Þjóðviljinn - 15.02.1955, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 15.02.1955, Blaðsíða 4
$) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 15. febrúar 1955 Enn um Rómarsýninguna „Fyrir nokkrum dögum barst Þjóðviíjanum grein frá •Jóni Þorleifssyni listmálara undir fyrirsögninni: „Er ekki hægt að segja satt, herra Magnús Árnason?“ Fer hún hér á eftir ásamt yfirlýsingu frá Svavari Guðnasyni, for- manni fslandsdeildar Nor- ræna listbandalagsins, þar sem rakið er hvor þeirra Magnúsar og Jóns fer með rétt mál. Magnús Á. Árnason mynd- fcöggvari og málari, félagi í Fé- lagi íslenzkra myndlistar- Hianna, ritar í Þjóðviljann um Hómarsýninguna, þar sem imjög er hallað réttu máii um veigamikil atriði og ég tel mér skylt að leiðrétta. Hin dólgs- iegu ummæli Magnúsar um hið kurteislega og virðulega þréf Ásgríms Jónssonar • sýna betur en flest er ég hef lesið j þessum deilum hve vonlaust er að fela flagð undir fögru skinni. Magnús Árnason leyfir sér að fuilyrða, og er það aðaler- ándi hans í blaðið að koma þeim fullyrðingum sínum á íramfæri, að Rómarsýningin sé ekki yfirlitssýning, og þyk- ist þar með hafa slegið öll rök úr höndum þeirra sem deilt ”hafa á F.Í.M. Þessi úmmæli ‘ín feitletrar hann og vitnar j stjórn F.Í.M., sem vitanlega kunni ekki að skrökva, „sem sagt engin skilyrði“ eru hans síðustu orð. Nú skulum við 'bera þetta saman við sannleik- snn í mólinu. Boð ítölsku ríkisstjórnarinn- sr um samnorræna listsýningu j Rómarborg barst aðalstjórn norræna listbandalagsins í Stokkhólmi, og var þegar í Stað afgreitt til stjórna nor- ræna bandalagsins í öllum löndunum. Stjórn F.Í.M. svar- aði þessu boði með bréfi dags. 22, júní 1954 fyrir hönd ís- lands játandi og var þá strax 'upplýst að stjórn FÍ.M. skip- uðu Svavar Guðnason, form., Hjörleifur Sigurðsson, ritari, Valtýr Pétursson, gjaldkeri, en í sýningarnefnd fyrir nefnda sýningu Ásmundur Sveinsson, Gunnlaugur Scheving, Svavar Guðnason, Þorvaldur Skúlason. Menn veiti því athygli að þá þegar er jafnvel sýningarnefnd- in tilbúin, og þá væri kannski ekki vandasámt að finna skýr- dnguna á því, að skrif þeirra F.Í.M.-manna um væntanlega 'þátttöku annarra félaga í sýn- ángarnefndinni, hafa ekki verið sérlega sannfærandi. Svar Norðurlandanna var afhent jtölsku ríkisstjórninni í byrjun júlí af sendiherrum Danmerk- ur, Finnlands, Noregs og Sví- þjóðar. Á sameiginlegum fundi allra Norðurlandanna í Róm dagana 17.—21. september 1954, þar sem listmálarinn Valtýr Pét- ursson var mættur fyrir ís- lands hönd, var samþykkt að sýningin í Róm skyldi ná yfir list frá 1910 til þessa dags. Þetta sem hér er sagt er tekið úr fundargerð, sem mér hefur borizt í hendur og getur hver sem vill leitað sér upplýsinga um, ef hann æskir þess. Undir þessa fundargerð ritar Valtýr Pétursson án athugasemda, svo þetta er að sjálfsögðu jafnbind- andi fyrir ísland og hin Norð- urlöndin, að svo miklu leyti sem Valtýr Pétursson kann að hafa haft umboð fyrir íslands hönd. Sé brotið út af þessum fyrirmælum er það um leið alvarlegt brot gegn norræna listbandalaginu og ákvörðun- um þess. Magnús Á. Árnason segir orðrétt í Þjóðviljanum í gær: „Það er hvergi tekið fram í fcoði itöísku stjórnarinnar, að sýningin eigi að vera yfirlits,- sýning yfir síðustu 50 ár, eða 100 ár, eða neina aðra' tölu, sem sagt engin skilyrði sett‘‘. Eg mundi harma þessa van- þekkingu M. Á. Á. ef ekki væri • augljóst meðal annars af ó- sæmilegum ummælum hans um Ásgrím Jónsson, að hann skrifar grein sina einungis í blekkingarskyni. Hann segir meðal annars að Stokkhólms- sýningin hafi kostað F.I.M. j 50.000 kr. þó að stjórn F.