Þjóðviljinn - 28.09.1954, Qupperneq 11
Þriðjudagur 28. september 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Erfiðir dagar í Amsterdam
Framhald af 4. síðu.
spyrja: Bolbochan hélt Guð-
mundi í járngreipum það sem
eftir var skákarinnar og herti
smám saman fastar að unz
Guðm. varð að gefast upp.
Friðrik átti við Najdorf og var
sú viðureign enn þýðingar-
meiri en ella vegna þess að
þeir tveir voru með hæsta vinn-
ingatölu fyrsta borðs manna
þegar skákin var tefld, 3 vinn-
inga af 4 mög'ulegum. Najdorf
kom Friðrik á óvart með nýj-
ung í Sikileyjarvörn, Friðrik
eyddi miklum tíma í leit að
viðunandi vörn án þess þó að
finna nokkra leið-er hann væri
ánægður með. Hann fékk lak-
ari stöðu og lenti svo auk þess
í tímaþröng og tapaði eftir
harða baráttu. Þar með var
Najdorf einn efstur af fyrsta
borðs mönnum og ósigraður, en
sú dýrð stóð ekki lengi, tveim-
ur umferðum seinna var Naj-
dorf sjálfúr eins og barn í hönd-
unum á Bótvinnik'.
Pilnik lék spænskan leik
gegn Guðm. Ágústssyni. Barátt-
an á miðborðinu var hörð og
hallaði heldur á Guðmund þó
ekki alvarlega fyrr en honum
yfirsást í einni flækjunni, en j
þá var líka taflið tapað.
Guðm. Pálmason var okkar
eina von í þessari umferð. Hann
hafði komið sér upp ágætri
sóknarstöðu gegn Hector Ross-
etto, hafði komið biskup á f6
sem kreppti verulega að kóngi
svarts svo að hann' mátti gæta
sín fyrir máthótunum. Rossetto
lét að lokum skiptamun, báðir
voru komnir í nokkra tíma-
þröng og þar eð biskupar Ross-
ettos voru óþægilegir og staðan
flókin lét Guðmundur skipta-
muninn aftur til þess að eiga
ekki neitt á hættu. Þá jafnaðist
leikurinn, bauð Rossetto jafn-
tefli er skákin átti að fara í
bið, og tók Guðmundur boð-
inu. Það má mikið vera ef
hann hefur ekki átt vinning,
en það var afar erfitt að rata
beztu leiðina í þessari flóknu
skák.
Með þessum sigri komust
Argentinumenn upp í 2.—
sæti. Júgóstavarnir er höfðu
verið í fyrsta sæti ásamt Sovét-
ríkjunum töpuðu í þessari um
ferð fyrir Búigaríu í}k\Vh og
vor.u þá jafnir Argentíumönn-
um, en Sovétríkin bættu við sig
3 vinningum og voru orðin éfst,
1% vinningi á undan.
Daginn eftir beið okkar önn-
ur glíman við Sovétríkin. Við
Enskar dragtlr
Svartar — Gráar
Frúarstærðir
Þýzkar regnkápur
— Poplin —
> Mikið úrval
Nokkur stykki ítalskar
*
itEodelregnkápur
MARKAÐURINN
. %•.; • ' ' v'
Laugaveg 100
breyttum liðinu þannig að all-
ir fengju að tefla við heims-
meistarana, Friðrik fékk frí og
missti þannig af að tefla við
Bronstein í annað sinn. Guðm.
S. tefldi við Bronstein og hafði
hvítt, Guðm. Ágústsson við
Keres, Ingi við Geller og ég
við Kotoff. Bronstein og Keres
voru óhugnanlega fljótir að fá
unnið tafl, Guðmunarnir báðir
voru komnir peði undir og með
lakari stöðu innan 20 leikja, og
töflin voru vonlaus þótt þeir
berðust áfram alllengi. Geller
valdi kóngsindverska vörn gegn
Inga, skákin var hörð og vel
tefld, Ingi tefldi gætilega og
lét sig hvergi þótt Geller sækti
fast á. Þegar skákin fór í bið
hafði talsvert af mönnum
skipzt upp og í fljótu bragði
virtust ieikar standa alveg
jafnt, en við nánari athugun
kom í ljós að Ingi rriátti gæta
sín. Hann átti um tvær leiðir
að veija og var vandi að sjá
hvor betri væri. Ég átti líka bið-
skák og var sýnilegt að báðar
mundu verðá langar, svo að ég
lagði til að við færum fljótlega
að sofa til þess að vera óþreytt-
ir næsta morgun við tafiið, því
að ný umferð var um kvöldið.
