Þjóðviljinn - 13.02.1955, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 13.02.1955, Blaðsíða 7
’ Á leið frá Berlín til Warae- miinde um daginn þurfti ég að skipta nm lest í Witten- berge. Er lestln rann inn á járabrautarstöðina þar, tæp- um tveimur mínútum áður en hin átti að fara, vék sér að mér lítil stúlka og spurði hvort ég vissi á hvaða spori hún stæði. Eg var því miður engu fróðari, en okkur vildi það til happs að lestinni sem við áttum að taka frá Witten- berge seinkaði um fáeinar mín- útur. Við héldum hópinn til Rostokk, og töluðum meðal annars um stríðið. Hún varð mjög alvarleg á svipinn er ég spurði hana hvort hún myndi það, hún sagði að mömmu sixmi vöknaði stundum enn nm augu er hún hugsaði til hússins þeirra sem lagt var í rústir, og hún sagði að það mætti ekki verða stríð. Eg mun lengi minnast alvöru þessarar 13 ára stúlku er hún sagði þessi einföldu orð. Hún hjálpaði mér með farangurinn úr lestinni í Rostokk yfir í sporvagninn til Waraemunde. Síðan kvöddumst við. Er ég kom í setustofu toll- skýlisins á hafnarbakkanum í Wamemúnde var þar fyrir kona með tvö böm. Eg tók hana þegar tali. Hún var af dönskum ættum, fluttist til Þýzkalands árið 1938, og var að fara í heimsókn til ætt- ingja sinna á Jótlandi, fyrsta sinni í meira en 16 ár. Böm hennar, drengur og stúlka, hlökkuðu mjög til heimsókn- arinnar; þau voru smá vexti, stúlkan 11 ára, drengurinn 9 ára, og mér kom til hugar að þau hefðu ekki alltaf átt sjö dagana sæla. Konan fór að segja mér af stríðinu, og það kom heim: einnig á henni hafði það dunið. Litla stúlk- an greip hvað eftir annað inn í frásögn móður sinnar, jók hana og fyllti; og enn. í dag undrast ég hve þessi litla veiklulega stúlka var fullorð- in í tali og hugsun. Hún sagðist halda að mamma sin mundi aldrei jafna sig eftir • Tvær litlar stúlkur þær ógnir sem yfir hana höfðu gengið; það fyrsta sem ég man er að mér var kalt, sagði hún; það má aldrei framar verða stríð, sagði hún — ég veit að þá mundi ég deyja, bætti hún við; og ég hef aldrei verið fjær því en þá að geta komið fyrir mig orði. Við kvöddumst á stöð- inni í Gedser; nú er hún aft- ur komin heim til pabba í Beraburg, þessi litla gáfaða stúlka er hafði reynt kvöl heimsins. Það var ein kenning nas- ista að allt böl í veröldinni stafaði af Gyðingum; og af því þeim var umhugað að gera heiminn hamingjusam- an, brutu þeir mjög heilann um hvernig þeir ættu að leysa „Gyðingavandamálið." Að lokum fundu þeir lausn- ina, og hún var ofureinföld: að útrýma Gyðingum til síð- asta manns. Það var eitt höf- uðviðfangsefni nasista í her- numdum löndum í stríðinu að þefa uppi hvera Gyðing, láta skrá hann, taka síðan af hon- Sunnudagur 13. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 f/ Eg veit nd f>á fflundi ég Aetjja um eignir hans, flytja hann að lokum í útrýmingarbúðir — skjóta hann, brenna hann, höggva hann, hengja hann. Landstjóri PóUands í stj’rj- öldinni, Hans Prank sagði: „Hvað eigum við að gera við • ,^Þetta sífellda kjaftæði“ Gyðingana ? .... Hversvegna allt þetta sífellda kjaftæði ? 1 stuttu máli sagt: við út- rýmum þeim með okkar eigin aðferðum. Við verðum að hefjast handa um að koma þeim fyrir kattarnef. Allsherj- arríkið verður að vera eins Davidek litli í Uppreisninni í Varsjá. Þeir sem sáu mynd- ina munu ekld gleyma gim- steinunum undir brám hans. dauðhreinsað af Gyðingum og Þriðja ríkið sjálft.