Þjóðviljinn - 13.02.1955, Blaðsíða 6
6). — ÞJjÖÐVILJINN -r- Sunnudagur 13. febrúar 1955
þlÓÐVILIINN
Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurlnn.
Rltstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttastjórl: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Xvar H. Jónsson, Magnús Torfi óiafsson.
Auglýsingastjórl: Jónstelnn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustlg
10. — Sími 7500 (3 Unur).
Áskriítarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrennl; kr. 17
annars staðar á landlnu. — Lausasöiuverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
| íslendingum sagt sftríð á hendur
Undanfarið hefur mikið verið rætt og ritað um þá furðu-
legu rógsherferð sem breeka útgerðarauðvaldið hefur hafið
um íslendinga í brezkum blöðum, en þar er þjóðin borin
þeim sökum að bera í rauninni ábyrgð á dauða fjörutíu
brezkra sjómanna sem létu lífið á 'Halamiðum í ofviðrinu
mikla. Hefur þeirri kenningu verið haldið að almenningi
að brezkum togurum sé í rauninni bannað að leita vars í
íslenzkum fjörðum, og kemur sú kenning m. a. fram í
ársskýrslu brezkra togaraeigenda, eins og rakið var hér í
blaðinu í gær. Af yfirlýsingu brezka sendiherrans hér má
einnig ráða að brezk stjórnarvöld láta sig ekki muna um
að ýta undir sömu skoðun, því hann lét sig hafa það að
halda því fram í áheyrn alþjóðar að stækkun friðunarsvæð-
isins hefði aukið slysahættuna og sá ekki ástæðu til að
biðja afsökunar á brezkum sorpskrifum. Er það enn ein
sönnun þess að útgerðarauðvaldið brezka nýtur beins
og óbeins stuðnings brezkra stjórnarvalda í árásum sínum
á íslendinga, einnig þeim sem níðingslegastar eru.
En brezka útgerðarauðvaldið lœtur ekki þar við sitja
að hafa skipulagt löndunarbannið í skjóli stjórnarvaldanna
ag að halda uppi níðingslegum árásum á íslenzku þjóð-
ina, Nú undanfarið hafa þeir atburðir gerzt úti fyrir Vest-
fjörðum sem án efa eru af sama toga spunnir og eru mjog
alvarlegs eðlis■ Þar hafa brezkir togarar tekið upp skipu-
lagðar árásir á íslenzka fiskibáta, dag eftir dag gera þeir
sér leik að því að draga vörpuna fram og aftur yfir veiðar-
færi bátanna og hafa oft eyðilagt þau með öllu. Hámarki
sínu náðu þessir atburðir, þegar vélbáturinn Súgfirðingur
var sigldur niður um hábjartan dag og tveir íslendingar
fórust. Hafa ekki enn verið bornar fram neinar skiljanlegar
afsakanir út af þeim hörmulega atburði, og mættu Bretar
minnast þess áður en þeir rœða frekar um morð á fiskimið-
unum umhverfis Ísland. En þessi ágangur fyrir Vestfjörð-
um er orðinn svo víðtækur og ósvífinn, að honum verður
helzt líkt við styrjöld af hálfu brezkra togara.
Það er óhjákvæmileg nauðsyn að þessi mál verði tekin
föstum tökum tafarlaust. íslenzka ríkisstjórnin verður að
sjá svo um að íslenzk varðskip verði á miðunum út af
Vestfjörðum og verndi íslenzka báta fyrir hinum ósvífnu
árásum brezku togaranna. Það má ekki til þess koma að
fleiri menn láti þar lífið af þessum völdum og að meiri
verðmæti séu eyðilögð fyrir íslendingum.
í annan stað er það algerlega ósæmilegt að íslending-
ar skuli kaupa vörur í Bretlandi fyrir á annað hundrað
milljónir á ári á sama tíma og Bretar neita að kaupa fram-
leiðsluvörur íslendinga, aðeins í því skyni að kúga
okkur. Ber ríkisstjórninni þegar í stað að gera ráðstafanir
til þess að skera niður innflutninginn frá Bretlandi, og
má hún þá ekkert skeyta um andstöðu heildsalanna sem
einvörðungu hugsa um gróða sinn, en ekkert um hagsmuni
og sóma þjóðarinnar. Þar til þessar ráðstafanir hafa verið
gerðar þarf almenningur að fylgja kröfum sínum eftir með
því að neita að kaupa brezkar vörur, og ættu kaupmenn
að merkja vörur sínar þannig að almenningur viti hverjar
þeirra eru brezkar.
í þriðja lagi ber ríkisstjórninni að taka þessi mál upp
af einbeitni í öllum þeim stofnunum þar sem svo á að
heita að við séum í „samvinnu“ við Breta. Ríkisstjórnin
íslenzka þarf að eiga þann manndóm til að segja við
valdamenn Bretlands að við séum aðeins reiðubúnir til
þeirrar sömu „samvinnu“ og Bretar láta koma fram við
okkur, vilji Bretar halda fjandskap sínum áfram og magna
hann enn, eins og gerzt hefur undanfarið, hljótum við
íslendingar að draga af því óhjákvæmilegar ályktanir. Það
fylgir að minnsta kosti ekki mikill hugur máli stjornar-
blaðanna ef ríkisstjórnin heykist á svo sjálfsögðu framtaki.
Hitt þarf þjóðin: að gera sér ljóst, að hér eftir sem
hingað til mun ríkisstjórnin vera lin í öÍÍUm viðskiptum
við Breta, og að hún fer ekki feti framar en hún er til-
aeydd af þunga almenningsálitsins. Þess vegna þarf sá
þungi að verða sem mestur.
5
■HIIIHMNm
CZECHOSLOVAK CERAMICS Ltd.. PRAHA
• •
KÓPAVOQjSBÚAR
■
, /’• m
£g undirritaður hef opnað
■
Raftækjavinnustofu
■
á Borgarholtsbraut 21.
TEK AÐ MÉR
Ihús
verksmiðjur
skip
báta
Vindingar
og
viðerðir
dynamountt
mótorum
og hvers-
konar heimil-[
iutækjum
Uppsetning og viðhald á sjálfvirkum olíukyntum tækjum
Teikna raflagnir
Til sölu raflagnaefni ásamt perum og vartöppum.
Ath. Ef heimilistækið bilar, þá sæki ég og sendi.
Sími 82871 Jón Guðjónsson
löggiltur rafvirkjameistari
iiiiiiiuimiwiiiiuimiiiiiiiiiMiiniNninuinBHUiinMMmnHiuMBHmMHMiMuauNaniMiMnniMnuHi