Þjóðviljinn - 15.02.1955, Síða 2
2) — ÞJÓÐVTLJINN — Þriðjudagur 15. febrúar 1955
□ 1 dag er þrlðjudagurinn 15. fe-
brúar. Faustinus. — 46. dagur árs-
ins. — Xungi í hásuðri ld. 6.44. —
Árdegisháflæði kl. 10.58. Síðdegis-
háflæði kl. 33.39.
t=SS?=a
18.00 Dönsku-
kennsla; I. fl. —
18.25 Veðurfreg-nir.
18.30 Ensku-
kennsla; II. fl.
18.55 Framburðar-
kennsla í ensku. 19.15 Þingfréttir.
— Tónleikar. 20 30 Daglegt mál
(Árni Eöðvarsson cand. mag.).
20.30 Erindi: Frá ítölskum eld-
stöðvum; II: Etna (Sigurður Þór-
arinsson jarðfræðingur). 21.00 Tón
listarþáttur: Leikmaður, Gylfi Þ.
Gísláson prófessor, talar um tón-
list. 21.35 Lestur fornrita: Sverris
saga; XII. (Lárus H. Biöndjal
bókavörður). 22.20 Úr heimi mynd
listarinnar — Björn Th. Björns-
son iistfræðingur sér um þáttinn.
22.40 Léttir tónar — Jónas Jónas-
son sér um þáttinn. 23-20 Dag-
skrárlok.
Heiranótt
Menntaskólans
Menntaskólanemendur sýna Einka
ritarann í Iðnó í kvöld.
Helgi vinur vor
Sæm. skrifar leið-
ara í Alþýðublað-
_ ið á sunnudaginn
og segist vera ein-
dregið fylgjandi
vinstri samvinnu. Svo er að sjá
sem liann telji sig tala fyrir
munn húsbænda sinna í flokks-
forustunni því í greininni stendur
orðrétt: „Vai Alþýðuflokksins er
auðvelt. Hann vill nýja og far-
sælll stjórnarstefnu. Á honum
mun þ\"í ekki standa, ef Frani-
sóknarflokkurinn l.jær máls á
nauðsyniegri stefnubreytingu." —
Þetta er ágætt svo langt sem það
nær, og ekki spUlir sú yfirlýsing
að AJþýðuflokkurinn „líti ekki á
samstarfsflokk sem mjólkurkú
sína og marki ekki afstöðu sína“
með nytina úr Framsóknar-
Skjöldu fyrir augum og Morgun-
blaðið." — En barátta Helga oklc-
ar fyrir vinstri stefnu nær
skammt, ekki einu sinni til út-
síðnanna í eigin blaði, því í
sama sunnudagsblaðinu og vinstri
stefnu er sungið lof og prís í leið-
ara eru birtar á forsíðu ekki
minna en tvær áskoranir til járn-
iðnaðarmaima um að styðja íhald-
ið við stjórnarkjör í félaginu.
Sem sagt: línan hjá Helga er
vinstri stjórn í þjóðfélaginu en
verkalýðsféiögin skuiii afliendast
íhaldinu, senniiega til að tryggja
og auðvelda framkvæmd vinstri
stefnunnar!! Eg get ekki neitað
því að mér finnst þetta skrýtin
pólitík en er ekki oréökin sú að
forusta Alþýðuflokicsins er dá-
lítíð undarleg og framkoma henn-
ar .fullkomið rannsóknarefnl* eins
og Vilhjálmur Þ. kemst stimdum
að orði?
Æfing
í kvöld
kl. 8:30
Söfnin eru opin
Bæjarbókasafnið
Útlán virka daga kl. 2-10 síðdegis
Laugardaga kl. 2-7. Sunnudaga kL
5-7. Lesstofan er opin virka daga
kl. 10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar-
daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga
kl. 2-7.
Landsbókasafnið
kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka
daga nema laugardaga kl 10-12
bg 13-19.
Náttúrugripasafnlð
kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 á
þriðjudögum og fimmtudögum.
Þjóðminjasafnið
kí. 13-16 á sunnudögum. kl. 13-15
á þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum.
Þjóðskjalasafnlð
á virkum dögum kl. 10-12 og
14-19.
Helgidagsla-knir
er Kjartan K. Guðmuhdsson, Út-
hlíð 8, sími 5351.
