Þjóðviljinn - 18.07.1954, Qupperneq 12
Síðasti áfangl Genferráðstef nunnar
Ágreiningur enn í veigamiklum atriðum
Fulltrúar á Genfarráð'stefnunni héldu áfram einkaviö-
ræöum í gær. Reyndu þeir aö ná samkomulagi um á-
greiningsatriðin, ágreiningur er aðallega um þrennt:
skiptingu Víet-Nams, kosningar í Víet-Nam, og ábyrgð
aðildarríkjanna á vopnahléi.
móÐVIUINM
Sunnudagur 18. júlí 1954 -19. árgangur — 159. tölublað
Flóð í Ungverjalcuidi
í Tékkósióvakíu hafa flóðin rénað nokkuö síðastliðinn
sólarhring, en ná hámarki í Ungverjalandi í dag. Neyðar-
ástandi hefur verið lýst yfir í iðnaðarborginni Györ, og
íbúar borgsH-intiar hafa flúið hana þúsundum saman.
1 gær héldu fulltrúar þeir er
sæti eiga á Genfarráðstefn-
unni áfram einkaviðræðum. —
Chou En Lai, utanríkisráð-
herra Kina, ræddi við Eden,
utanríkisráðherra Bretlands, og
jþeir Eden og Mendés-France
ræddu við Molotoff, en þær
viðræður báru engan árangur
svo vitað sé.
(Eftir hádegi ræddi Chou En
Lai við Eden og Mendés-France
og brezku og frönsku ráðherr-
arnir við Molotoff.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Walter Bedell
Smith, kom til Genfar um há-
-dégisbilið og gekk þegar eftir
komu sina á fund þeirra 'Men-
dés-France og Edens.
Ágreiningsatriðin þau sömu
Samkomulag hefur enn ekki
náðst um þrjú höfuðágreinings-
atriðin, og hafa fulltrúarnir þó
haldið langa fundi og marga.
Enn ber aðallega á milli um
þessi þrjú atriði:
Hvar draga beri línu milli
herjanna í Víet-Nam ef vopna-
hlé kemst á. Vilja vesturveldin
að línan sé dregin eftir 18.
breiddarbaug, en fulltrúar Víet-
Minhs, Kína og Sovétríkjanna
að farið sé eftir stöðu herj-
anna eins og hún er nú, en
þá yrði línan dregin allmiklu
sunnar. En þó að fallist yrði
á að línan yrði dregin um 16.
breiddarbaug yrði sjálfstæðis-
herinn að yfirgefa stór land-
svæði í suðurhluta landsins sem
hann hefur nú á valdi sínu.
Annað atriði er um skipt-
ingu landsins. Fulltrúar Víet-
Minhs hafa lýst því yfir að
varanleg skipting landsins komi
ekki til greina, eins og gert
var í Kóreu. Af þeim sökum
krefjast þeir frjálsra kosninga
í landinu þegar eftir að vopna-
hlé er komið á. Þetta mál hafa
fulltrúar Frakka neitað að
ræða hingað til, enda munu
utanríkisráðherrar vesturveld-
anna þriggja hafa komið sér
saman um skiptingu Viet-
Nams, þar sem Bandaríkja-
stjórn muni aldrei viðurkenna
stjórn Ho Chi Minhs.
Þriðja atriðið er um trygg-
ingu fyrir því að vopnahlé
verði haldið. Fulltrúar Víet-
Minhs, Sovétríkjanna og Kína
krefjast að öll ríkin taki á sig
ábyrgð á vopnahlénu sameigin-
lega og álíti e'.tthvert þeirra
að vopnaliiésákvæðin séu brot-
in, skuli ekkert ríki grípa til
aðgerða sem hin 8 ríkin fall-
ast ekki á. Bandaríkjastsórn
hefur vísað þessum kröfum al-
gerlega á bug og lýst þvi yfir
að hún muni aldrei undírrita
neinn samning sem Viet-Minh
og Kína eiga hlutdeild í og
veita þar með Víet-Minh ó-
beina viðurkeúningu.
Ráðherrarnir reyná nú að ná
samkomulagi um þessi atriði
og er engu hægt að spá um
hvort samkomulag náist fyrir
þann 20. er frestur Mendés-
France til að ná samkomulagi
um frið í Indó Kína rennur út.
