Þjóðviljinn - 10.10.1954, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 10.10.1954, Qupperneq 7
Sunnudagur 10. október 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Mörðisr ágústsson: 'i VSL Þegar hugsað er til þeirra ungu manna, sem lögðu út í heiminn af íslandi um og eftir aldamótin síðustu, í þeim til- gangi að gerast listamenn, þá kemur manni ekki nema eitt í hug: hvílík ofdirfska. Það þarf að vísu, á hvaða tíma sem er og undir betri skil- yrðum en á hinu fátæka og umkomulausa ættlandi þessara æskumanna, sérstaka tegund af harðvítugri bjartsýni, til þess að leggja út á listamanna- braut. Svo virðist heimurinn einatt hafa litla þörf fyrir það sem beztu menn hafa kall- að fegurð. í þessu tilfelli þurfti þó bjartsýni og dirfska að vera það umfram meðallag sem smæð þjóðarinnar og getuleysi á veraldlegan mælikvarða var meiri en flestra annarra. Að leg'gja upp frá mynd- snauðu landi með tvær hendur tómar, ókunnur jafnvel ógn- andi heimur fyrir stafni, haf- a»' ö ekki einu sinni í fórum s i þá lágmarksundirstöðu st.i_ þegnar menningarþjóða drekka með móðurmjólkinni, og eiga það hlutverk fyrir höndum að leggja grundvöll að list, meira: skapa list i landi sem enga átti; að minnsta kosti ekki meðvitaða — það hefur verið erfið ferð. Gera menn sér, á því sama landi, íslandi, árið 1954 grein fyrir því og gera þeir sér grein fyrir þeim heiðri sem þeim ber er reynast menn til þess, eins og á daginn hefur komið? Einn þessara fullhuga sýnir okkur verk sín í Listamanna- skálanum um þessar mundir: Kjarval. Frá því maður man fyrst eft- ir sér, lagði sérstaka töfrabirtu af þessu nafni. Síðan hefur að sjálfsögðu margt breytzt, víða verið farið í leit að málverkum og meisturum, en þegar maður svo stendur niðri í Listamanna- skála þessa daga, þá er eins og það sé allt gleymt: maður er kominn heim. Þetta er ég, upp- runi minn, ísland með öllum þess kostum og göllum: Kjar- val. List Kjarvals virðist ofin tveim megin þáttum: náttúru- skoðun og fantasíu. Náttúrudýrkun Kjarvals er bundin ást íslendingsins á landi sínu. Hún er fersk af því hún er brautryðjandaverk, sýn ó- bundin fyrirfrdm ákveðnum reglum eða vanaformum. Ár-$ angurinn er eftir þvi. Fyrir- myndin er tekin föstum tökum, svo einbeittur og fastur vilji hefur verið hér að verki að loppin og ofþreytt hönd lista- mannsins hlýddi ekki lengur, pensillinn datt oft úr hönd hans. Þegar Ásgrímur málar veðr- ið og hina síbreytilegu birtu þess og landsins og Jón Stef- ánsson dregur fram byggingu þess, borg þess, þá málar Kjar- val jörðina, svörðinn, lit hans, Jóhannes Kjarval. Jóhannes Kjarval: Teikning. safamikinn og ríkan eins og ræturnar sem halda honum saman. Það leiðir næstum því af sjálfu sér, því Kjarval er fædd- ur koloristi, allt verður að lit undir pensli hans, hann miðar allt við lit, jafnvel þegar hann teiknar. Hann er litameistari. Hann seiðir fram hin örfínu blæbrigði litborðans og gefur þeim tengsl við hrjóstruga nátt- úru lands síns, fíngráa mosa- þembu, blásvart hraunberg, brúna uppblásna moldina. En um leið binzt litur hans aldur- lausri þjóðsögu, lifi landsins og fólksins; í beinu framhaldi eða uppaf náttúrudýrkun hans vex fantasían eins og blóm á stilk. Hún er óhugsandi án hinnar miklu vinnu við mótív- ið; og mótívið, landslagsmynd- in, fær ljóma sinn oft og tíð- um af þessari lýrisku æð, sem mér finnst persónulega hafa skapað eða standi að beztu myndum Kjarvals, sem og að fremstu listaverkum síðustu sýningar. Hann byggir betur, sér litinn hreinar og ákveðnar, hann er þar mestur málari og um ieið sjálfur mestur. Tækni Kjarvals, stuft, nokk- uð þykk pensilför, eru tengsl hans við heimslistina, það er myndtækni impressionismans, töfrar enska snillingsins Turn- er hafa einnig heillað