Þjóðviljinn - 15.02.1955, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 15. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Er ekki liægt að greiða sjóinöiiiiiain rétt verð?
r
SIF játar að mjög stórfelld
hækkun hafi orðið á saltfiski
SkaSabœtur til ítaliu nema svipaSrí upphœS og þeirri
sem reynt er oð ræna af sjómönnum í Eyjum
Eins ocf Þjóðviljinn heíur áður skýrt írá hefur
stjórn Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda nú
játað að hafa greitt 37.000 sterlingspund — eða
tæpar tvær milljónir króna — sem s’kaðabætur til
ítalíu vegna þess að ekki voru nægar fiskbirgðir
upp í fyrirframsölu.
Skaðabætur þessar rökstyður stjórn SÍF með því
að saltfiskur hafi nú hækkað svo stórlega í verði að
það hafi borgað sig befur að greiða skaðbæfumar
en að afhenda fmk af bessa árs framleiðslu.
herzlu á að halda því fram að
Hálfdán Bjarnason hafi ekki
fengið einn eyri af skaðabót-
unum, þær hafi allar runnið
til ítalskra fiskkaupmanna. All-
ir þeir sem eitthvað eru kunn-
ugir þessum málum vita þó að
Hálfdán Bjarnason — umboðs-
maður SÍF — er einn af helztu
hluthöfunum í samtökum
ítalskra fiskkaupmanna, en
auðvitað er hlutdeild hans
leppuð. Auk þess er Hálfdán
einn af meðeigendunum í kunn-
um ítölskum smásöluhring,
þannig að hann er þrefaldur
milliliður! Enda gaf Tíminn,
málgagn utanríkisráðherrans,
greinilega í skyn fyrir nokkr-
um dögum ,,að fyrirtækið, sem
fékk skaðabætumar, sé eign
Hálfdáns og ef til vill nokkurra
j annarra, er standa enn nær
! SÍF".
Arshátíð
Dagsbrúnar
Verkamannaf'élagið Dagsbrún
heldur árshátíð sína í Iðnó á
laugardaginn kemur. Undirbún-
ingi árshátíðarinnar mun nú
langt komið, en þó ekki endan-
lega gengið frá öllum atriðum
dagskrárinnar.
Nýtt met í lang-
stökkián atrennu
Á innanhússmóti ÍR í frjálsum
iþróttum s.l. sunnudag setti
Guðmundur Valdimarsson KR
nýtt ísl. met í langstökki án
atrennu, stökk 3,23 m. í kúlu-
varpi sigraði Aðalsteinn Krist-
insson Á, varpaði 12,77 m, há-
stökk án atrennu vann Vil-
hjálmur Ólafsson ÍR, stökk 1,40
m og hann vann einnig þrístökk
án atrennu, stökk 9,38 m. —
Nánar verður sagt frá mótinu
á íþróttasíðu. á morgun.
Stjórn SlF kemst þannig að
orði um þetta atriði í yfirlýs-
ingu sinni: „Kaupendur að
þessum cá. 4.000 smálestum,
sem óafhentar voru um áramót,
voru 20 ítalskir fiskkaupendur,
og var svo um samið, að SÍF
átti völ á því, hvort heldur það
vildi afhenda fisk eftir ára-
mótin af þessa árs framleiðslu
upp í það sem á vantaði og
greiða engar skaðabætur, eða
að greiða fyrirfram ákveðna
upphæð miðað við hverja smá-
lest sem ekki yrði afhent. —
SÍF valdi síðari leiðina, af þeirri
einföldu ástæðu að fiskverð
hafði hækkað það mikið, að yf-
irverð það sem náðist með nýrri
sölu var stórum meira en
skaðabætur þær sem um var
samið."
Skaðabótunum rænt
af sjómönnum.
Það eru vissulega athyglis-
verðar fréttir að saltfiskverð á
Italíu hafi batnað svo mjög að
hækkunin á 4000 smálestum
nemi „stórum meira“ en tveim
milljónum króna. Og þetta er
eldd sízt athyglisvert fyrir
sjómenn í Vestmannaeyjum.