Samkomulagshorfur hljóta að
fara mikið eftir því hvort
Bandaríkjastjórn reynist fáan-
leg tii að gefa eftir af hinum
óvsagilegu kröfum sínum. Geri
hún það ekki eru líkindi til að
samkomulag náist ekki fyrir
20., þar sem lítil líkindi eru til
að fulltrúar Víel-Minh faliist á
kröfur, Bandaríkjastjórnar.
Blöð í Vestur-Evrópu hika
við að spá nokkru ákveðnu um
endalyktir ráðstefnunnar. Þann
ig.segir Times í London að hin-
ar alvarlegu horfur á Genfar-
ráðstefnunni þurfi ekki nauð-
synlega að þýða það að allt
samkomulag sé útilokað.
Liðsauki enn til
rri r .
lunis
Enn eru óeirðir í Túnis og enn
hafa Frakkar aukið herlið sitt þar
til baráttu gegn sjálfstæðishreyf-
ingu nýlendubúa. Formælandi
frönsku stjórnarinnar sagði í gær
að ætlunin væri nú að ráða nið-
urlögum hermdarverkaflokka í
eitt skipti fyrir öll.
Leiðtogi sjálfstæðishreyfingar-
innar, Habib Bourgiba, sem tvö
síðastliðin ár hefur verið í fang-
elsi á eynni Gaux undan strönd-
um Bretagneskaga í Frakklandi
var í gær fluttur í annað fang-
elsi á meginlandinu. Mun hann
hafður þar í strangari gæzlu, þar
sem honum hafði tekizt að ná
fundi blaðamanna í fangelsinu á
Gaux og ítreka þar kröfur Túnis-
búa um frelsi og sjálfstæði.
Forsetakjör í
Vestur-Þýzkalandi
Þing vestur-þýzka sambands-
lýðveldisins kom saman í Vestur-
Berlín í gær til að kjósa forseta
lýðveldisins fyrir næsta kjörtíma-
bil sem er fimm ár. Núverandi
forseti landsins, dr. Theodor
Heuss var einn í kjöri. Haft var
eftir formælanda Bonnstjórnar-
innar að Berlín hefði verið valin
fyrir fundarstað til þess að leggja
áherzlu á að Berlín væri ekki
höfuðborg Þýzkalands, en Bonn-
stjórnin myndi ekki láta sitt eftir
liggja að sameina Þýzkaland
undir einni stjórn og gera
Berlín að höfuðborg þess ríkis.
Tilkynnt var í Moskvu í gær að
Sovétstjórnin hefði útnefnt nýjan
sendiherra í Austur-Þýzkalandi í
staj5 Vladímír Semjonoffs, sem
Georgi M. Púskín.
nú lætur af því starfi og tekur
við öðru embætti. Hinn nýi sendi-
herra heitir Georgl Maximovits
Púskín en hann hefur síðastlið-
in þrjú ár verið aðstoðarutan-
Signor Fanfani var í gær kjör-
inn aðalritari Kristilega demó-
krataflokksins á Ítalíu og De
Gasperi var endurkjörinn for-
seti flokksins á þingi hans í
Róm.
Fréttaritarar segja að búast
megi við að De Gasperi láti lítið
að sér kveða í stjórnmálum á
næstunni, en muni bjóða sig fram
til forsetakjörs.
Flóðin í Mið-Evrópu gera nú
einna mestan usla í Hhgverja-
landi. Flóðaldan í Dóná hefur
náð höfuðborginni Búdapest.
Búist er við að flóðaldan nái
þar hámarki um helgina. í borg-
inni Györ hefur verið lýst
yfir neyðarástandi og þúsundir
af íbúum borgarinnar fluttar
brotit, og verksmiðjur í borginni
hættar störfum. Forsætisráð-
herra og innanríkisráðkerra
landsins hafa undanfarið ferð-
azt um flóðasvæðin.
ríkisráðherra í stjórn Sovétríkj-
anna. Ilirm nýi sendiherra verður
jafnframt stjórnarfulltrúi Sovét-
ríkjanna í Austur-Þýzkalandi.
