Þjóðviljinn - 20.10.1954, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.10.1954, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 30. október 1954 — 19. árgangur — 238. tölublað Til fullfiúa á þing Æ.F* Stjórn Æskulýðsfylkingar- innar- í Reykjavík óskar eftir að allir fulltrúar deildarinnar, sem fara á XIII. þing Æ.F. á Akureyri, komi á skrifstofuna á morgun og taki farmiða sína. Lagt verður af stað norður á fimmtudagskvöld. Vélar I senienfsverksmíðju og raforku ver frá Austur4>ýzkalandi fyrir fisk Einar Ölgeirsson og LúSvik Jósefsson flytja þingsályktunartillögu um máliS Einar Olgeirsson og Lúðvík Jósefsson flytja á samein- uðu þingi þingsályktunartillögu. Er tillagan þannig: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leita fyrir sér eða láta leita um möguleika á því við stjórn Austur- Þýzkalands (Deutsche Demokratische Republik) að kaupa þaðan vélar til sementsverksmiðju með gjald- fresti til nokkurra ára gegn greiðslu í fiskafuröum, sem samið væri um til sama árabils. Enn fremur heimilast ríkisstjórninni aö athuga, hvort samsvarandi mögu- leikar Væru um kaup á vélum til fyrirhugaðra raforku- vera“. Tillagan er rökstudd af fiutn- ingsmönnum á þessa leið: „Erfiðlega hefur gengið um útvegun lána til byggingar sem- entsverksmiðju. Samkvæmt upp- lýsingum; er fram komu á Al- þingi í fyrra, er svo að sjá, að sett séu þau skilyrði fyrir slíkum lánveitingum í Bandaríkjunum, að sementsverksmiðjan sé eign einkaaðila, en ekki íslenzka rík- isins, eins og lög mæla fyrir. Vitað er, að möguleikar eru á að kaupa vélar til sementsverk- smiðju í Austur-Þýzkalandi. Ætla má, að verð á þeim sé sam- keppnisfært, því að þaðan eru seldar slíkar vélár víða um heim. Hins vegar er það staðreynd, að möguleiki er á að selja miklu meirá af freðfiski frá íslandi til Austur-Þýzkalands en nú er gert. En verð á þeim fiski, sem samið hefur verið um við Austur- Þýzkaland, er mun hærra en vér Dönsku Atlanzhaísbandalagsflokkarnú hafita þj óðar atk vædi um vesturþýzkan her Harðar umræður voru á danska þinginu í gær um af- stöðu Dana til hervæðingar Þýzkalands. Róttæki flokkurinn, hinn frjálslyndi borgaraflokkur sem á sínum tíma greiddi atkvæði gegn inngöngu Danmerkur í A-bandalagið, bar fram tillögu Vill hitta Malénkoff Þegar brezka þingið kom sam- an í gær til funda eftir hálfs þriðja mánaðar hlé, lögðu ýmsir Verkamannaflokksþingmenn þá spurningu fyrir Winston Church- ill forsætisráðherra, hvort hann væri með öllu afhuga því að eiga fund með Malénkoff, for- sætisráðherra Sovétríkjanna, til þess að reyna að leysa alþjóðleg deilumál. Churchill svaraði að hann væri eins fús og nokkru sinni að hitta .Malénkoff á stað sein báð- ir samþykktu og stund sem væn- leg væri til árangurs. Hinsvegar teldi hann að ekki mætti grípa fram í viðræðurnar innan SÞ uin afvopnun. Nýjar aðstæður hefðu skapazt við hinar nýju afvopnunartillögur Sovétríkj- ; {■ •: ' .V . X anna. um að Hansen utanríkisráð- herra verði falið að fá ákvörð- un um upptöku Vestur-Þýzka- lands í bandalagið frestað á fundi ráðherra bandalagsríkj- anna í París á föstudaginn. Fari síðan fram í Danmörku þjóðaratkvæðagreiðsla um það, hvort þjóðin samþykkir þýzka hervæðingu. Sérhvert aðildarríki hefur neitunarvald i ráði A-banda- lagsins. Kommúnistar lýstu yfir fylgi við tillögu róttækra en flokkarnir sem stóðu að inn- göngu Danmerkur í A-banda- lagið snerust gegn henni. Báru þeir þrír saman, sósíaldemó- kratar, íhaldsmenn og vinstri menn, fram tillögu um að lýsa yfir fylgi við þá afstöðu Han- sens að Danmörk styðji her- væðingu Vestur-Þýzkalands og inngöngu þess í A-bandalagið. Þó beri honum að revna að nota málið til að fá einhverju um þokað til að bæta aðstöðu danska þjóðernisminnihlutans sunnan landamæra Danmerkur og Þýzkalands. Þjóðernis- minnihlutinn hefur nýlega verið sviptur fulltrúum sínum í fylkisþingi Slésvíkur og Holt- setalands með breytingu á kosningalögum. fáum víða annars staðar. I viðræðum, sem fram hafa farið við stjórnarvöld í Austur- Þýzkalandi, hefur það komið í ljós, hvað vélar til hraðfrystihúsa snertir, að hugsanlegt var að semja um 3—5 ára gjaldfrest