Þjóðviljinn - 10.03.1955, Síða 3
Fimmtudagur 10. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Alger uppgjöf ráðherranna í umræð-
unum á þingi um kaupgjaldsmálin
Hannibal Valdimarsson, Brynjólfur Bjarnason og Gnnnar Jóhannsson
fluttu mál verhlýðshreyfingarinnar af þekkingu og einheittni
I>að var Iágt rislð á ríkisstjórninni á Alþingi í gær, í umræðunum um kaupgjaldsmálin.
Bjarni Ben. var að vísu enn sendur fram með langa áróðursrseðu gegn málstað verkamanna,
og kom hann með hinar ómaklegustu dylgjur og getsaldr í garð verldýðsfélaganna.
En umræðurnar einkenndust af þungri sókn og einbeittni málsvara verklýðshreyfingarinnar.
Hannibal Valdimarsson, Brynjólfur Bjarna son og Gunnar Jóhannsson túlkuðu málstað verk-
lýðsfélaganna af rökfestu og þekkingu, og fór svo að ráðherrarnir tóku að laumast út úr þing-
salnum einn af öðrum, og varð úr hrein uppgjöf. Þeir virtust finna það sjálfir að ríkisstjórnin
væri kveðin í kútinn í þessum umræðum svo rækilega að þögnin og f jarveran væri þeirra eina
vörn.
lýðsfélögin gáfu, og taldi lík-
legt, að boðað yrði verkfall frá
18.—19 marz. Riði á miklu að
notaður væri til hins ýtrasta sá
frestur sem enn gæfist til að
semja án þess að til verkfalls
kæmi.
Umræðurnar urðu enn í fram-
haldi af skýrslu fjármálaráð-
herra um efnahagsástandið 1954,
og lauk þeim umræðum nú á
fundi sameinaðs þings, er hann
hafði verið framlengdur til kl. 5.
-jlr Fresti verklýðsfélag-
anna illa varið
Hannibal Valdimarsson deildi
fast á ríkistjórnina fyrir fram-
komu hennar í kaupdeilumálun-
um og svaraði áróðursfirrum
ráðheranna.
Lagði hann áherzlu á, að kröf-
ur þær sem verkalýðsfélögin
gera hafi verið samþykktar á-
greiningslaust í öllum hlutaðeig-
andi verkalýðsfélögunum, að
þeim standi fólk úr öllum stjóm-
málaflokkum.
Benti hann ráðherrunum á að
það mundi sízt árangursrík að-
ferð í baráttunni við kommún-
ismann, að eigna „kommúnist-
um“ einhuga viðleitni íslenzkrar
alþýðu, íslenzkra verkalýðsfé-
laga, til að bæta kjör og ná rétti
sínum.
Ríkisstjórnin kyrjaði hér enn
gamla áróðurssönginn. Vondir
kommúnistar væru að stefna
þjóðfélaginu í voða. En sann-
færður væri hann um að ekkert
gengi úr skorðum i þjóðfélaginu
þó allar kröfur verkalýðsfélag-
anna nú væru uppfylltar, og
færði hann skýr rök fyrir því
áliti.
Hannibal ræddi ýtarlega hina
nýju till. ríkisstjórnarinnar um
„rannsóknarnefnd", og sýndi
fram á, að þar væri einungis
um herbragð að ræða í því skyni
að tefja samninga. Átaldi hann,
að ekki skyldi hafa verið not-
aður betur fresturinn, sem verka-
^ Bjarni Ben. fer með
dylgiur
Bjarni Ben. talaði næstur, og
var ræða hans endurtekning á
áróðri ríkisstjórnarinnar gegn
málstað verkalýðsfélaganna.
Sagði hann að „fullyrt væri í sín
eyru“ að kröfur verkalýðsfélag-
anna næmu allt að 57%! Jafn-
framt dylgjaði hann um að verk-
fallsfresturinn hefði ekki verið
gefinn til að greiða fyrir lausn
kaupdeilunnar, heldur til þess að
klófesta kaupskipaflotann í
Reykjavík.
^ Öll s'kilyrði til kaup-
hækkunar fyrir hendi
Brynjólfur Bjamason tók til
meðferðar í ýtarlegri og rökfastri
ræðu helztu áróðursblekkingar
afturhaldsins nú undanfarið um
efnahagsmál og kaupgjaldsmál,
og sýndi fram á haldleysi rök-
semdafærslu ráðherranna gegn
málstað verkalýðsfélaganna.
Sýndi hann fram á að verka-
menn eiga fyllstu réttlætiskröfu
á kauphækkun þeirri sem fram
á er farið, og að öll þjóðfélags-
leg skilyrði til að uppfylla hana
eru fyrir hendi.
Var ræða Brynjólfs hið merk-
asta framlag til umræðnanna
um kaupgjaldsmálin, en þess er
enginn kostur að rekja efni
hennar í stuttu máli, og verður
hún birt hér í blaðinu í heild.