Næturvarzla
er í Laugavegsapóteki - Sími 1618
Menn með f jalir á fótum sér
Það mun þykja meira undur, er svo er frá sagt um þá
menn, er það kuimu að temja tré eða fjalir til þess að
sá maður, er hann er eigi fimari á fæti en menn aðrir
meðan hann hefur eigi annað á fótum en skúa sína eða
ellegar hera fætur, en jafnskjótt sem hann bindur fjalir
undir fætur sér, annað tieggja sjö álna langar eða átta,
þá sigrar hann fugla að flaug eða mjóhunda að rás, þá
sem mest megu hlaupa, eða hrein, er hleýpur hálfu
meira en hjörtur, því að sá er mikill hluti manna, er svo
kann vel á skíðum, að hann stingur í einni rennd sinni
níu hreina með spjóti sínu eða þaðan fleiri. Nú mun
þessi hlutur þykja tortryggilegur og ólíklegur og und-
arlegur í öllum þeim löndum, er eigi vitu menn með
hverri vél eða list slíkt má vera, að f jölin má tömd vera
til svo mikils fljótleiks, að á fjöllum uppi þá má ekki
vætta forðast rás þess rnanns og skjótleik, er fjalir
hefur á fótum sér, það sem jörðunni fylgir; en þegar
hann lætur f jalirnar af fótum sér, þá er hann eigi fimari
en aðrir menn. En í öðrum-stöðum, þar sem menn eru
eigi slíku vanir, þá mun varla finnast svo fimur maður,
að eigi þyki af lionum taka allan fimleika, þegar slík
tré eru bundin \ið fætur honum, sem nú höfum vér um
rætt. Nú vitum vér þessa hluti til víss og eigum kost,
þegar um vetrum er snjór er, að sjá gnótt þeirra manna,
er þessar vélar og listir kunnu. (Konungsskuggsjá)
Bólusetniug við barnaveiki
á börnum eldri en tveggja ára
verður framvegis framkvæmd í
nýju Heilsuverndarstöðinni við
Barónsstíg á hverjum föstudegi
kl. 10—11 f.h. Börn innan tveggja
ára komi á venjulegum barnatíma,
þriðjudaga, miðvikudaga og föstu-
daga klukkan 3—4 e.h. og í Lang-
holtsskó’a á fimmudögum klukk-
an 1.30—2.30 e.h.
Gátan
Þótt æru rýrrar unnir mér,.
ekki er því að gleyma,
bezta partinn þó af þér
þráfalt fæ að geyma.
Sértu staddur herrum hjá,
hvernig sem því er varið,
út í horn mig hrekur þá
og hirðir ei um mig parið.
Frá Kvöldskóla alþýðu
1 kvö’.d kl. 8.30 heldur Ingi K.
Helgason áfram að tala um fund-
arsköp og fundarstjórn, og mun
stefna að þvi að gera hvern nem-
anda sinn færan um að taka að
sér störf forseta Sameinaðs Al-
þingis án fyrirvara.
Síðastliðinn laugar
dag opinberuðu
trúlofun sína ung-
frú Sigriður Sig-
fúsdóttir, Hrísa-
teigi 22, og Björn
Kjaran, 3. stýrimaður á Lagar-
fossi.
Hinn 30. fyrra
mánaðar voru gef-
in samain í hjóna-
band i Akureyrar-
kirkju tvenn brúð-
hjón: ungfrú Ingi-
björg Jóhanna Eyfjörð Ólafsdóttir
og Jón Kristján Hannesson sjó-
maður; heimili þeirra er að Hrís-
eyjargötu 3; og frú Sigríður
Tryggvadóttir og Ragnar Pálsson
verkamaður; heimili þeirra er að
Hafnarstræti 53. Ennfremur voru
gefin saman í hjónaband í Akur-
eyrarkjrkju 5. febrúar frú Emilía
Dagný Sveinbjörnsdóttir og Björn
Einarsson verkstjóri; heimili
þeirra er að Hafmarstræti 53.
Millilandaflug:
Hekla, millilanda-
flugvél Loftleiða,
er væntanieg til
Rvíkur fyrir há-
degi á morgun frá
N.Y. Flugvélin fer eftir tveggja
stunda viðdvöl til Stafangurs, K-
hafnar og Hamborgar. — Sólfaxi
er væntanlegur til Rvíkur frá
London og Prestvík kl. 16.45
dag.
Flokkurmift
Flokksgjöld.
1. ársfjórðungur féll í gjald-
daga 1. jan. s. 1. Greiðið
flokksgjöld ykkar skilvíslega
í skrifstofu.félagsins Þórsg. 1.