á slíkum vélum, einkum ef samn- ingar væru gerðir til sama tíma um sölu á fiskafurðum. Ekki væri óhugsandi, að svipaðir samningar gætu fengizt um vél- ar til sementsverksmiðju, og er því rétt, að það sé athugað. Ef vel gengi með slíkt, væri og rétt að reyna svipaða samninga um vélar til raforkuveranna, sem nú eru fyrirhuguð í Sogi, Lagar- fossi og Dynjanda. Fyrir þjóðarbúið væri það mik- ill kostur að geta fengið vélar þessar með slíkum samningum. Jafnvel væri það hreinn ávinn- ingur fyrir þjóðarbúið að eign- ast slíkar vélar fyrir fisk, sem ella hefði ekki verið framleidd- ur. En svo sem kunnugt er, hef- ur það borið við stundum undan- farið, að togarar og bátar hafa legið aðgerðalausir um nokkurn tíma árs, er vel var hægt að nota til fiskframleiðslu. Ef slíkir samningar tækjust, þá væri þar með tryggður mest- allur gjaldeyrir, sem þyrfti til vélakaupa í þessu nauðsynja- fyrirtæki. Lánsútvegun til þess að gera þjóðarbúinu auðveldara um afborgun þessara fyrirtækja væri þá einvörðungu innanlands- mál og undir því komið, hvort rétt fjármálastefna er höfð til þess að hagnýta sem bezt af- kastagetu þjóðarinnar“ Sjú Enlæ Nehru Nehru og Sjú Enlæ ræða alþjóðamál Aístaða Asíuiikja til Vesturveldanna á dagskrá í Feking Nehru, forsætisráðherra Indlands, kom í gær til Pe- king í boði Kínastjórnar. Sjú Enlæ forsætisráðherra sem heimsótti Nehru í Nýju Dehli í sumar, tók á móti Nehru á flugvellinum. Á leið- inni til Peking hitti Nehru Ho Chi Minh, forseta lýðveldis- stjórnar Viet Nam. Friðsamleg sambúð Nehru mun dvelja tíu daga í Kína Þremur dögum verður varið til viýræðna milli hans og Sjú Enlæ. Fréttaritarar segja, að við- ræður þeirra forsætisráðherra muni snúast um alþjóðamál. Einkum séu það tvö mál, sem þeir muni ræða ýtarlega. Annað er samskipti Asíuríkj- anna og vestrænna ríkja, eink- um nýlenduveldanna: Er tal- ið að þeir muni velta því fyrir sér, að hve miklu leyti geti orð- ið um samstöðu Asíuríkja a<5 ræða á alþjóðavettvangi. Hitt umræðuefnið er frið-» samleg sambúð ríkja með mis- munandi þjóðskipulag. Rœða Saar Adenauer, forsætisráðherra Vestur-Þýzkalands, kom til Par- ísar i gær. Ilóf hann þegar við- ræður við franska forsætisráð- herrann Mendés-France um framtíð Saarhéraðs. Samkomu- lag utn það mál er skilyrði af Frakka hálfu fyrir samþykki við hervæðingu Vestur-Þýzkalands. Á morgun bætast utanríkisráð- herrar Bandaríkjanna og Bret- lands í hópinn og verður þá tek- ið að ganga frá yfirlýsingu Vest- urveldanna um fullveldi Vestur- Þýzkalands. Brezkir hægrikratar ráðast aftan að verkfallsmönnum Helmingur hafnarverkamanna i Englandi hefur nú lagf niSw vinnu Verkfall enskra hafnarverkamanna hélt áfram aö breið- ast út í gær og hefur nú helmingur hafnarverkamanna í Englandi lagt niöur vinnu. Hundruð hafskipa bíöa af- greiöslu í hafnarkvíunum. Verkfallið er eins og áður algert í London. Verkfalls- stimpluð ólögleg og verkfalls- menn hvattir til að „hætta að mönnum fjölgaði í Liverpool og 1 færa gagnsiausar fórnir“. í Hull tÓku verkamenn að j Verkfallið stafar af því að leggja niður vinnu. Tala verk- 1 hafnarverkamenn krefjast að fallsmanna er komin yfir 40 þeim sé í sjálfsvald sett, hvort þúsund. I þieir vinna eftirvinnu eða ekki. Fordæma verkfallsmenn Stjórn brezka Alþýðusam- bandsins, þar sem hægrikratar eru í meirihluta, sendi í gær frá sér yfirlýsingu um verk- fallið. Er vinnustöðvuUin ’ þar Ástandið alvarlegt Monckton, verkalýðsmálaráð- l^erra í ríkisstjórn íhaldsmanna, sagði á brezka þinginu í gær, að alvarlegt ástand væri að skapast vegna verkfallsins. TJt- flutningsverzlunin væri á ring- ulreið, matvælaskortur vofði yfir og hætta væri á að verk- smiðjur stöðvuðust vegna hrá- efnaskorts. Smjörloftbrú Farið er að flytja smjör og önnur matvæli, sem ekki þola langa geymslu, með flugvélum frá Amsterdam í Hollandi til London. Átta flugvélar tóktt þátt í flutningunum i gær og voru fjórar fullfermdar smjöri. Hafnarverkamenn í Rotter- dam í Hollandi hafa ákveðið að afgreiða engin skip, sem þang- að kunna að leita vegna verk- fallsiris í Englandi. j

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.