Í.M. hafi upplýst í bréfi til ríkis- j stjórnarinnar að hún kostaði j rúmlega helming þeirrar upp- j hæðar, og ekki er verið að geta j þess til málsbóta þeim vonda j manni Ásgrími Jónssyni, að i þegar hann og félagar hans i hurfu úr F.Í.M. skildu þeir i eftir í höndum F.Í.M. allar i ( eignir, t. d. Listamannaskál- i ann algerlega skuldlausan. 10. febr. 1955. r Jón Þorleifsson. i . • t i i Vegna ritdeilu milli Magn- i úsar Á. Árnasonar, málara, og i Jóns Þorleifssonar, málara, um | tilhögun norrænnar listsýning- i ar í Rómaborg, vil ég leyfa j mér að taka þetta fram: r I I opinberum skjölum til mín, j sem íslenzks umboðsmanns j þessarar sýningar, er hvergi j miðað við ártal né takmörk ! sett um aldur listaverka. í j boðsbréfi ítalska kennslumála- j ráðuneytisins er enginn stafur j í þá átt. í samningi þeim, sem i gerður hefur verið um sýning- i una milli ítalska kennslumála- i ráðuneytisins og borgarstjóm- j ar Rómaborgar annars vegar i i og Norræna Listbandalagsins j hins vegar, er engin skilgrein- j ■ ing gerð á væntanlegu inni- j haldi sýningarinnar, þaðan af j síður, að þar sé miðað við ár. j Norræna Listbandalagið hef- j ur hins vegar á fundi sínum j í Rómaborg frá 17.—21. sept. i 1 'if Vil kaupa blekkþvingur Upplýsingar í síma 81709 1954 látið bóka eftirfarandi grein um samsetningu sýning- arinnar: „Sýningarefni var einróma ákveðið og skyldi það ná yfir tímabilið frá því er nútímalist er almennt viðurkennd á Norð- urlöndum og til þessa dags“. (Þýðing Jóns Magnússonar, dómtúlks). í þessari samþykkt Norræna Listbandalagsins er ekki held- ur miðað við sérstakt ártal, enda hefur það ekki borið upp á sama ár í hverju hinna nor- rænu landa fyrir sig, að nú- tímalist hafi náð almennri við- urkenningu. Með því að ég er ábyrgur gagnvart Norræna Listbanda- laginu sem formaður hinnar íslenzku deildar þess, tel ég mig ekki varða það, sem kann að vera ritað af öðrum aðiljum og á öðrum vettvangi, t. d. í fréttagreinum til dagblaða, um tilhögun sýningarinnar. Reykjavík; 14. febrúar 1955. Svavar Guðnason (formaður Félags ísl. mynd- listarmánna). Að spara eða ekki spara — Fólk orðið vant óábyrgu biaðri — Burt með spekúlantana! K SENDIR Bæjarpóstinum þessar hugleiðingar; „Nýlega er hafin mikil herferð til að kenna skólabörnum sparnað, og hefur ekkert verið til spar- að að brýna fyrir þeim gagn- semi þess að láta aura sína og krónur í banka og geyma þá þar. Og á undanförnum ár- um hefur varla nokkur ráð- herra haldið ræðu án þess að leggja áherzlu á nauðsj'n sparifjármyndunar eins og þeir orða það á hátíðlegu máli. Svo kemur forsætisráðherra landsins um áramótin og hót- ar því að ríkisstjórn hans ætli að lsekka gengið, ef verkamenri knýja fram launa- hækkun sem þeim er brýn nauðsyn til að vega á móti sívaxanai dýrtíð. Þótt venjulegt fólk skilji ekki mikið í fjármálaaðferðum valdhafanna, þá er það þó af beizkri reynslu komið inn í vitund manna að hótun Ólafs Thórs um gengislækkun jafn_ gildir hótun um að stela ríf- legum hluta af því sem menn hafa sparað sér saman, klipið af naumum tekjum til að verja í einhverjum ákveðnum tilgangi. Ef Ólafur Thórs væri almennt tekinn alvarlega, hefði orðið mikið að gera í bönkum og sparisjóðum dagana eftir ný- árið. Óttaslegið fólk hefði svarað hótun hans þúsundum saman með því að taka spari- fé sitt út úr bönkunum og ráðstafa því í varanlegri verð- mæti, koma því undan þjófn- aðarhótun forsætisráðherrans. Að þetta hefur enn ekki gerzt, til stórtruflunar öllu fjár- hagslífi þjóðarinnar, er ein- Framhald á 11. síðu. FEIDIIR OPNAR í DAG NÝJA DEILD að Laugavegi 116. III. hœð. FYRIR KJÓLA OG DRAGTIR Nýff úrval ai amerískum KJÓLUM á aðeins kr. 395.00. Nýtf úrval aí þýzkum kjólum Nýtt úrval aí enskum og frönskum DRÖGTUM FeNur h.f LAUGAVEGI 116. rt r*~, ia:o

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.