Þjóðviljinn - 10.03.1955, Page 1
★ í Sósíalistafélaginu
★ annaö kvöld. Sjá
•k auglýsingu á
★ anarri síðu. j
Miðstjórn Alþýðusambcinds íslands skorar á alla
andstöðuilokka ihaldslns að heðja við sig
Yiðræður um vinstra samstarf
Verklý&shreyfingin vill gera allf sem i hennar valdi stendur fil að stuSla a&
myndun rikisst]6rnar sem vinnandi stéttir landsins gefi treyst og stutf
r\ (f
Miðstjóm Alþýðusambands íslands samþykkti einróma á fundi sínum 5. þ.m. að
snúa sér til verkalýðsflokkanna, Sósíalistaflokksins og Alþýðuflokksins, svo og til
Framsóknarflokksins og Þjóðvarnarflokksins með tilmælum um að þessir flokkar
tækju upp viðræður við miðstjórn Alþýðusambandsins um möguleika á vinstri sam-
vinnu í landinu. í bréfi sínu til Sósíalistaflokksins lýsir miðstjórn Alþýðusambandsins
yfir því að „verklýðshreyfingin vilji gera allt sem í hennar valdi stendur til að stuðla að
myndun ríkisstjórnar, sem í aðalatriðum marki stefnu sína á pann veg, að vinnandi
stéttir landsins gætu borið til hennar fullt traust og veitt henni stuðning“.
Ð* í<n:i)? Cíinsis w&c í.ecífc'- ir> Síhattro isestóá Cs;íK sas-iCíXU .C
WasiCisitiíTíxstisixs rsíssi i í’: '
Margir helztu leiðtogar mótmœlenda í Vestur-Þýzkalandi
hafa barizt gegn Parísarsamningunum um hervœðingu
landsins og tóku þeir pannig þátt í hinum mikla mót-
mœlafundi, sem haldinn var í Pálskirkju í Frankfurt
ekki aUs fyrir löngu. Þeir gáfu pá út flugrit þar sem her-
vœðingarfyrirœtlanirnar voru fordœmdar og sést forsíða
pess hér á myndinni. >
Eden vill brottflutning frá
Kvimoj og Matsá
Eden, utanríkisráðherra Bretlands, lagöi til í ræðu
sem hann flutti á brezka þinginu í gær, að herlið Taivan-
stjórnar yrði flutt burt frá eyjunum við strendur Kína.
Gengið var frá bréfi til
Framsóknarflokksins þegar 5.
marz sökum þess að miðstjórn-
arfundur Framsóknarflokksins
sat þá að störfum, en ekki hef-
ur enn borizt svar Framsókn-
arflokksins. Sósíalistaflokknum
barst bréf Alþýðusambandsins í
gær, og er það á þessa leið:
„Reykjavík, 6. marz 1955.
Seinasta Alþýðusambands-
þing samþykkti einróma að fela
stjóm Alþýðusambandsins að
vinna með öllum ráðum að upp-
byggingu atvinnulífsins í þrem-
ur landsfjórðungum, þar sem
atvinnuleysi herjar mánuðum
saman.
Sama Alþýðusambandsþing
Áflog á ítalska
|ingiu í gær
( Gert var 'tveggja stunda
hlé á fundi öldungadeildar ít-
alska þingsins í gær. Áflog
urðu í þingsalnum eftir rifrildi
milli eins af þingmönnum
kommúnista og hægrimanns og
tókst ekki að stilla til friðar
fyrr en eftir að fundi hafði
verið slitið og lögregla kvödd
á vettvang.
öldungadeildin var að ræða
Parísarsamningana um hervæð-
ingu Vestur-Þýzkalands.
Vanunaður I
■
■
Ingimars |
Eins og Þjóðviljinn hefur
áður sagt frá mætti séra Ingi-
mar Jónsson ekki á síðasta
miðstjórnarfundi Alþýðu-
flokksins af skiljanlegum á-
stæðum. Var til kvaddur
varamaður; og sá varamaður *
var — Guðjón B. Baldvinsson. j
samþykkti einróma að fela sam-
bandsstjórn að knýja fram þær
kjarabætur, að hægt verði fyrir
meðalfjölskyldu að framfleyfh
sér á sómasamlegan hátt fyrir
tekjur 8-stunda vinnudags.
