Þjóðviljinn - 10.03.1955, Page 7

Þjóðviljinn - 10.03.1955, Page 7
Fimmtudagur 10. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Hvernig er aðbúð fansa í Reyk javík? Það mun almennt viðurkennt af þeim, er nokkuð til þekkja, að margskonar vandkvæði séu nú á meðferð fanga eða manna, sem handteknir eru af lögregl- unni í Reykjavík og hafðir í haldi um lengri eða skemmri tíma. Alloft ber það við, að fluttar eru í blöðum frásagnir af vistarverum lögreglunnar, sem handteknum mönnum er varpað i, og tíðum kemur fram hörð gagnrýni á framferði lög- reglunnar og löggæzlumanna í sambandi við handtökur og meðferð fanga. Tillaga sú til þingsályktunar, sem ég hef lagt hér fram til fyrirgreiðslu hátt- virtrar neðri deildar Alþingis, fer fram á að skipuð verði nefnd til að rannsaka aðbúð fanga í Reykjavík. Þetta orðalag er ekki að öllu fullnægjandi, samkvæmt þeim tveim meginrökum, sem tillag- an er byggð á, og ég skal nefna. í fyrra lagi, svo sem hér er orðað að rannsaka aðbúð fanga, en að hinu leyti að rannsaka aðbúð lögreglunnar og aðstöðu hennar til fyrrgreindra starfa og athafna. Ég hef borið þetta mál inn á háttvirt Alþingi sökum þess að ég lít svo á, að það sé ekki eingöngu mál einstaklinga og lögreglunnar í hinum ömurlegu samskiptum, ég lít á það sem mál höfuðborgarinnar í heild, og á mál höfuðborgarinnar sem þjóðmál. Tilgangurinn er sá, að reyna að létta bæði lögreglunni og hinum handteknu mönnum að einhverju það hlutskipti, sem þeir hafa ratað í saman. Lögreglan býr við ýmis vand- bvæði og erfiðleika og gerir sennilega margt verr en skyldi sökum óhagstæðra skilyrða. Lögreglustöð Reykjavíkur er í hjarta borgarinnar við aðalsam- gönguæðina til hafnarinnar og milli tveggja fjölförnustu gatna borgarinnar, Austurstrætis og Hafnarstrætis. Þarf ekki að fara mörgum orðum um það, að óheppilegri staður fyrir slíka miðstöð er ekki til í borginni. Þar er í rauninni daga og næt- lir opinber sýning á þeim mönn- mn, sem fyrir einhver óhöpp lenda í höndum lögreglunnar. Geta má nærri hvílík óheilla á- hrif það hefur á ungling, sem í fyrsta sinn verður fyrir því að vera handtekinn af lögregl- Unni og ekið er til lögreglu- stöðvarinnar, tekinn þar, oft illa til reika, út úr lögreglu- bílnum, og dreginn milli tveggja lögregluþjóna inn í stöðina í viðurvist vegfarenda, sem oft eru fjölmargir á þess- um mestu umferðagötum bog- arinnar. Það er ekki ósennilegt, að slík meðferð kveiki neista ó- vildar, þrjózku, virðingarleysis og ef til vill haturs gegn lög- reglunni. Þau eru orðin mörg smábömin í Reykjavík, sem hafa orðið áhorfendur að slík- um sýningum, og þá ef til vill í fyrsta sinn vaknað til meðvit- undar um ímynd lögreglustarfs- ins. Og hver mun sú gróður- setning í hug'a barnsins verða? Með hverjum mun samúð barnsins verða við slíka sýn- ingu? Hvort mun hún verða með þeim, sem sveigir mjóar beinapípur unglingsins á bak aftur í handjárnin, — eða hin um, sem grátandi er fleygt í „steininn" fyrir sína fyrstu yf- irsjón á þessum vettvangi, ef þá hefur verið um yfirsjón að ræða. Ég er ekki í neinum vafa um svarið. Og ég hygg að á- hrif frá slíkum sýningum séu víðtækari en nokkurn mann grunar. Þessar sýningar á al- mannafæri eru einhver mestu spillingarfyrirbæri borgarinnar. Það er staðreynd, að lögregla Reykjavikur hefur átt í vök að verjast í almenningsálitinu. Það er illa farið. Ég hygg, að það auglýsinga- og sýningarstarf á opnum vettvangi, er ég minntist á, sé einhver veiga- mesta ástæðan fyrir því, að hér í borg eru svo margir and- stæðir lögreglunni og bera virð- ingarleysi fyrir störfum hennar, virðingarleysi, sem lögregl- an finnur utan að sér og skap- ar aftur vissa uppherzlu og andúð í fari þeirra einstaklinga, sem verða fyrir þvi, og leiðir oft til mannúðarleysis og illra afleiðinga. Harka í framkomu, þjösnaskapur, yfirdrottnun og tillitslaus valdbeiting orkar jafnan mjög til hins verra, á gagnstæðan hátt við það, að all- ur mjúkleiki, skilningur, hóg- værð og mildi í samskiptum orkar með undraverðum áhrif- um til heilla. Ég fullyrði, að lögreg'la Reykjavíkur býr við undravert skeytingarleysi frá hálfu hins opinbera og frá hálfu borgar- anna yfirleitt. Það eitt, að lög- regluþjónar skuli þurfa að inna af höndum hin ömurlegustu störf á opnum vettvangi, sem nefna má aðalsýningarsvæði borgarinnar, iamar manndóm þeirra, sljóvgar mannvirðingar- kenndina gegn hverjum ein- staklingi, hefur skemmandi á- hrif á uppeldismálin og sið- menningu borgarbúa yfirleitt, einkum