Þjóðviljinn - 14.10.1954, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 14.10.1954, Blaðsíða 3
2) _ ÞJÓÐVTLJINN — Fimmtudagur 14. október 1954 ,,Vegna þeirrar út- lendu höndlunar“. Til þess er alltíð talið, að sjóar- bóndinn sé um koll á fyrsta ári, þá fiskafli bregzt. En helzt eru það þurrabúðamenn og annar óþarfaríll, sem meiri er við sjó- arsíðuna en til sveitanna. En sá góði sjóarbóndi, sem hér er ráð fyrir gert, þolir víst eitt eður fleiri bág aflaár. Jafnan aflast þó nokkuð. Sveitabændur hrikta lengur í liarðindaárum. En þó hefur reynsla sýnt það svisvar í minni tíð, nl. í harðindunum 1753—55 og 1783—85, að flest deyr af sveitafólki, bæði heima og svo það, sem ráfar að sjónum. En af því, sem eiginlega hefur átt heima við sjóinn, hefur mjög fátt í vesöld dáið. En sá er stóri munurinn, að sjóarbóndinn er strax aftur kom- inn í gott lag á fyrsta og öðru góðu aflaári, þar sveitabóndinn þarf 6—10 ár góð til þess að komast aftur í gott lag eftir stórfellisár. Sá er enn nú stór munur þeirra, að sveitabóndinn eftir almenn harðindi eður felli fær eigi lif- andi pening keyptan og það, sem fæst keypt, kostar þá miklu meira. Hann fær eigi heldur nteiri fisk við sjóinn keyptan, þó þar sé góður fiskafli, vegna þeirrar útlenzku höndlunar, sem dregur fiskinn til sín. Þar á móti sjóarbóndinn, þó missi báta eður veiðarfæri, fær aftur til þess keypt í kaupstaðnum og alltíð fyrir sama verð, og miklu auð- veldar fær hann matvöru úr sveitinni, þá þar er velgengni, en sveitabóndinn frá sjónunt. (Magnús Ketilsson: Lærdóms- listafélagsrit VII.). L I dag er fimmtudagurinn 14. október. — 287. dagur ársins. Kalixtusmessa. — Tungl í hásuðri kl. 2:54. — Árdegis- háflæði kl. 7:18. — Síðdegis- háflæði kl. 19:40. Lúðrasveit verkalýðs- ins. Æfing i kvöld kl. 8:30 á Vegamótast. 4 Kvöld- og næturvörður er í læknavarðstofunni, Austur- bæjarskólanum. — Sími 5030. Frá klukkan 18-8 í fyrramálið. Bókmenntagetraun í gær birtum við brot úr 18. Passíusálmi Hallgríms Péturs- sonar. Hver kannast við þetta? Máría ert þú móðir skærust. Máría, lifir þú sæmd í hárri. Máría, ert þú af miskunn kærust. Máría, léttu syndafári. Máría, lít þau mein, er váru. Máría, lít þú klökk á tárin. Mária, græð þú meinin stóru. Máría, ber þú smyrsl í sárin. Millilandaflug Gullfaxi fer til Khafnar kl. 9:30 á laugardags- morguninn. Innanlandsflug I dag er ráð- gert að fljúga til Akureyrar, Egilsstaða, Fáskrúðsfjarðar, Kópaskers, Neskaupstaðar og Vestmannaeyja. Á morgun eru áætlaðar flugferðir til Akur- eyrar, Fagurhólsmýrar, Hólma- víkur, Hornafjarðar, Isafjarðar, Kirkjubæjarklausturs og Vest- mannaeyja. Sólheimadrengurinn. Áheit kr. 20.00 — L.J. Vikan 12.