Ingi lauk svo biðskákinni morg-
uninn eftir, Geller tefldi tafl-
lokin mjög vel og sótti fast á en
Ingi varðist með prýði. Þó
hallaði smám saman meira á
hann og eftir 73. leik mátti
hann gefast upp. Það kom í ljós
að hefði Ingi valið hina leiðina
af þeim tveimur er honum stóðu
til boða, hefði hann getað hald-
ið jafntefli, en það var ekki
auðvelt að sjá fyrir. Mín skák
við Kotoff varð all óvenjuleg,
ég valdi Nimzoindverska vörn
en fór fljótlega út af venju-
legri leið eins og bezt sézt af
því að svartur tók á sig tví-
peð á f-línunni og langhrók-
aði svo í 14. ieik. Ekki gafst
þetta að öllu leyti vel, hvítur
átti greinilega betra tafl, en
hann átti .ekki hægt um við
að brjótast í gegn, og í tafl-
lokum eftir náegil^ga mikil
mannakaup stæði svartur sízt
lakar að vígi en hvítur. Er
skemmst af því að segja að
skákin fór í bið eftir fimm
stunda tafl, var tefld fjórar
stundir næsta dag og fór enn í
bið, og lýsti eitt dagblaðið stöð-
unni þá þannig að Arnlaugsson
væri búinn að byggja granít-
virki er allar sóknartilraunir
Kotoffs strönduðu á. Flestum
sýndist tafiið dautt jafntefli
og ég sjálfur hafði góðar von-
ir, en Kotoff lýsti því yfir
brosandi að þessa skák skyld-
um við tefla á hverjum degi
þar til mótinu lyki. Þegar heim
kom og ég fór að athuga stöð-
una betur sá ég að Kotoff átti
einn fleyg enn, sem var hættu-
legri en ég hafði haldið, og
mundi setja þá sprungu í mitt
ágæta granítvirki er mundi
ríða mér að fullu. Ég var of
bundinn í vörninni til þess að
geta snúizt til gagnsóknar, svo.
að síðasta úrræðið var að svara
vinningsfórn Kotoffs með mót-
fórnum, ée fórnaði fyrst drottn-
ingu fyrir hrók og síðar skipta-
mun og átt.i þá tvo létta menn
gegn drottningu -en var búinn
að byggja nýtt granítvirki. Enn
virtist ég afar nærri jafntefl-
inu, því að menn mínir vörnuðu
drottningunni og kónginum
inngöngu, en svo komst ég loks
í leikþröng og gafst upp eftir
106 leiki, ég hefði reyndar get-
að teflt svo sem tíu ieiki til
viðbótar, en kunni ekki við að
eyða meiru að tíma stórmeist-
arans eftir að vinningurinn
varð rakinn, skákin hafði tekið
11 stundir. Ég hitti Kotoff aftur
um kvöldið og sagði hann mér
þá glettnislegur á svipinn, að
sér gengi illa að venja sig af
þeirri tilhugsun að hann ætti
að tefla við mig í fyrramálið!