Ráöning síðustu gátu: —
S T Ó L L
Orðuveiting
Hinn 27. janúar 1955 sæmdi for-
seti Is’.ands Pál V. G. Kolka, hér-
aðslækni, riddarakrossi fálkaorð-
unnar.
Innanlandsf lug:
1 dag eru áætlaðar flugferðir til
Akureyrar, Blönduóss, Egils-
staða, Flateyrar, Sauðárkróks,
Vestmannaeyja og Þingeyrar. —
Á morgun eru ráðgerðar flugferð-
ir til Akureyrar, lsafjarðar Sands,
Siglufj. og Vestmannaeyja.
Þetta er einkennileg mynd og falleg — og pessvegna er hún birt
hér í dag. Hún mun hafa veriö á Ijósmyndasýningu 1949, en pví
miður vitum vér ekki hver hefur tekiö hana, en vildum gjarnan
fá aö vita paö.
hóíninni
Eimskip
Brúarfoss fór frá Huli í gær á-
leiðis til Rvíkur. Dettifoss er í R-
vík. Fjallfoss er í Rvík. Goðafoss
fór frá N.Y. 9. þm áleiðis til R-
vikur. Gullfoss er í Rvik. Lagar-.
foss er í Rvik. Reykjiafoss er í
Rvík. Selfoss fór frá Isafirði í
fyrradag til Dalvikur, Akureyrar,
Norðfjarðar, Eskifjarðar, Fá-
skrúðsfjarðar, og þaðan til Hull,
Rotterdam og Bremen. Tröllafoss
er í Rvík. Tungufoss er í Rvik.
Katla er í Rvik.
Sambandsskip
Hvassafell er á Akureyri. Arnar-
fell er í Santos. Jökulfell er í
Kef'.avík. Litlafell er í olíuflutn-
ingum. Helga.fell er í Rvik. Bes
fór frá Gdynia 9. þm. áleiðis til
Islands. Fuglen fór frá Gdynia 9.
þm áleiðis til Islands.
Bæjartogárarnir
Ingólfur Arnarson kom af veiðum
í gærmorgun. Engihn an-nar tog-
ari Bæjarútgerðarinnar var hér í
höfninni í gær; og skrifstofa henn-
ar vissi ekki til þess að neinn
væri væntanlegur inn í dag.
Krossgáta nr. 580
Lárétt: 1 mánuður 7 tilvísunar-
fornafn 8 i leikriti eftir Ibsen 9
þrír eins 11 hvíldust 12 ármynni
14 skst 15 kjötmeti 17 ekki 18 já-
yrði (þgf) 20 rollur.
Lóðrétt: 1 för 2 r 3 skst 4 sér-
hljóðar '5 örlitið 6 gorta 10
stunda veiðar 13 glugga 15 dvöl
16 glöð 17 tóntegund 19 sérhlj.
Lausn á nr. 579
Lárétt: 1 spjör 4 lá 5 at 7 end 9
fin 10 óar 11 not 13 AP 15 na
16 álfta.
Lóðrétt: 1 sá 2 Jón 3 ra 4 lifna
6 torfa 7 enn 8 dót 12 orf 14 Pá
15 na.
Frá húsmæðradeild MlR
Konur munið kaffikvöldið á Há-
teigsveg 30. klukkan 9.
Gen^isskráning:
Kaupgengi
1 sterlingspund ... 45,55 kr
1 Bandaríkjadollar .. 16,26 —
1 Kanadadollar .... 16,26 —
100 danskar krónur .... 235,50 —
L00 norskar krónur .... 227,75 —
100 sænskar krónur .... 314.45 —
100 finnsk mörk ....
i.OOO franskir frankar .. 46,48 —
100 belgískir franliar .. 32,65 —
100 svissneskir frankar 873,30 —
100 gyllini .......... 429,70 —
100 tékkneskar krónur 225,72 —
100 vestur-þýzk mörk .. 387.40 —
1000 lírur ............. 26,04 —
Gengisskráning (sölugengi)
1 sterlingspund ............ 45.70
1 bandarískur dollar .... 16.32
1 Kanada-dollar ............ 16.90
100 danskar krónur ........ 236.30
100 norskar krónur ........ 228.50
100 sænskar krónur .........315.50
100 finnsk mörk ............. 7.09
1000 franskir frankar..... 46.63
100 belgískir frankar .... 32.75
100 svissneskir frankar .. 374.50
100 gyllini ............... 431.10
100 tékkneskar krónur .... 226.67
100 vesturþýzk mörk ...... 388.70
1000 lírur ................. 26.12