Þjóðviljinn - 21.07.1954, Side 10

Þjóðviljinn - 21.07.1954, Side 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 21. juli 1954 INNAN VIÐ MllRVEGGINN EFIIR A. J. CRONIN 54. fertugt, föl og fínleg í ljósgráum kjól. Hann sá að hún hélt að hann kæmi af skrifstofu manns hennar. „Ég vona að þér séuð ekki með verkefni handa Sir Matthew," sagði hún og brosti vingjarnlega. Svo hafði hún boðið honum glas af sherry og kex. Þegar hann afþakkaði brosti hún aftur og fór út. Það var mjög hljótt í herberginu. Svo byrjaði einhver uppi á lofti að æfa sig á píanó. Prelúda eftir Chopin, nr. 7, leikin hægt og fálmandi. Það var bam sem lék og hann heyrði tal og hlátur. Hljóðfæraleikurinn nísti hann gegnum merg og bein. Hann fór að hugsa um þennan mann, fallegt heimili haris, aðlaðandi konu og hlæjandi dætur. Hann hugsaði um hinn manninn í rökum steinklefanum. Hann þoldi þetta ekki lengur. Um leið heyrði hann hljóð í bíl. Hann vissi að Sprott var að koma. Hann rétti enn úr sér. Hann var reiðubúinn. Úti- dyrnar voru opnaðar og þeim lokað aftur. Það heyrðist mannamál í anddyrinu. Andartaki síðar opnuðust dyrn- ar að bókaherberginu. Páll sat grafkyrr þegar Sir Matthew kom inn. Hann ieit á hann en sagði ekki neitt. Andartak var alger þögn. Svo þandi Sprott brjóstið. < „Hvað á þessi átroðningur að þýða?“ Hann var mjög reiður. En um leið var eitthvað annað í augnaráði hans. Páll fann samstundis að hann þekkti hann. „Þér hafið engan rétt til að koma hingað. Þetta er heimili mitt.“ Þessi athugasemd varpaði ljósi á manninn 1 augum Páls — spurninguna sem hið glæsilega yfirborð huldi. Hann hugsaði: þessi maður hefur engan rétt til að dæma. Hugsanir hans urðu skýrar og ljósar. Hann sagði hægt: „Þegar mál hefur beðið nægilega lengi fer það að verða áríðandi." Æðarnar þrútnuðu á enni Sprotts. Hann bar ekki við að ganga nær Páli, heldur stóð kyrr frammi við dyr. Hann tók á öllum sínum virðuleik, var aftur leikarinn ^em skilaði viðeigandi línum. „Ég skal ekki draga dul á það að í nokkra mánuði hefur mér verið kunnugt um athafnir yðar og návist hér í borg. Þér eruð sonur manns sem dæmdur var í ævilangt fangelsi og nú eruð þér að reyna að róta upp moldviðri í sambandi við mál, sem dæmt var fyrir fimm- tán árum.“ „Það eru ýmis vafaatriði í sambandi við það mái,“ sagði Páll. „Eitt og annað nýtt hefur komið á daginn.“ Andartak náði reiðin tökum á Sir Matthew. „Enga vitleysu,“ sagði hann. „Eftir fimmtán ár er það óhugsandi. Vegna afskiptasemi yðar var beiðni um endurupptöku málsins lögð fyrir innanríkisráðherrann, og að sjálfsögðu svaraði hann neitandi.“ „En þér þurfið ekki að neita,“ sagði Páll. „Þér voruð saksóknari. Skylda yðar er umfram allt að sjá um að réttlætinu sé framfylgt. Og þér mynduð telja yður knú- inn til að gera einhverjar ráðstafanir ef þér væruð sannfærður um að faðir minn væri saklaus.“ „En ég er ekki sannfærður um það.“ Sprott næstum hrópaði. „Þér mynduð sannfærast ef þér vilduð hlusta. Það minnsta sem þér getið gert er að líta á hinar nýju sann- anir sem borizt hafa.