Þjóðviljinn - 01.03.1955, Blaðsíða 6
15) — ÞJÓÐVTLJINN — Þriðjudagur 1. marz 1955
þlÓOVIUINN |
TJtgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7600 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrennl; kr. 17
annars staðar á landlnu. — Lausasöluverð 1 kr. eintaklð.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
___________________________________________________y
Atvinnurekendur! Nú er tækifærið
Verklýðssamtökunum hefur bætzt óvæntur liðsauki í
baráttu sinni fyrir bættum kjörum. Ráðamenn Landssam-
bands íslenzkra útvegsmanna hafa lýst yfir því að þeir
jnuni hætta allri útgerð ef samið verður við alþýðusam-
tökin um hækkað kaup, og hafði þó verklýössamtökun-
um láðst að bera fram þá kröfu viö atvinnurekendur.
Þetta er aðeins aukaglaðningur, og þeim mun ánægju-
legri sem hann kemur á óvart.
Ráðamenn Landssambands íslenzkra útvegsmanna rök-
styðja þetta gleðilega fyrirheit sitt með því að þeir séu
alltaf að tapa. Hefur það ekki heldur farið fram hjá nein-
um hversu sárfátækir menn eins og Sverrir Júlíusson,
Finnbogi í Gerðum, Tryggvi Ófeigsson og Richard Thors
eru, svo að nokkur nöfn séu nefnd, hvernig þeir eigi varla
málungi matar eða bót fyrir sitjandann á sér. Hafa þessir
fórnfúsu fátæklingar horft á það með sívaxandi öfund
hvernig kjör verkafólks hafa batnað ár frá ári — ekki
minna en 1.1% á síðustu tveimur árum — og nú er þeim
öllum lokið þegar framundan eru enn stórfelldari kjara-
bætur. Ekki geta útgerðarmenn þess hvað þeir ætli að
taka sér fyrir hendur, en trúlegt má telja að þeir velji
þann kost sem nærtækastur er og gerist sjómenn, þannig
að þeir fái nú loks að kynnast því af eigin raun hvernig
það er að búa við of hátt kaup. Báta sína og togara af-
henda þeir auðvitað verklýðssamtökunum.
Þess er að vænta að þetta ágæta fordæmi útgerðar-
manna verði öðrum atvinnurekendum til eftirbreytni, og
koma þá fyrst til greina aðrh’ þeir sem hafa tengsl við sjó-
mennsku. Frystihúsaeigendur ættu að lýsa yfir því næst
að þeir muni fella niður störf ef samið veröi við verklýðs-
íélögin, síðan skreiðarframleiðendur og þá herrarnir í
Sölumiðstöö íslenzkra fiskframleiðenda og Hálfdán
Bjarnason á Ítalíu. Þetta ætti að vera þeim mun auð-
\eldara sem sömu mennirnir ganga aftur í öllum þessum
íyrirtækjum, alltaf jafn bágstaddir og sárfátækir. Og
eins og fyrr er sjálfsagt að verklýðssamtökin taki við
þessum stofnunum, svo að hinir of hátt launuðu verka-
menn fái loksins að kynnast alvöru lífsins.
Þessu næst ætti rööin aö koma að eigendum olíuhring-
anna, sem sannarlega safna ekki fé í kistuhandraðann og
eru auk þess neyddir til að selja rússneskar vörur; það
væri vissulega hæfilegt verkefni fyrir kommúnista í verk-
lýðsfélögunum. Þá hafa iðnrekendur aldeilis kunnað að
berja sér á undanförnum árum, og sízt munu þeir hafa
efni á því að taka úr eigin vasa hærra kaup handa starfs-
fólki sínu; skyldi það ekki vera jafn gott aö Björn Bjarna-
son tæki við öllu saman. Og ekki eru þeir menn betur
settir sem brjótast í því að byggja hús yfir Reykvíkinga;
þeir vita manna bezt að verkamenn hafa alltof hátt kaup,
og raunar hefur Morgunblaðið þegar lýst yfir því fyrir
þeirra hönd aö öllum byggingum verði hætt ef samið verði
við verklýðsfélögin. Þá er kominn tími til þess að far-
skipaeigendur hætti því basli að halda skipunum úti —
eftir að þeir eru búnir að semja við matsveina og þjóna
lun 36—39% kauphækkun. Síðast en ekki sízt má minna
ó hina sársnauðu heildsalastétt; nú ætti hún aö sjá sér
leik á borði að afhenda allan innflutninginn alþýðusam-
tökunum og SÍS, þá kæmust tveir illir aðilar í slæma
klípu.
