Þjóðviljinn - 10.09.1954, Side 12
Stöðvast síldar söltunin vegna
skarts á nægllegii rekstrarlé?
Föstudagur 10. september 1954 — 19. árgangur — 204. tölublað'
Salfendur viS Faxaflóa héldu fund I
gœr til þess aS rœoa vandamálin
Kyimtust dönskum skól-
Síldarsaltendur við Faxaflóa efndu til fundar í gær til
þess að ræða erfiðleika þá, sem saltendur á suðvestur
landi eiga nú við að stríða sökum skorts á nægilegu
rekstrarfé. Telja þeir viðbúið, að síldveiðarnar á þess-
um slóðum stöðvist algerlega eða dragist saman að veru-
legu leyti, ef ekki verða gerðar viðunandi ráðstafanir
að því er snertir öflun fjár alveg á næstunni.
Bátarnir, sem stunda reknetjaveiðarnar í Faxaflóa liafa
aflað mjög vel að undanförnu og voru þó aflabrögð
hvað bezt í gær.
Fulltrúar síldarsaltendanna
skýrðu fréttamönnum í gær-
kvöld frá störfum fundarins
og viðhorfunum í söltunarmál-
unum.
Á fundinum var samþykkt að
stofna félag síldarsaltenda á
suðvesturlandi, allt frá Breiða-
firði til Vestmannaeyja. f und-
irbúningsnefnd voru kosnir
Ingimar Einarsson, forstjóri
Sandgerði, Margeir Jónsson út-
gerðarmaður Keflavík og Þórð-
ur Guðmundsson útgerðarmað-
ur Gerðum. Þá var og kosin
nefnd fimm manna til að ræða
við ríkisstjórnina og síldarút-
vegsnefnd um starfsmöguleik-
ana fyrir saltendurna. 1 nefnd-
ina voru kjörnir Björn Péturs-
son Keflavík, Guðsteinn Ein-
arsson Keflavík, Jón Árnason
Akranesi, Finnbogi Guðmunds-
son Gerðum og Beinteinn
Bjarnason Hafnárfirði.
Slæm afkoma hjá
reknetjabátum
Afkoma fiskibáta, sem stund-
að hafa reknetjaveiðar í Faxa-
flóa hefur verið mjög erfið
mörg undanfarin ár, venga þess
hve dýrt er að veiða með rek-
netjum. Verðlagsráð Landssam-
bands íslenzkra útvegsmanna
og Fiskifélagið hafa látið fara
fram rannsókn á afkomu þess-
ara báta og hefur sú rannsókn
leitt í ljós, að á undanförn-
um árum hefur meðaltap báts
á úthaldi — þ.e. tímabilið
ágúst—október — numið 51
þús,- kr. Öll þessi ár hefur síld-
arverðið verið það sama 1 kr. pr.
kg. vegið upp úr bát, en þorsk-
verðið hinsvegar hækkað úr 85
aurum kg. í kr. 1.22 á sama
tímabili.
Þrátt fyrir þetta neyddist
LÍÚ til þess að mæla með því
við útvegsmenn að þeir fiskuðu
enn eitt árið fyrir sama verð,
kr. 1.00 á kg. Allmargir bát-
ar hafa verið sendir á þessar
veiðar eða um 80, en það munu
vera um helmingi færri bátar
en stundað hafa síldveiðarnar
sl. 3 ár. Ástæðurnar fyrir því
að bátarnir fara á þessar veið-
ar eru margvíslegar, t.d. er
ekki um aðrar veiðar að ræða
á þessum árstíma og einnig er
það mjög kostnaðarsamt að
láta bátana liggja aðgerða-
lausa. Þá er þess að geta að
séu bátarnir ekki starfræktir
Framhald á 8. siðu
--------------------------.
Mikil síBdveiði
\
í gaer
í gær var mjög góður síld-
arafli í Grindavíkur- og Mið-
nessjó. Bátar frá Grindavík
fengu allt upp í 3—5 tunnur
i net, en aflahæstur var
Gunnar Hámundarson með
250 tunnur.
Afli báta á Akranesi var
einnig góður. Aflaliæsti bát-
urinn var með um 240 tunn-
ur, en alls munu hafa bor-
izt þar á land í gær um 26C0
tunnur. Var öll síldin sölt-
uð nema 300 tunnur.