Nú hefur sjálfur forsætisráð-
herrann boðað, að ef kaupið
hækki kunni því að verða svar-
að með gengislækkun. — Tekið
hefur verið í mál að mæta kröf-
um verkalýðssamtakanna um
bætt kjör að einhverju leyti
með lækkuðu verðlagi. En ljóst
má vera, að það væri einungis
á færi ríkisstjórnarinnar að
gera ráðstafanir til lækkaðs
verðlags. Og ef sú leið væri far-
in, ættu verkalýðssamtökin
það algerlega undir ríkisstjóm-
inni, hvemig framkvæmdin jrrði
á þeim verðlækkunarráðstöfun-
um. En ekkert væri auðveldara
en að gera slikar ráðstafanir
að engu á skömmum tíma með
beinum eða óbeinum stjómar-
aðgerðum.
Þá er það algerlega undir
ríkisstjóm og stefnu hennar
komið, hvert verðgildi íslenzks
gjaldmiðils er og verður á
hverjum tíma.
Enn ber að sama brunni með
aðgerðir til uppbyggingar at-
vinnulífsins. Þær eru aðeins á
valdi ríkisstjómarinnar, og
getur verkalýðshreyfingin lítil
áhrif haft á uppbyggingu at-
vinnulífsins nema hún eigi all
sterk ítök í ríkisstjóminni. —
Málefnalega varðar Alþýðusam-
band íslands því miklu, að
stjómarstefnan sé ávallt vin-
veitt hagsmunum verkalýðsins.
Nú standa sakir sem kunn-
ugt er þannig, að verkalýðs-
samtökin hafa borið fram kröf-
ur sínar, og eru þau mál nú á
samnings stigi. — Nokkrar
stöðvanir hafa orðið á atvinnu-
lífinu á fyrstu tveimur mán-
uðum þessa árs, og allt nú í ó-
vissu um, hvort ekki geti komið
til víðtækra og langvarandi
stöðvana atvinnulífsins.
Með skírskotun til framan-
ritaðs snýr Miðstjórn Alþýðu-
sambands Islands sér nú til i
Sameiningarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins og tjáir hon-
um, að verkalýðshreyfingin
rill gera allt sem í hennar valdi
stendur, til að stuðla að mynd-
un ríkisstjórnar, sem í aðalat-
riðum marlii stefnu sína á þann
veg, að vinnandi stéttir lands-
ins gætu borið til hennar fullt
traust og veitt henni stuðning.
Miðstjórn Alþýðusambands-
ins leyfir sér því hér með að
snúa sér til yðar með þeirri
ósk, að þér takið upp viðræður
rið miðstjórn sambandsins um
möguleika á vinstri samvinnu í
Iandinu, með því að kjósa nefnd
til viðræðna við oss í því skyni.
Mundi Miðstjórn Alþýðusam-
bands Islands vera ljúft að gera
slíkri viðtalsnefnd grein fyrir,
hvaða mál llún telur brýnustu
hagsmunamál Alþýðusambands-
ins og fólksins í verkalýðsfé-
lögunum.
Með stéttarkveðjum.
Alþýðusamband íslands
Hannibal Valdimarsson
Eðvarð Sigurðsson
Magnús P. Bjarnason
Sigurrós Sveinsdóttir
Sigríður Haimesdóttir
Ásgeir Guðmundsson
Snorri Jónsson“.
fcm;.. .
Eden, sem gaf þinginu
skýrslu um för sína til Asíu,
þar sem hann sat fund Banda-
lags Suðaustur-Asíu í Bang-
kok, sagði, að brezka stjórn-
in vonaðist til að báðir aðilar
Taivandeilunnar forðuðust að
leysa deiluna með vopnavaldi,
Kinverska stjórnin hefði setið
á sér að taka eyjarnar Kvim-
oj og Matsú með valdi, og væri
það gleðiefni, en hitt væri jafn-
æskilegt, að herlið Taivan-
Framhald á 5. síðu.
Atvinnurekendur hafa ekkl enni
boðið eyrishækkun á kaupi
rk Sáttasemjari hélt fund með samninganefndum verklýðsfélaganna og af-
vinnurekenda í fyrrakvöld og stóð hann nokkuð fram yfir miðnætti.
Jkr Á þessum fundi endurtók sig það sama og einkennt hefur alla þá fyrri í
rúman hálfan mánuð: Atvinnurekendur buðu ekki fram eyrishækkun á
kaupi verkafólks.
kr Eftir þetta hafa atvinnurekendur við enga að sakas't nema sjálfa sig ef til'
vinnustöðvunar kemur. Verklýðsfélögin frestuðu verkfallsaðgerðum til
þess að reyna að tryggja samninga án vinnustöðvunar — en atvinnurekend->
ur hafa ekkert gert fyrir sitt leyti til að leysa málið. Þeir bera einir allaí
ábyrgð, og afstaða þeirra og ríkisstjórnarinnar er fordæmd af einrómai
. almenningsáliti.