Þjóðviljinn - 10.09.1954, Síða 3
Föstudagur 10. september 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (3
ny eru
Rceff v7S formann Reykjavskurdeildar
umanna
Hinn kunni töframaöur og huglesari Frisenette heldur
nokkrar kvöldskemmtanir í Austurbæjarbíói í næstu viku
til ágóða fyrir starfsemi Reykjavíkurdeildar AA — félags
íyrrverandi ofdrykkjumanna. Fréttamaður Þjóðviljans
kom að máli við Guöna Þór Ásgeirsson, formann félags-
ins og forgöngumann um stofnun þess, og spuröist frétta
af félagsstarfinu.
Sundkeppnln
Félagið var stofnað í apríl-
mánuoi sl. og voru stofnendur
14, en nú eru félagsmenn orðn-
ir á annað hundrað talsins.
— Hvers vegna réðst þú í
stofnun þessa félags hér? spyr
fréttamaðurinn Guðna, og hann
svarar:
-— Ég hafði verið erlendis í
13 ár og þar komst ég að raun
um að ég var áfengissjúkling-
ur. Með styrk AA (Alcoholie
Anonymous) í Bandaríkjunum
tókst mér að yfirstíga þessa
segilegu veiki cða hafa hömlur
á henni, því að sá sem einu
sinni hefur orðið alkóhólisti
verður það alla sína ævi.
Fg vann eitt ár á Keflavík-
urflugvelli og jafnframt störf-
nm mínum þar starfaði ég að
öllu afli að því að hjálpa
þeim, sem vildu hætta að
drekka. Þegar ég svo hætti
störfum á flugvellinum gaf ég
mig eingöngu að björgunarvið- |
leitni minni og fékk í lið með
mér tvo fyrrverandi ofdrykkju-
menn, þá Jónas Guðmundsson
og Guðmund Jóhannsson. —
Stofnuðum við, ásamt 11 öðr-
um, síðan þennan félagsskap.
Þegar ég kom hingað til
lands fannst mér ofdrykkjan í
Reykjavík ægileg. Ég hef ferð-
azt því nær um allan heim en
hvergi séð jafn illa drukkið og
liér. Hinsvegar vissi ég, að hér
var góður jarðvegur fyrir
atarfsemi félagsskapar eins og
AA í Bandaríkjunum og hóf
því baráttuna ásamt félögum
mínum. Ég hef starfrækt skrif-
stofu og verið til viðtals á
henni kl. 1-3 og 6-7 eh. alla
virka daga. Þangað hafa kom-
ið sorgbitnar mæður og eigin-
konur og niðurbældir áfengis-
sjúklingar, og hefur öllum ver-
ið liðsinnt eftir beztu getu. Þó
ber að geta þess, að ég tel
því nær algerlega tilgangslaust
að tala við þá áfengissjúklinga,
sem ekki virðast hafa minnstu
löngun til að hætta að drelcka.
— Hvað heldurðu að margir
hafi læknazt?
— Það er erfitt að svara
þessari spurningu, því að eins
og áður er sagt er engin full-
lcomin lækning við áfengis-
nautninni til, en þegar viðkom-
andi sjúklingur hefur ekki
bragðað vín í lengri eða
skemmri tíma og sér mismun-
inn á líðan sinni og sinna nán-
ustu, þá fer svo í langflestum
tilfellum að hann hættir fyrr
eða seinna alveg að drekka, þó
að hann ,,detti“, eins og við
köllum það, ef til vill í eitt eða
tvö skipti.
Ég get fullyrt að um 40 of-
drykkjumenn, karlar og konur,
Guðni Þór Ásgcirsson
hafi ekki bragðað áfengi síðan
þau töluðu fyrst við mig eða
félaga mína. Aðrir eru á góð-
um batavegi, en hafa farið á
stutt ,,kennderí“ og þá liðið
lengri tími á milli þeirra en
áður. Enn eru nokkrir sem ekki
virðast hafa skilið það, að
manni ber að forðast sopann
því það er hann, sem leiðir
til ofdrykkjunnar. Reynsla okk-
ar félaganna er sú, að auðveld-
ast sé að taka fyrir einn sól-
arhring í einu og setja sér
að bragða ekki áfengi á þeim
tíma. Við þekkjum öll, að
eftir að við höfum fundið áhrif
eins eða tveggja drykkja get-
um við ekki neitað okkur um
að halda áfram.
— Hvaðan færðu fé til þess-
arar starfsemi?
— Fyrstu fimm mánuðina
eftir að ég stundaði ekki aðra
atvinnu fékk ég engan fjár-
hagslegan stuðning, að und-
anskildu því að Reykjavíkur-
bær veitti 10 þús. og ríki 4
þús. króna styrk til starfsem-
innar. Síðan var mér boðið að
vera ráðunautur vinnuhælis á-
fengissjúklinga í Gunnarsholti,
og hef ég fengið greiddar 2500
krónur á mánuði fyrir það
starf. Af þeim tekjum verð ég
hinsvegar að greiða allan ben-
zín- og viðhaldskostnað, sem
ég hef af bíl mínum í sam-
bandi við starfið, en það er
allmikill peningur, td. rúmlcga
1100 krónur í júíímánuði ein-
um. Ég hef aldrei hugsað mér
að gera þetta starf að féþúfu,
því að þetta er mitt hjartans-
mál. Og ég bókstaflega trúi
því, að hinn æðri máttur hafi
látið mig sökkva jafn djúpt í
volæði drykkjuskaparins og
raun varð á til þess að ég
yrði fær um að skilja og leið-
beina þeim, sem villtust inn á
sömu ógæfu brautir.