“ Sprott var svo reiður að hann gat varla talað. Það var eins og andlit hans væri glóandi. En hann tók sjálfan sig taki. Reiði hans kólnaði. Rödd hans var níst- andi. „Ég verð að biðja yður að fara héðan. Þér vitið alls ekki um hvað þér eruð að biðja...tæknilegir erfið- leikar, eðlileg framvinda laganna, allt hjálpast að. Þér eruð eins og heimskur krakki, sem vill brjóta niður stór- byggingu, vegna þess að hann heldur að einn múrsteinn í undirstöðunni hafi verið illa lagður.“ „Ef vmdirstaðan er ófullkomin hlýtur byggingin að hrynja." Sir Matthew lét ekki svo lítið að svara þessu. Svipur hans var blandinn hæðni og yfirlæti. En þegar hann horfði útundan sér á unga manninn, álútur og undir- furðulegur, varð Páll aftur var við veiluna, einhverja . sprungu í yfirborðinu, og honum varð ljóst að Sprott ■ mundi aldrei fallast á að málið yrði tekið upp að nýju, ' þótt ekki væri nema vegna þess að hann þurfti fyrir ' hvern mun að dylja þá veilu. Samt sem áður — hann ' varð að gefa honum eitt tækifæri enn. „Þegar fangi hefur afplánað fimmtán ár af ævilöng- . um fangelsisdómi ...... er þá ekki venjan ...... að ■ honum sé sleppt við það sem eftir er?“ Sir Matthew horfði enn út undan sér á Pál, útstæð-1' um, dálítið blóðhlaupnum augum. Hann sagði nístandi ’ röddu: „Innanríkisráðherrann hefur þegar sagt álit sitt á ■ þessu máli.“ „En þér hafið ekki gert það,“ hélt Páll áfram hálí- ' kæfðri röddu. „Eitt orð frá yður við rétta aðila gæti ’ haft úrslitaþýðingu. Eitt orð — um hinar nýju efa-’ semdir.......“ Sir Matthew hristi höfuðið næstum ofsalega, varpaði • frá sér allri ábyrgð. Hann teygði handlegginn aftur fyrir ■ sig og opnaði dymar. % !; „Ætlið þér að fara núna?“ Sami stirðnaði yfirlætis- • svipurinn var á andliti hans. „Eða þarf ég að láta ' fleygja yöur út?“ Nú sá Páll að þétta var tilgangslaust. Þessi maður ’ mundi aldrei gera neitt, ekki lyfta hendi til að fara fram I á náðun. Metnaður hans sjálfs var hið eina sem málií skipti, virðuleiki hans, embætti og framtíð. Ekkert af | þessu mátti skerða. T Við tilhugsunina um þetta varð Páll gagntekinn ó-t stjórnlegri reiði, ofsa og örvæntingu. Castles hafði haft f á réttu að standa. Faðir hans, Swann, hann sjálfur höfðu allir verið troðnir í svaðið vegna hinnar óseðjandi framagirndar þessa manns. Hann átti aðeins eitt ógert. , Hann reis á fætur. Hann var stirður í liðamótunum, það G OC Einu sinni fyrir mörg-um ár- um voru Svisslendingar og hátt- settur þýzkur nazisti að veiða í lítilli fjal'.aá við landamæri Þýzkalands og Sviss. Voru þeir sitt hvoru megin við ána. Naz- istinn veiddi ekki neitt állan daginn, en Svisslendingurinn mokaðí upp aflanum. Að lokum stóðst nazistinn ekki mátið og hrópaði yfir ána: Hvernig stendur á þvi að þér gengur svona ve', þar sem ég aftur á móti fæ ekki eina ein- ustu bröndu? Svisslendingurinn svaraði: Min megin þora fiskarnir að opna túlann, en þín megin ekki. Skókaupmaður nokkur þótti selja he’.dur ónýta skó, og eitt sinn kom reiður viðskiptavinur inn til hans með skó sem hann hafði keypt tveimur dögum áð- ur og sagði: Þessa skó hérna keypti ég hjá yður i fyrradag, og nú er komið gat á þá. Og samt auglýsið þér í glugganum hjá yður: Skór sem hæfa drottningu. Þér eruð ósvikinn prangari og þorpari. Nei, svaraði kaupmaðurinn, það eru fáir minir jafningjar í heiðarieik. Drottningin þarf ekki sterka skó — fáar manneskjur ganga minna en einmitt hennar hátign. Hann hafði gaman af að segja eftírfarandi sögu: Eitt sinn vakti ég athygli þjóns- ins míns á því að baðhandklæðið væri ekki hreint. Þjónninn kvaðst ekki skilja í þvi, þar sem það ætti að vera nýkomið úr þvotti. Ýig sagði að það lyktaði eins og dauður fiakur. Já, kannski þér hafið notað það áður, svaraði þjónninn þá. Köflótt leikfÖt Hér er mynd af hentugum, köflóttum leikfötum handa minnsta barninu. Það eru venju- legar rykktar stuttbuxur með smekk og axlaböndum. Axla- böndin eru hneppt á með tölu Nokkur orð um ml&degismai Um þetta leyti árs á mörg húsmóðirin i brösum með mið- degismatinn. Það er erfitt að fá annað en fisk í matinn og þótt kjöt sjáist í búðum, þá fær það venjuiegast að liggja, að minnsta kosti þegar kílóið kostar 88 krónur. En það er hægt að borða sig saddan af köldu borði, t. d. einu sinni í viku, og það þarf ekki að verða mjög dýrt ef áleggið er rétt valið. Hægt er að fá ágætar reyktar síldar og ef þér lízt sérlega vel á þær einhvem daginn skaltu bera þær fram til miðdags ásamt rúgbrauði, smjöri og radísum. Ætlaðu ca. tvær síldar handa hverjum og berðu fram ost á eftir. Þetta er saðsamara en ætla mætti og skemmtileg til- breyting frá soðningu, kjötboll- um og pylsum. Annan daginn má bera fram steikt flesk og egg sem forrétt og hafa síðan brauð og álegg á eftir, og þá þarf að hafa á- legg sem er ekki á kvöldborð- inu hjá manni á hverjum degi. Marineruð síld er líka fyrir- taks matur sem fólk gerir allt- of lítið að því að borða. Hún er mjög ljúffeng með miklu af soðnum kartöflum smjöri og brauði að ekki sé taiað um hollustuna. Hægt er að fá sílaina tilreidda í búðunum, en þegar maður kemst upp á að útbúa síldina sjálfur hættir manni að vaxa fyrirhöfnin í augum og til eru margir mjög ljúfengir síldarréttir. Undir nælonkjólnum Ef maður fær sér nælonkjól, verður maður að muna eftir því, að efnið er svo þunnt og gegn- sætt að það útheimtir sérstakan undirkjól. Gætið þess líka að velja rétt efni. Mörg nælonefni verða beinlínis rafmögnuð þegar maður er kominn i þau, og ef maður fer í nælonkjól utan yfir nælonundirkjól á maður á hættu að kjólefnið og efnið í undir- kjólnum límist beinlínis saman og eyðileggi svipinn á kjólnum. Undirkjóll úr gervisilki eða tafti hentar betur undir nælonkjól. Taft er í rauninni betra, því að það stendur fallega út og nælon- efni eru einmitt fallegust í stór og fyrirferðarmikil pils. Það er líka stundum erfitt að fá nælon- efnið til að falla á réttan hátt, en ef taftundirkjóli er notáður kemur rétti svipurinn á pilsið. og hnappagati. Stóri kengúru- vasinn framan á maganum er hentugur og mun betri til síns brúks en litlir vasar sem oft eru hafðir á barnafötum og lítið sem ekkert kemst í. Ef maður getur saumað barnafötin sjálfur er fyrirhafnarlítið að útbúa svona flík. Rúm undir rúminu Þegar fólk kaupir rúm hættir því til að líta eingöngu á hvílu- rúmið sjálft, stærð þess og gerð og það er auðvitað mikils virði. En það skiptir líka miklu máli að hægt sé að komast undir rúm- ið. Það á að vera auðvelt að þrífa undir því, og tilraunir hafa sýnt að rúmið þarf að vera að minnsta kosti 25 cm. frá gólfi til þéss að sá sem hreinsar gólfin geti komið hreingerningartækj- unum undir rúmið' með tiitölu- lega lítilli fyrirhöfn.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.