Þjóðviljinn - 03.02.1955, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 03.02.1955, Blaðsíða 8
g) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 3. febrúar 1955 jfr ÍÞRÓTT RfTSTJGRl FRtMANN HELGASON Handknattleiksdomarar stofna dómarafélag Á mánudaginn var komu flest- allir starfandi handknattleiks- dómarar saman til fundar í Naustinu í því augnamiði að stofna með sér dómarafélag. Fundinn setti formaður hand- knattleiksráðs Reykjavíkur, Árni Árnason, og afhenti skírteini þeim dómurum sem tekið höfðu dómarapróf á árinu 1954. Síðan var lagt fram frumyarp til. 'lagá fyrir félagið'. Vár það rætt, gerð- ár á því smábreytingar og síðah samþykkt. Svo var gengið til stjórnar- kosningar og hlutu kosningu þeir Frímann Gunnlaugsson formað- ur, Valgeir Ársælsson og Óli Ó. Árnason. í varastjórn voru kosnir Magnús Georgsson og Hörður Jónsson (úr Hafnar- firði). Endurskoðendur voru kosnir Hannes Sigurðsson og Ámi Jónsson. Félagatal þessa nýja félags er um 20 menn en í því eru og hafa rétt að vera allir þeir sem eru starfandi dómarar. Þess má geta að í félaginu eru þrír Hafnfirðingar og fer vel á því að samvinna sé milli hafnfirzkra handknattleiksdómara og reyk- vískra. Mikil þörf var orðin fyrir slík- í»n félagsskap, því satt að segja er furðu mikið misræmi í túlkun handknattleiksreglnanna, en eitt af verkefnum þessa nýja félags, er að samræma skoðanir dóm- aranna á, lögum leiksins. Kom það þegar fram á þessum. fyrsta fundi félagsins og töluverðar umræður urðu um þessi mál. Það gildir að sjálfsögðu það sama um handknattleik og aðr- Rofar til hjjá Arsenal Það gengur enn heldur illa fyrir Arsenal en nú virðist sem heldur sé að rofa til með hjálp nýrra manna og gamalla. Nýi miðframvörðurinn, Tothering- ham hefur styrkt vonina til muna og Tommy Lawton hef- ur skorað úrslitamörkin í þrem- ur síðustu leikjunum nema leiknum á laugardaginn, þar sem „Úlfarnir" urðu að láta sér nægja eitt mark, og þó léku þeir heima. Arsenal er mun betra nú en í haust. •Blackpool er heldur á upp- leið aftur. Mortensen hefur ekki verið í æfingu undanfar- ið en Stan Matthews er alltaf samur við sig. Allan Brown og Perry eru ágætir. Sunder- land er líklegra til sigurs, þó hefur Blackpool unnið Sunder- land heima í þrjú skipti í röð og í 6 ár hefur Sunderland unnið Blackpool þrisvar. ar íþróttir, þar sem túlkun og ákvörðun verður að taka strax, að áhrif góðs dómara geta orðið til að fegra leikinn, en áhrif hins sem illa er að sér í lögum og túlkun geta á sama hátt orðið til þess að leikurinn verði harður og ljótur. Það er því mikils vert að þessi þáttur iþrótt- anna sé í góðu lagi. Störf dóm- ara eru því oft vanmetin og krafa fólksins tij þeirra er oft ósanngjörn, og fólkið gerir dóm- aranum það erfitt fyrir að fram- kvæma þessi nauðsynlegu skyldustörf. Fólkið krefst þess að hinn dauðlega hepdi ‘' engin skyssa og svo bætist það við að áhorfandinn sér alltaf betur en dómarinn! Það er því ástæða til að óska þessu nýja félagi góðs gengis, og það á vonandi eftii- að hafa sín góðu áhrif á hand- knattleikinn. Það þarf sjálf- sagt ekki að minna á að svo bezt verður félagið sterkt að allir geri skyldu sína. - ERLEND TlDINDI Alþjóðleg skíðakeppni í Moskva Þessa dagana stendur yfir í Moskva