Sundmaðliir
IStllBBBi af
Hætt er leit að enska sund-
manninum Edward May, sem
ætlaði í fyrradag að reyna að
synda yfir Ermarsund fylgd-
laust. Var hann talinn af þeg-
ar engar spurnir höfðu bor-
izt af ferðum hans 30 klukku-
tímum eftir að hann lagðist
til sunds.
lorizS hala köIh 40 SslðKdisga, sem syní
haia 200 melraita í Mosegi
Þátttakan í samnorrænu sundkeppninni hefur aukizt
verulega síðustu dagana, enda á keppni að ljúka 15. þessa
mánaðar. í fyrradag syntu á sundstöðum í Reykjavík
368 menn, eða miklu fleiri en undanfarna daga.
MHíil hrifuing
á ísafirði
Sovézki sellósnillingurinn
Mstislav Rostropovitsj hélt tón-
leika í Alþýðuhúsinu á Isafirði
í fyrrakvöld og var efnisskráin
sú sama og á tónleikum hans
í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Að-
sókn var góð og hrifning á-
heyrenda ákafleg. Rosti’opovitsj
varð að leika aukalög og hon-
um bárust blóm.
Hér fara á eftir nokkrar frétt-
sr frá landsnefndinni um þátt-
töku ^samnorrænu sundkeppn-
inni a einstökum stöðum á
landinu.
Aukning í Árnes- og Bangár-
vallasýslura
Félagssvæði Héraðssambands-
ins Skarphéðins nær yfir Ár-
nes- og Rangárvaliasýslur, en
þar eru 9 laugar. I þessum
tveim sýslum syntu 1951 2407
manns, en nú hafa synt 2410,
svo að töluverð aukning mun
‘verða á þátttöku í sýslunum,
þar sem sundsókn hefúr örvazt
undanfarna daga.
100% aukning í Bárðardal
í Suður-Þingeyjarsýslu hef-
ur þátttaka orðið betri en 1951
í öllum hrepoum nema tveim.
1 Bárðardal nemur aukningin
um 100%.
Nokkur fyrirtæki í Vest-
mannaeyjum hafa lofað að gefa
ísskáp, ef 1400 Vestmannaey-
inga^ taka þátt í sundkeppn-
inni. Verður dregið um ísskáp-
inn meðal þeirra, sem syntu
200 metrana, að lokinni keppni.
Ný sundlaug í Stykkishólmi.
Þann 8. þ.m. tók til starfa
í Stykkishólmi ný sundlaug,
sem er 12Váx6 metrar að stærð.
Þró og stéttar eru fullgerðar,
en búið er að smíða helming
laugarhússins og þar hefur
búningsklefum og böðum ver-
ið komið fyrir til bráðabirgða.
Kælivatn frá vélum rafstöðvar-
innar er leitt til laugarinnar.
Ibúar Stykkishólms hafa geng-
ið mjög vel fram við byggingu
þessa mannvirkis, en strax og
það var tekið í notkun hófst
þátttaka í samnorrænu sund-
keppninni og eru margir tekn-
ir til við sundiðkanir.
Á Hellissandi og Fiateyri hafa
sundlaugarnar aftur verið tekn-
ar í notkun en starfræksla
þeirra hafði Iegið niðri um
sinn.
40 landar synda í Noregi
Frá Noregi hafa borizt nöfn
Framhald á 3. síðu
Bifreið ek’sð á
HÍnnHpaila s Aust-
urstræti
Klukkan um hálfátta í gær-
kvöld var fólksbifreið ekið á
vinnupallana sem eru utan á
Reykjavíkurapóteki við Aust-
urstræti. — Braut bifreiðin
nokkrar uppistöður áður en
hún stöðvaðist en pallarnir
féllu þó ekki niður. Bifreiðar-
stjórinn slapp ómeiddur.
Kl. 19:40 í gær varð dreng-
ur á skellinöðru fyrir bifreið
á gatnamótum Hverfisgötu og
Vatnsstígs. Drengurinn hand-
leggsbrotnaði en mun ekki
hafa hlotið önnur alvarlegri
meiðsl.
um, kennurum og skólalífi
Þrír. al íslenzku kesmustmusn kommr úc
hslmsókn til Danznerkuc
Snemma í fyrra mánuöi fóru 20 íslenzkir kennarar til
Danmerkur í boði danskra stéttarbræðra. Flestir kennar-
anna munu koma heim um miðjan þennan mánuð en.
þrír eru þegar komnir.
Þjóðviljinn náði snöggvast
tali af einum þremenninganna,
Hróðmari Sigurðssyni kennara,
og spurðist frétta af förinni.
Islenzku kennararnir fóru
héðan með skipi hinn 7. ágúst
og komu til Kaupmannahafnar
hinn 12. Þar dvöldust þeir í
3 daga í góðu yíirlæti og var
þeim sýnt það markverðasta í
borginni og nágrenni, m.a.
mjög fullkomið barnaheimili á
vesturströnd Sjálands, sem
byggt hefur verið fyrir heilsu-
veil börn.
