins til
þeirra leikja sem fóru fram í
Sviss.
Alls voru dæmdar 8 vítaspyrn-
ur, og varð mark úr 7 þeirra.
Fjórir leikmenn gerðu sjálfs-
mörk.
Þrjá leiki varð að framlengja
og í tveim þeirra náðust ekki úr-
slit. Alls voru sett 140 mörk
eða að jafnaði 5,38 mörk í leik.
Flest mörk voru gerð í leikn-
um Austurríki—Sviss 7—5. Þrjú
lönd settu 'ekkert mark í þessari
lokakeppni en það voru Kórea,
Tékkóslóvakía og Skotland.
Af einstökum leikmönnum
skoraði Sandor Kocsis frá Ung-
verjalandi flest mörk eða 11 og
hlaut að launum bikar mexi-
kanska knattspyrnusambandsins.
Næst flest mörk, 6, setti Austur-
ríkismaðurinn Probst. Fjögur
mörk settu Puskas, Csibor og
Hidegkuti Ungverjalandi, Otmar
Walter Þýzkalandi, Hugi Sviss
og Burham Tyrklandi. Þrjú
mörk: Borges, Miguez og Hoh-
berg Uruguaý, Stojaspal og
Wagner Austurríki, Rahn Þýzka-
landi, Lofthouse Englandi, Balla-
mann Sviss og Anpul Belgíu.
880.000 áhorfendur sáu leikina
ekki þá meðferð sem hún fær
Framhald á 11, síðu.