Þjóðviljinn - 03.02.1955, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 03.02.1955, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVTLJINN — Fimmtudagur 3. febrúar 1955 •Jr 1 da.fi er fimmtudagurinn 3. febrúar. Blasiusmessa. — 34. dag- ur árslns. — Ansgar Kristniboði. Timgl í hásuðri kl. 21:51. — Ár- degisháflæði kl. 1:57. Síðdegis- háflæði kl. 14:34. Kl. 8:00 Morgunút- varp. 9:10 Veður- fregnir. 12:00 Há- degisútvarp. 15:30 Miðdegisútvarp. — 16:30 Veðurfregnir. 18:00 Dönskukennsla I. fl. 18:25 Veðurfregnir. 18:30 Enskukennsla II. fl. 18:55 Framburðarkennsla i dönsku og esperanto. 19:15 Tón- ieikar. 19:30 Lesin dagskrá næstu viku. l)0:4i0 lAuglýsingar. 20:00 Fréttir. 20:30 Daglegt mál (Árni Böðvarsson cand. mag.) 20:35 Kvöldvaka: a) Benedikt Gíslason frá Hofteigi flytur frásögn af Hans Wíum sýslumanni og Sunn- evu-málunum. b) Islenzk tónMst: Lög eftir Bjarna Þorsteinsson (pl). c) Andrés Björnsson les stökur eftir Hjá’mar Þorsteinsson á Hofi. d) Þorsteinn Matthíasson kennari flytur ferðaþátt: 1 miðnætursól. 22:00 Fréttir og veðurfregnin 22:10 Upplestur: Kvæði eftir Pál Kolka (Jón Norðfjörð leikari). 22:25 Sin- fónískir tónleikar (pl): Fiðlukon- sert í a-moll op. 53 eftir Dvorák (Yehudi .Menuhin og hljómsveit Tónlistarháskóians í París leika; Enesco stjórnar). Sólfaxi fer til K- hafnar á laugar- dagsmorguninn. Flugvélin kemur ;aftur til baka kl. 16:45 á sunnudaginn. 1 dag eru ráðgerðar flugferðir til Akureyrar, Egilsstaða, Kópa.skers og Vestmannaeyja; á morgun til Akureyrar, Fagurhóismýrar, Hó'.mavíkur, Hornaf jarðar, Isa- fjarðar, Kirkjubæjarklausturs og Vestmannaeyja. Hekla er væntanleg til Reykja- vikur kl. 19 i dag frá Hamborg, Kaupmannahöfn og Stafangri; áætiað er að flugvélin fari til New York kl. 21:00. Gjafir til Slysavarnafélags Islands Slýsávarnafélági Islands hefur borizt að gjöf kr. 1.000 — frá Benedikt Péturssyni, útvegsbónda að Suðurgötu Vogum, sem hann ánafnaði félaginu eftir sinn dag. Einnig hefur félaginu borizt áð gjöf kr. 1.000 — frá dóttur Bene- dikts, Guðrúnu, til minningar um mann hennar Bjarna Guðmunds- son, er drukknaði 17. marz 1028. Þá hefur Slysavarnafélaginu bor- izt eitt þúsund króna gjöf frá Færeyingafélaginu i Reykjavík, sem vott um þakklæti sitt fyrir björgun skipshafnarinnar á Agli rauða. Stjórn Slysavarnafélagsins þakkar hlutaðeigandi aðiljum fyrir þessar gjafir. Söfnin eru opin Bæjarbókasafnlð Útlán virka daga kl. 2-10 síðdegis. Laugardaga kl. 2-7. Sunnudaga kl 5-7. Lesstofan er opin virka daga kl. 10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar- daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga kl. 2-7. Landsbókasafnið kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka daga nema laugardaga kl 10-12 og 13-19. Náttúnigrlpasafnlð kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 á þriðjudögum og fimmtudögum. Þjóðminjasafnið kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15 é þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Þjóðskjalasafnið é virkum dögum kl. 10-12 og 14-19. Símanúmer Styrktarsjóðs lamaðra og fatlaðra er 7967. Næturvörður er í læknavarðstofunni Austur- bæjarskólanum, sími 