Ef allir atvinnurekendur fylgdu þannig í fótspor út-
gerðarmanna myndi sízt standa á ríkisstjórninni aö
ctyðja þær aðgerðir. Hennar hlutur yröi sá að afhenda
bínum heimtufreka og skammsýna verkalýð bankana og
ri'kissjóð, þannig að hann kynntist af eigin raun hversu
blásnauðar þær stofnanir eru.
Með þessu móti væru vinnudeilurnar miklu einnig leyst-
ar sjálfkrafa og á mjög ákjósanlegan hátt. Verklýðssam-
tökin myndu allt í einu uppgötva að þau væm að semja
við sjálf sig; þau yröu upp á eigin spýtur að skammta
meðlimum sínum kaup og kjör, eins og tíðkast í hinum illu
Sovétríkjum þar sem hlutskipti almennings er þrælahald,
£kortur og ófrelsi. Og þegar svo væri komið gætu atvinnu-
xekendur staöið álengdar og hrósað sigri.
Atvinnurekendur! Er eftir nokkru að bíða?
Stórbrotnasta dagskrárefni
vikunnar var tvímælalaust
leikrit sunnudagskvöldsins,
Lokaðar dyr. Menn hafa látið
í ljós harm sinn yfir því, hve
lítið það hefur verið sótt í
Þjóðleikhúsinu, og sumir undr-
un sína. Harmsefni er það, að
svo mikill og djúpsettur skáld-
skapur, þrunginn dýpstu sann-
indum þeirra örlaga, sem verið
er að reyna að leiða yfir mann-
líf og mannkyn nú á tímum,
skuli ekki vera íslendingum, og
þá fyrst og fremst Reykvik-
ingum eftirsóknarverðari en
aðsókn að Lokuðum dyrum í
Þjóðleikhúsinu ber vitni um.
En undrunarefni er það ekki
þegar á allt er litið, þegar þess
er gætt, að um fjórir fimmtu
hlutar Reykvíkinga finna sig —
ef ekki beint vitað, þá undir-
vitað — ábyrga fyrir því, að ís-
lenzk stjórnarvöld og íslenzk
löggjafarsamkunda eru fyrst
allra stjórnarvalda og allra lög-
gjafarþinga til að hlýða kalli, í
hvert sinn sem nýtt spor á að
stíga í átt til nýrrar heims-
styrjaldar, sem öllum er nú
orðið ljóst að hlýtur að valda
meiri ósköpum í lífi mannanna
en nokkurn mann gat órað fyr-
ir fám árum og sennilegast ger-
eyðingu mannlegs lífs á jörð-
inni. Þrá nútímans er ekki
fyrst og fremst sú að skilja
hlutina og sízt ef sá skilning-
ur veldur sársauka eða flett-
ir ofan af mánns eigin ávirð-
ingum eða gerir mann ábyrgan
fyrir manns eigin gerðum. Til-
hneiging er ríkari til að leita
lífi sínu unaðar í tilgangs--og
úbyrgðarleysi, og kemur sú til-
hneiging einnig í ljós, þar sem
sízt skyldi. Tómleika gagnvart
svona skáldverki er því sízt að
undra.
Wolfgang Borchert
höfundur „Lokaðra dyra“
Þá var laugardagskvöldið
með sitt Brosandi land eftir
Lehar annars eðlis. Gott var að
fá í skýringum með hin snjöllu
orð skáldjöfursins Bernards
Shaws um þá Strauss og Le-
har, þar sem Strauss leiðir
mann að veizluborði allsnægta
matar og drykkjar að hlið eig-
inkonu náungans, en Lehar
bætir því við að koma með
eiginmanninn og láta hann
borga reikninginn. — Þetta er
nokkuð betur við okkar hæfi
en Lokaðar dyr og ástríðan til
slíkra hluta sjálfsagt aldrei al-
mennari en nú eða þeirra meiri
þörf. Slíkra ævintýra sem
Brosandi lands er unun að
njóta. Óperettan var flutt af
frábærum söngvurum, og skýr-
ingar Einars Pálssonar voru
prýðilegar, skýrar og létt yfir
þeim, eins og við átti.
Annars var fremur fátt feitra
drátta í dagskrá vikunnar.
þegar undan er skilið erindi
Sigurðar Þórarinssonar um
Brímavelli og Vesúvíus og
kvöldvakan á fimmtudaginn.
Síðasta erindi Sigurðar fannst
mér jafnvel enn skemmtilegra
en hin fyrri. Er hann verulega
til fyrirmyndar í því að flytja
fræðslu í skemmtiþáttum. —
Ferðaþáttur Hallgríms Jónas-
sonar að Veiðivötnum, efni úr
ýmsum áttum hjá Ævari Kvar
Otvarpið
síðustu viku
an. Kvæði og stökur Svein-
bjarnar Beinteinssonar og lög
eftir ísólf Pálsson var hvert
öðru ágætara sem kvöldvöku-
efni. — Það er eins og Ævari
geti aldrei mistekizt, og Hall-
grímur ætti að koma oftar í
útvarpið en hann gerir.