“ Nasistar gerðu morð að vís- indagrein, ög þeir gerðu margar stórar uppgötvanir í henni, enda ekkert til sparað. Hvergi mun þeim þó hafa orð- ið betur ágengt en í Póllandi. Svo hefur talizt til að árið 1939 hafi yfir 3 milljónir Gyð- inga búið þar í landi. Árið 1946 hafðist upp á fimmtíu þúsundum. Svona árangri geta vísindin náð. „Á sama hátt og Gyðingavandamálið í Þýzkalandi verður ekki leyst fyrr en síðasti Gyðingurinn er horfinn af sviðinu, þannig verður afgangurinn af Evrópu að horfast í augu við það að þýzki friðurinn sem bíður hennar hlýtur að verða friður þar sem enginn Gyðingur fyrirfinnst". Svo ritaði hið op- inbera málgagn SS-sveitanna, Das Sehwarze Korps, árið 1940 — þetta var leiðarljósið; þannig skyldi engin fyrirhöfn spöruð til að tryggja álfunni „þýzkan frið" í þúsund ár. En það varð nú samt ekki þýzkur friður sem Evrópu hlotnaðist í stríðslok, heldur friður þar sem hinir 50 þús- und Gyðingar sem eftir lifðu í Póllandi voru aftur settir á bekk með mönnum; fyrirlitn- ing heillar veraldar grúfist þung yfir nöfn þeirra sem hugðust afmá þá af jörðinni. En minning hins liðna er ekki aðeins hryllileg — hún er einnig glæsileg og fögur; hún er auðug af dæmum um mann- lega reisn eins og hún verður hasst, um mannlegt þrek eins og það verður máttugast, um mannlega fórn eins og hún verður kærleiksríkust — það er minning þeirra sem myrtir • Minning hins liðna voru, barátta þeirra sem kom- ust af. Og hér í Reykjavík hefur nýlega verið sýnt dæmi þess hve pólsku þjóðinni er þessi minning dýrmæt, hvern- ig listamenn hennar vinna tig- in listaverk úr efni hennar. Það er kvikmyndin Uppreisn- in í Varsjá. Að baki þeirri mynd er sag- an um 400 þúsund Gyðinga sem fyrst var staflað saman í afmarkað hverfi í borginni. Er lífi þeirra var loks stefnt í opna glötun gerðu þeir samblástur gegn kúgurum sínum. Það var um 20. apríl 1943. En vísindamenn morðs- ins neyttu þá þekkingar sinn- ar, og 16. maí _var öllu lok- ið. Það var samin mikil og vönduð skýrsla um atburð- ina. Á titilblað hennar var skrifað fögru gotnesku letri: „Það er enginn Gyðingabú- staður Iengur í Varsjá". í myndinni er að vísu gefin stórbrotin lýsing á því er Gyð- ingahverfið var skotið í rúst- ir og brennt til ösku. En þó Nasistar smala saman pólskum Gyðingum í Varsjá — það gæti verið atriði úr kvikmyndinni, en þetta er söguleg ljósmynd, birt I bók Russels lávarðs: Svipa hakakrossins (The Scourge of the Swastiká)v „striðsmynd" sem ég hef séð; hún hlýtur að verða talin með stórmyndum allra tíma. Aðal- persónumar eru tvö börn, Davidek og Jadzia; og hér er aftur komið að litlu stúlkun- um þýzku í upphafi: þær voru mér oft í huga meðan ég horfði á myndina. Eða hvem- ig er hægt að tala af jafn- miklum sannleik um stríð og þær gerðu án þess að þekkja það eða afleiðingar þess af eigin raun — og hvernig gætu börn leikið það af jafnskilyrð- islausri snilld og þau Davidek og Jadzia án þess að hafa lif- að það? Pólverjar áttu ekki aðeins borgir í rústum til að sýna í myndinrii, heldur einn- ig fólk til að klöngrast um þær með trúverðúgum hætti; Zlotnicki litli, sem leikur Davidek, hefur kannski komið fyrr í skólþræsi Varsjárborg- ar; Bröniewska, sem leikur