5030. Nælurvarzla er í Lyfjabúðinni Iðunni, sími 7911. — Harðfengur bindindismaður Þá sem sáu Niels og kynntust honum, furðaði einna mest, hve hann klæddi sig lítið, hvernig sem veður var, og þó ekki hlýjum fötum. Hversdagsbúningur hans var oftast snjáð jakkaföt, eða hann var jakkalaus, en í fair- eyskri peysu. I verstu veðrum hafði hann yzt fata ein- falda vaðmálshempu, og annaðhvort ekkert um hálsinn, eða þá léreftsldút, á stærð við vasaklút, eina vettlinga, sem hann bleytti, þegar frost var, svo að þeir væru eins og frosnir hólkar á höndunum, og stakk þeim í veggjar- holu, þar sem hann gisti. En með því að öllum^ er kynnt- ust honum, var vel til hans, létu húsfreyjurnar á gisti- stöðunum leita nppi vettlingana til hirðingar. Þótti Níelsi þetta miður. En hann sagði þá: „Blessaðar konurnar liafa samt gert þetta í beztu meiningu“. En það var reynsla Níelsar og fullyrðing, að hefði maður á hönd- um frosna belgvettlinga, myndi mann varla kala. Níels var ákaflega harður maður og lieitfengur. Nú kynnu einhverjir að ímynda sér, að hann hafi haldið við fjör- inu og liitanum með tóbaki og víni, er mest reyndi á, og skal því hér tekið fram til vara, að hann var með afbrigðum reglusamur maður og fyrirleit alla tóbaks- nautn og sælgætisnautn. Á víni bragðaði hann rétt að- eins. (Söguþættir landpóstanna, II. bindi). Orðaskýringar Níðfastur þýðir nízkur, og svlpuð merklng var eitt sinn í glöggur, sbr. féglöggur; sbr. ennfremur glöggvingur er fyrlr kemur í Arinbjamarkviðu Eg- ils Skallagrímssonar: liann segist þar vera glapmáll um glöggvinga, þ. e. málstirður um nizka menn — honum leiðist að yrkja um slikt fólk. — Talað er um straum að hann sé niðfagur, og er það mjög skáldlegt orð. — Níðill er sá sem níðir, til dæmis var Jónas Hallgrímsson niðill Tristrams- rímu Sigurðar Breiðfjörðs, og notaði Brelðfjörð einmitt þetta orð eitt sinn í kvæði. En raun- ar mimum vér ekki í svipinn livoi-t Jónas var þar á dag- skrá eða einhver annar níðill. En hvað sem þeir sögðu hvor um annan, hafa báðir staðið af sér þær hryðjur. Kvenfélag óliáða fríkirkju- safnaðarins Félagsfundur verður í Edduhús- inu annaðkvöld kl. 8:30. Kaffi- drykkja, félagsvist. — Takið með ykkur spil. Styrktarsjóður munaðarlausra barna, sími 7967. Fundur um Uppsögn hernámssamningsins. Elns og auglýst er á öðrum stað í blaðinu, og sagt hefur verið frá áður, efnir Samvinnunefnd her- námsandstæðinga til umræðu- fundar um uppsögn hernáms- samningsins, í Breiðfirðingabúð í kvöld. Fundurinn hefst klukkan 9.00. Frummælendur eru þrír, þeir Ingimar Sigurðsson, Haraldur Jó- hannsson og Hallberg Hallmunds- son. Síðan eru frjálsar umræður. Við skulum fjölmenna á fundinn. Krossgáta nr. 570 Lárétt: 1 jörðin 7 tónn 8 á fíl 9 keyrðu 11 skst. 12 slá 14 leikur 15 dagstund 17 kall 18 æði áfram 20 rannsakaði. W ' Lóðrétt: 1 eldur 2 dreifar 3 núm- er 4 þýzkur greinir 5 þjóð í Suður-Ameríku (Þf) 6 hálsmen 10 planta 13 agnið 15 hrópa 16 gana 17 fór 19 ákv. greinir. Lausn á nr. 569 Lárétt: 1 bilun 4 tó 5 ár 7 las 9 ská 10 áls 11 sár 13 as 15 fiR 16 átaks. Lóðrétt: 1 BÓ 2 lóa 3 ná 4 taska 6 rósir 7 lás 8. sár 12 Ása 14 sá 15 ís. Benedikt Gíslason Á kvöldvökunni