hann, það er kannski engin tilviljun, þvi hann er að sumu leyti faðir ofannefndrar stefnu. Að öðru leyti er list Kjarvals alíslenzk. Að lokum þetta: Mikið lif- andis skelfing er gott til þess að vita að við sem erum svo oft að deila um málara og málara- list, skulum þó eiga einn mann sem við erum öll sammála um að er snillingur: Kjarval. * Um BÆKUR 09 annað Minningardagar Heimsfriðarráðsins EUROPE Bókmenntaritið ¥ Tndanfarin ár hefur Heims- friðarráðið gengizt fyrir því, að minnzt yrði merkisaf- mæla og ártíða látinna mikil- menna í andans heimi og hefur vakað fyrir því að minna mann- kynið þannig á sameiginlegan menningararf þess. í ár hefur verið minnzt 50 ára ártíðar rússneska skáldsins Antons Tsékoffs, 50 ára ártíðar tékk- neska tónskáldsins Antonins Dvoraks, 2400 ára afmælis gríska leikritaskáldsins Aristo- íanesar og 200 ára ártíðar enska rithöfundarins Henrys Fieldings. Þeirra hefur verið minnzt á ýmsan hátt víða um heim, en þó sérstaklega í þeim löndum, þar sem friðarhreyf- ingin er öflug, eins og t. d. í Frakklandi og Sovétríkjunum. húsið í Moskvu, leikhús Stanis- lavskís, sem enn þann dag í dag er jafnórjúfanlega tengt nafni Tsékoffs og Comedie vikum í Frakklandi í nýrri þýð- ingu, sem Elsa Triolet hefur gert. Þessi útgáfa gæti orðið leikstjórum góð hjálparhella, því að með henni fylgja skýr- ingar og athugasemdir eftir Tsékoff sjálfan’ og Stanis- lavskí. Bókin kom út hjá les Editeurs Francais Réunis. T¥ér hefur áður verið ætlunin að minnast á áðurnefnt rit, Europe, þó að úr því hafi ekki orðið. Þetta er tvímælalaust eitt merkasta bókmenntarit, sem nú kemur út. Það var stofnað árið 1923 og var Ro- main Rolland aðalhvatamaður að stofnun þess og stóð fyrir útgáfu þess ásamt Jean-Ric- hard Bloch, Pierre Abraham heitir ritstjóri þess nú. Ritið fjallar aðallega um bókmennt- ir, en einnig um aðrar greinir lista og birtir í hverju hefti yfirlit yfir það, sem helzt ger- ist í leiklist, tónlist, mynd- list, bókmenntum og kvik- myndum í Frakklandi. Meðal greina sem birzt hafa í ritinu undanfarna mánuði mé nefna hina athyglisverðu grein Ehren- búrgs um starf rithöfundar, sem hér hefur verið sagt fri áður, mjög timabæra grein eft- ir Georges Sadoul um upp- runa nýraunsæisins í ítalskri kvikmyndagerð og aðra eftir Carlo Lizziani um tvo helztu meistara þeirrar stefnu, þá de Sica (Reiðhjólaþjófurinn, LTndr- in í Mílanó) og Visconti, braut- rygðjandann, höfund Ossesione, Framhald á 11. síðu. Qíðasta hefti franska bók- 'k-z menntaritisins Europe er þannig nær eingöngu helgað Antoni Tsékoff. Á 150 þétt- prentuðum blaðsíðum gera þar franskir og sovézkir bókmennta- fræðingar grein fyrir mörgu því helzta úr lífi hans og starfi og fylgja með 24 myndir - af honum á ýmsum aldri, nákomn- um vinum og .samstarfsmönn- um (Stanislavskí) og húsum þeim, sem hann bjó í, þegai hann samdi sum helztu verk sín. Flestar greinarnar eru eft- ir sovézka höfunda. Sú lengsta eflir skáldkonuna Lydíu Avi- lovu, sem var honum mjög ná- komin um langt skeið, en und- irrituðum þótti einna skemmti- legust grein eftir Veru Vol- mane um Tsékoff og Listaleik- Anton Tsékoff >■' Frangaise er leikhús Moléres eða Konunglega leikhúsið í Höfn ieikhús Holbergs. En all- ar eru greinarnar fróðlegar fyrir þá, sem' unna leiklist og þessum höfuðmeistara leikbók- mennta seinni tíma. Það hefði verið vel við eigandi, að Þjóð- leikhúsið hefði bætt fyrir van- rækslusyndir íslenzkra leik- húsmanna með því að sýna eitt af snilldarverkum Tsékoffs á þessu ári. Það má a. m. k. ekki dragast lengi úr þessu, að ís- lendingum gefist tækifæri að sjá Kirsuberjagarðinn, Þrjár systur, Mávinn eða Vanja frænda. Öll þessi leikrit Tsé- koffs komu úr fyrir nokkrum

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.