alþjóðlegt skíðamót. Senda Norðurlöndin keppendur þangað. Hópur Norðmanna er talinn mjög harðsnúinn og einn sá sterkasti sem þeir hafa sent á alþjóðakeppni, en hann er skipaður þessum mönnum: Ganga karla: Hollgeir Brenden olympískur meistari 1952 á 18 km. Martin Stokken, fjórði á HM í fyrra. Báðir þessir menn hafa náð mjög góðum árangri í mótum Undanfarið. Edwin Landsen, fimmti á 50 km. á HM í fyrra. Ganga kvenna: Kjellfrid Gutubakken. Skíðastökk: Árni Hoel sigurvegari í Holm- enkollen 1948 og 1951 og Sverre Stallvik. Tvíkeppni: Sverre Stenersen, sigurvegari í HM í fyrra, Per Gjelten sem talinn er að vera í mjög góðri þjálfun. 1 sambandi við frétt þessa má bæta því við að á móti sem haldið var í Moskva um miðjan janúar varð heims- meistarinn Vladimir Kusin að iáta sér nægja 4. sæti í 18 km göngu. Fyrstur var 22 ára piltur Nikolaj Anikin á tíman- om 1.02.37. Kusin varð líka að láta sér lynda 4. sæti í 30 km göngunni. Anikin varð líka fyrstur í þeirri göngu á 1.46.38. í fyrra kom Kusin al- veg á óvart og nú er nokkur Vladimir Kúsin heimsmeistari í skiðagöngu eftirvænting meðal göngu- manna hvort útaf Kusin hafi sprottið þrír betri en hann, en í fyrra var hann langbeztur Rússanna. Á móti þessu urðu þær Eris- jina Kajliste og Maslemikova jafnar í fimm km göngu; tími þeirra var 20,25. 10 km göng- una vann Koltjina á 40,37. EM í skautahlaupi í Falun 4.-6. febr. Evrópumeistarakeppni í hrað- hlaupi á skautum fer fram í Falun í Svíþjóð um næstu helgi eða 4.-6. febrúar n.k. — Gert er ráð fyrir að aðsókn að móti þessu verði meiri en nokkru sinni áður bæði hvað snertir þátttöku einstaklinga og þjóða. Stærsti hópurinn kemur frá Sovétrikjunum eða 14 menn alls, og meðal þátt- takenda eru allir beztu hlaup- arar þeirra. Frakkland sendir einn kepp- anda en langt er síðan Frakk- ar hafa sent hraðhlaupara til slíkrar keppni. Ennfremur senda Sviss og Tékkóslóvakía keppendur. í Svíþjóð er mikil eftirvænt- ing meðal skautamanna að sjá hversu Sigge Ericsson þeirra stendur sig í keppninni við sovéthlauparana en hann er almennt talinn sá sem get- ur gefið þeim harða keppni. Kees Broekman óskar Sjilkoff til hamíngju Þegar Hollendingurinn Kees Broekman frétti um hið nýja heimsmet Sjilkoffs í 5000 m hlaupi sendi Broekman honum heillaskeyti en sem kunnugt er var heimsmet Broekmans 8.06.6 en hið nýja met Sjilkoffs er 7.45.6. Við þetta tækifæri lét Broekman þá ákveðnu skoðun í ljós að árangur Rússanna og tímar í Alma Ata væri í alla staði réttir. „Hvað mig snert- ir,“ sagði Broekman „hef ég enga möguleika á þessum vetri að ráðast á met Sjilkoffs, til þess skortir mig æfingu." Framhaid af 6. síðu. km frá meginlandi Kína. Her- seta Sjang Kaiséks á eyjum þessum lokar kínversku hafn- arborgunum Amoj og Fúsjá fyrir öllum siglingum. Sé uggur í ýmsum í Banda- ríkjunum yfir afleiðingum hótunarinnar um árás á Kína, er hann sízt minni meðal bandamanna Bandaríkjanna í Vestur-Evrópu. Blaðið Times í London kallar það óðs manns æði að ætla að reyna að halda Kvimoj og Matsu fyrir Kína- stjórn, hvað sem um Taivan megi segja. Daily Herald, mál- gagn Verkamannaflokksins, er enn harðorðara. Sama daginn og það birti viðtal við Attlee, fyrrverandi forsætisráðherra, þar sem hann ítrekaði yfirlýs- ingu sína