Þjóðviljinn - 03.02.1955, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 03.02.1955, Blaðsíða 5
Eisenhower kveðst staðráðinn í að leggja Taivan undir USA Eisenhower Bandaríkjaforseti sagöi blaöamönnum í gær, aö Bandaríkin myndu aldrei sleppa tangarhaldi á kínversku eynni Taivan. Blaðamannafundur forsetans í gær snerist nær eingöngu um Sovétríkin reisa stáliðjuver fyrir Indverja f gær var undirritaður samn- ingur milli Indlands og Sovét- ríkjanna. Tekur sovétstjórnin að sér að reisa stáliðjuver í Indlandi og verður það eign Indl'andsstjómar. Framleiðsl'u- geta þéss verður ein milljón tonna af stáii á ári. Bygging- arkostnaðinn fá Indverjar að láni til tólf ára með lágum vöxtum. Komið upp um guíl- rmuingja Fertugur vörubílstjóri kom fyrir rétt í London í gær sak- aður um þátttöku í gullráni í fyrrahaust. Náðu ræningjar þá gullstöngum sem eru 1.800.000 króna virði úr bíl hollenzka flugfélagsins KLM um hábjart- an dag á miðri götu. Bílstjór- inn hefur játað að hafa ekið með gullið á brott og fengið 45.000 krónur fyrir vikið. Seg- ir í játningu hans: „Eg gat ekki þagað lengur. Mér er sama þó þeir drepi mig.“ Nasser hótar úrsögn Nasser forsætisráðherra Egypta- lands, sagði í gær að Egyptar myndu segja sig úr Arababanda- laginu ef íraksstjórn gerði al- vöru úr því að ganga í hern- aðarbandalag við Tyrkland. Myndu Egyptar stofna annað bandalag með þeim arabaríkjum sem þeim fylgja að málum. Nefndi Nasser þar til Jórdan, Saudi-Arabíu og Jemen. Medés-France á í völí að verjast Umræða um mál frönsku ný- lendnanna í Norður-Afríku hófst á franska þinginu í gær. Allir ræðumenn að einum und- anskildum réðust ákaflega á þá stefnu stjórnar Mendés-France að láta að nokkru undan kröf- um landsbúa um sjálfsstjóm. Voru þetta allt íhaldsmenn og gaullistar. Það hefur veikt að- stöðu Mendés-France verulega að honum hefur ekki tekizt að ljúka samningum við fulltrúa Túnisbúa um sjálfsstjóm þeim til handa. Þykja miklar líkur til að stjómin falli við atkvæða greiðslu að umræðunni lokinni. heimild þá sem þingið hefur veitt honum til að grípa til vopna út af Taivan og nær- liggjandi eyjum. Bandaríkin eru staðráðin í því að hindra að nokkurt skarð verði brotið í hinn mikla eyjagarð Taivan, sagði Eisenhower. Það hefur nú verið gert deginum ljósara að Bandaríkin munu aldrei láta það viðgangast að hinn alþjóðlegi kommúnismi nái Taivan og notí hana fyrir brúarsporð til útþenslu um Kyrrahaf. Þegar blaðamaður spurði Eisenhower, hvort hann myndi beita bandariskum herafla til að halda eyjunum Kvimoj og Matsu uppi í landsteinum meg- inlands Kína, svaraði forsetinn að það væri tæknilegt atriði sem hann vildi ekki segja af eða á um að svo stöddu. Samgöngur við Island í nefnd - Norðurlandaráðið samþykkti í gær ályktun um að þörf sé á bættum samgöngum milli ís- lands og Norðurlanda. Er rík- isstjórnunum falið að vinna að því máli í sameiningu og skipa milliþinganefnd til að semja á- kveðnar tillögur. Nokkuð var minnzt á upp- sögn Svía á loftferðasamningn- um við íslendinga í umræðun- um. Sagði sænski þingmaður- inn Severin að ágreiningur hefði verið um túlkun samn- ingsins og því rétta leiðin að segja honum upp. Frá þessu var skýrt fyrir nokkrum dögum í blaðinu Verdens Gang í Oslo. fsland, Sovétríkin eða England Blaðið hefur átt tal við nem- endur í bekknum, sem í vor tekur lokapróf frá skólanum í Aas. Skýra þeir frá, að uppá- stungur hafi komið fram xun að bekkjarferð væri farin til fs- lands, Sovétríkjanna eða Eng- lands. 1 ljós kom að ferð til fslands var ekki framkvæman- leg. Þá var að velja á milli Sovétríkjanna og Englands. Hann neitaði einnig að svara spurningu um hvort banda- rískum flota og flugher við Taivan hefði verið skipað að ráðast á meginland Kína ef herskip eða flugvélar yrðu fyr- ir árásum þaðan. Sendiherra Bandaríkjanna á Taivan afhenti í gær Sjang Kaisék bréf frá Eisenhower. Er talið að það hafi að geyma yfirlýsingu um fyrirætlanir Bandaríkjanna varðandi Kvi- moj og Matsu. Misjafn sauður í mörgu f é Vísindamenn við læknadeild Harvardháskóla í Bandaríkjun- um hefur lengi grunað að það sé ekki réttur þverskurður af, mannfólkinu sem gefur sig | fram þegar auglýst er eftír! sjálfboðaliðum sem fúsir eru I til að láta gera á sér læknis- i fræðilegar tilraunir. Það varð' úr að einn sjálfboðaliðahópur var