Þjóðviljinn - 10.10.1954, Qupperneq 11
Sunnudagur 10. október 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Lu HSUN og kinverska byltingin
Framhald af 4. síðu.
Hann hafði verið dœmdur til
dauða af japönskum herrétti og
voru herlögrreg'lumenn að búa sig
undir að há'shöggva hann. Kin-
verjamir hinir höfðu safnazt þar
saman til að skemmta sér við þá
sjón. — Áður en kennslumisserinu
lauk, fór ég aftur til Tokyo. Þeg-
ar ég hafði séð mynd þessa,
fannst mér sem læknisfræðin
væri ekki eins mikiivæg og ég
hafði haldið. Þjóð, sem stendur
öðrum að baki um þekkingu og
andlegt atgervi ,þótt hún kunni
að vera vel á sig komin líkam-
lega, er ekki til annars nýt en að
vera öðrum víti til að varast, og
það er verra hlutskipti en verða
sjúkdómum að bráð. Það sem
mestu máli skiptir er að breyta
viðhorfum manna, og þar sem ég
var þeirrar skoðunar, að bók-
menntir hefðu bezta aðstöðu til
þess að móta hugi manna, af-
réð ég að beita mér fyrir nýrri
bókmenntastefnu.
•
Byltingin 1911, sem batt enda
á keisaradæmið, olli Lu Hsun sár-
um vonbrigðum. Víðs vegar í
iandinu hófust tii valda hershöfð-
ingjar, sem áttu í látiausum styrj-
öldum sín á miFi. Hlutur Kína
varð enn verri en fyrir bylting-
una. Hingað til hafði Lu Hsun
stefnt að því að komið yrði á
fót í Kína borgaralegu lýðræði
að vestrænum fyrirmyndum.
Skýra grein hafði hann þó ekki
gert sér fyrir, hvaða þjóðfélags-
afl ætti að ryðja því stjórnarfari
braut og tryggja það í sessi. Al-
þýðuna til sjávar og sveita taldi
hánn ekki vera því hlutverki
vaxna. Nú duldist honum ekki,
að hanni yrði að endurskoða af-
stöðu sína til stjórnmála frá rót-
um.
Byltingin í Rússla.ndi 1917 vis-
aði honum sem öllum þorra kín-
verskra menntamanna leiðina sem
fara þurfti. Hreyfingin, sem hófst
árið 1919 að verulegu leyti fyrir
áhrif rússp,esku, byltingarinnar og
lcennd er við 4. maí fór eins og
eldur í sinu um landið. Maó Tse-
tung hefur farið þessum orðum
um 4. maí-h reyf ingu na: „Áhrif
hennar náðu svo langt og máttu
sín svo mikils, að ekkert stóðst
fyrir henni. Hún á eng,an sinn lik-
an í kínverskri sögu. Og Lu Hsun
var fræknasti og herskáasti merk-
isberi hennar. Hann var höfuð-
leiðtogi kinversku menningarby't-
ingarinnar."
Fram til 1918 fékkst Lu Hsun
við ritstjórn tímarita, útgáfustarf-
semi og þýðingar. En það ár scndi
hann frá sér fyrstu smásögu sina
og siðan hverja á fætur annarri?
1 sögum sínum dregur hann upp
svipmyndir úr kínversku þjóðlífi
og með þeim hefst nýtt tímabil í
bókmenntum Kína.
•
Smásögurnar voru þó ekki það
bókmenntaform, sem honum féll
bezt, heldur voru það ritgerðirnar
sem hann tók að skrifa um líkt
leyti og smásögurnar. Jöfnum
höndum skrifaði hann hárbeittar
þjóðfélagsádeilur og ritgerðir um
sögu og menningarmál. Ritgerða-
söfn hans eru sextán talsins.
•
Þótt verk Lu Hsun séu mikil
að vöxtum, fer þó enn mcira fyrir
þýðingum hans, enda vann hann
manna mest að því að kynna evr-
ópskar, sérstaklega þó rússnesk-
ar, bókmenntir í Kína. Meðal ann-
ars þýddi hann bækur eftir Gorki.
•
Lu Hsun varð prófessor við
Þjóðháskólann í Peking 1920-1926.
Eftir gagnbyltingu Tsjanj Ka.j
sjiks gegndi hann engum opinber-
um embættum. Hann lézt 1936.
•
Fyrir nokkru voru gefnar út
á ensku á vegum Foreign Lang-
uages Prcss í Peking úrval smá-
sagna hans og „sanna sagan um
um Ah Q,“ sem bezt er talin
sagna hans. Þcir sem áhuga hafa
á Kína eða hefur iangað til að
kynna-st þessum öndvegishöfundi,
þykir fengur í útgáfu þessari.
