Þjóðviljinn - 21.07.1954, Blaðsíða 1
VILJINN
Miðvikudagur 21. júlí 11'. I — 19. árgangur — 161. tölublað
Beaverbrooh sezt í
helgait stein
Brezki blaðaútgefandinn Beav-
erbrook lávarður tilkynnti í gær
að hann hefði dregið sig í hlé
úr stjórn blaða sinna. Beaver-
brook er kominn hátt á áttfæð-
isaldur.
í qær náðist s'amkomulag í Gení um öll megin-
atriði samninga um vopnahlé í Indó Kína og var
búizt við í gærkvöld að samningarnir yrðu undirrit-
aðir rétt íyrir miðnætti. Stóðst b&ð á endum að þá
var útrunninn frestur sá, sem Mendés-France, for-
sætisráðherra Frakklands, setti sér til að semja um
vcpnahlé eða láta af völdum ella.
Srax í gærmorgun skýrði so-
vétfréttastofan Tass frá því að
samkomulag hefði orðið í Genf.
Talsmaður frönsku sendinefndar-
innar sagði í gærkvöld að ekki
væri eftir að ganga frá öðru en
orðalagi á nokkrum atriðum
samninganna.
Mendés-France, Eden utanríkis-
ráðherra Bretlands, Molotoff ut-
unríkisráðherra Sovétríkjanna
og Pham Van Dong, varafor-
sætisráðherra stjórnar sjálfstæð-
ishreyfingar Indó Kína sátu á
fundum mestallan daginn við að
leggja síðustu hönd á samning-
ana.
Mun taka hálfan mánuð.
Samningarnir verða ekki birt-
ir fyrr en gengið hefur verið frá
þeim að fullu en vitað er um
aðalefni þeirra.
Vopnahlé á helztu vígstöðvun-
um í Indó Kína á að hefjast
þrem sólarhringum ef.tir undirrit-
unina. Þar sem einangraðir her-
flokkar hafast við fjarri megin-
herjunum er vonazt til að vopna-
hlé verði komið á innan hálfs
mánaðar.
13 milljónir og níu
milljónir.
Viet Nam, stærsta og mann-
flesta ríkinu í Indó Kína, verður
skipt i tvennt þar sem það er
mjóst nálægt 17. breiddarbaug
Kort af Indó Kína. Viet Nam er
skipt nokkru fyrir norðan hafn-
arborgina Hué, sem merkt er
á kortið.
norðurbreiddar. Sjálfstæðishreyf-
ingin fær nyrðri hlutann til um-
ráða en Frakkar og leppstjórn
þeirra þann syðri.
Norðurhlutinn er 165.000 fer-
kílómetrar og þar búa 13 mill-
jónir manna. Suðurhlutinn er
164.000 ferkílómetrar og íbúatal-
an þar um níu milljónir.
Tilflutningur herjanna.
Aðilar flytja heri sína brott hver
af annars yfirráðasvæði og á
þeim tilflutningum að vera lokið
innan tiu mánaða. Frakkar munu
yfirgefa Rauðársléttuna með
borgunum Hanoi og Haiphong.
Sjálfstæðisherinn yfirgefur stór
svæði á víð og dreif um suður-
hluta landsins.
Hersveitir Frakka og sveitir úr
sjálfstæðishernum eiga að yfir-
gefa ríkin Laos og Kambodía.
Sveitir skæruliða í þessum ríkj-
um eiga að safnast saman á á-
kveðin svæði og leggja niður
vopn.
Framkvæmd kosninga.
Allir hlutar Indó Kína munu
standa utan hernaðarbandalaga
og þar mega ekki vera herstöðv-
ar neins erlends ríkis.
Ekki síðar en 20. júlí 1955
eiga stjórn sjálfstæðishreyfing-
arinnar og leppstjórn Frakka að
hefja sameiginlegan undirbúning
að kosningum um allt Viet Nam.
Kosningarnar eiga að fara fram
fyrir 20. júlí 1956. Að þeim af-
stöðnum verður mynduð ein
stjórn í landinu og franski her-
inn yfirgefur jafnframt suður-
hlutann.
Eítirlitsnefnd.
Nefndir fulltrúa frá Indlandi,
Kanada og Póllandi eiga að sjá
um það að samningernir séu
haldnir í öllum rikjum Indó Kína.
Risi ágreiningur í nefndunum
verður honum skotið til úrskurð-
ar ríkjanna níu, sem fulltrúa eiga
á ráðstefnunni í Genf.
Bandaríkin neita a§;
t'amþykkja.
Ekki var búizt við að öll skjöl
varðandi þessa samninga yrðu
tilbúin til undirskriftar í gær-
kvöldi. Var því talið að formlegur
fundur ráðstefnunnar yrði ár-
degis í dag. Um hádegið fer
Mendés-France til Parísar, þar
sem hann gefur franska þinginu
skýrslu á morgun.
Eitt af þeim atriðum, sem mest-
um erfiðleikum ullu í viðræð-
unum í gær, var afstaða Bedell
Smith, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Hann þvertók
fyrir að undirrita fyrir hönd
Bandarikjanna yfirlýsingu um að
öll ríkin á ráðstefnunni í Genf
séu samþykk samningum Frakka
og sjálfstæðishreyfingarinnar.