Frá Vestmannaeyjum kemur
mjög verulegur liluti af salt-
fiskframleiðslu landsmanna; á
síðasta ári nam heildarmagnið
þaðan 6012 smálestum. Sam-
kvæmt upplýsingum stjórnar
SÍF nemur verðhækkunin á því
magni „stórum meira'* en
þremur milljónum króna. Á
sama tíma og þessir atburðir
gerast eru útgerðarmenn svo
að reyna að ræna af. sjómönn-
um rétt fiskverð, en útreikn-
ingar sýna að sú upphæð sem á
milli ber nemur tæpiun tveimur
milljónmn króna — sömu upp-
hæð og skaðabæturnar til
ítalíu! Og það er miklu lægri
upphæð en verðhækkun sú sem
orðið hefur á einum saman
saltfiski þeim sem fluttur er
frá Vestmannaeyjum til Italíu!
Jafngildir 25 aura
hækkun á kíló.
Enda þótt aðeins sé reiknað
með því að sú verðhækkun
sem SÍF fær á 4000 smálestir
nemi tveimur milljónum króna,
samsvarar það 50 aura hækk-
un á hvert kíló af saltfiski. Það
jafngildir aftur 25 aura hækk-
un á hvert kíló af fiski eins og
hann kemur upp úr sjó. Til
þess að sjómenn fái rétt verð
fyrir aflahlut sinn, þarf hins
vegar aðeins að hækka verðið
til þeirra um 16 aura á hvert
kíló, og sú krafa nær aðeins til
40% af aflanum. Sýnir þetta
dæmi mætavel hve ósvífni at-
vinnurekenda er fullkomin,
þegar þeir halda því fram að
afkoma þeirra þoli ekki heiðar-
leg viðskipti við sjómenn. Að-
eins þessi nýja verðhækkun á
saltfiski gerir langtum meira
en að vega upp hinar réttmætu
kröfur sjómanna.
Vitnisburður Tímans.
Stjórn SÍF leggur mikla á-
Þorrablét stúdenta á laugardag
Stúdentafélag Reykjavíkur hefur nú í vetur sem endra-
nær haldiö uppi öflugu félagslífi til menningar- og yndis-
auka fyrir stúdenta.
Sú nýbreytni mun nú tekin
upp, að félagið efnir nú til
virðulegt hófs í Sjálfstæðishús-
inu n.k. laugardag, sem hefjast
mun kl. 19,00 til þess að blóta
Þorra.
Mun gestum þar búin hin
bezta gleði með alíslenzkum
mat eins og sæmir á slíkum há-
tíðum, svo sem hangikjöti, kæst-
um hákarli, súrsuðum hrútspung-
um, svo að eitthvað af góðgæt-
inu sé. nefnt. Auk þess verða
skemmtiatriði auk almenns söngs,
sem stjórnað verður af Magnúsi
Ágústssyni, lækni í Hveragerði.
Séra Sigurður Einarsson í Holti
flytur ræðu, Þorsteinn Hannes-
son, óperusöngvari, syngur o. fl.
Er vonandi, að sem flestir
eldri félagar í Stúdentafélaginu
láti sjá sig á blótinu, og í því
skyni verða áskriftalistar liggj-
andi frammi hjá Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar til
fimmtudags.
Þá er í ráði að umræðufundur
um efnahagsmál verði haldinn í
byrjun marz, en um þann fund
verður síðar getið í blöðunum.
Böðvar Steinþórs'son:
Enn um deilu mczt- og fram-
reiðslumanna við kaupskipin
Vegna ummæla Morgunblaðs-
ins 13. febr. s.l., þar sem rætt
er um deilu mat- og fram-
reiðslumanna, og hinn langa
samningafund sem lauk kl. 4
aðfaranótt s.l. laugardags, eftir
að hafa staðið yfir í 35 klst.,
vil ég að gefnu tilefni leyfa
mér að taka þetta fram:
Mánudaginn 7. febr. kl. 17,00
hófst samningafundur hjá
sáttasemjara, stóð hann yfir
allt kvöldið og lauk kl. 9. á
þriðjudagsmorgun. Þegar þeim
fundi lauk var útgerðunum
fullljóst, að krafa okkar um
tryggða 30 klst. yfirvinnu á
mánuði var ófrávíkjanleg, að
öðrum kosti kæmum við með
kröfu um frekari grunnkaups-
hækkanir. Var þetta atriði all-
mikið rætt umrædda nótt, og
slitnaði af þeiin ástæðum, og
af þeim ástæðum einum upp úr
umleitununum á þriðjudags-
morgun, eftir að sá fundur
hafði staðið yfir í 16 klst.