Halldór Stefánsson er sá íslenzk-
ur lithöfundur, sem heizt minnir
á Lu Hsun. Báðar bækurnar hafa
fengizt í Bókabúð K.R.O.N.
Haraldur Jóhaimsson.
Norðmenn hafa sett
29 norsk met
Framhald af 8. síðu.
arþraut Jorun Tangen 3928 st.
Norðmenn hafa lagt mikla
vinnu í að byggja upp frjáls-
íþróttir sínar, bæði hvað snert-
ir áhugaþjálfara og keppnis-
fyrirkomulag, og form sem
flokkar frjálsíþróttafél. nokk-
uð eftir hæfni. Telja þeir að
þetta hafi haft mikil örvandi
álirif á iðkun frjálsíþrótta.
Við þetta má bæta að Norð-
menn hafa unnið Svía, Júgó-
slava og Grikki í frjálsum í-
þróttum í landskeppni.
m
innincjarópjo
Þá er hún loks komin
NÝJA EVAR-Faghókin
Plade- Rör og Installationsarbejde
I.-II. bindi
(fyrir plötusmiði, rörlagningamenn o. fl. o. fl.).
Verð: kr. 330,00, bæði bindin
Pantanir óskast sóttar strax!
ALLAR IVAR-fagbækurnar eru nú
fyrirliggjandi hjá oss, og vér biðjum
yður að athuga vel hin hagkvæmu. af-
borgunarkjör vor á þessum hagnýtu
bókum.
Mcrkið þýðir
góð fagbók
BÓKABÚÐ N0RÐRA
Hafnárstræti 4 — Síini 4281.
Nýkomin sending af heintilistœk|um
KITCHEN AID HRÆRIVÉLAR
Westinghouse kæliskápar
Strauvélar, 3 stærðir
Hraðsuðukatlar, margar gerðir
Sjálftrekkjandi kaffikönnur
Straujárn, niargar gcrðir
Vöfflujárn — Brauðristar
Hárþurrkur — Rafmagnsofnar
Hitapúðar — Dyrabjölhir
_.V , • ' .
Dráttarvélar h.f.
Hafnarstræti 23
Sími 81395
Um bækur o. fl.
Framhald af 7. síðu.
kvikmyndarinnar, sem nýraun-
sæið er talið hefjast með.
"ITið og við birtir ritið mónó-
* lógíur, eða safn greina um
ákveðinn höfund eða atburð,
og mætti af slíkum ritum
nefna auk heftisins um Tsékoff
sem áður var nefnt, hefti um
George Sand, sem einnig kom
út á þessu ári, og önnur um
Aristofanes og Romain Rolland,
sem eru væntanleg. Febrúar-
marz heftið á þessu ári var
helgað franska guðfræðingnum
og rithöfundinum Lamennais,
en þá voru liðin 100 ár frá
dauða hans. Lamennais var
einn þeirra sjaldgæfu kenni-
manna, sem láta sig varða líf
mannanna hér á jörðu, og má
hann vera okkur íslendingum
hugstæður vegna þess að ka£L
ar úr einu riti hans, Paroles
d’un Croyant, birtust í fyrsta
hefti Fjölnis. Meðal annarra
slíkra safnrita, sem nýlega hafa
komið út og enn eru fáanleg,
má nefna rit um Balzac, París-i
arkommúnuna, Victor Hugo,
Leonardo da Vinci, Gogol, Paul
Eluard, Emile Zola óg Rabe-
lais. Þessi rit má kaupa hv'ert
um sig og er verð þeirra frá
175 upp í 390 franka (8—16
kr.), en áskriftarverð ritsins
er 2000 frankar (um 90 kr.) á
á ári. Hægt er að sjálfsögðu
að panta ritið í bókaverzlunum
hér, en ódýrara er fyrir menn
að panta það beint, bækur og
tímarit eru á frílista og auð-
velt að fá gjaldeyrisleyfi fyrir
þeim. Áskrift ritsins er 33, rue
Saint-André-des-Arts, Paris VI.
5
FYRSTA
FEGURÐARSAMKEPPNI
Á ÍSLANDI
1 nýútkomnu októberheíti tímaritsins
SATT
eru 18 myndir aí íslenzkum íegurðardísum
írá 1930
SATT er 44 bls.-------SATT kostar kr. 9.50
-Ýl
Salirnir opnir í kvöl
„S YL V AN A" PARI Ð
skemmtir. Sóló dans o. fl.
Hjálmar Gíslason: Gamanvísnasöngur
Skemmtiatriði í báðum sölum
Dansað í báðum söhim
10 iegimdir:
Romm
Vanilkí '
Súkkulaði
Ananas
Aþpelsín
Sítrón
Hindberja
Jarðarberja
Karamellu
Butterscots
Landsþekktir að gæðum.
Lágt verð. — Fást í næstu búð.
REK0RB Rrautarholti 28
Sími 5913