vandlega rannsakaður. Af 56 körlum, sem flestir eru stúdentar, reyndust þirír geð- sjúkir, þrír geðveiklaðir, tólf taugaveiklaðir, fjórir kynvillt- ir og einn drykkjusjúkur. Óhreinindi útrýma laxi Fyrir einni öld var mikil lax- veiði í ám í Englandi en nú er laxinn horfinn þaðan. Ástæðan er að óhreinindi úr sorpræsum stórborga og afrennslisvatn frá verksmiðjum hefur gert fiskum ólíft í ánum. í ánni Tee veiddust 8000 lax- ar á ári hverju um síðustu alda- mót. Veiðin minnkaði jafnt og þétt og nú er svo komið að eng- inn lax er eftir í Tee. í ána renna lika 50 milljónir lítra af skólpi dag hvern auk afrennslis- vatns frá verksmiðjum. Afdráttarlaust svar f umræðum nemendanna um þetta skaut einhver því fram, að verið gæti að erfitt yrði að komast til Bandaríkjanna til framhaldsnáms ef menn hefðu ferðazt til Sovétríkjanna. Flest- um þótti þetta ótrúlegt en það varð úr að fyrirspurn var gerð til bandaríska sendiráðsins í Oslo. Svar kom um hæl og var þar sagt afdráttarlaust, að nemendur sem færu í ferðalög til Sovétríkjanna gætu ekki gert sér neina von um að fá landvistarleyfi í Bandaríkjun- um. Bandarikin lokuð þeim er ferðast til Sovétríkjanna Norskir búnaðarskólanemendur komast að raun um að járntjaldið er „Made in USA". Bandaríska sendiráðið í Oslo hefur tilkynnt nemend- um í efsta bekk landbúnaðarháskólans í Aas, að ef þeir geri alvöru úr fyrirætlun sinni tim að fara í bekkjar- ferð til Sovétríkjanna verði það til þess að enginn þeirra fái nokkru sinni að stíga fæti á land í Bandaríkjunum. Myndirnar eru af mönnurn peim sem síðast voru sæmdir friðarverðlaunum Stalíns. Þeir eru (talið frá vinstri að ofan): D.N. Pritt, Bretlandi, Alain le Leap, Frakklandi, Thakin Kodaw Hmaing, Burma, Bert Brecht, Þýzkalandi, Felix Iversen, Finnlandi, Andé Bonnard, Sviss, Baldomero Sanin Cano, Kólumbíu, Prijono, Indónesíu og Nicolas Guillen, Kúbu. ---- Fimmtudagur 3. febrúar 1955 — F" ÞJÓÐVILJINN — (5 |Breytingáloft-| | stranm eykur j ! ve | Breytt veðurskilyrði valda : j því að Norður-Atlanzhafið og j j löndin sem að því liggja eru { j komin á stormasvæði, segir j j Jerome Namias, yfirmaður { i þeirrar deildar bandarísku { j veðurstofunnar, sem annast j j veðurspár til langs tíma. ! Ástæðan til breytingarinnar : ■ * ; er að sögn hans sú að straum- : ■ : ur kalds heimskautslofts til : ■ ■ • suðurhluta Bandaríkjanna hef- : ■ ■ i ur breytt um stefnu. Hingað til : ■ hefur straumurinn verið frá i ■ ■ i norðaustri til suðvesturs en : l ■ * síðustu árin hefur stefnan : ■ ■ ■ verið frá norðri til suðurs. : ■ ■ ■ Við þetta hafa hvassviðri um ; ■ J { allt Norður-Atlanzhaf magn- ; { azt, segir Namias. Mega skoia kjarn- orknrafstöðvar Sovétríkin munu ef til vill gefa vísindamönnrm ’ v^tur- löndum kost á að skoða kjarn- orkurafstöðvar í SovetinQun- um, sagði sovézki r'thöfundur- inn Ilja Ehrenburg í viðtali við blaðamenn í Vín fyrir nokkr- um dögum. Sovétríkin hafa ekkert á móti því að sýna vísindamönn- um stöðvarnar, enda hafa þau boðizt til að skýra öðrum ríkj- um frá reynslu sinni af rekstri þeirra, sagði Ehrenburg, en að sjálfsögðu kærum við okkur ekki um að fá njósnara heim. Þrengt að verzlun Breta Samkeppni Bandarikjamanna, Þjóðverja og Japana gerir Bret- um sífellt erfiðara fyrir að selja vörur sínar á heimsmark- aðinum, segir í skýrslu frá við- skiptamálaráðuneytinu í Lon- don. Otflutningur til Indlands, Suður-Afríku og nýlendnanna stóð í stað eða minnkaði á síðasta ári vegna þessarar sam- keppni. Útflutningur til Banda- rikjanna og Kanada minnkaði en jókst til Evrópulanda. Út- flutningur Japana var 20% meiri fyrstu níu mánuði síðasta árs en á sama tíma árið áður. Útflutningur Vestur-Þýzkalands var 50% meiri árið 1954 en 1951. andaríkjameim við háskolanám í Kina il Fréttaritari frönsku fréttastof- unnar AFP í Kína hefur hitt nokkra af bandarísku stríðsföng- unum, sem neituðu að hverfa heim þegar skipzt var á föngum í Kóreu. Þegssir fangar eru tólf talsins og eru við nám í háskól- anum í Peking. Aðrir Banda- ríkjamenn .vinna í verksmiðjum og ríkisbúum utan við borgina. Richard Corden, svertingi frá Rhode Island, komst svo að orðí við franska fréttaritarann, að í Bandaríkjunum hefði hann orð- ið að gjalda hörundslitar síns er» í Kína væri hann látinn njóta hans.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.