Jadziu, hefur máski horft upp ‘á föður sinn deyja; gamli Libermann, sem . biðst fyrir í eldinum, hefur ef til vill séð hvernig hrumur rabbí bar sig til í ofanverðum apríl 1943 — ella hefðu hjörtu þeirra allra Vart slegið svo þungum slætti og heitum í augum þeirra. Mér fannst ég aftur sjá stúlkuna litlu sem sagði mér að mamma sín gréti enn yfir stríðinu — stúlkuna sem vissi að hún mundi deyja ef aftur kæmi • Að lifa stríð og leika það stríð. Atburðirair í Varsjá vorið 1943 mega ekki falla í gleymsku. Kvikmyndin af þeim atburðum gæti skýrt okkur hugtök stríðs og frið- ar. Hún vekur í einu traust á Bretar hafa feHt um 7800 Mau Mau menn fráíokt. '52. tótíð benjlja nærri 800. Fyrirsögn á forsíðu Vísis s.I. fimmtudag. er hún ekki fyrst og fremst gerð til að vera heimild um aðferð nasistanna, heldur um hjarta Gyðinganna — um mannlega reisn, fórn og elsku andspænis trylltri grimmd og vísum dauða. Það yrði of langt mál að rekja efni mynd- arinnar, og ég kann ekki að lýsa snilld hennar. En hún er alveg tvímælalaust ágætasta enn í orði breyta eftir boðum hans í raun; og þótt Varsjá sé aftur risin í nýrri fegurð, þar sem æska heimsins ætlar að hittast að sumri, þá hafa verið stofnuð önnur „gettó" á öðrum stöðum, aðferðir naz- ismans hagnýttar af fullkomn- ustu tækni. Um 60 þús. inn- fæddra manna í Kenía hafa verið settar í fangabúðir síð- astliðin ár — hvað er það annað en hreinn og ómengað- ur fasismi? Og hér á síð- unni er nú prentuð fyrirsögn úr dagblaðinu Vísi á fimmtu- daginn var; þar talar þó sá sem ekki verður vændur um rakalausar árásir á brezkt hátterni í nýlendunum. Eg tek hér fréttina alla orðrétt: „London (AP). — Hershöfð- ingjaskipti hafa orðið hjá Bretum i Kenya. Þegar sir George Erskine hætti störf- um skýrði hann svo frá, að frá því í október 1952, þegar • „Gettó“ á nýjum stöðum gildi hárrar listar og tign mannlegs hjarta. Eg sagði að fyrirlitning heillar veraldar grúfðist yfir nazismann og þá er fyrir hon- um stóðu. Það yar ofmælt — hann á enn.ítök víða um lÖnd; og það er aftur kominn sá timi að óhætt er áð taka sér nafn hans í munn. Jafnvel sumir þeir sem afneita honum brezka nýlendustjórnin lýstí landið í hernaðarástand hafi rúmlega 7800 Mau Mau-menn, verið felldir í bardögum eða skærum við her og lögreglu. Á sama tíma hafa næstum 1200 verið teknir höndum, margir þeirra særðir, í bar- dögum, og yfir 8000 þúsund gefizt upp, er þeim var heit- ið sakaruppgjöf, hefðú þeir ékki morð á samvizkunni. Er þó ekki vitað um allt mann- fall Mau Mau-manna, því að margir hafa farizt í loftárás- um Breta. Þá hefur einnig verið skýrt frá því, að Bretar hafi látið hengja 791 blökkumann fyr- ir morð eða önnur afbrot, sem Bretar hafa litið sérstaklega alvarlegum augum. (Letur- br. Vísis). Á þessu tímabili hafa tæp- lega 70 evrópskir menn, her- menn og borgarar, fallið í bar- dögum eða verið myrtir, auk 20 manna af asískum ættum og nærri 1800 svertingjar, sumir í hersveitum Breta." Nasistar kenndu heiminum að Gyðingar væru fólk af lægri gráðu —það var frum- staðreynd, og í nafni hennar myrtu þeir í Póllandi 2.950.000 Gyðinga af 3.000.000. Það •í •• jáfuðu ýmsir einfaldir menn þesþum ,-rökum; og það er skjrlt viðliorf sem mótar hina „hlutlausu" frásögn Vísis: Framhald á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.