Eftir Kaupmannahafnardvöl-
ina var hópnum skipt og fór
helmingurinn til Sönderborg á
Jótlandi til hálfs mánaðar dval-
ar í Iþróttaháskólanum þar, en
hinn helmingurinn fór til Borg-
undarhólms og dvaldist á lýð-
háskólanum þar. Var Hróðmar
Sigurðsson í síðari hópnum.
Á Borgundarhólmi kynntust
íslenzku kennararnir merkilegri
starfsemi, sem Hróðmar telur
vel þess virði að reyna hér á
landi, en það voru hálfs mán-
aðar námskeið fyrir fólk í sum-
arlevfum. Þátttakendur á
námskeiðinu voru úr ýmsum
starfsgreinum og víðsvegar að
úr Danmörku. Námskeið þessi
voru mjög frjálsleg, tveir fyrir-
lestrar á dag um ýmiskonar
efni, en auk þess var farið í
skemmtiferðir um nágrennið og-
| þrjár bílferðir um ej-juna, þar
sem skoðað var allt hið mark-
verðasta sem þar er að sjá. Þá
fengu Islendingarnir tækifæri
til þess að skoða tvo barna-
og unglingaskóla þar á eynni.
Að lokinni hálfs mánaðar
dvöl á Borgundarhólmi var aft-
ur haldið til Kaupmannahafnar.
Þar dreifðist hópurinn og héldu:
kennararnir nú út i sveitirnar,.,
dvöldust hjá einstökum kennur-
um og kynntust skólalífinu. ——
Framhald á 3. síðu
Fyrsta bílaleyfin
gefin út í gær
STú er lokið við að úthluta
leyfum fyrir vörubifreiðar, 3
tonn og stærri, og munu
fyrstu leyfin hafa verið gefin
út í gær. Alls verða vörubíla-
leyfin 275.
Innan skamms mun verða
byrjað á úthlutun leyfa fyrir
fólksbifreiðar, ‘ sendiferðabíla
og litlar vörubifreiðar. Gert er
ráð fyrir að þeirri úthlutun.
ljúki um miðjan næsta mánuð.
Sptdu „Tépaz" á 12 síöðwra eystsa
Leikflokkurinn kominn frá
Austurlandi
Undanfariö hefur leikflokkur frá Þjóðleikhúsinu feröazfc
um Austurland, og haft þar sýningar á sjónleiknum
„Topaz“. Voru sýningar alls á 12 stööum við mjög mikla.
aðsókn.
I fyrradag kom leikflokkur
frá Þjóðleikhúsinu til bæjar-
ins úr þriggja vikna leikför um
Austurland .Sýndu þeir sjón-
leikinn „Tópaz“ á 12 stöðum
austanlands. Var það á Horna-
firði (2 sýningar), Seyðisfirði
(2 sýningar), Neskaupstað (2
sýningar), Djúpavogi, Breið-
dalsvík, Fáskrúðsfirði, Reyðar-
firði, Eiðum, Vopnafirði, Þórs-
höfn og Raufarhöfn.
Haraldur Björnsson, sem var
fararstjóri í ferðinn tjáði blað-
inu í gær, að þessi leikför
mundi vera ein sú erfiðasta,
sem farin hefði verið hér á
landi. Skilyrði eru víða mjög
slæm til sýninga en aðsókn
mjög mikil, svo að stundum
urðu jafnmargir frá að liverfa
og inn komust.
En vonir standa til að skil-
yrði til leiksýninga í þessum
landshluta batni að mun á
næstunni, þar eð nú eru alivíða
að rísa ný, glæsileg félags-
heimili í sveitum og þorpum.
í leikför þessari voru samtals
18 menn frá Þjóðleikhúsinu,
leikarar og aðstoðarmenn.
Auk þess voru á hverjum
stað fengnir 6 drengir til að
koma fram í sýningunni.
Leikstjóri var Indriði Waage.
,,Tópaz“ hefur nú verið
sýndur í 91 skipti á vegum
Þjóðleikhússins, þar af 45
sinnum úti á landi. Næsta sýn-
ing verður væntanlega á Akra-
nesi.
ríaráfe-
Sameiginlegur fundur ful!-
trúaráðs og trúnaðarrnanna
Sésíalistafélags ReyUjavíku r
vérður í kvöld kl. 8.30 í Bað-
stofu iðnaðarmanna.
Þar sem injög áríðandi
málefni verður lagt fyrir
íundinn er þsss yænzt að
fulltrúar og trúnaðarmenn
fjöhnenni.