Þjóðviljinn - 21.07.1954, Blaðsíða 7
Miovikudagur 21. júlí 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7
„Jafnvægi-1 og „samræming"
eru orð sem mjög eru notuð í
íslenzkum stjórnmálum nútím-
ans, ásamt hinu þriðja orði, sem
jafnvægi og samræming vega
salt á, það er „rannsókn".
Iðnaðarmálastofnun íslands
gaf út opinbera skýrslu í febrú-
ar s. 1. um „Athugun á sam-
keppni, hæfni og starfsskilyrð-
um íslenzks tréskipaiðnaðar".
Bragi Ólafsson frarnkv.stjóri
stofnunarinnar skrifar formála
fyrir skýrslunni og lýkur hon-
um með þessum orðum: „Þá
viljum vér sérstaklega vekja
athygli hins háa Alþingis á
þeim möguleikum sem innlend
tréskipasmíði býður upp á til
atvinnuaukningar og atvinnu- '
dreifingar úti á landi“.
Margur skyldi ætla að dag-
blaðið Timinn hefði gripið kær-
komið tækifæri þegar skýrslan
var birt og látið í ljós áhuga
fyrir þeim málum er stuðluðu
að því að ná „jafnvægi í
byggðum landsins". Reyndin
varð hinsvegar sú að þetta blað
jafnvægisins gat ekki fórnað
færri orðum til þess að láta
skýrslunnar getið, án þess að
láta lesandann fá grun um að
Tíminn og Framsóknarflokkur-
inn i heild væri andvígur inn-
lendri skipasmíði.
Er Framsóknarflokkurinn
á móti innlendri
skipasmíði?
í október 1952 lagði Lands-
samband iðnaðarmanna tillög-
ur ásamt greinargerð fyrir Al-
þingi, er miðuðu að þvi að
skapa innlendum skipasmíða-
stöðvum sanngjarna aðstöðu til
nýsmíða.
Alþingi samþykkti að endur-
greiða toll af efni til bátasmiða
og láta fara fram rannsókn á
verðlagi á bátum byggðum inn-
anlands og utan. Fjárhagsráð
gaf loforð um að veita ekki inn-
flutningsleyfi á meðan rann-
sókn færi fram. í október 1953
var núverandi ríkisstjórn
mynduð. Eitt af fyrstu verkum
þessarar stjórnar var að svíkja
það samkomulag sem náðst
hafði við Fjárhagsráð og leyfði
innflutning á 21 fiskibát. For-
sendan fyrir þessum innflutn-
ingi var einmitt orðuð með
orðalagi Tímans til þess að ná
„jafnvægi í atvinnulífi lands-
manna" á síðastliðinni vetrar-
vertíð.
Reynslan er ólýgnust hvern-
ig jafnvæginu var náð. Tæpur
helmingur þeirra báta sem inn
átti að flytja, komu til landsins
fyrir vertíð, það er að segja,
aðeins sá hlutinn sem keyptur
var gamall, þeir bátar sem
byggja átti nýja erlendis eru
flestir ókomnir ennþá. Hins-
vegar varð að gera sérstaka
„hliðarráðstöfun“ til þess að
„samræma" jafnvægið í at-
vinnulífinu og fjöldi Færeyinga
var fluttur inn til þess að
manna bátaflotann.
I nóv. síðastliðnum skrifaði
ég grein í Þjóðviljann þar sem
færð voru rök að því að þing-
menn Framsóknarmanna gerðu
kröfu um bátainnflutning þeg-
ar núverandi stjórn var mynd-
uð. Iíinsvegar skaðar ekki að
rifja upp þá sögu í stuttu máli
vegna skrifa Tímans í dag, 18.
júlí.
Eiríkur Þorsteinsson alþing-
ismaður Frarhsóknarflokksins
skrapp til Dnnmerkur síðastlið-
ið sttmar óg rakst þar á nokkra
Bjami Einarsson, skipasmiður:
Jafnvægi í byg
landsins
'
sjálfsagða og eðlilega eins og á
stóð-- ----
Iðnaðarmálaráðherra gat þess
í samtali sínu við Mþl. í fyrra-
dag, að í málefnasamningi hinn-
ar nýju rikisstjórnar væri htíftiíV-'
fyrirgreiðslu við lánamál iðnað- '
arins. Einnig það gæti bætt að-
stöðu innlendra skipasmíða.
