Þjóðviljinn - 24.09.1954, Side 6
6) — ÞJÖÐVILJINN —r Piöstudagur 24. ■ septe.miber 1954
þJÓDVKUINN
Útgefandi: Sameiningarfiokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttastjóri: Jón nason.
Blaðamenn: Ásmúndur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
j 19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði i Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöiuverð 1 kr. eintakið.
. Prentsmiðja Þjóðvíijans h.f.
Fyrir tveimur árum gerðust þau tíðindi á flokksþingi
Alþyðuflokksins að hægri klifkunni undir forustu Stefáns
Jóhanns var velt úr valdastóli. Margra ára megn óánægja
og andúð á afturhaldsþjónustu Stefáns og kumpána hans
Lrauzt þarna fram í kosningu formanns og flokksstjórn-
ar. Eftir fall Stefáns sjálfs neituðu allir helztu samstarfs-
menn hans þátttöku í miðstjórn og flokksstjórn. Meðal
þeirra var Haraldur Guðmundsson, sem nú hefur verið
kjörinn formaður flokksins fyrir atbeina hægri klíkunnar.
í uppreisninni á Alþýðuflokksþinginu 1952 birtist krafa
hins óbreytta flokksmanns um að horfið yrði frá þjón-
ustunni við auðstéttina og flokka hennar. Ósjálfstæði
hægri mannanna gagnvart Sjálfstæðisflokknum og
Framsókn og þó alveg sérstaklega samvinnan við umboðs-
menn atvinnurekenda í verkalýðshreyfingunni var oröin
öilum heiðarlegum Alþýðuflokksmönnum sárasta raun.
Þeim var ljóst aö með sama áframhaldi hlaut leið flokks-
ins að liggja til áhrifaleysis og algjörs fylgishruns. Sam-
ræmd sókn auðstéttarinnar og flokka hennar gegn verka-
lýð og alþýðuhagsmunum kallaði á alla krafta verkalýðs-
stéttarinnar til sameiginlegs viðnáms og undirbúnings að
nýrri sókn alþýðunnar á hendur auðvaldi og afturhaldi.
Enginn vafi leikur á því að viljinn til samstarfs við
sósíalista á sviði verkalýðsmála og þjóömála almennt
hefur eflst innan Alþýðuflokksins á þeim tveimur
árum sem liðin eru frá flokksþinginu 1952. Um þetta ef-
ast enginn sem til þekkir þrátt fyrir þau úrslit sem nú
hafa oröið á nýafstöðnu ílokksþingi. Enda er valdataka
Stefáns Jóhanns, Haralds Guðmundssonar og Guðmund-
ar í. tiloröin með nokkuð óvenjulegum hætti. Mennirnir
sem neituðu að starfa að málum flokks síns haustið 1952
hafa síður en svo legið á liði sínu. Þeir hófu þegar skipu-
lega herferð gegn þeim samherjum sínum sem til forust-
unnar völdust. Flokksskrifstofunni var breytt í baráttu-
tæki gegn kjörinni forustu. Fyrirtækjum sem rænt hafði
verið af verkalýösfélögunurn var fyrirskipað aö hætta
fjárhagsstuðningi við blað flokksins og starfsemi. Með
fjárhagslegu kverkataki sínu stöðvaði hægri klíkan út-
gáfu Alþýðublaösins hvað eftir annað og nú slfðast fyrir
örfáum dögum þegar hindra átti að blaðið birti ávarp
gegn hernáminu og málefnasamning alþýðuflokksmanna
og sósíalista á Akureyri í verkalýðsmálum.
í undirbúningi kosninga á flokksþingið drógu hægri
menn hvergi af sér og spöruðu ekkert sem orðið gat mál-
stað þeirra til framdráttar. Skipulögðum undirróðri og
rógstarfsemi var beitt hvar sem við varð komið. í kosn-
jngunum í ílokksfélögunum í Reykjavík beittu þeir bíla-
kosti og smölunaraðferðum eins og um alþingis- eöa bæj-
arstjórnarkosningar væri að ræða og tókst þannig aö
ná öllum fulltrúunum með veikum meirihluta. Sendi-
menn klíkunnar geystust um landið þvert og endilangt,
lýstu hættunni sem fylgdi Hannibal og vinstri mönnun-
um og grátbændu gamia og trygga flokksmenn um að
veita Stefáni Jóhanni & Co. það brautargengi sem dygöi
til að lyfta þeim aftur til valda og metorða í flokknum
og tryggja þannig sambandið við hina „lýðræöisflokk-
ana“.!
