Þjóðviljinn - 19.11.1954, Qupperneq 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 19. nóvember '1954
,,Hví hleypur þú svo
við trélurkinn?“
„Nú liggrur nokkuru meira við
en fyrr, er bærinn er í Niðarósi.
Hér er nú og fyrir í bænum
Magnús konungur og Erlingur
jarl og margt annarra ríkis-
manna. Er nú eftir meiri sæmd
að sækja en oftast mun færi á
gefa. Munum vér fá sigur...
Skuluð þér nú og vita, til hvers
þér skuluð vinna: Sá, er lendan
mann fellir með sönnum vitn-
um, sá skal lendur maður vera,,
og þess kyns tignarmaður skal
hver vera, sem hann riður sér
til rúms, sá hirðmaður er hirð-
mann drepur, og taka þar með
aðra góða sæmd ... Þeir hafa
lengi yfir voru setið, er með
röngu hafa fengið. Gerið nú sem
harðasta hríðina fyrstu, og mun
þá vel duga, því að þeir munu
vera mjöðdrukknir og syfjaðir
og munu eigi vita, hvað þeir
skulu aðhafast". En er liann
lauk sínu máli, tóku allir því
vel og fóru nú ofan um Stein-
björg ... Sverrir konungur hafði
úr Gaulardal þrjú hundruð
manna, Var það lið margt lítt
vopnað, því að bændur höfðu
gert heiman verkmenn sína,
því að þeir þorðu eigi að fara
og hræddust refsingar Erlings.
En er þeir fóru utan um Stein-
björg, hljóp fram maður einn
mikill og sterkur við lurk einn.
... Þá mælti Össur prestur: —
Hvert viltu, maður? Hví hleypur
þú svo við trélurkinn, hvar eru
vopn þín? Annan veg er að berj-
ast við Erling en þreskja korn.
Þar má hafa þúst til.
Hann svaraði: — Eg heiti Ey-
vindur, en vopn þau, er ég ætla
að berjast með, munu koma á
mót mér úr bænum og jarlsmenn
fara enn með þau. Þá mælti
Hjarrandi liviða: — Mæltu
drengja heilastur. Þú munt vera
góður maður, — og fékk honum
spjót og handöxi og bað hann
þar berjast með.
(Úr Sverris sogu).
í’immtugur
er í dag Ásgeir Sigurjónsson,
verkamaður Urðarstig 5.
Kvöld- og næturvörður
er í læknavarðstofunni i Austur-
bæjarskólanum frá kl. 18-8 í fyrra-
málið. — Sími 5030.
Næturvörður
er i Ingóifsapóteki — Sími 1330.
LYFJABOÐiR
IPÓTEK AUST- Kvöldvarzla til
UP.BffiJAR kl, 8 alla daga
• nema laugar-
HOLTSAPÓTEK daga til kl. 6.
" ' "" ....Góði' Vflli, 'láttU nú ekki svoná —
þetta er vissulega enginn staður
til að gera að gamni sinu.
_i_ 1 dag er föstudagurinn 19.
^ nóvember — Elisabeth — 321.
dagur ársins — Tungl í hásuðri kl.
7:49 — Árdegisháflæði kl. 0:37 —
Síðdegisháflæði kl. 13:14.
Málfundahópur ÆFR
Fyrsti fundurinn í málfundahópi
ÆJFR verður i kvöld í Baðstofu
iðnaðarmanna. Hópurinn mun sið-
an starfa áfram á miðvikudags-
kvöldum og verður Guðmundur
Vigfússon leiðbeinandi. Félagar
eru beðnir að tilkynna þátttöku
sína á skrifstofu Fylkingarinnar,
Þórsgötu í, og það skal tekið
fram að hópurinn er fyrst og
fremst ætlaður byrjendum.
Kvöldskóli
alþýóu
DRAGIÐ EKKI AÐ
INNRITA VKKI R
A Kvö’.dskóli a’þýðu hefur þeg-
^ ar vakið þó nokkra athygli,
enda er hér völ fjölbreyttrar tóm-
stundafræðslu með námsflokka-
sniði, sem hentar jafnt ungum og
rosknum — og öllum þar á mil'i.
A Skólinn ér öllum opinn. Inn-
^ ritunargjald er 30 kr. fyrir
eina grein, 50 kr. fyrir tvær, 65
kr. fyrir þrjár eða fleiri. Engin
önnur skólagjöld þarf að greiða.