Það er af þessu auðsætí, að
ríkisstjórnin hefur fullan skiln-
ing á nauðsyn þess að vélbáta- .
flotinn verði byggður upp og
aukinn í innlendum skipa-
smíðastöðvum“.
Þegar maður hefur lesið
skrif Tímans um „jafnvægr'.- þ;
atvinnumálum, stendur það
skýrt fyrir sjónum manns, að
leiðin sem Tíminn velur til að
ná andlegu „jafnvægi“ er áð>
vega salt á vitleysunni.
Endurnýjun bátaflotaps ,
fiskimenn frá Esbjerg er gjam-
an vildu selja báta sína vegna
þess að þeir hentuðu þeim ekki
lengur. Samkvæmt umsögn
Tímans í des. s. 1. voru Danirn-
ir ákaflega alúðlegir við þing-
manninn og bentu honum á að
raunverulega væru þessir bátar
byggðir fyrir íslenzka staðhætti
þar sem þeir hefðu áður verið
gerðir út á íslandsmið. En
vegna stækkunar á íslenzku
landhelginni yrðu þeir í fram-
bátum vorn gerðir út frá Þing-
eyri. Sá þriðji var gerður út
frá Keflavík og er þar enn.
Eins og ég gat um áðan er
þessi Eiriks þáttur rifjaður upp
vegna skrifa Tímans í dag, 18.
júlí. Þar- stendur orðrétt:
„Viðskiptamálaráðherra og
bátaútvegurinn
Forsætisráðherra hefur ný-
lega skipað nefnd til að gera
— Innlend sklp Innflutt skip : A Samt. árl. viðbætur
Stk. Samtals Stk. Samtals Stk. Samtals
Ar fjöldl rúmlestir f jöldi rúmlestir fjöldi rúmlestir
1938 8 187 6 268 14 455
39 22 524 10 489 32 1013
40 10 278 2 77 12 355
41 0 0 1 49 1 49
42 22 524 0 0 22 524
43 24 1104 0 0 24 1104
44 12 729 0 0 12 729
45 2 89 14 890 16 979
46 18 845 62 4137 80 4982
47 19 962 14 1035 33 1997
48 4 151 3 257 7 4A 8
49 4 181 0 0 4 181
50 0 0 0 0 0 0
51 0 0 5 307 5 307
52 0 0 3 145 3 145
53 1 39 7 304 8 343
Alls: 146 5613 127 7958 273 13571
tíðinni að stunda heimamið.
Heima í héraði Eiríks stóðu
málin þannig að miðað við síð-
ustu kosningar bjó hann við
minnkandi fylgi. En Þorvaldur
Garðar mótframbjóðandi hans
hafði hlotið nokkrar vinsældir
af því að eiga nokkurn hlut að
því að samið var um byggingu
þriggja báta innanlands og gera
átti út frá Suðureyri.
Eiríkur festi því kaup á
þremur fiskibátum frá Esbjerg
þrátt fyrir það þótt hann hefði
ekki innflutningsleyfi við hend-
ina, en til þess að „jafnvægið“
ekki raskaðist urðu bátarnir að
vera þrír.
Og þegar staðið var upp frá
samningsborðinu við myndun
núverandi ríkisstjórnar í októ-
ber var Eiríki Þorsteinssyni af-
hent hin nauðsynlegu innflutn-
ingsleyfi til ,,samræmingar“ við
lög landsins.
Þegar bátarnir komu til
Reykjavíkur í des. s. 1. birti
Tíminn viðtal við þingmanninn
og gaf fagra héraðslýsingu af
Dýrafirði og rakti afrekasögu
þingmannsins í atvinnumálum.
Svo hófst vetrarvertíð, en að-
eins tveir af þessum þremur
tillögur um jafnvægi í byggð
landsins og málgagn hans
skrifað fagurlega um það mál.