-18. sept. Kverkabólga 35 (20) Kvefsótt 172 (108) Iðrakvef 21 (16) Mislingar 120 (27) Kveflungna- bólga 10 (5) Rauðir hundar 11 (6) Munnangur 3' (0) Kik- hósti 9 (1) Borizt hefur 3. hefti 24. árg. af Náttúrufræð- ingnum, tímariti Hins íslenzka náttúrufræðifélags. Efni þess er m.a: Móbergsmyndun í Land broti eftir Jón Jónsson, Stein- dór Steindórsson skrifar um Flóru Grímseyjar, Finnur Guð- mundsson hefur þátt um ís- lenzka fugla og fjallar að þessu sinni um Skúminn. Ým- islegt fleira er í heftinu svo sem tafla um lofthita og úr- komu á íslandi. — Ritstjóri er Hermann Einarsson, fiskifræð- ingur. CTD — Hver þeirra var það sem réðst á þig? — Þessi þarna! Söfnin eru opini Landsbókasafnið kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka daga, nema laugar- daga kl. 10-12 og 13-19. Náttúrugripasafnið kl. 13:30-15 á sunnudögum, kl. 14-15 á þriðjudögum og fimmtudögum. Þjóðminjasafnið kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15 á þriðjud., fimmtu- dögum og laugardögum. Bæjarbókasafnið. Útlán virka daga kl. 2—10 síðdegis. Laugardaga kl. 2— 7. Sunnudaga kl. 5—7. Les- stofan er opin virka daga kl. 10—12 árdegis og 1—10 síðdegis. Laugardaga kl. 10- 12 og 1-7. Sunnudaga kl. 2-7. Listasafn Einars Jónssonar á sunnudögum kl. 13:30— 15:30. Listasafn ríkisins ld. 13—16 á sunnudögum, kl. 13-15 þriðjud., fimmtudög- um og laugardögum. Þjóðsk jalasaf nið á virkum dögum kl. 10-12 , og 14-19. Kl. 8:00 Morg- i unútvarp. 10:10 ' / Veðurfr. 12:10 Hádegisútvarp. 16:30 Veðurfr. 19:30 Þingfréttir. 19:25 Veður- fregnir. 19:30 Lesin dagskrá næstu viku. 19:40 Auglýsingar. 20:00 Fréttir. 20:30 Erindi: Spíritismi aldanna (GrétarFells rithöfundur). 20:55 Islenzk tón- list: Lög eftir Skúla Halldórs- son (pl.) 21:15 Upplestur: Bjarni M. Gíslason les frum- ort kvæði. 21:30 Tónleikar (pl.): Píanósónata í A-dúr eftir Mozart ýEdwin Fischer leikur). 21:45 Náttúrlegir hlutir (Guð- mundur Kjartansson jarðfræð- ingur). 22:00 Fréttir og veður- fregnir. 22:10 „Brúðkaupslag- ið“. 22:25 Sinfónískir tónleik- ar (pl.): Sinfónía nr. 3 í D-dúr op. 29 (Pólska sinfónían) eftir Tschaikowsky (Sinfóníuhljóm- sveit Lundúna leikur; Albert Coates stjórnar). MinningargjafarsjóBur Landspítala lslands. 3pjöld sjóðsins fást afgreidd á eftirgreindum stöðum: Landsíma Islands, á öllum stöðvum hans; Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helga- dóttur, Bókum og ritföngum Laugavegi 39, og hjá forstöðukonu Landspítalans. Skrifstofa hennar er opin klukkan 9-10 árdegis og 4-5 síðdegis. Krossgáta nr. 487 iengisskráning Næturvarzla í Lyf jabúðinni Iðunni. — Sími j daea kl. 3—5. 7911. / Æ. F. R. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 6—7 nema laugar- 45.70 kr 16,32 — 16,90 — 236,30 — 228.50 — 815.50 — 7,09 — 46,63 — 32,67 — 374.50 — 430,35 — . 226,67 — 390,65 — 26,12 — Mlnnlngarspjöld Krabbameins- félags Islands fást í öllum lyfjabúðum í Reykja- rík og Hafnarfirði, Blóðbankan- um við Barónsstíg og Remedíu. Ennfremur i öllum póstaígreiðsl- um á landinu. 1 sterlingspund .. 1 Bandaríkjadollar 1 Kanadadollar .. 100 danskar krónur 100 norskar krónur 100 sænskar krónur 100 finnsk mörk 1000 íranskir frankar 100 belgískir frankar . 