Hin ríkin öll voru fús til þessa en
vegna afstöðu Bandarikjastjórn-
ar varð það úr að orða yfirlýs-
inguna þannig, að ráðstefnan
taki það til greina að samningur
hafi verið gerður um frið í Indó
Kína.
Þungt áfall fyrir stefnu
Bandaríkjastjórnar.
Sam-ningurinn um frið í Indó
Framhald á 8. síðu.
Ho Chi Minh
Pierre Mendés-France
Styrjöldin hefur
staðið í átta ár
Sjú Enlæ talar í
brezka útvarpi
Brezka ríkisútvarpið flutti í
gær viðtal, sem Morgan Phillips,
ritari brezka Verkamannaflokks-
ins, átti í Genf við Sjú Enlæ, ut-
anríkisráðherra Kína. Phillips fór
á fund Sjú að ræða för nokkurra
helztu foringja Verkamanna-
flokksins til Kína í haust.
Sjú kvaðst gera sér bjartar
vonir um að friður í Indó Kína
yrði saminn á ráðstefnunni í
Genf. Ef það tækist ætti það að
geta orðið byrjunin á árangurs-
ríku starfi til að efla friðinn
hvarvetna í Asíu.
Stríðið í Indó Kína er búið
að standa í tæp átta ár. Það
hófst haustið 1946, þegar
Frakkar gengu á gerða samn-
inga við stjórn sjálfstæðis-
hreyfingarinnar, sem mynduð
var að afstöðnum kosningum
síðla árs 1945.
Frakkar viðurkenna stjórn Ho.
Eftir uppgjöf Japana var
allt Viet Nam á valdi sjálf-
stæðishreyfingarinnar, sem
hafði barizt gegn hernámsliði
Japana. Frakkar viðurkenndu
stjórn sjálfstæðishreyfingarinn-
ar undir forystu Ho Chi Minh.
í skjóli brezks flota settu þeir
þó lið á land í suðurhluta
landsins. Meðan Ho var í
Frakklandi sumarið 1946 að
semja um samband Viet Nam
og Frakklands gekk franska
herstjórnin í Indó Kína æ meira
á gerða samninga. Um haust-
ið hófu svo Frakkar allsherj-
ar herferð gegn sjálfstæðis-
hreyfingunni.
Skæruhernaður framan af.
Sjálfstæðisherinn snerist til
varnar. Fyrst í stað háði hann
skæruhernað og hafði engar
fastar bækistöðvar. Eindregmn
stuðningur almennings gerði
sjálfstæðishernum þó brátt fært
að hefja hernaðaraðgerðir gegn
Frökkum í stærri stíl. Vegna yf-
irburða sinna í vopnabúnaði
gátu Frakkar komið sér upp
virkjum nærri því hvar sern
þeim sýndist, en landsbyggðinni
á milli virkjanna réði sjálfstæð-
isherinn.
Hver hershöfðinginn á fætur
öðrum var sendur frá Frakk-
landi til þess að vinna bug á
Framhald á 5. síðu
IsL lögregian hefur látið rifa niður
myndimar sem njósnadeildin festi upp
íslenzki lögreglustjórinn á Keílavíkurílugvelli
hefur látið rífa niður myndirnar og lýsinguna á
Guðgeiri Magnússyni, sem herstjórnin bandaríska
og njósnadeidd hennar festu upp.
Eftir að lögfræðingur Guð-
geirs Magnússonar hafði snú-
ið sér til íslenzka lögÆglustjór-
ans á Keflavílcurflugvelli sendi
hann íslenzku lögregluna til að
rannsaka málið og rífa myndir
þessar niður.
Myndum þessum og lýsingu
hafði verið komið fyrir í mat-
skálum, skrifstofum, íbúðar-
bröggum íslenzkra og banda-
rískra hjá Hamilton svo og víðs
vegar hjá hernum. Munu Kan-
arnir sjálfir hafa rifið allviða
niður þegar þeir sáu að íslenzka
lögreg’an hafði látið málið til
sin taka.
Þjóðviljanum er enn ákunn-
ugt hver hefur orðið niðurscað-
af rannsókn íslenzka lögreglu-
stjórans á því hverjir hafi sett
myndirnar upp og beri ábyrgð-
ina á verknaðinum, en suður á
flugvelli efast enginn um að
njósnadeildin hafi þar að verhi
verið, og víst er um að lýsmg-
in á Guðgeiri, sem var fjölrit-
uð, var fjölrituð hjá Hamilton.
Reif niður
fyrir.
var kallaður
Þá hefur Þjóðviljinn frétt að
einn af tslendingunum, lögfræð-
ingur, er starfar í skrifstofu
Hamilton hafi rifið plagg
nósnadeildc. rinnar niður i skrif-
stofunni.
Var han:i þá kallaður fyrir
hina bandarisku yfirmenn og
kvað hafa cngt þeim að upp-
festingin á myndum og lýsingu
Guðgeirs væri í senn brot á
stjórnarskránni og „hervernd-
ar“-samni:ignum.