I þessum tveimur umferðum
gerðust ýmsir aðrir hlutir vof-
eiflegir. Bretar sem til þessa
höfðu keppt við okkur um 10.
og 11. sætið fengu einn vinning
í hvorri umferð, gegn Tékkum
og Hollendingum og það nægði
þeim þó lítið væri til þess að
. komast hálfum öðrum vinning
upp fyrir okkur. Svíárnir bættu
einnig á' sig einum vinning í
hvorri umferð, gegn Hollandi
og Argentínu, svo að nú erum
við í il. sæti, aðeins einum
vinning ofan við Svíana. Júgó-
slavarnir sem höfðu staðið sig
manna bezt fyrstu fjórar um-
ferðirnar og neytt Bondarevskí
kaptein að síma þær sorgar-
fréttir heim til Moskvu að Sov-
étríkin væru aðeins í öðru sæti,
Jógóslavía væri efst (að vísu
áttu heimsmeistararnir bið-
skákir sem nægðu til þess að
jafna metin). ÍEn nú fengu
Júgóslavar aðeins hálfan ann-
an vinning gegn Ungverjalandi
og tvo gegn Búlgariu og hafa
þar með hrapað í þriðja sæti.
Eftir sex umferðir er röð-
in annars þessi:
1. Sovétrikin 19 vinninga
2. Argentína 16 Va
3. Júgóslavia 15%
4.— -5. Tékkóslóvakía og
Holland 14
6. Ungverjaland 13
7,— -8. ísrael og
V-Þýzkaland 12%
9. Búlgaría 10
10. Stóra Bretland 7
11. ísland 5%
12. Svíþjóð 4% ——
Við fylgjumst enn með þjóð-
unum i neðri flokknum af sarna
áhuga og fyrr og leikum okk-
ur stundum að því að draga á-
lyktanir um hvernig okkur
hefði vegnað ef við hefðum lent
þar. Þar eru það fyrst og
fremst tvö lönd sem bítast um
fyrstu verðlaunin: Austurríki
og Kanada, en í næstu sætun-
um eru Sviss og Danmörk.
Keppnin er ennþá tvísýnhi þar
en hjá okkur, Noregur byrjaði
vel en hefur lækkað i síðari
umferðunum og Finnarnir ná
heldur ekki háu sæti.
Nú er búið að raða verðlaun-
unum í sýningarglugga i saln-
um. Þar er margt fagurra gripa
gefið ,af fyrirtækjum í Amster-
dam, meðal annars skáktafl
eitt mikið og veg'legt, allt úr
gleri, bæði borð og menn. En
af öllu ber þó farandgripurinn
mikli, Hamilton Russel bikar-
inn. gríðarmikið fat og veglegt.,
úr skíru gulli. Á bikarinn eru
rituð nöfn þeirra þjóða er unn-
ið hafa fyrstu verðlaun á þess-
um mótum, allt frá því fyrsta
1927.
í salnum er- einig búið að
koma íyrir söluborðum af
ýmsu tagi. Við eitt má kaupa
súkkulaði, kaffi, brauð, gos-
drykki; við annað er heil bóka-
verzlun, einvörðungu skák-
bækur eins. og nærri má geta.
Manni verður hugsað heim til
íslands, þegar maður sér allar
þær bækur um skák, sem kom-
ið hafa út í Hollandi síðustu ár-
in; við látum okkur nægja eina
og eina á svo sem aldarfjórð-
ungs fresti. Við þriðja borðið
er svo prófarkalestur, innheft-
ing og sala á tímariti mótsins.
Það er heldur þurrt aflestrar
fyrir aðra en skákmenn: ekkert
nema töflur og skákir, en kepp-
endurnir kaupa það og lesa af
miklum áhuga, rn. a. til þess
að kynnast andstæðingum sín-
um í næstu umferðum.
HEKLA
austur um land í hringferð
hinn 1. október. Tekið á móti
flutningi til Fáskrúðsf jarðar,
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Þórsliafnar, Raufarhafnar,
Kópaskers og Húsavíkur í dag
og árdegis á morgun. Farseðlar
seldir á miðvikudag.
Skaftíellingur
fer til Vestmannaeyja í kvöld.
Vörumóttaka dagiega.
Háskólastúdent óskar eftir
að fá leigt
herbergi
um mánaðamótin.
Má vera. lítið. Uppl. í síma
7500.
•--------------------------f
Við seljuin ódýrt!
Innflutningstakmark-
anir eru framundan.
Veljið það be/.ta
Hverfisgötu 74
é.----:------------------------$
77/ skerrimfunar:
i
Ragnar Bjarnason, dægurlagasöngur
Hjálmar Gíslason: Gamanvísnasöngur