Þjóðviljinn - 15.02.1955, Side 7

Þjóðviljinn - 15.02.1955, Side 7
Þriðjudagrir 15. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 r L i DAGSBRVNARVERKAMAÐUR SKRIFAR OPIÐ BREF til dr. Benjamíns Eiríkssonar Lögmál kaupgjalds, vöruverðs og gróða Frá hagfræðilegu sjónarmiði eru heildartekjur þjóðarinnar á ári hverju ákveðin stærð, sem breytist ekki þó hinar ýmsu stéttir skipti þeim innbyrðis á milli sín. Eh samkvæmt skýrsl- um fara heildartekjur þjóðar- innar vaxandi ár frá ári. Nú eru heildartekjur þjóðarinnar 2680 milljónir króna eða um 87 þúsundir á hverja fimm manna fjölskyldu í landinu. Árið 1939 voru heildartekjur þjóðarinnar 155 milljónir. Þó fjárfesting sé þarna með, má ekki gleyma því, að þegar t. d. hús er reist, þá er allur sá lcostnaður, sem fer til lífsupp- eldis þeirra manna, er unnu við húsið, reiknaður með. Þannig sér fjárfestingin einnig fyrir lífsuppeldi þeirra manna, sem vinna að fjárfestingu. Þetta er nauðsynlegt að taka til greina ásamt fleiru. Og á þessu má m. a. sjá hversu þjóðartekj- nnum er illa skipt. Dagsbrunarverkamaður með lægsta kauptaxta hefur um 32 þúsund krónur í árskaup. Starfsmaður hjá rikinu í lág- launaflokki, til dæmis bréfberi, hefur 33 þúsund krónur árs- kaup. En þér? Hvað hafið þér, herra doktor? Hafið þér ekki 100 þúsund krónur í árskaup? En kálið er ekki sopið þó í ausiína sé komið. Skattalög- gjöfinni er verið að koma í það horf, að skattarnir eru að- allega teknir í vörutollum. Nú hafa heildsalar og kaupmenn Tirósentur af vörusölunni. Þetta þýðir þá, að eftir því sem vörutollar verða hærri því meira rennur í vasa heildsala og kaupmanna. Hinir háu toll- ar og skattar, sem lagðir eru á vörurnar auka gróða heild- sala og kaupmanna. Sem dæmi urn það hversu vörutollarnir eru háir má geta þess að tekjuafgangur ríkissjóðs er um 100 milljón kr. á ári. Og þar sem heildartekjur þjóðarinnar á ári hverju er ákveðin stærð, þýðir þetta það, að straumur peninganna til auðmanna og ríkisvaldsins veldur kauprýrn- tin hjá meginhluta þjóðarinn- ar. Þér vitið það vel, að vséri eðlileg þróun í þessum málum ei*s og nú standa sakir, ætti vöruverð að lækka í hlutfalli við aukna vöruframleiðslu vegna aukinnar tækni, að kaup ætti að hækka í hlutfalli við auknar þjóðartekjur, einnig ætti gengi íslenzku krónunnar að hækka vegna þessarar öru og jákvæðu þróunar, sem ekki hefur verið hægt að stöðva þó reynt hafi verið. En þetta lög- mál reynið þér að falsa með skrifum yðar. Og- Jivað hefur verið gert? Vöruverð hefur verið hækkað í hlutfalli við aukna framleiðslu. Kaup hefur verið lækkað í hlutfalli við auknar þjóðartekjur og gengi íslenzku krónunnar lækkað stórlega. Gengið var lækkað samkvæmt samningi við Bandarikin. En slíka samninga á að brjóta vegna þess að þeir eru ruddalegir og siðlausir. Hversu miklar verða þá tekj- 'ur auðmannastéttarinnar fyrst þessu er þannig farið? Egf er bara blók! Eg þekki starfsmann hjá heildsala, sem hefur 48 þús- und krónur í árslaun. Þessar tekjur gefur hann upp til skatts. Þar að auki hefur þessi sami maður nokkur erlend um- boð upp á eigin spýtur. Með Fjórdi hluti þessu aukastarfi hefur kaup hans yfir árið verið að jafnaði um 250 þúsund krónur. Eg spurði hann eitt sinn hvort honum þætti þetta ekki nokk- uð hátt kaup, en hann svaraði: í samanburði við almennilega heildsala er þetta ekki neitt. Eg er bara blók! Það eru blæk- ur, sem hafa ekki nema 