★ öll þjóðin nýtur góðs
af si’grum verklýðs-
félaganna
Gunnar Jóhannsson svaraði
ráðherrunum með því að minna
á baráttusögu verkalýðshreyf-
ingarinnar, og hvernig sömu aft-
urhaldsöflin hefðu alltaf barizt
á móti hverri viðleitni fólksins
til bættra kjara og aukinna
mannréttinda.
Tók Gunnar dæmi um kjör
verkamanna og skoraði á þing-
menn og ráðherra að segja til
hvort þeir treystust til að lifa
af slíkum launum.
Það væru ekki forsvarsmenn
verkalýðsfélaganna, sem væru
„þjóðhættulegir“. Hitt væri þjóð-
hættulegir menn, sem réðust
gegn verkalýðssamtökunum í
hvert einasta skipti, sem þau
reyndu að bæta aðbúnað og rétt-
indi félaga sinna. Öll þjóðin
hefði notið sigra verkalýðshreyf-
ingarinnar, og svo myndi verða
um alla framtíð.
Ræddi Gunnar loks um vanda-
mál núverandi kaupdeilu og
flutti rök verkalýðsfélaganna
af þrótti og festu.
Hannibal lauk umræðunni með
því að svara nokkrum atriðum í
ræðu Bjarna Ben., en þá var
ríkisstjórnin öll flúin af hólmi
eins og fyrr var sagt. Flýtti for-
seti sér að slíta umræðunni,
enda þótt einn þingmaður (Egg-
ert Þorsteinsson) hefði kvatt sér
hljóðs.
Mikil aSsókn
aS danslaga-
keppni SKT
Mjög mikil aðsókn var að dans-
lagakeppni SKT í Góðtemplara-
húsinu um síðustu helgi og urðu
margir frá að hverfa.
Á laugardagskvöldið voru kynnt
9 lög við eldri dansana og kom-
ust þessi 4 í úrslitakeppnina:
Vorkvöld eftir Hafþór með Í41
atkv., Bergmál eftir Tóta með
101 atkv., Við mættumst til að
kveðjast eftir Ómar með 97 at-
kvæðum og Óráð eftir Max með
85 atkv.
Á sunnudagskvöldið voru
kynnt 9 lög við nýju dansana og
komust þessi 4 í úrslitkeppnina:
Framhald á 10. síðu.
Dvalarheimili aldraðra sjómanna
fullgert að tveim árum liðnum
Aðalfundur Fulltrúaráðs Sjómannadagsins í Reykjavík
og Hafnarfirði var haldinn sunnudaginn 6. marz 1955.
Stjórnin var öll endurkjörin,
en hana skipa Henrý Hálfdáns-
son, Þorvarður Björnsson og
Pétur Óskarsson. Varamenn í
stjóm eru: Sigurjón Einarsson,
Theódór Gíslason og Bjarni
Bjamason.
í byggingamefnd Dvalarheim-
ilis aldraðra sjómanna voru
kjörnir: Henrý Hálfdánsson,
Þorvarður Björnsson, Bjarni
Bjamason, Garðar Jónsson og
Hallgrímur Jónsson. Varamenn
í byggingamefnd eru Tómas
Sigvaldason og Karl Karlsson.
Formaður minntist Einars
Þorsteinssonar fyrrv. skip-
stjóra, sem nú er nýlátinn, en
hann átti sæti í Sjómannadags-
ráði frá upphafi.
Gaf formaður síðan skýrslu
um störf stjómarinnar og
byggingarnefndar. Gjaldkeri las
upp og skýrði hina ýmsu reikn-
inga Sjómannadagsins og
Dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna.
Eignir Sjómannadagsins eru
nú 5.2 milljónir króna.
Byggingu Dvalarheimilisins
miðar nú vel áfram og hefur
þegar verið unnið að bygging-
unni fyrir rúmar 4 milljónir
Framhald á 10. síðu.
Islendingar taka í vor þátt í listiðnaðar-
sýningu í Miinchen í Þýzkalandi
Ákveðið er að íslendingar taki þátt í listiðnaðarsýningu
sem haldin verður í Miinchen í Þýzkalandi og hefst 5.
maí n.k.
Sízt <rf öllu stórmannlegt
Haraldur Guðmundsson for-
maður Álþýðuflokksins birtir
yfirlýsingu á forsíðu Alþýðu-
blaðsins í gær vegna frásagnar
Þjóðviljans um umræður þær
sem urðu um mál Ingimars
Jónssonar á síðasta mið-
stjómarfundi Alþýðuflokksins.
Játar Haraldur að hann hafi
sagt frá máli séra Ingi-
mars á fundinum, en þar hafi
engar umræður orðið og eng-
in nefnd verið kjörin. Þjóð-
viljinn hefur sínar öruggu
heimildir um það sem gerðist
á fundinum, og Haraldur
treystir sér ekki til annars en
að staðfesta frásögnina að
nokkm, en það er ekki athygl-
isverðast, heldur hitt að Har-
aldur skyldi birta nokkra yfir-
lýsingu, — og lesendur Al-
þýðublaðsins þannig í fyrsta
skipti fá vísbendingu um málið.