Eins og séð verður, var út-
gerðunum og ríkissáttasemjara
vel ljóst hvemig samningaum-
leitanir stæðu, en þrátt fyrir
það fóru útgerðirnar ekki að
ræða þetta atriði fyrr en eftir
miðnætti s.l. föstudagskvöld, og
voru þá liðnar 30 klst. og meir
síðan fundur sá hófst.
Um þá kröfu okkar að
tryggður skuli ákveðinn fjöldi
eftirvinnustunda á mánuði er
til fordæmi í öðrum samningi
er sömu útgerðir hafa gjört við
stéttarfélag sjómanna, og hafa
engin rök komið fram sem
hniga í þá átt að krafan sé ó-
eðlileg, enda hvað okkur við-
kemur, er hugmyndin að þess-
ari kröfu runnin frá rifjum
útgerðanna.
Útgerðunum var það eins og
fram kemur hér að framan,
fullljóst s.l. þriðjudagsmorgun,
að ef þeir gengju ekki að þess-
ari kröfu okkar, myndum við
gera frekari kröfu um grunn-
kaupshækkun. — Það að upp
úr slitnaði aðafaranótt laugar-
dags, eftir 35 klst. samninga-
fund, stafar eins og svo oft
áður af því hve ósamningslipr-
ar útgerðirnar eru, og hafa ver-
ið í deilu þessari. Um samn-
ingslipurð okkar vil ég taka
fram, að hún hefur komið bezt
fram í því, hve drengilega, ef
ekki of drengilega við höfum
breytt okkar upprunalegu
kröfum, og þrátt fyrir það höf-
um við ekki mætt tilsvarandi
drengskap af hálfu útgerðanna.
í niðurlagi greinar Morgun-
blaðsins 13. febr. s.l. er talað
um að samningafundir hafi
einkennzt af því að fulltrúar
matreiðslu- og framreiðslu-
manna séu gjörsamlega óreynd—
ir í slíkum samningsgjörðum.
— Þá hefur maður það. :—
f samninganefnd hafa starf-
að ásamt mér margir ungir
menn sem að vísu hafa ekki
áður starfað að samningsgjörð-
um við þessa vinnuveitendur,
en sumir þeirra hafa þó áður
starfað að samningsgjörðum
við vinnuveitendur, sú reynsla
sem þeir bjuggu yfir áður en
þessi deila hófst, og viðbótar-
reynsla sem fengizt hefur í
deilu þessari spáir góðu um þá
viðreisnarför sem yfir stendur
innan S. M. F. Vísa ég því þess-
um aðdróttunum til föðurhús-
anna, og sömuleiðis vísa ég til
föðurhúsanna þeim aðdróttun-
um að samninganefndin hafi
ekki farið eftir ráðum reynd-
ari og gætnari manna eins og
forseta A. S. í. Hannibals Valdi-
marssonar eða að starfsmaður
A. S. f. Snorri Jónsson hafi
í deilu þessari valdið okkur
tjóni.
Um deilu þessa að öðru leytí
vitna ég til fyrri greinar minn-
ar um þetta efni, en sú grein
var send öllum 5 dagblöðum
Reykjavíkur, þó aðeins 2 sæju
sér fært að birta hana.
Með beztu kveðjum.
Reykjavík, 14. febr. 1955.
Böðvar Steinþórsson.
UTSALAN
stendur aðeins í
fáa daga enn:
Miklll afsláltur
aí nylonsokkum. kven-
undirfatnaði, telpu-
kjólum, kuldafatnaði á
böm o. fl. o. íl.