100 svissnesklr frankar 100 gyllini ........... 100 tékkneskar krónur 100 vestur-þýzk mörk , 1000 lírur ............. Lárétt: 1 varpa 4 núna 5 ekki mörg 7 súputeningar 9 á jurt 10 skst. 11 eftirlátnar eigur 13 ryk 15 sérhlj. 16 kindurnar Lóðrétt: 1 grip 2 hnífur 3 for- setning 4 gabba 6 beituna 7 ýta 8 amboð 12 á í Þýzkalandi 14 sæki sjó 15 tilvísunarfor- nafn. Trá hóíninni* Ríkisskip Hekla er á Austf jörðum á aust- urleið. Esja fer frá Rvík á morgun vestur um land í hring ferð. Herðubreið var væntanleg til Rvíkur í dag að austan. Skjaldbreið fer frá Rvík á morgun vestur um land til Ak- ureyrar. Þyrill er í Rvík. Skaft- fellingur fór frá Rvík í gærkv. til Vestmannaeyja. E I M S K I P : Brúarfoss fór frá Hull 11. þm. til Rvíkur. Dettifoss fór frá Rvík 5. þm. til N.Y. Fjallfoss er í Rvík. Goðafoss kom til Keflavíkur í fyrradag frá Ham- borg. Gullfoss fór frá Leith 11. þm. væntanlegur til Rvíkur um hádegi í dag. Lagarfoss kom til Leníngrad 9. þm. fer þaðan til Hamina og Helsingfors. Reykjafoss kom til Hamborgar í fyrradag frá Rotterdam. Sel- foss fór frá Leith 10. þm. til Rvíkur. Tröllafoss kom til R- víkur 10. þm. frá N.Y. Tungu- foss kom til Rvíkur 11. þm. frá Gibraltar. Sambandsskip Hvassafell fer væntanlega frá Stettin í dag til Austfjarða: Arnarfell fór frá Vestmanna- eyjum 12. þm til ítalíu. Jökul- fell fór frá Keflavík í gær til Leníngrad. Dísarfell er í Faxa- flóa. Litlafell kemur til Faxa- flóahafna í dag. Helgafell er í Keflavík. Baldur fór væntan- lega frá Álaborg í gær til Ak- ureyrar. Magnhild er í Reykja- vík. Sine Boye lestar í Póllandi. Dagskrá Alþingis Efri deild kl. 1.30 í dag: 1. Hegningarlög, 2. Prentfrelsi, 3. Útvarpsrekstur ríkisins, 4. Vistheimili fyrir stúlkur.' Lausn á nr. 486 Lárétt: 1 Kolbrún 7 of 8 aura 9 NTB 11 tap 12 aa 14 lu 15 Árni 17 al 18 aða 20 haus ana Lóðrétt: 1 kona 2 oft 3 BA 4 Rut 5 Úral 6 napur 10 bar 13 anas 15 ála 16 iða 17 ah 19 an Neðri deild kl. 1.30 í dag: 1. Veitingaskattur, 2. Sömu laun karla og kvenna, 3. I-Ivíldartími togaraháseta, 4. Orlof, 5. Orlof, 6. Tekjuskattur og eigna- skattur, 7. Félagsheimili. 461. dagur — Gefið mér eitthvað að drekka, aði aðmírállinn. Hann knúsmölvaði skál- ar og diska, svo að brothljóðin glumdu í salnum, en enginn vogaði að yrða á hann. Síðan þrammaði hann löngum skrefum um gólfið, sem var þakið gler- brotum. - Hann fyrirskipaði að munkarnir skyldu hengjast í hlöðunni án tafar og mál- svari þeirra skyldi leiddur fram. — Jæja, sagði hann við Ugluspegil, segir þú nýjar fréttir af vinum þínum munkunum? — Þeir hafa verið hengdir, sagði Uglu- spegill, og eftir að hafa drepið þá, skar böðulsfólkið í maga og síðu á einum þeirra til þess að geta selt lyfsala ein- um fituna. Það er ekki lengur hægt að treysta hermannsorðum. Lummi óð um í glerbrotunum og þrum- aði: — Þú svívirðir mig, ferfætta skepn- an þín, en