Þjóðviljinn - 19.11.1954, Síða 8
ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 19. nóvember 1954
# ÍÞRÖTTIR
RITSTJÖRI FRtMANN HELGASON
V
Þessi stóri hópur er að leggja upp í maraþonhlaup
frá Dynamo-leikvanginum í Moskvu.
Spartak — Arseiial 2:1
Eins og frá hefur verið skýrt
í fréttum sigraði sovézka
knattspyrnuliðið Spartak enska
liðið Arsenal um daginn. Sam-
kvæmt umsögn blaða um leik-
inn segir að Arsenal hafi ver-
ið nær því að sigra. Arsenal
byrjaði vel og átti strax góð
tækifæri sem voru misnotuð.
Rússarnir stóðust því þessa
sókn og framherjar þeirra
tóku að hreyfa sig og áttu
skot sem Kelsey bjargaði
naumlega og tvö horn fengu
Rússarnir í röð, Arsenal, hafði
þá yfirtökin og skot í stengur
og framhjá og þeir gerðu
fyrsta markið á 36. mín. Sjö
min. síöar jafnar hægri mið-
herji Rússa, Paramonoff.
Ódýrt! Ódýrt!
Haustvörumar komn-
ar, mikið vöruúrval.
Gjaíverð
Vörumarkaðurinn,
Hverfisgötu 74:
Fyrstu 10 mín. heldur Ar-
senal leiknum á vallarhelmingi
Spartak en á 55. mín. gerir
Simonioff annað mark Spartak
með skalla.
Síðustu 10 mín. héldu Spart-
akmenn uppi harðri sókn en
án árangurs.
Áhorfendur voru 66 þús., en
leikurinn fór fram við ljós, og
var veður gott, en völlurinn
þungur og blautur. — Dómari
var rússneskur.
Adenauer kallaði stjórn sína
saman á aukafund til að ræða
bréf stjórnarandstöðunnar og
var þar ákveðið að hafna kröfu
hennar.
Fjórveldafundur
í bréfi sínu höfðu sósíal-
demókratar einnig skorað á
Adenauer að beita sér fyrir, að
haldinn yrði fundur stórveld-
anna fjögurra um Þýzkaland,
Norðmenn töpuðu
2:1 fyrir atvinnu-
mönnum írlands
Síðasta landsleik Norðmanna
lauk með tapi .2:1. Voru það
írsku atvinnumennirnir sem
þeir kepptu við í Dublín. Norð-
menn gerðu fyrsta markið og
stóðu leikar í hálfleik 1:0 fyr-
ir Noreg. Síðari hálfleikur var
mestmegnis sókn af hálfu Ira
og gerðu þeir tvö mörk.
Vörn Norðmanna var þó mjög
sterk. Annað mark Ira var
gert úr vítaspyrnu.
Norðmenn hafa keppt 10
landsleiki í ár, unnið 3, gert
2 jafntefli og tapað 5 leikjum,
sett 9 mörk. en fengið 14. I
þessa 10 leiki hafa þeir notað
36 leikmenn. Harry Boye
Karlsen hefur keppt 9 leiki,
Thorbj. Svendsen og Thorleif
Olsen 8, Asbjörn Hansen og
Gunnar Thoresen 7 hvor. 15
leikmenn léku í fyrsta sinn í
landsliðinu, þar af 10 sem léku
í landsleiknum hér í Reykja-
vík. Þrír menn hafa leikið alls
53 leiki í norska landsliðinu
en það eru Gunnar Thoresen,
H. Boye Karlsen og Thorbjörn
Svendsen, Reidar Kvammen er
með 51 landsleik.
áður en hervæðingarsamning-
arnir verða fullgiltir.
Þessu neitaði hann í bréfi
til Ollenhauers, leiðtoga sós-
íaldemokrata. I bréfinu viður-
kennir Adenauer að vísu nauð-
syn þess að stórveldin komi
saman til að ræða um sam-
einingu Þýzkalands, en segir ó-
viturlegt að halda slíkan fund,
fyrr en endanlega hefur verið
gengið frá hervæðingunni.
Vesturþýzkir sósíaldemókratar
vilja taka boði Sovétríkjanna
Kröfu þeirra um þingumræður hafnað
af stjórn Adenauers
Þingflokkur sósíaldemókrata í Vestur-Þýzkalandi sendi
Bonnstjórninni bréf í gær, þar sem þess var krafizt að
haldnar yröu umræður á þingi um tilboö Sovétríkjanna
um fund Evi-ópuríkja til stofnunar öryggisbandalags álf-
unnar.
Tlpiing til vatnsveitea
Getum nú aftur útvegað vatnsveiturör frá Pól-
landi meö hagstæöu veröi. —- Allar upplýsingar
veittar á skrifstofu okkar.
Sími 82422
Nýbýlastofnanir
Framhald af 7. síðu.
miklu þetta nemur á yfir-
standandi ári er ekki vitað
með vissu enn, en þetta sýnir
vaxandi starfsemi, og enn
fremur vaxandi fjárþörf.
En hvers vegna er þörf á
því, að halda þessári starf-
semi áfram og láta hana
vaxa?
Er þetta ekki nægilegt
svo sem nú horfir, og fáum
við ekki næga landbúnaðar-
framleiðslu án þess? Þessum
spurningum býst ég við að
ýmsir varpi fram. Þeim skal
nú leitast við að svara, ekki
með neinum fullyrðingum,
heldur aðeins með því að
benda á eftirfarandi stað-
reyndir.