Hafnarbíó
Sagan af Glenn Miller
(bandarísk)
Glenn Miller var á sínum tíma
einn af kunnustu hljóðfæraleikur-
um BandaríkjanTia og stjórnaði
löngum danshljómsveit, sem naut
mikilla vinsælda. Þegar alllangt
var liðið á síðasta stríð gekk
hann í bandaríska herinn, fékk
þar eigin hljómsveit til umráða
og ferðaðist milli herstöðva banda-
manna á Bretlandseyjum og hélt
skemmtanir; Hann fórst i flug-
slysi á Ermarsundi seint á ár-
inu 1944, en þá var hann á leið
frá Englandi til Parísar, þar sem
hljómsveit hans átti að leika á
jólaskemmtun. — Myndin, sem
Hafnarbíó sýnir nú, er byggð á
ævi þessa manns, en í ýmsu er
þó vikið frá raunveruleikanum og
venjulegri Hollywood-væmni bætt
við i staðinn. Samt er myndin
heldur skemmtileg. Flest af vin-
sælustu lögum G’.enn Millers heyr-
ast í myndinni (td. In The Mood,
Pennsylvania 6-500, Chattanooga
Choo-Choo), auk þess sem Louis
Armstrong og fleiri leika ósvikið
jazz’ag. Svo mikið líf er í tuskun-
um hjá þeim Armstrong og félög-
um, að maður saknar þess að fá
ekki meira að heyra og sjá til
þeirra.
Sagan af Glenn Miller er vel
gerð og tekin og Technicolor-litirn-
ir ekki nærri eins skjannalegir og
smeðjulegir og að jafnaði. James
Stuart leikur aðalhlutverkið snot-
urlega. — ÍHJ
★
Lesið tilkynningu um innrit-
unartíma á 1. síðu.
Þarna eru flokkar í íslenzkum
nútíniabókmenntum (Kristinn
E. Andrésson), Islandssögu (Björn
Þorsteinsson), Verkalýðsfélög og
stjórnmál verltlýðshreyfingarinnar
á Islandi (Sigurður Guðmundsson,
Einar Olgeirsson, Brynjólfur
Bjarnason), Marxismiim og saga
alþjóðlegu verlfalýðshreyfingariim-
ar (Ásgeir Bl. Magnússon, Sverrir
Kristjánsson), Félagsmál (Ingi R.
Helgason, Einar Gunnar Einars-
son, Þorva’dur Þórarinsson, Har-
aldur Jóhannsson); ensku; þýzltu;
reikning, lltameðferð, föndur (Jó-
hannes Jóhannesson og Kjartan
Guðjónsson), leiklist og uppiestur
(Gunnar R. Hansen, Gisli Hall-
dórsson.
18:00 íslenzkuk. II.
fl. — 18:25 Veður-
fr. 18:30 Þýzkuk.
k. I. fl. 18:55 Fram
burðarkennsla í
frönsku. — 19:15
Þingfréttir — Tónleikar. 20:30
Upplestur: Gils Guðmundsson al-
þingismaður Jes úr bréfum Bene-
dikts Gröndr.ls. 20:55 Tónleikar:
Tvö verk eftir Niels Gade ,pl.:
a) Ossian-forleikurinn op. 1 (Sin-
fóníuhljómsveit danska útvarps-
ins leikur; Launy Gröndahl stj.).
b) Noveletter op. 53 (Strengja-
sveit danska útvarpsins leikur;
Erik Tuxen stjórnar). 22:25
Fræðsluþættir: a) Gylfi Þ. Gíslo
son talar um efnahagsmál. b)
Helgi Tómasson talar um heil-
brigðismál. c) Lögfræði. 22:10 Út-
varpssagan: Bréf úr myrkri eftir
Þóri Bergsson; IV. sögulok (A.
Björnsson). 22:35 Dans- og dæg-
urlög: Erni Bieler, Rudi Hof-
stetter o. fl. syngja. 23; 10 Dag-
skrárlok.
1 gær var birt ástarljóð eftir Stað-
arhóls-Pál, sem hann orti til
Helgu dóttur Ara Jónssonar, lög-
manns, sem seinna varð kona
hans, þó að þá færi af henni
mesti ljóminn í augum Páls og
enduðu þeirra samvistir með
hjónaskilnaði. í dag birtum við
þrjár gamlar lausavísur.
I
Ég hræðist ekki myrkrin még
minnst hef ég beig af álfum,
fram skal' ég enn og fara um veg,
þótt fjandanum righi sjálfum.
Dimmt mér þótti Dals við á
dró af gaman að hálfu;
að mér sóttu þrjótar þá
þrír af Satans áifu.
Úm hagann dr^ugar svipa sér
svo sem eldibrandar;
þykir- gaman að þessu mér,
það eru skozkir fjandar.
Eg sá dýrð hans
kvikmyndin fræga sem undan-
farna daga hefur verið sýnd við
mikla aðsókn, verður sýnd í
stjörnubíó nk. sunnudag kl. 2:30.
Auk myndarinnar flytur sr. L.
Murdoch erindi um efnið: Nýr
heimur í vændum, og Guðmundur
Jónsson óperusöngvari syngur ein-
söng. Aðgöngumiðar eru afhentir
ókeypis í Ritfangaverzlun Isafold-
ar, Bankastræti 8, og í Stjörnubió.
Þessi rnynd verður einnig sýnd í
Hafnarfjarðarbió á rnorgun kl.
9, og eru aðgöngumiðar að þeirri
sýningu afhentir í Hafnarfjarð-
arbíó.
