Þjóðviljinn - 25.11.1954, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 25.11.1954, Qupperneq 7
Takmörk „friðunarsvœða“ samkv. reglugerð 19. marz 1952. Þorvaldur Þórarinsson lögíræðingur: mtií Fiskveiðalandhelgin Fimmtudagur 25. nóvember '1954 — ÞJÓÐVILiJINN — Landhelgismálið hefur ver- íð næstum óslitið á dagskrá hér á landi síðan vorið 1946 er sósíalistar settu fram kröf- una um að lýst væri yfir einkarétti vorum til fiskveiða á landgrunninu öllu. Hinn 5. apríl árið 1948 voru sett lög um svokallaða vísindalega verndun fiskimiða land- grunnsins, en þar var í 1. grein svo komizt að orði að með reglugerð skyldi ákvarða takmörk verndarsvæða við strendur landsins innan endi- marka landgrunnsins, þar sem allar veiðar skuli háðar íslenzkum reglum og eftirliti. Viðkomandi ráðuneyti skyldi einnig ákvarða allar þær reglur, sem nauðsynlegar eru til vemdar fiskimiðunum á ofangreindum svæðum. Tek- ið var fram að ráðstafanir þessar skyldu gerðar að fengnum tillögum Fiskifélags íslands og Atvinnudeildar Háskóla íslands, og ennfrem- ur að reglugerðin skyldi end- urskoðuð eftir því sem vís- indalegar rannsóknir gæfu til- efni til. I 2. grein þessara laga var tekið fram að regl- um sem settar yrðu samkv. 1. gr. þeirra skyldi einungis framfylgt að svo miklu leyti sem samrímanlegt er milli- ríkjasamningum þeim sem Is- land er eða síðar kann að gerast aðili að. Reglugerðirnar 22. apríl 1950 og 19. marz 1952. Þegar í stað hlaut að vekja athygli sá tvískinnungur sem var í undirbúningi þessara laga og sú hugsanavilla, að hægt væri að koma á „vís- indalegri“ friðun tiltekinna hafsvæða innan landhelgi og utan þar sem íslendingum var sýnd veiðin en útlending- um gefin. Þó var engin breyt- .ing á þessu gerð og berum orðum var þetta fyrirkomu- lag ákveðið í reglugerð þeirri sem sett var á grundvelli lag- anna röskum tveim árum síð- ar, 22. apríl 1950, um frið- un nokkurs hluta af fáeinum fiskimiðum fyrir Norður- landi. Með reglugerð þessari voru samt ekki friðuð sér- stök svæði í vísindalegum til- gangi eða samkvæmt rök- studdum tillögum fyrrnefndra stofnana, svo vitað sé, heldur voru nefndir 12 grunnlínu- staðir og skyldi hin svokall- aða friðunarlína Vera fjórum sjómílum utan þeirrar línu sem hugsaðist dregin stytztu leið á milli þessara grunn- línustaða. Með svipaðri aðferð var dreginn einskonar hring- ur í kring um Grímsey, en á Kolbeinsey var ekki minnzt. Svæðið innan friðunarlínunn- ar var lokað Islendingum til tog- og dragnótaveiða, en út- lendingum til síldveiða. Vestasti grunnlínustaður- inn var Horn, en Langanes sá austasti. Línan yfir Húna- flóa var dregin frá Selskeri að Ásbúðarrifi og lenti því verulegur hluti hans utan línunnar. Þetta var því und- arlegra þar sem ekki leyndi sér að hér var verið að stæla norska fyrirkomulagið, en þar eru einmitt mjög langar grunnlínur. Þetta reyndist fyrirboði þess sem síðar kom, en það var hin undarlega reglugerð 19. marz 1952, þar sem hin aumingjalega „frið- unarlína“ norðanlands er teygð umhverfis allt land, allstaðar eins nærri strönd- um og höfundarnir frekast þorðu, og að öllu leyti án tillits til vísindalegra sjónar- miða, enda var ekki einn einasti vísindamaður hafður með í ráðum svo vitað sé. Hinsvegar sátu tveir harð- frískir lögfræðingar við að hlusta á málflutning í Haag í heilan mánuð. I viðbót við Grímsey lentu enn þrir stað- ir með einkahring „utan lands“: Kolbeinsey, Hvals- bakur og Geirfugladrangur. Vafamál má telja hvort skipi er siglandi á milli friðunar- línu hins síðastnefnda og friðunarlínu Eldeyjardrangs. Ekki var vandséð að þetta höfðu ráðið menn af stærð og gerð 'Bjarna Benediktssonar og Ólafs Thórs, en þeir hafa jafnan í verki barizt fyrir því að íslenzk fiskimið séu að mestu leyti brezk og þýzk landhelgi, þó að þeir virðist ætlast til að íslenzkir kjós- endur skilji áróðursgaspur þeirra á annan veg. Eitt er alveg augljóst, að í öllu þessu loðna káki örlaði hvergi á við- leitni til að skýra málið á grundvelli islenzkra sjónar- miða og þaðan af síður til að leysa það. Ekki var neitt fordæmi fyrir því í sögu