þú skalt líka hengjast, og það ekki í hlöðu heldur á hinn auðvirði- legasta hátt á torginu f.yrir allra aug- um. — Bölvunin fylgi þér, sagði Uglu- spegill. Eítir skáldsögu Charles ðe Costers t Teikningar eltlr Hejge Kiihn-Nielsen Fimmtudagur 14. oktober 19^4 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Ngar launþegar gera kröfur vakna „Neytenöasamtök Reykjavíkur" Launþegadeild Verzlunarmannafélags Reykjavíkur samþykkti 6. þ.m. að halda fast við kröfu sína um breytt- an lokunartíma sölubúða á laugardögum yfir vetrarmán- uðina. Neytendasamtök Reykjavíkur hafa nú sent samnings- aðilum, launþegum og kaupmönnum, eftirfarandi til- lögur um afgreiðslutíma sölubúða: „Matvöruverzlanir (kjöt- ogf nýlenduvöruverzlanir.): Á vet.r- um: Almennur lokunartími kl. 6 e.h., en kl. 2 e.h. á laugar- dögum. Nokkrar verzlanir víðs- vegar um bæinn hafi auk þess opið á hverju kvöldi til kl. 8, nema á laugardögum til kl. 4, og skulu allar matvöruverzlanir bæjarins skiptast á um það sam kvæmt nánara samkomulagi sín á milli. Láta mun nærri, að það kæmi í hlut hverrar verzlunar á mánaðarfresti að hafa opið á þessum tíma. Á sumrin: Sami háttur á af- greiðslutímanum nema á laug- ardögum, en þá loki verzlan- irnar almennt kl. 12 á hádegi, en nokkrar víðsvegar um bæ- inn klukkan 2. Aðrar verzlanir: A. m. k. eitt kvöld í mánuði séu allar verzl- anir nema matvöruverzlanir opnar á kvöldin milli kl. 8 og 10, en loki annars kl. 6 nema á laugardögum kl. 2 á vetrum og 12 á sumrum. Vefnaðar- vöru- og skóverzlanir skulu þó skiptast á um að hafa opið til kl. 2 á laugardögum á sumrin.“ Fulitrúi Rakara- sveinafélagsius Rakarasveinafélag Reykja- vikur kaus fulltrúa sinn á 24. þing ASl á fundi í gær. Jónas Halldórsson var kosinn aðal- fulltrúi, en varafulltrúi Grím- ur Kristgeirsson. Vísir ininnir á skömm stj órnarv aldanna Nýr bátur Framhald af 12. síðu. Samkvæmt upplýsingum Jó- Irai’mesar Zoega, forstjóra Lands- smíðjunnar, verður smíði tveggja nýrra vélbáta hafin strax og lok- ið er við bát þann, sem stendur nú á stokkunum á Kirkjusandi. Verða þeir bátar af sömu gerð 'Og hinir fyrri.' Vísir spyr í gær hvað Kjar- valshúsi líði og minnir á að um málið var mikið rætt fyrir 9 árum og þá veittar einu sinni úr ríkissjóði 300 þús. kr. styrkur til byggingarinnar. Síð- an ekki söguna meir. Kjarvals- húsið gleymdist og aðbúnaðurinn að þessum mikla listamanni af hálfu þjóðfélagsins hefur væg- ast sagt verið til lítils sóma. Vísir minnir á að 15. þ. m. verði listamaðurinn 69 ára og því ekki seinna vænna að eitt- hvað sé aðhafst „ef hann á að geta notið þess að einhverju leyti í lifanda lífi.