á þingi, að Banda- ríkjastjórn væri sek úm frek- léga íhlutun í borgarastyrjöld í'Kina, lagði blaðið út af við- talinu í ritstjórnargrein. Þar var meðal ahnars komizt svo að orði: „Enginn utan þröngs hrings manna í Bandaríkjun- um hefur minnstu samúð með Sjang Kaisék. Hann er illgjarn, spilltur hrokagikkur, sem setur aliar sínar vonir á það að hon- um takist að hrinda af stað þriðju heimsstyrjöldinni . . . Attlee kemst svo að orði, að hann fái ekki séð að Taivan sé ómissandi fyrir varnir Banda- rikjanna. Það er augljós stað- reynd að eyjan er það ekki. Hún er leiksoppur í höndum erindreka Sjang Kaiséks í Bandaríkjunum og brjálaðra stríðssinna í Washington". i nnað sósíaldemókratablað, **■ Morgon-Tidningen í Stokk- hólmi, aðalmálgagn sænsku ríkisstjórnarinnar, kallar í rit- stjórnargrein 30. jan. athæfi þings og stjórnar Bandaríkj- anna „leik með eldinn“. „Ljóst er að menn óttast það að hinn stríðssinnaði herráðsforseti Radford aðmíráll hafi áhrif á forsetann eða jafnvel knýi hann og Bandaríkin til að sætta sig við orðinn hlut með þvi að láta bandarískar flugvélar gera árás á meginland Kína. Svo er að Gengisslcráningll Kaupgcugi 1 sterllngspuna 45.65 kr 1 Bandaríkjadollar 16.28 — 1 Kanadadollar 18,26 — 100 danskar krónur 235.50 - 100 norskár krónur ... . 227,75 — 100 sænskar krónur . 814.45 — 100 flnnsk mörk .... 1000 fransklr frankar 46,48 — 100 belgiskir frankar . . 32,65 — 100 svissnesklr frankar 878.30 — 100 gyllini . 429,70 — 100 tékkneskar krónur 225.72 — 100 vestur-þýzk mörk . 387.40 — 1000 Urur 26.04 — sjá sem yfirforingi landhersíns, Ridgway hershöfðingi, ali einn- ig þennan ótta í brjósti. Hann heldur því fram að Bandaríkin megni ekki að heyja takmarkað stríð með flota og flugher held- ur verði einnig að beita að minnsta kosti hálfrar milljónar manna landher. Það er kostur sem hvorki Eisenhower né neinir aðrir að undanskildum nokkrum ofstækisfullum stríðs- sinnum í Bandaríkjunum geta fallizt á. En svo getur farið að eini annar kostur sem völ er á sé að Bandaríkin neyðist til að draga sig í hlé með brennda fingur og stórum skerta virð- ingu og velvild — og það ekki aðeins í Austur-Asíu. Fáir munu efast um að Eisenhower æskir þess að komizt verði hjá vopnaviðskiptum. En traustið á að hann megni að halda Radford aðmíráí og Knowiand öldungadeildarmanni í skef]- um er augljóslega ekkí eins út- breitt, ekki einu sinni meðal aðdáenda hans“. M. T. Ó. IJndafíflar Framhald af 7. síðu. sporin hafa verið stigin í þessum efnum. Og er það ósk mín og von, að íslenzka ríkið sýni svo mikinn skilning og örlyndi gagnvart téðum rann- sóknum, að ekki komi til þess að fenni í þessi spor‘“. ★ Erindi Ingimars verður birt í heild í tímaritinu „Náttúru- fræðingnum“. T11 119 9 ai ieiðia NIÐURSUÐU VÖRUR SÉÐ og LIFAÐ UFSREYNSU • MANNRMINIR ■ SFINTYRI Febrúarheftið kornið Árshátíð Vélskólans I Reykjavík, Kvenfélagsins Keðjan 09 Vélstjórafélags fdands verður haldin 1 Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 6 febrúar 1955, og hefst með borðhaldi kl. 18.30 Aðgöngumiðar seldir í skrifstofu Vélstjórafélagsins í Fiskhöllinni, hjá Lofti Ólafssyni, Eskihlíð 23 og í Vélskólanum. — Samkvæmisklæðnaður. Skemmtinenfdin.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.