Vladimí|r Semjonoff varð
stjórnarfulltrúi SoVétríkjanna í
Austur-Þýzkalandi í maí 1953, en
sendiherra þar í september sama
ár er Sovétríkin viðurkenndu
fullveldi Austur-Þýzkalands.
Verkfall í Wales
Verkamenn í stáliðnaðarfyrir-
tækjum í Wales í Bretlandi
lögðu niður vinnu í gær til að
herða á kröfum sínum um hærri
laun. Stálfyrirtæki þau sem
verkfallið nær til eru ein þau
stærstu í Bretlandi. Þau fram-
leiða 30.000 tonn stáls á viku
eða einn þriðja stálframleiðslu
Breta.
Hemco — Verzlun Helga Magn-
ússonar & Co, í Hafnarstræti var
stofnuð 1907 og er því hálfrar
aldar gömul eftir þrjú ár. Hún er
fyrir löngu orðin ekki aðeins
bæjarkunn heldur landskunn
verzlun. Undanfarið hafa farið
fram breytingar og viðgerðir á
húsnæði verzlunarinnar. Verzlun-
í Tékkóslóvakíu eru flóðin í
réaun, en þó hvílir vatn ena á
slfórum svæður» umhverfis borg-
ina Bratislava. Þúsundir sjálf-
boðaliðe vinna að hjálpar- og
björgunarstörfum á flóðasvæð-
unum. Prag útvarpið sagði í gær
að ástandið væri mjög alvarlegt
í Tékkóslóvakíu, en færi þó
batnandi þar sem fláðin þar væru
nú tekin að sjatna.
f Austurríki hatfa 30,000 manns
misst heimili sín. Formælandi
stjórnarinnar lét svo ummælt í
gær að stjórnin hefði gert ailt sem
kleift var til að koma í veg fyrir
útbreiðslu farsótta og teldi hann
enga hættu á að þær næðu að
breiðast út.
70.000 manns hafa orðið fyrir
tjóni af völdum flóðanna í Aust-
ur-Þýzkalandi.
Maiipfélags-
k«miss
á fes’áalagl
Selfossi.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Kaupfélag Árnesinga tók í
fyrra uop þá nýbreytni að bjóða
konum kaupfélagsmanna í
ferðalgg og nú eru konurnar
byrjaðar sumarferðalögin. Fár
fyrsti hópurinn í boði kaupfé-
lagsins á fimmtudaginn, næsti
fer á mánudaginn og sá síðasti
seinna í vikunni. Ferðast verður
í Borgarfjörð .og e. t. v. út á
Snæfellsnes.
arstjórinn skýrði blaðamönnum
frá þessu í fj'rradag, en Þjóð-
viijinn getur því miður ekki lýst
endurnýjun húsakynnanna, því
einhver mistök urðu með boðun-
ina, tilkynningu um viðtaiið
kvaðst verzlunarstjórinn hafa
sent íréttaritstjóra Þjóðviljans í
pósti — og geta póstmeistari ann-
arsvegar og afgreiðsla og skrif-
stofa Þjóðviljans hinsvegar bitizt
um hvar hún hafi glatazt.
Bátur keyptur til
Akureyrar
Akureyri.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Keyptur hefur verið hingað til
Akureyrar vélbáturinn Grótta
frá Siglufirði. Kristján Tryggva-
son útgerðarmaður er kaupandi
bátsins og ætlar að gera hann
út á síldveiðar með hringnót og
mun hann fara bráðlega á veiðar.
Grótta er gamall bátur og frekar
lítill.
Amlsfaðan gegn endurhervieðingarstefnu stjórnar Adenauers í Vestur-Þýzkalandi eykst stöðugt, Myndtn er tekin á mótmælafundi í Miinch-
en, er haldiim var tU að mótmæla endurhervæðingunnl og samnlngunum um Evrópuherijm. — Meira en 70.000 inann sóttu fund þennan.
Nýr sendfherra Sovétríkjanna í
Austur-Þýzkalandi
Málfrar aldar verzlun breyt-
ir finisakynnum i nýtízku horfi
Verzlun Helga Magnússonar & Co., sem brátt verður
hálfrar aldar gömul, hefur breytt húsakynnum sínum í
nýtízku horf.