“ Það er góðra gjalda vert að Vísir hefur orðið til að vekja athygli á aðbúnaðinum að Jó- hannesi Kjarval. En einu atriði er gleymt sem sýnir ljóslega viðhorf ráðamanna Reykjavíkur- bæjar til þessa ágæta listamanns og hefði Vísir gjarna mát láta það fylgja. í vor var úthlutað eftirsóttum lóðum í Laugarási og meðal umsækjenda var sonur Jóhannesar Kjarval, sem hafði ekki aðeins hug á að reisa sjálf- um sér íbúðarhús heldur jafn- framt yfir listamanninn og skapa honum þannig bætta aðstöðu og athvarf í ellinni. Lóðarumsókn þessi fann ekki náð fyrir augliti ’ráðamanna Reykjavíkurbæjar. Áhuginri'fyrir því að styðja að því með úthlút- un einnar byggingarlóðar að viðurkenndasta listmálara þjóð- arinnar yrði fengin bætt aðstaða og notalegra athvarf á efri ár- um, reyndist þannig að umsókn- inni var hafnað en lóðunum und- antekningarlítið úthlutað til vel- efnaðra íhaldsgæðinga og hús- eigenda, sem vildu „modernisera" íbúðir sínar eða festa fé sitt í lúxusbyggingum á þessum fagra og eftirsótta stað. Lóð í Laugarási reyndist ekki fáanleg undir hús fyrir Jó- hannes Kjarval. Aðrir voru verð- ugri að dómi íhaldsins. Bæjar- stjórnaríhaldið á því sinn hluta af skömminni sem Vísir minnir réttilega á í rammagrein .sinni í gær. Sólríkasti septembermónuður síðan mœlingar hófust hér — 0g ekki snjéað jaínsnemma í meir en áratug I Samkvœmt upplýsingum Veðurstofunnar var síðast liðinn septembermánuður sólríkasti sept. síðan mæl- ingar hófust hér 1923. Sólskinsstundir hér í Reykjavík voru 185,6 en hafa áður verið flestar 155,5 í september- mánuði. Hinsvegar var september kaldur í sumar og hefur jörð ekki orðið jafn snemma alhvít og nú í s.l. 14 ár. Þjóðviljinn hefur fengið eft- irfarandi frá Veðurstofunni: Mánuðurinn var kaldur og norð- eða norðaustlæg átt mjög tíð. I Reykjavík var meðalhiti mánaðarins 6.1° en það er 1.7° kaldara en í meðalárferði. Á Akureyri varð meðalhitinn 2.1° lægri en í meðalári eða 4.1°. Ekki voru þó nein veruleg frost nema síðustu vikuna en þá komst frostið jafnvel niður í -i-140 á Grímsst. á Fjöllum: Annars staðar fór frostið yfir- leitt ekki niður úr -^5.°. Sam- kvæmt venjulegum hitamæling- um voru 9 frostdagar í Rvík, en lágmarkshitamælir við jörð sýndi frost 14 nætur. Kaldast var í Rvík aðfaranótt þ. 28., þá komst lofth. niður í-1-2.1. ° og mælirinn við jörð sýndi þá -1-8.3°. Tiltölul. þurrt var um Myndlistaskðlinn byrjar vetrarstarf Myndlistaskólinn í Reykjavík, Laugavegi 166, hóf vetr- :arstarfsemi sína 1. þ.m. Kennsla er hafin í þremur kvölddeildum fullorðinna þ. e. teiknideild, kennari Hjörleifur Sigurðsson, höggmyndadeild, kennari Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari og málaradeild, kennari Hörður Ágústsson. — Hver deild starfar tvö kvöld á viku, tvær klst. hvort kvöld. Framangreindar deildir eru því nær fullsetnar. Ákveðið er að Björn Th. Björnsson, listfr. haldi í skól- anum sérstakt fræðslunámskeið Nehm vill fá hvild Framhald af 1. síðu kjöri í formannsstöðu í flokkn- um á flokksþinginu í næsta mánuði. Einnig kveðst Nehru vera að hugsa um að sleppa forsætisráðherraembættinu um stund að minnsta kosti. Segist hann vera hvíldar þurfi eftir að hafa veitt Indlandi forystu ó- slitið síðan 1947, þegar það fékk sjálfstæði. um myndlist og hefst það mið- vikud. 