Árangurinn af öllu brambolti Stefáns Jóhanns og fé-
laga hans er furðulega lítill þegar tekið er tillit til fyrir-
hafnarinnar og þess ofurkapps sem þeir lögöu á að ná
völdunum. Fast að helmingi fulltrúanna neitaði að kjósa
hernámsdýrkandann Guöm. í. sem varaformann flokks-
ins, og var þó handjárnunum óspart beitt til að tryggja
,.varnarmálanefndarmanninum“ forustusess við hlið
Haralds og Stefáns Jóhanns. Andstaðan gegn hernámi
og íhaldsþjónustu hægri klíkunnar er því sterk meðal
alþýðuflokksmanna og á áreiðanlega eftir að eflast. Plægri
klíkan hefur unnið „Pyrrhusarsigur“ sem fagnað er af
ííhaldsöflunum en þarf á engan hátt aö tefja eða tor-
velda sókn alþýðunnar til samstarfs og einingar sé rétt
á málum haldið.
Jakobína Sigurðardóttii
Orrusta
maur
Selvr sefur á steini,
svartur á brún og brá.
Drunur rjúfa dá.
Undrast hann meira en óttast:
hver er par kominn á stjá?
Móri stiklar um Stapann,
svartur á brún og brá,
höfuðið aftan á.
Hrökklast það upp á hálsinn:
Hver er kominn á stjá?
Skotta skjögrar um gjótur,
hugsar um horfinn skjá,
gott var að glettast þá;
vaknar af vœrum draumi:
hver er þar kominn á stjá?
Drísill dottar í þangi,
flennir upp augu flá:
Nú verður nýtt að sjá!
Kross er þar enginn undir
né ofan á.
Stríðsmenn farnir á stjá.
Mardöll situr á miði,
gullin á brún og brá.
Undrast hún aðferð þá:
Er þar eitthvað til fanga
annað en hraunin grá?
Hetjur slást af hreysti.
Hnígur í valinn þá
mosi af grjóti grá.
Enginn steinninn stakur
standa upp úr má,
þá sennu svifar frá.
Vanþakklátt skal hyskið heyra
hljóöin eigi smá!
Hér skal fenginn frægur sigur.
Felmtruð endurtjá
hergný háfjöll blá.
Stríðsmenn eiga í ströngu,
svartir á brún og brá,
herja á hraunin grá.
Skotta skyggnist úr gjótum:
Ekkert aðhald að sjá!
Móri mœnir á.
Hrolli slœr að hetjum,
höfuðið axlar sá,
geigar í greipum efldum
beinskeytt byssan þá.
Drísill dansar hjá.
Sauðkind sefur á mosa,
mjallhvít á brún og brá,
lúrir lömbum hjá.
Hrekkur hún upp og hlustar.
Stríðsmenn farnir á stjá.
Hrœdd við lömbin hjalar:
hlaupi hver sem má
vernd að varast þá.
Selur syndir frá landi,
svartur á brún og brá,
vill eigi vígmóð sjá,
Mardöll grœtur á miði,
mjúkur var mosi sá,
veit ei hvað slíku veldur.
Unnu þér augu bíá,
klæddir þú grjótin grá.
Fast sækja hetjur hildi,
livergi er lát þar á,
vísan sigur sjá.
Móri stikar í Stapann,
glyrnur af öfund gljá;
undrast hann hví enginn prestur
angrar feigðarspá
mosamyrða þá.
Drísill dansar um valinn,
dillar skotti sá,
kallar á glóða-krá:
Nií er úr nógu að moða,
nú er margt að sjá.
Kross er þar enginn undir
né ofan á.
Stríðsmenn halda frá hildi,
svartir á brún og brá,
vilja vœrðir fá.
Skotta skjöktir á eftir,
gjörn á girndastjá,
ófrýn á að sjá:
„Einn er mestur mosaskelfir,
honum sef ég hjá,
honum sef ég hjá“.
Mardöll gengur af miöi.
Hittir í hrauni grá
vin sem vœnstan á.
Lífgrös leggur sárum
Ijúflingshöndin smá.
Rótarvissa í valnum
von hún græðir þá:
Líf mun leiðir sjá.
Húseigendur
- 50 þúsustd
krónur
4ra — 5 herbergja íbúð óskast til leigu
eða kaups nú þegar.
&
Vil greiða allt að 50 þúsund kr. fyrir-
fram. Ef um kaup er að ræða gæti
útborgun orðið allt að 200.000.00 kr.
Tilboð óskast lagt inn á afgreiðslu
Þjóðviljans fyrir laugardag, merkt
„Hús — STItAX“