Þá var þátturinn um náttúr-
lega hluti góður hjá Geir
Gigju. Hann einbeitti sér á
mölinn og gerði þvi fullkomin
skil að fræða okkur um þenn-
an grandara þýðingarmikilla
hluta okkar veraldlegu fjár-
sjóða. — Þátturinn um daginn
og veginn var aftur á móti
verulega ómerkilegur hjá frú
Láru Árnadóttur. Það væri vel
til fallið að fá einhverntíma í
útvarpið einhvern uppeldis-
fræðing okkar með erindi um
sálarlíf barna. Það er þýðing-
armeira atriði að þekkja sál-
arlíf barnsins en svo, að það
megi meðhöndlast á vegum hjá-
trúarinnar. — Það er mjög leið-
inlegt að erindi annarrar konu,
sem einnig kom í útvarpið í
vikunni, erindi Ólafar Jóns-
dóttur frá Lúbeck, var ósköp
bragðdauft. Það var einn
hinna mörgu ferðaþátta frá út-
löndum, sem eru mörg öðru-
vísi en slíkir þættir eiga að
vera. Um þriðju konuna, Rann-
veigu Þorsteinsdóttur, og henn-
ar endalausu hjúskaparmál er
ekkert að segja. Um aðra
fræðsluþætti er það að segja,
að þáttur tannlæknisins var
prýðilegur, og þátturinn um
efnahagsmál var sá skársti,
sem komið hefur til þessa,
enda engir tilburðir til að
leggjast djúpt. —Matti mál-
lausi, sem lesinn var síðkvölds
á miðvikudaginn, var talinn
smásaga, en rís alls ekki undir
því nafni. Hann gæti heitið
frásögn, en leiðinleg og fram
úr hófi ólistræn og ósamboðin
góðum og gegnum sagnaþul,
sem Benjamín Sigvaldason er
óneitanlega.
Ketill Jensson er mjög elsku-
legur söngvari og væri alveg
sérstaklega þakksamlega þeg-
inn í útvarp, ef þekkt íslenzk
lög skipuðu meira rúm á söng-
skránni. Þáttur Róberts Ottós-
sonar, Hljómsveitin og hlust-
andinn, eftir hádegi á sunnu-
daginn er einn af mörgum þátt-
um, er hann flytur um það
efni. Þeir þættir eru mjög
skemmtilegir og sérstaklega
þarflegir fræðsluþættir fyrir
almenning, svo að honum auk-
ist hæfni til að njóta góðrar
hljómlistar.
Nú gafst tækifæri til að
hlusta á mælskulistarkeppni
stúdenta, sem flutt var í end-
urteknu efni á laugardaginn.
Tilhögun keppni þessarar var
meingölluð. Bannorðið var
Siðurður Þórarinsson
asnaskapur, sem eyðilagði
keppnina. í vali þeirra kom
lika fram stórkostlegt misrétti.
Einn á að tala um Njáls-
brennu og má ekki nefna Kára
SólmundafSón, annar á að tala
um loft og sjó og forðast nafn
Bjarna Sæmundssonar. Þá
þótti mér dómur prófessoranna
mjög óréttlátur. Bjarni Guð-
mundsson og Björn Th. Björns-
son þóttu mér bera af sem
skemmtilegir og sniðugir ræðu-
menn.
Árni Böðvarsson verður aldr-
ei nógsamlega prísaður fyrir
það, hve hann tekur fimmmín-
útnaþáttinn sinn föstum tökum
og stefnir honum ákveðið að
því marki að hafa áhrif á dag-
legt mál manna, yfirvegar
gaumgæfilega, hvar þörfin er
mest og hvar frekast megi
vænta árangurs.
G. Ben.
Eiustæð sGHgskemmtun 1
Ópesuarínr, dúetfar og kvarteft.
Guðrún Á. Símonar, Guðrún Þor- j
steinsdóttir’ Þuríður Pálsdóttir.
Einar Sturluson, Guðmundur Jóns-
son, Jón Sigurbjörnsson, Kristinn j
Hallsson, Magnus Jónss’on og Þor- j
steinn Hannesson
syngja í Gamla Bíói í kvöld, 1. marz, kl. 7 síðd. j
Við hljóðfærið Fritz Weisshappel.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar j
Eymundssonar og Bókabúð Lárus’ar Blöndal.