20. þm. klukkan 8 e. h. Er gert ráð fyrir að flutt verði alls 8 erindi og sýndar myndir til skýringar. Innritun á námskeiðið stend- ur yfir og geta umsækjendur hringt í síma 80901, til þess að tryggja sér aðgang. Gjald fyr- ir námskeiðið er kr. 100.00. Kennsla í barnadeildunum hefst föstudaginn 15. þm. Kenn ari er frk. Valgerður Árna- dóttir. Búizt er við að hátt á annað hundrað börn sæki nám- skeið þetta, sem stendur til áramóta, en eftir áramót hefst nýtt námskeið. Skipað verður í barnadeildimar miðvikud. 13. þm. og eiga börnin að koma í skólann milli kl. 5-8, og hafa með sér stundatöflu frá barna- skóla og skólagjaldið. Eins og undanfarin ár munu nemendur kvölddeilda fara hóp- ferðir í listasafn ríkisins og á listsýningar þær, sem kunna að verða haldnar hér í bænum á skólaárinu. Einnig heldur skólinn ávallt nokkra fræðslu- og skemmtifundi fyrir nemend- ur sína á hverjum vetri. Danskur geðveikra- og drykkjusjúk- lingalæknir ræðir við íslenzka lækna Danskur geðveikralæknir, Martinsen-Jensen, sem um margra ára skeið hefur stundað lækningar drykkju- sjúklinga, er staddur hér á vegum Heilsuverndarstöðvar- innar. I gærkvöldi flutti hann erindi í Læknafélaginu, en annars mun hann veita hér ráð og leiðbein- ingar í sambandi við meðferð drykkjusjúklinga. Mun hann dveljast hér þessa viku. í Kaup- mannahöfn tekur hann á móti cfrykkjúsjúklingum á læk’ningá-1 stöð, en hefur auk þess mögu- leika á að leggja þá inn á hvíld- arheimili er hann starfrækir sjálfur. í viðtali við blaðamenn kvað hann. ofdrykkjuvandamálið stærra en menn gerðu sér ljóst, en í Danmörku hefði undanfarið farið fram „hugarfarsbreyting" í þá átt að ofdrykkjumenn leituðu nú frekar lækninga en þeir hefðu áður gert. Hann ræddi nokkuð hvernig bezt væri að láta ölvímu renna af mönnum með skjótustum hætti, og í öðru lagi vandamálið að gera ofdrykkjumenn að nýt- um þegnum í þjóðfélaginu og loks hvernig koma þyrfti í veg fyrir ofdrykkju. Ræddi hann um sykurtegund er þýzkir læknar hafa notað til að láta renna af mönnum ölvímu með skjótum hætti, en sjálfur hefur hann notað hálfpund af hunangi með góðum árangri, að hann sagði. Hann kvaðst telja að orsak- anna til ofdrykkju væri oft að leita í umhverfi sjúklingsins, heimilisástæðum hans og upp- eldi. Ofdrykkja væri oft flótti frá veruleikanum. f vímunni fyndist mönnum þeir meiri menn og valdameiri og drykkju því til þess að verða ánægðari með sjálfa sig. Kvað hann t. d. dæmi frá Los Angeles, Reykjavík, Bost- on og Kaupmannahöfn öll styðja þá skoðun að orsaka til of- drykkju væri að leita í heimilis- lífi viðkomandi manna, þótt efnahagur og ytri aðstæður væru jafnvel ekki líkar. Martinsen-Jensen notar anta- bus við lækningar sínar, eins og margir aðrir læknar. Spurning- unni um lækningagildi þess svar- aði hann þannig að það hefði mesta þýðingu