Ég hef von um að okkur
takist að vinna inn eitthvað
fé með fyrstu skemmtuninni
sem við efnum til í fjáröflun-
arskyni, en eins og getið hefur
verið í fréttum höfum við feng-
ið hingað heimsfrægan, dansk-
amerískan töframann og hugs-
analesara, Frisenette að nafni,
til þess að sýna bæjarbúum
listir sínar nokkur kvöld. Verð-
ur fyrsta skemmtun hans í
Austurbæjarbíói nk. sunnudags-
kvöld kl. 11:15. Væntum við
þess, að Reykvíkingar sæki
þessar skemmtanir vel, þar sem
við höfum ekkert sparað til
þeirra og fengið hingað þennan
ágæta og dýra skemmtikraft.
Ég vil svo að lokum benda
bæjarbúum á a? sjá kvikmynd
þá, sem nú er sýnd í Tjarn-
arbíói og heitir Komdu aftur
litla Sheba. Kvikmynd þessi er
framúrskarandi vel leikin og
fjallar um heimilislíf og starf
læknis, sem varð ofdrykkju-
maður. Ég vil sérstaklega
benda konum á að sjá mynd-
ina, því að eiginkonan í henni
á óbeint og óafvitandi nokkra
sök á ofdrykkju mannsins. Hún
er kærulaus um öll heimilis-
störf og heimilishagi og alls
ekki uppörfandi, en það eru
einmitt alltof fáir, sem gera
sér fulla grein fyrir því, hve
uppörfun annarra er mikill
styrkur fyrir ofdrykkjumann-
inn í baráttu hans gegn sjúk-
dómi sínum. I myndinni sést
einnig greinilega hið ósérhlífna
starf AA-félaganna, sem eru
reiðubúnir að hjálpa og aðstoða
áfengissjúklinga á hvaða tím-
um sólarhringsins sem er.
Kennaraförin
Framhald af 12. síðu
Hinn 5. sept. var enn haldið
til Hafnar og nú skyldi kynna
kennurunum skólalíf þar. Þrir
kennaranna höfðu þó ekki tíma
til lengri dvalar í Kaupmanna-
höfn og héldu heim eins og
áður var sagt, en aðalhópurinn
varð eftir og mun koma hing-
að 12. eða 15. þm.
Hróðmar Sigurðsson lét mjög
vel af förinni allri. Skipulag
allt hafi verið með ágætum og
viðtökur framúrskarandi. Sér-
staklega rómar hann gestrisni
skólastjóra lýðháskólans á
Borgundarhólmi, Aksels Laur-
idsen, og konu hans, en Laurid-
sen er maður mjög fjölhæfur
og lýðháskólamaður áf lífi og
sál.
Framhald af 12. síðu.
40 Islendinga, sem synt hafa
200 metrana. Meðal keppend-
anna er Bjarni ■ Ásgeirsson
sendiherra. í bréfi, sem fylgdi,
segir svo: „Flestir hafa synt
hér í Osló, þó hefi ég orðið að
fara hér um nágrennið og minn-
ist ég skemmtilegra ferða, t.d-
er ég fór út í Ásker, þar, hafði
ég frétt af okkrum Islending-
um, sem unnu að garðyrkju.
Mér var tekið þar prýðilega og
ekki sízt þegar erindi mitt
varð kur.nugt, því að sam-
norræna sundkeppnin hafði ein-
mitt verið á dagskrá. Við
brugðum okkur samstundis á
næsta baðstað, sem var Hal-
man-bað. Dálítil gola var inn
fjörðinn og leiddi með sér öldu.
Krakkarnir létu þetta ekki á
sig fá og steyptu sér fram af
klöppum og syntu — ekki að-
eins 200 metra heldur 400 og
600 metra. Þetta var skemmti-
legt. og, heilbrigt ungt fólk“.
Fjórir í Qklahoma
Þá hefur borizt yfirlýsing
frá sundstað í Oklahoma City.
um að þar hafi synt fjórir
Reykvíkingar, sem nám stunda
í borginni. Þeir segja í bréfi,
sem fylgdi: „Við erum hreykn-
ir af sundmennt Islendinga og
notum hvert tækifæri að halda
því á lofti“.
Hafnarfjörður
Unglingur eða roskinn maður óslcast til
blaðburðar í Hafnarfirði
þJÓÐVIUINN
*---------------------------«
Tilkynnlng
frá Másmæðraskóla Beykjavíker
Kvöldnámskeið í matreiðslu hefjast 1 .okt. — Kenn-
ari vcrður frk. Aðalbjörg Hólmsteinsdóttir, húsmæðra-
kennari. — Skrifstofa skólans er opin alla virka daga
nema Iaugardaga frá kl. 1—2 síðd. — Sími 1578.
Kalrm Helgadéitir
<$>-------------------------:---------------------<3
Verkamannafélagið HLlF í Hafnarfirði
vantar nú pegar
starfsmann
Nánari upplýsingar gefnar í skrifstofu fé-
lasgins, sími 9987, kl. 6—7 e.h.
Stjórnin
Skrifsioíumar verða
LðKJ&fiAS
frá kl. 1—4 í dag vegna jarðafarar.
Eagnar !>ór3arson h.f.,
heildverzlun,
Mesi tveedkápur
MARKAÐURINN
Laugavegi 100