Á sama tíma stendur viðskipta*
málaráðherra hins vegar i vegi
þess, að leyfður sé nauðsynleg-
ur innflutningur á vélbátum,
svo að fullnægt verði endurnýj-
unarþörf bátaútvegsins. Hjá
innflutningsskrifstofunni munu
nú liggja beiðnir um innflutning
á 30—40 ' vélb'átiitn^ óg hefur
þeim enn ekki fengizt SVárað
vegna andstöðu viðskiptamála-
ráðherra. Fáist engin úrlaúsn á
þessu máli, hlýtur að .verða
verulegur samdráttur í útgerð-
inni í mörgum sjóþorpum næsta
vetur. Afleiðingin verður, að
fólk flyzt þaðan til Suðurnesja.
Og svo segja Sjálfstæðismenn
að þeir viíji styðja jafnvægi
í byggð landsins!“
Til „jafnvægis" er hér einn-
ig tekið orðrétt upp úr viðtali
Ingólfs Jónssonar viðskipta- og
iðnaðarmálaráðherra við Morg-
unblaðið 15. október; 1953:
„Ingólfur Jónsson lagði á-
herzlu á. að nauðsynlegt væri
að skapa innlendum skipa-
smíðastöðvum bætta aðstöðu,
þannig að þjóðin gæti smíðað
fiskibáta sína í landinu sjálfu.
Kvaðst liann vona að iðnaðar-
menn og hin nýja iðnaðarmála-
stofnun jnrðu ríkisstjórninni til
leiðbeiningar um ráðstafanir,
sem tryggðu það, og að íslenzk
útgerð gæti látið sniíða báta
hér heima án þess að sæta við
það mun verri kjörum, en ef
þeir væru keyptir frá útlönd-
um ...
Innflutningur þessara báta er
því fyrst og fremst bjargráða-
ráðstöfun, sem telja verður
í skýrslu Iðnaðarmálastofn-
unarinnar er þess getið að árleg
endurnýjun bátaflotans þurfi
að vera um 1000 rúmlestir á ári.
Væru þessir bátar byggðir inn-
anlands mundi það nemá í
gjaldeyrissparnaði ca. 7—8
milljónum króna á ári.
I landinu eru 17 skipasmíða-
stöðvar dreifðar um landið. Hér
væri því um stórkostlega at-
vinnudreifingu að ræða. Þess
utan er það marysannað máL að
bátaútvegurinn getur ekki ver-
ið án viðgerðarþjónustu skipa-.
smíðastöðvanna.
Hinsvegar verður rekstur
skipasmíðastöðvanna ekki með
eðlilegum hætti nema þær: jafnr
framt hafi nýsmíði með hönd-
um. Núna eru í smíðum innan-
lands 10 fiskibátar í aðeins .fi
stöðvum en stöðvarnar eru alls
17.
Með nýsmíði innaniands
vinnst margt í einu, sparar
gjaldeyri, skapar stöðuga at-
vinnu allt árið fyrir skipasmíð-
ina. Útgerðin fær betri fiski-
báta og betri viðgerðarþjón-
ustu. Jafnframt er hér um stór-
kostlega atvinnudreyfingu að
ræða sem stuðlar að auknu
jafnvægi í byggðum landsins.
Samkvæmt töflu nr. 2 í
skýrslu Iðnaðarmálastofnunar-
innar sést greinilega að inn-
lendar skipasmíðastöðvar eru
fyllilega færar um að smíða yf-
ir 1000 rúmlestir á einu ári að-
eins ef ríkisstjórnin gerir skyldu
sína og uppfyllir marggefin lof-
orð um að skana innlendum
skipasmíðastöðvum sanngjarna
aðstöðu til nýsmíða.
Bátasmíði í jskipasmíðastöðmni í Ytri-Njarðvik. Þannig skyldi umhorfs árið um kring í öllum
íslen/.kum skipasmíðastöðvum: .íslenzkar hend.ur að verki við endurnýjun og aukningu fiskiskipa-
stólsins í stað þeirrar stöðvunar og hnignunar sem skipulögð er af ríkisvaldi afturhaldsins