250 þúsund krónur í árskaup. En hvað ætti að kalla yður, sem ekki eruð eini sinni hálfdrætt- ingur? Fyrst að blók hjá heild- sala getur krækt sér í 250 þúsund krónur árskaup með nokkrum erlendum umboðum, hvað skyldi þá gróði sjálfra heildsalanna vera? Kaupg j aldsbarátta Kaupgjaldsbaráttan helgast af þessu fyrirkomulagi eða lög- málum, sem hér hefur verið lýst. Það er ekki jafnvægi í fjárfestingu, sem vantar til þess að koma þessum málum í viðunandi horf. Það mætti fremur orða þetta þannig að það vantaði jafnvægi í það, hvernig heildartekjum þjóðar- innar, þessum 2680 milljónum króna, er varið, og hverja hlut- deild hinar ýmsu stéttir hafa í þjóðartekjunum. Gróði Atvinnutæki, sem liggur ó- notað, til dæmis togari sem er bundinn við bryggju, er þjóð- félaginu ekki meira virði en steinn á hafsbotni. Til þess að atvinnutæki- skapi cauð þarf verkafólk til að starfrækja það. Það er því verkalýðurinn, sem skapar hið þjóðfélagslega . auðmagn, hið þjóðfélagslega verðmæti og gróða auðmann- anna. Hið þjóðfélagslega verðmæti, sem fiskisjómaðurinn skapar, er ekkert smáræði. Meðalafli á hvern íslenzkan fiskisjómann eru 70 tonn af fiski á ári. Eng- inn einstakur sjómaður í heim- inum jafnast á við íslenzkan sjómann hvað aflabrögð snert- ir, Næstur íslenzka fiskisjó- manninum er sá norski með 10 tonn af fiski. Hér er ekki mið- að við fólksfjölda heldur sjó- mann á móti sjómanni. Á tog- araflotanum er meðalafli á hvern einstakan sjómann 150 til 240 tonn af fiski á ári. Og svo á að telja íslenzku þjóðinni trú um það, að útgerðin borgi sig ekki. Þegar verkamaður fær laun- in sín er honum borgað af pen- ingum sem greiddir voru fyrir löngu, af löngu seldum vörum. M. ö. o.: augmaðurinn borgar verkamanninum með hluta af peningagróðanum. En gróði er sá ágóði, sem rennur í vasa auðmannsins eftir að hann er búinn að borga allan kostnað við að framleiða vöruna, svo sem lífsuppeldi þeirra, sem vinna við að framleiða vöruna, og sitt eigið. Vöruhækkanir stafa því aldrei af vinnulaun- um verkamanna. Hins vegar hækka vörur oft af ýmsum öðrum ástæðum eins og þegar hefur verið sýnt fram á ann- ars staðar í bréfinu. En hækk- að vöruverð er sama og kaup- lækkun. Saga vísitölunnar sannar þetta líka. Vöruverðið hækkar fyrst. Þá stígur vísi- talan. En vísitalan gefur til kynna að kaup eigi að hækka. Þér látið falsa vísitöluna af ótta við að hún geti smám sam- an opnað augu almennings fyr- ir því, hvert peningastraumur- inn, megnið af heildartekjum þjóðarinnar, fer, og hver sé or- sök dýrtíðarinnar. Lækkað vöruverð Nú hafa ýmsir smáborgarar reynt að koma því inn hjá al- menningi að verkalýðsfélögin ættu fyrst og fremst að berjast fyrir lækkuðu vöruverði. Þessi afstaða sýnir ekki annað en það hversu fákunnandi smá- borgararnir eru í hagfræði óg þjóðfélagsfræði. Enda er það staðreynd að smáborgaralegir menntamenn hafa aldrei í sög- unni getað leyst nein pólitísk vandamál. Verkalýðsflokkamir verða að hafa hlutdeild í rík- isstjórninni til þess að geta tryggt það að vöruverðið hækki ekki. Það þýðir ekki að gera neina samninga við auðvalds- flokka um lækkað vöruverð. Allt slíkt í þá átt verða tóm svik. En það eru þessir sömu smáborgarar, sem alltaf eru að kjósa fulltrúa auðmannastétt- arinnar á þing eða kljúfa verkalýðsflokkana með fáfræði sinni og vankunnáttu. Hver er reynsla verkamanna um lækkað vöruverð? Við skul- um athuga