Tilgangur Haralds er að
reyna að þvo Alþýðuflokkinn
af samneyti við Ingimar Jóns-
son og fjármál hans. Eins og
kunnugt er hefur Ingimar ver-
ið einn af helztu fomstumönn-
um flokksins í áratugi, mið-
stjórnarmaður og sérfræðing-
ur í fjármálum; og flokkur-
inn og séra Ingimar hafa t.d.
haft sameiginlegan fjárhag í
hlutafélögum þeim sem rænt
var frá verklýðsfélögunum og í
sambandi við rekstur Alþýðu-
blaðsins. Það er því næsta von-
laust verk að ætla nú að reyna
að dylja þau tengsl.
Afstaða Haralds Guðmunds-
sonar er ef til vill skiljanleg;
en hún er sízt af öllu stór-
mannleg, hvorki í garð séra
Ingimars né fólksins í Alþýðu-
flokknum.
Vömsýningamefndinni, sem
iðnaðarmálaráðherra skipaði
fyrir skömmu til þess að vinna
að þátttöku af Islands hálfu í
erlendum vörusýningum, barst
fyrir nokkru boð frá stjórn
listiðnaðarsýningarinnar í Mún-
chen um þátttöku í alþjóðlegri
sýningu, sem haldin hefur ver-
ið þar árlega undanfarin 7 ár.
Sýningin hefst að þessu sinni
Fjársöfnunar-
dagur Ekknasjóðs
Islands
Fyrir nokkrum árum var
stofnaður Ekknasjóður íslands,
og er það hlutverk hans að veita
styrk fátækum ekkjum. Biskup
er formaður sjóðsstjórnar og hef-
ir fengið leyfi dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins til þess að
láta fara fram merkjasölu og
fjársöfnun fyrir sjóðinn annan
sunnudag í marzmánuði ár hvert,
eða að þessu sinni 13. marz. Þess
er vænzt, að menn bregðist sem
fyrr hið bezta við þessari fjár-
söfnun.
6. maí og lýkur þann 15. maí.
Megintilgangur sýningarinn-
ar er að sýna fallegar og vand-
aðar handunnar vörar frá lönd-
um innan Evrópu og utan, m.a.
húsgögn, hýbýlaskraut, vefn-
að, leirmuni, listmuni úr málm-
um, tré, gleri, leðri, plasti, strái
osfrv.
Á sýningum sem þessum
gefst því tækifæri til saman-
burðar á því bezta sem fram-
leitt er af listmunum og fá
sýningargestir þar tækifæri til
þess að kynnast stíl, tækni og
framleiðsluaðferðum hinna
ýmsu þjóða. \
Eftir að hafa leitað álits
hins nýstofnaða félags „Islenzk
listiðn" og framkvæmdastjóra
Landssambands iðnaðarmanna
á málinu, ákvað vörusýningar-
nefndin þátttöku af íslands
hálfu í sýningunni.
Skarphéðinn Jóhannsson
arkitekt mun verða trúnaðar-
maður nefndarinnar við undir-
búning sýningarinnar, en félag-
ið „íslenzk listiðn" hefur auk
þess góðfúslega lofað aðstoð
sinni við undirbúninginn.
Þeir sem framleiða muni, er
þeir telja að eigi erindi á sýn-
ingu þessa, eru beðnir að til-
kynna vörusýningarnefndinni
það bréflega í pósthólf 417 sem
fyrst og eigi síðar en 15. þm.
Kópavogur
Framhald af 12. síðu.
sýslu, og beinir því til viðkom-
andi ráðuneyta, að bera tillögu
um þessa skipan undir sýslu-
nefnd og sveitarstjórnir í Kjós-
arsýslu, eins fljótt og við verður
komið.
2. Verði þessi leið ekki talin
fær, eða aðrar lausnir á vand-
kvæðum umboðsstjórnarinnar í
þessu efni, á þeim grundvelli að
Kópavogur haldi áfram að vera
sérstakur hreppur innan Kjós-
arsýslu, eins og meirihluti sveit-
arstjórnar og sýslunefnd óska,
ákveður hrepsnefndin að leita
álits kosningabærra íbúa hrepps-
ins um þær leiðir, sem þá koma
til greina. Skal sú atkvæða-
greiðsla fara fram í samræmi
við lög um sveitarstjórnarkosn-
ingar, en efnt til almenns borg-
arafundar til umræðna um mál-
ið að tilhlutan h?epsnefndar,
áður en atkvæðagreiðsla fer
fram.“
Sveinn Einarsson greiddi at-
kvæði með síðasta lið tillögunn-
ar, en Hannes móti henni allri.