SIGFÚSARSJÓÐUB
Þeir sem greiða framlög síb
til sjóðsins smám saman eru
minntir á að skrifstofan ð
Þórsgötu 1 er opin kl. 10-12 og
2-7 alla virka daga nema laug-
ardaga kl. 10-12.
Krossgáta iu1. 518
i. l 1 t S «i
lo
Lárétt: 1 fógetagerða 7 atviks-
orð 8 fiskar 9 lemja 11 elskar
12 leit 14 skst 15 letingja 17 verk-
færi 18 umhyggja 20 útblásinn
Lóðrétt: 1 leysa 2 kraftar 3 á
fæti 4 fæða 5 getur 6 karlmanns-
nafn 10 gælunafn 13 galdur 15
barði 16 gani 17 fyrstir í staf-
röfinu 19 tveir eins
Lausn á nr. 517
Lárétt: 1 Shell 4 h^ 5 ar 7 all
9 sól 10 auk 11 ask 13 in 15 er
16 úlfar
Lóðrétt: 1 sá 2 ell 3 la 4 hósti
6 rakar 7 ala 8 lak 12 sef 14
nú 15 er
»na hófninni*
Sambandsskip
Hvassafell er í Helsingfors. Arn-
arfell væntanlegt til Rvíkur í
kvöld. Jökulfell fór frá Djúpavogi
17. þm. áleiðis til Hamborgar.
Dísarfell fór frá Reyðarfirði í
gær áleiðis til Bremen. Litlafell
er í Rvík. Helgafell er í Keflavík.
Tovelil er í Keflavík. Stientje
Mensinga er i Hafnarfirði.
Eimskip:
Brúarfoss fer.frá Hamborg i dag
til Hull og Reykjavíkur. Dettifoss
fór frá Reykjavík 15. þm til New
York. Fjailfoss er i Reykjavik.
Goðafoss fór frá Rotterdam í
fyrrinótt til Reykjavíkur. Gullfoss
fer frá Kaupmannahöfn á morg-
un til Leith og Reykjavíkur. Lag-
arfoss fer frá Akureyri í dag til
Siglufjarðar, Ólafsfjai'ðar og Aust-
fjarða. Reykjafoss fór frá Hafn-
arfirði 16. þm til Dublin. Selfoss
fer fi'á Antverpen í dag til Leith
og Reykjavikur. Tröllafoss fer frá
Hamborg í dag til Gdynia, Wis-
mar, Gautaborgar og Reykjavík-
ur. Tungufoss fór frá Akureyri 15.
þm til Napoli.
Togaramir:
Askur fór á isfiskveiðar 11. þm.
Egill Skallagrímsson fór á ísfisk-
veiðar 9. þm. Fylkir fór á ísfisk-
veiðar 10. þm. Geir fór á ísfisk-
veiðar 16. þm. Háfliði er i slipp
í Reykjavík. Hallveig Fróðadóttir
fór á karfaveiðar 9. þm. Hv&lfell
fór á saltfiskveiðar i gærmorgun.
Ingólfur Arnarson fór á ísfisk-
veiðar 8. þm. Jón Baldvinsson fór
á ísfiskveiðar 16. þm. Jón for-
seti er á ísfiskveiðum. Jón Þor-
láksson fór á isfiskveiðar 16. þm.
Karlsefni fór á isfiskveiðar i gær-
kvöld. Marz er á ísfiskveiðum.
Neptúnus fór á ísfiskveiðar 14.
þm. Pétur Halldórsson landaði á
Þingeyri 8. þm; er á ísfiskveið-
um. Skúli Magnússon fór á is-
fiskveiðar 8. þm. Úranus fór á ís-
fiskveiðar 11. þm. Vilborg Herj-
ó’fsdóttir er i slipp i Reykjavik.
Þorkell máni fór á saltfiskveiðar
4. þm. Þorsteinn Ingólfsson selur
í Hamborg i dag.
Gulifaxi fer til K-
hafnar kl. 8:30 í
fyrramálið. — I’an
American flugvél
er væntanleg til
Keflavíkur frá New York kl. 6:30
í fyrramálið og heldur áfram til
Prestvikur, Óslóar, Stokkhólms og
Helsinki eftir skamma viðdvöl.
Innaniandsflug: 1 dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar, Fagur-
hólsmýrar, Hólmavíkur, Horna-
fjarðar, Isaf jarðar. Kirkjubæjar-
k’austurs og Vestmannaeyja. Á
morgun til Akureyrar, Blönduóss,
Egilsstaða, Isafjarðar, Patreks-
fjarðar, Sauðárkróks og Vest-
mannaeyja.
usDein
Eftir skáldsögu Charles de Costers * Teikningar eftir Helge Kúhn-Nielsen
492. dagur.
Við skræki þessa vöknuðu karlar og konur
og komu nú á vettvang á nærklæðunum
einum.
En þegar vinnumennirnir ætluðu að ganga
til liðs við húsbónda sinn voru þeir ríg-
bundnir.
En blygðunarfullar ungar stúlkur reyndu
að skýla sér að baki karlmannanna.
Og nú gekk Lambi fram og mælti með
miklum þunga: — Þú sviksami bóndi.