fyrstu sex mán- uðina, en aðalatriðið við lækn- ingu drykkjusjúklinga væri að hjálpa þeim til að öðlast sjálf- stæði og öryggiskennd að nýju svo þeir væru hvorki háðir anta- bus né áfengi. Varðandi árangurinn af lækn- ingum sínum kvaðst hann telja að helmingur sjúklinganna lækn- aðist að verulegu leyti. Fjórði hlutinn ætti í miklum erfiðleik- um, en fjórði hlutinn læknaðist ekki. Ekki hætta á al- gcrum kolaskorti Þjóðviljaiium var tjáð í gær, að þrotnar væru kolabirgðir hjá nokkrum kolaverzlunum í bæn- um. Blaðið sneri sér því til Kol og Salt og spurðist fyrir um hvort hætta væri á kolaskorti í bænum. Fengust þær upplýsing- ar, að ekki mundi vera veruleg hætta á algerum kolaskorti, því að skip væri um það bil að leggja af stað með kolafarm frá Póllandi, en enn er nokkuð eftir af kolum hjá Kol og Salt og fleiri verzlunum. suðvesturhluta landsins, en um austurhluta landsins var úr- koma mjög tíð. Ekki var um verulegar stórrigningar að ræða, Þó mældust 29.0 mm úr- koma í Hornafirði aðfaranótt þ. 7. I Rvík var mánuðurinn með eindæmum sólríkur. Sólskins- stundir voru alls 185.6. Frá því að sólskinsmælingar hófust 1923 hefur enginn septem- bermánuður verið jafn sólrík- ur. Næstur þessum mánuði verður sept. 1924 en þá voru 155.5 sólskinsstundir. Snjór féll óvenjulega snemma. Þ. 26. varð jörð alhvít í Rvík. Frá 1940 hefur aðeins einu sinni snjóað fyrr í Rvík en það var 1943, hinsvegar hefur jörð aldrei orð- ið alhvít jafn snemma og í ár á árabilinu 1940-1953. Venju- lega verður jörð í Rvík ekki al- hvít fyrr en í nóvember. Námskeið Hús- mæðrafélagsins Nú er hafið 20. starfsár Hús- mæðrafélags Reykjavíkur. Hefur félagið gengizt fyrir einu sauma- námskeiði á þessu hausti og er annað um það bil að hefjast. Fyrsta matreiðslunámskeið fé- lagsins á starfsárinu mun svo hefjast næsta mánudag í húsa- kynnum félagsins í Borgartúni 7. Nýr matreiðslukennari hefur verið ráðinn og er það Guðrún. Hilmarsdóttir. Mjög mikil aðsókn er nú að námskeiðum félagsins, enda hag- kvæmt fyrir húsmæðúr' að færa sér þessa starfsemi í nyt, Saumanámskeiðin eru á kvöld- in en matreiðslunámskeiðin frá kl. 2—6 á daginn. Verkföllin í Bret- Framhald af 1. síðu. því að verkamenn hafa orð hans að engu. I gær lét Deakin boða hafn- arverkamenu á fund í Albert Hall, einum stærsta samkomu- sal í London. Aðeins á þriðja þúsund þeirra mætti og útsend- arar Deakins voru hrópaðir niður þegar þeir livöttu verká- menn til að hefja vinnu á ný og láta stjórn flutningaverka- inannasainbandsins annast samninga. Strætisvagnaverkfall. I gær voru samgöngur um London í öngþveiti vegna þess að yfir 5000 starfsmenn stræt- isvagna hafa lagt niður vinnu til að mótmæla því að skylda átti þá til að vinna eftirvinnu. Fjöldi fólks komst ekki tij vinnu sinnar á réttum tíma og allt var á ringulreið í neðan- jarðarbrautinni vegna troðn- ings. J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.