landbúnaðarvörurn- ar. Landbúnaðarvörurnar í heild halda stöðugt áfram áð hækka,. þó bóndinn, framleið- andinn njóti ekki góðs af þeirri hækkun. í staðinn fyrir að íækka landbúnaðarvörurnar . n 1 Framhald Ú -10; síðu* Danir varöveita vandlega alla pá muni sem Thorvaldsen hefur átt. Hér er Sigurd Schultz, vörður Thorvaldsens- safnsins, að horfa á hatt meistarans. Það má sjá að Thorvcddsen hefur verið höfuðstór, en hatturinn hefur víða flœkzt; var m.a. geymdur um tíma í Ameríku. Hvers eigcx tóniist og leiklist oð gjalda? Hugleiðingar um úthlutun listamannalauna Nefnd sú sem úthlutar laun- menntaviðleitni þjóðarinnar, um til listamanna hefur fyrir verðlauna meðalmennskuna og nokkru lokið störfum og skýrt lágkúruskapinn. frá niðurstöðum sínum. Hefur Þá vekur það ekki minni verið næsta hljótt um þau verk, furðu hvernig nefndin skiptir og mun það þó ekki stafa af laununum á milli listgreinanna. því að úthlutunin hafi vakið al- Hér áður tiðkaðist það að hver menna ánægju, heldur af hinu listgrein var flokkuð fyrir sig, að hún hjakkar í sama farinu bókmenntir, tónlist, myndlist ár eftir ár, og fólk er orðið vant og leiklist. En fyrir nokkrum ósómanum og telur vonlaust að árum var greinunum steypt þremenningarnir sem við verkið saman, og var tilgangurinn fást taki nokkrum sönsum. með því sá að nú skyldi laun- Vakin hefur verið athygli á því um úthlutað til manna eftir að nefndin gengur ár eftir ár afrekum þeirra án tillits til fram hjá einum ágætasta rit- þess hverja listgrein þeir stund- höfundi þjóðarinnar, Halldóri uðu. Raunin hefur þó orðið sú Stefánssyni, og vekur það þeim að allt situr við það sama, hlut- mun fleiri furðu sem margir föllin milli listgreinanna hald- eru nú kallaðir úr hópi „skálda ast rnikið til óbreytt. Á síðustu og rithöfunda". Hefur það að sex árum hafa 49—54% af undanförnu verið haft til heildarupphæðinni runnið til dægrastyttingar í hópi bók- bókmennta; 30—37% til mynd- fróðra manna að kanna hverjir listar; 8—10% til tónlistar og kynnu skil á öllum þeim sem 3—11% til leiklistar. Enda þótt taldir eru á lista nefndarinn- bókmenntirnar hafi verið og ar og afrekum þeirra, og hafa séu ríkasti þátturinn í list- flestir komizt í þrot, enda sköpun þjóðarinnar, hefur hlut- munu nefndarmenn sjálfir ur þeirra tvímælalaust orðið aldrei hafa heyrt sumra þeirra of hár, oftast á kostnað tónlist- getið fyrr en umsóknir bárust . ar og leiklistar, ekki sízt þeg- frá þeim. Virðist það sjónar- ar tillit er tekið til þeirrar mið nú að fullu glatað að þeir miklu grózku sem einkennt einir hafi unnið til launa sem hefur þær listgreinir á undan- náð hafa listrænum árangri í förnum árum. Hefði þó verið störfum sínum og í annan stað auðvelt að leiðrétta þetta án ungir menn sem líklegir eru þess að það bitnaði í nokkru til nokkurs þroska; það virðist á þeim rithöfundum sem unnið vera ein helzta önn nefndar- hafa til launa; nefndin þurfti manna að peðra launum til rit- aðeins að hverfa frá hinu höfunda sem alla sína ævi hafa furðulega peðringssjónarmiði verið að bröita fyrir neðan sínu. miðjar hlíðar og komast aldrei Athygli nefndarmanná hefur hærra. Með þessu móti verða oft verið vakin á þessu ósam- launin hvofki viðurkenning né ræmi, en þeir eru sem kunn- hvatning til dáða, heldur stuðla ugt er lítið fyrir breytingar ; þau að því að fletja út bók- Franátháld á 10. Síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.