i kvöld flytur hann erindi um Wium sýslumann og Sunnevu-málin, en það eru einhver frægustu sakamál á 18. öld — og alltaf jafnóleyst hvern- ig sök og sakleysi skiptist þar milli aðila. Gátan Hvert er það dýr í heimi, harla fagurt að sjá, skrýtt með skrauti og seimi, skreyti ég þar ei frá? Á morgna með fjórum fótum fær sér viða fleytt, en gár þó ekki greitt. Þá sól hefur seinna gengið í sjálfan hádegis stað, tvo hefur fætur fengið frábært dýrið það, gerir um grundu renna geysi hart og fljótt, og fram ber furðu skjótt. Þá sólin sezt í æginn og sina birtu ei lér, dregur á enda daginn, dýrið geyst ei fer, förlast þá að flestu, fætur hefur það þrjá og þrammar þunglega þá. Ráðing á siðustu gátu: BÓK Frá Kvöldskóla alþýðu Nú eigum við erindi við þá sem eru í upplestrarflokki Karls Guð- mundssonar leikara. Kennslan í þeim fjokki fer sem sé fram að þessu sinni í kvöld og hefst kl. 21.20. Þet'ta skyldu hlutaðeigend- ur leggja sér ríkt á hjarta. 1 grein í Tíman- mn í gær um „Halta og sjúka heimsmenningu" (!) er það haft eftir einhvérjum útlendingi að „Unga fóikið skortir jafnvægi, og það verður alltof snemma kynferðislega þroskað.“ Siðar áréttir útlendinguiinn skoð- un sína þannig: „1 stað trúará- huga unglinga kemur liinn ÓTIMABÆRI (leturbr. Tímans) kynþroski. Auðvltað. Einhvers staðar verða miðstöðvaröflin í lífi æskumanna að fá útrás, ef ekki í trúhneigð, listhneigð, þá í kyhhvötum.“ Greinarhöfundur Tímans virðist eiga þessa síðustu atliugasemd, og leyfi ég mér að taka undir þessa skoðun, enda er höfundur greinarinnar minn maður framar öðrum — hami Pét- ur okkar Sigm-ðsson erindreki. Blaðamannafélag fslands. Áðalfundur Blaðamannafélags Islands verður haldinn í Naust- inu n. k. sunnudag klukkan 2 eftir hádegi. • ÚTBREIÐIÐ • ÞJÓÐVILJANN Skipadeild SÍS Hvassafell er í Gdynia. Arnarfell væntanlegt til Rio de Janeiro í dag. Jökulfell fór frá Rostock 1. þm áleiðis til Austfjarða. Disar- fell er í Bremen. Litlafell er í oliuflutningum. Helgafell er í R- vík. Eimskip: Brúarfoss fór frá Newcastle 31. fm til Boulogne og Hamborgar. Dettifoss var væntanlegur til Reykjavikur í gærkvöld. Fja.llfoss, Reykjafoss, Tröllafoss og Tungu- foss eru í Reykjavík. Goðafoss fer frá'New York 7.-8. þm til Reykja- víkur. Gullfoss fór frá Leith 1. þm til Reykjavíktir. Lagarfoss fór frá New York 28. fm til Reykja- víkur. Selfoss var væntanlegur til Djúpavogs i gær. Katla fór frá Kristiansand 29. fm til Siglufjarð- ar. Bæjartogararnir Ingólfur Arnarson kom af veið- um í fyrradag og fer aftur á veiðar í kvöld. Skúli Magnússon fór á veiðar 19. janúar. Hallveig Fróðadóttir fór á veiðar 26. fm, Pétur Halldórsson fór á veiðar 22. og Þorkell máni 29. janúar. Þorsteinn Ingólfsson kom af veið- um í fyrrakvöld og fór aftur í gærkvöld. Jón Baldvinsson kom af veiðum i gærkvöld. BEZT-útsalan ídag: Síðdegiskjólar, verð frá 100—500 kr. Úrval af pilsum á 75—275 krónur Ný kjólaefni á hálfvirði. Bezt-útsalan ávallt bezt. BEZT Vesturgötu 3. Nýkomnar vörur: Taurulliir Barnavagnar (með háum hjólum) Saumavélar o.mil. Búsáhaldadeiid Athugið: Nýja búðin er á Skólavörðustíg 23

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.