vorri eða rétti að fara að apa hið norska grunnlínu- kerfi sem fyrirmynd að land- helgislínu, en hitt hlutu jafn- vel blindir menn að skilja að enn fráleitara var að leggja það til grundvallar „vísinda- legri friðunárlínu“. Með þessu var aðeins verið að skjóta sér undan þeim vanda að vera Islendingur, og án efa verið að gera útlendum hagsmun- um margháttaðan greiða. En hver sem tilgangurinn kann að hafa verið er árangurinn sá, að vér Islendingar munum nú vera eina fiskveiðiþjóð í heimi sem hefur ekki neina afmarkaða pólitíska fiskveiða- landhelgi. Meðan svo er virð- ist ekki vera neitt því til fyrirstöðu, ef skilningur Ólafs Thórs og ráðunauta hans væri réttur, að útlendingar stundi veiðar uppi við land- steina ef þeim sýnist svo. Ekki er til nokkurt svæði á öllum heimsins höfum sem þessir herrar virðast treysta sér til að helga Islandi frem- ur en öðrum löndum. Frumvarp um íisk- veiðalandhelgi og til- laga um aukna friðun vestanlands. Ekki stafar þetta af þvi að þeim hafi ekki verið á þetta bent. Ástæðan hlýtur að vera önnur. Á Alþingi í fyrra og nú í haust hefur verið flutt frumvarp til laga um fislc- veiðalandhelgi íslands, og er þar lagt til að hún nái til alls landgrunnsins á þann hátt að. það sé talið ná 50 sjómílur út frá yztu nesjum, eyjum og skerjum eða út að 200 metra dýptarlínu, sé hún utar. Margt virðist þurfa miklu nánari rannsóknar við í sambandi við svona frum- varp, en aðalatriðið er þó að benda á nauðsyn og rétt- mæti þess að oss einum séu helguð fiskimiðin umhverfis Island. Jafnframt þessu hafa tveir alþingismenn sem at- kvæði hlutu á Vestfjörðum lagt til að friðunarsvæðið þar úti fyrir, nánar til tekið á milli grunnlínustaðanna, 44— 47, Kópaness og Kögurs með dálítilli breytingu í báða enda, verði breikkað úr fjórum sjó- mílum í sextán. Færð eru fyr- ir þessari hóflegu tillögu sterk og óyggjandi rök, og vekur raunar furðu hversu skammt hún gengur, m.a. með tilliti til svæðisins norð- an hinnar hugsuðu nýju línu og allt austur um Horn. Sú röksemd ein ætti að nægja að þarna eru flest hin gömlu hefðbundnu mið vélbátaflot- ans 10—20 sjómílur undan yztu andnesjum. En ekki er veigalítil til viðbótar sú stað- re'md að kalla má að útlend- ir og innlendir togarar bein- línis lolci Djúpálnum, og þó að aflasæld sé með fádæmum og jafnvel sívaxandi úti fyrir Djúpál er ördeyða á báta- miðum utan og innan núver- andi „friðunarlínu11. Tillaga austanmanna Á yfirstandandi Alþingi hafa allir þingmenn sem þangað komust með atkvæða- (7 styrk Austfirðinga, jáfnt landkjörnir sem kjördæma- kosnir, að undanteknum að- eins þeim kjósendaflesta, Ey- steini ráðherra Jónssyni, bcr- ið fram breytingartillögur við hina ofannefndu þess efnis að „friðunarlínan“ úti fyrir Austfjörðum og Suðaustur- landi, þ.e.a.s. frá Langanesi og suðvestur að framlengingu línunnar frá grunnlínustað 29 að 28 (Hvalsíki — Ingólfs- höfði) verði dregin beint frá Langanesi og lendi 16 sjómíl- um utan grunnlínustaðar nr. 15, en verði síðan hið minnsta 16 sjómílum utan grunnlínu- staðanna 16—25, þó þannig að á milli staðanna nr. 19 og 24 (Hólmur — Hvítingar) sé línan dregin beint í útlínu núverandi friðunarsvæðis við Hvalbak (nr. 50). Með þessu móti yrði friðunarsvæðið að líkindum hlutfallslega miklu betra austanlands en annars- staðar. Tillögu austanmanna fylgir elcki nein greinargerð. Rök af sama tagi og flutningsmenn aðaltillögunnar báru fram mun ekki skorta. Heldur mun beinlínis vaka þarna fyrir hinum hyggnari mönnum að gefa ríkisstjórn (og Alþingi) hógværa vísbendingu um að ekki megi lengur láta reka á reiðanum að því er varður fiskveiðalandhelgi vora. Jafn- framt verður ekki komizt hjá að leggja þann gleðilega skilning í tillögu þeirra aust- anmanna, að ekki þurfi að þeirra dómi að bera fram neinar afsakanir eða varnar- ástæður fyrir því að tryggja heimamönnum sæmilega greið- an aðgang að sínum cigin fiskimiðum. Vonandi er að hlutleysi hr. Eysteins Jóns- sonar í þessu efni tákni ekki það að hann sé á öðru máli. Ég leyfi mér að láta í ljós Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.