Þótt þessu hafi miðað á-
fram svo sem hér hefur verið
lýst, að í lok þessa árs verði
ýmist fullbyggð eða í bygg-
ingu hátt á fimmta hundrað
nýbýli, þá er ekki um það að
ræða, að sveitaheimilum hafi
fjölgað um þessa tölu. All-
margar jarðir hafa fallið úr
byggð, einkum í ' vissum
hreppum, og koma þau því til
frádráttar. Hversu margar
þær kunna að vera skortir
upplýsingar um.
Þá er önnur staðreynd ekki
síður eftirtektarverð í þessu
sambandi og það er fólks-
fjölgun sú, er nú fer fram í
landinu.
Við manntalið 1950 var
fólksfjöldinn tæp 144.000 þar
af lifðu á landbúnaði ca 28.
700 eða rétt um 20%. En fyr-
ir meir en 30 árum 1920 var
allur fólksfjöldinn 94.700 og
á landbúnaði talið lifa 40.600
eða 43%. Og s.l. áratug 1940
til 1950 hafði þjóðinni fjölgað
um 22 þús en fólki við land-
búnað fækþað um nærri 9000.
Þannig er það upplýst, að
landsbúum fjölgar ýfir 2000
á ári að meðaltali. Ef sú
fjölgun heldur áfram og vex
í hlutfalli við aukinn fólks-
fjölda, sem fyllilega má bú-
ast við, þá verður mann-
f jöldinn í landinu orðinn um
'300.000 um næstu aldamót,
eða u.þ.b. helmingi meiri en
nú er. Ef sama lilutfall á að
haldast milli þess fjölda er
stundar landbúnað og nú er,
þá ættu kringum 60.000
manns að lifa á landbúnaði
um það leyti.
Það þýðir að landbúnaðar-
fólkinu ætti að fjölga um
helming. Ef reiknað er með
5 manna heimilum að meðal-
tali þýðir það að stofna þarf
6000 ný heimili. En það er
sama 1 sem 120 býli árlega
næstu 50 ár, eða þriðjungi
fleiri en nú er. Hér er þó ekki
tekið tillit til þess, hve mikið
kann að falla úr byggð af
eldri býlum, sem án efa verð-
ur eitthvað. Á þessu sést, að
ekki er of mælt það sem fyrr
er sagt að starfsemi þessi
þurfi að aukast verulega enn
þá.
Þessar tölur sýna einnig
það, hve mikil þörf verður
fyrir aukna landbúnaðarfram-
leiðslu til innanlandsneyzlu á
næstu áratugum. Þó verður
að sjálfsögðu að gera ráð fyr-
ir að hún vaxi mun meira. en
nemur fjölgun þess fólks, er
við landbúnaðinn vinnur.
Þann afgang frá innanlands-
neyzlunni verður að selja úr
landi, og leitast við að fram-
leiða til útflutnings, þær vöru-
tegundir sem auðveldast er
að selja á viðunandi verði.
Nú má við því búast að
ýmsir kunni að draga í efa
að við getum nokkurntíma
orðið samkeppnisfærir við
aðrar landbúnaðarþjóðir á
heimsmarkaði. Og eins og
sakir standa má með rökum
benda á það að verðlagsþró-
un sú er fram hefur farið hjá
okkur hin síðari ár geri okk-
ur þetta erfitt. En hitt mun
og reynast staðre-ynd, að með
vaxandi framleiðslu verður
þetta auðveldara. Og þess ber
enn fremur að gæta, að fólks-
fjöldi í heiminum fer hrað-
vaxandi og að sama skapi
eykst þörfin fyrir matvæla-
framleiðslu. Þegar lífskjör
alls þess fjölda, sem nú býr
við skort, sumpart af völdum
styrjalda og sumpart af völd-
um nýlendukúgunar, fara
batnandi, eftir því sem fleiri
undirokaðar þjóðir hrista ok-
ið af sér, örfar það einnig
eftirspurn eftir matvælum á
heimsmarkaði.
Auðvitað mun innanlands-
markaðurinn verða okkar
mesti og öruggasti markaður,
og hann verður að treysta
sem allra bezt með því að
tryggja neytendum í landinu
þau kjör, að enginn þurfi að
draga við sig kaup á land-
búnaðarafurðum. Áður hefur
verið sýnt fram á hve hann
mun fara vaxandi sem afleið-
ing af eðlilegri fólksfjölgun í
landinu.
Það verður því allri þjóð-
inni til hagsbóta að landbún-
aðarframleiðslan aukist, sem
mest, en til þess þarf að örfa
býlafjölgunina svo sem unnt
er. Og fé því sem til þess
verður lagt mun ekki verða á
glæ kastað.
i—------------------
ummeeús
si&uumaKrau$oa
Minningarkortin eru til sölu
í skrifstofu Sósíalistaflokks-
ins, Þórsgötu 1; afgreiðslu
Þjóðviljans; Bókabúð Kron;
Bókabúð Máls og menning-
ar, Skólavörðustíg 21; og í
Békuverzlun Þorvaldar
Bjarnasonar í Hafnarfirði.
QeJts&Z*
Qðaisosifaa