æskulýðsins. Sögur, sem í rauninni þyrftu aldrei að myndast, ganga frá manni til manns og magna andúð gegn þessu starfsliði, sem hver og einn borgari vill þó eiga að, ef á bjátar. Það er eitthvað öm- urlega öfugt í slikum sam- skiptum. Þessi andúð hefur orðið svo smitandi að undir hver ára- mót geisaði hún um bæinn eins og pest. Og á gamlaárs- kvöld beindust árásir lýðsins með dulmögnuðum heiftarhug að lögreglustöðinni til þess að brjóta og sprengja og slása, og sáust menn ekki fyrir, einkum unglingar. Einhver innibyrgður F ramsöguræða Gunnars M. Magnúss fyrir tillögu hans um nefndarskipun til að rannsaka aðbúð fanga ★ hefndarhugur fékk nú útrás og lögreglan skyldi fá að súpa seyðið af verkum sínum alla hina daga ársins. Og svar lög- reglunnar var að verja kastal- ann, bæta við fleiri lögreglu- mönnum, vígbúast og vopnast betur gegn samborgurunum. — Nauðvörn. Það mætti spyrja: Hvers- vegna ekki árás á bæjarskrif- stofurnar, sem seiða aurana og krónurnar úr léttum pyngjum borgaranna, hvers vegna ekki á skólana, þar sem leiðinlegir kennarar halda unglingunum meiri hluta árs í fangelsi bók- stafsþrældómsins, hversvegna ekki árás á skrifstofu Slysa- varnafélagsins? Hversvegna á lögreglustöðina? Eru lögreglu- þjónar ekki oftast kallaðir fyrstir til hjálpar, þegar slys ber að höndum? Leggja þeir ekki oft líf sitt að veði við skyldustörfin? Þegar svo hafði gengið lengi sem ég hef lýst hér fyrr, jafn- vel í áratugi, að lögreglan hervæddist á gamlárskvöld gegn ósköpum fjöldans, rann upp ljós og forráðamönnum hugkvæmdist einfalt ráð. Lögt reglan gekk til móts við mann- fjöldann, tók þátt í gleði fólks- ins, gekkst fyrir áramóta- brennum á mörgum stöðum, veitti útvarpsmúsik gegnum há- talara í bílum sínum, mildaði hugsunarháttinn og hlaut verð- skuldaðar vinsældir á svip- stundu. Með þessu einfalda ráði létti hún af sér þungu fargi og breytti yfirvofandi fári í þjóð- lega hóglega skemmtan. Yfirlögregluþjónn Reykjavík- ur hefur tjáð mér, að nú þurfi ekki að horfa með ugg til gamlárskvöldsins, þó að aldrei verði fyrirbyggt, að einhver misferli verði. En hefur þá hið einfalda ráð, hinn óhagganlegi vísdómur um samskipti manna, verið notaður hina 364 sólarhringa ársins? Ég dreg það í efa. Ég hygg, að gagnrýnin um slæma aðbúð handtekinna manna í Reykja- vík eigi við rök að styðjast. Ég hygg, að sögusagnir um þessi efni, sem ganga manna milli, séu ekki yfirleitt gripnar úr lausu lofti. En það sem nefna má aðbúð í þessum tilfellum byggist á tvennu: umhverfi því eða vistarveru, sem fanginn er settur í, og að hinu leytinu sam- skiptum fangans og þess manns eða þeirra manna, er hann verður að lúta að því sinni. Harður bekkur getur orðið bærilegur dvalarstaður þjáðs manns í nærveru sálar, er skil- ur hann, — en dvölin á honum um stundarsakir getur einnig orðið ævarandi átumein í lífi fangans, sökum þess að hann var beittur typtun, sem í engu beinu orsakasambandi var af- leiðing þess verknaðar, er fang- inn var handtekinn fyrir. í allflestum tilfellum mun handteknum mönnum vera steypt í lögreglukjallarann eða í „steininn" við Skólavörðu- stíg, sökum afleiðinga áfengis- drykkju. Ríkið selur veiting- arnar, ríkið sér einnig um typtun viðskiptavinanna. Full- trúum ríkisins í þessum efnum er því allþungur vandi á hönd- um. Það má véfengja margt að óreyndu máli og einnig um þessi efni. En þeir, sem vé- fengja, ættu að ganga út á strætin og spyrja borgarana: Hvernig heldurðu, að aðbúð fanga sé í Reykjavík? — Eflaust mundu margir svara: Ég veit ekkert um það. — En þeir mundu verða margir, sem segðu: Hún er óverjandi, ó- sæmileg í menningarþjóðfélagi. — Ég hygg, að enginn svaraði: þetta er gott, svona á það að vera. En ef svo reyndist að enginn segði: Það er allt í lagi, jafnvel ekki starfsmennirnir sjálfir, er þá ekki kominn tírni til að athuga umbætur á þess- um sviðúm? í sambandi við þessi örlaga- ríku mál mætti varpa fram nokkrum spurningum til at- hugunar. Hefur lögreglan hús- næðislega þá aðstöðu sem nauð- synleg er til þess að hafa menn í haldi um lengri eða skemmri tíma? Hefur lögregl- an aðstöðu til þess að veita hin- um handteknu mönnum ró og næði til þess að átta sig á orðn- um hlut, áður en þeim er varp- að í dýflissuna? Hafa lögreglu- menn fengið kennslu eða lær- dóm í því að umgangast menn- ingarlega handtekna menn, — sjúka menn, særða að metnaði, særða á líkama og sál. Kenn- arar þurfa að læra að umgang- ast börn, hjúkrunarkonur þurfa að læra að skilja sjúklinga, og þeir aðilar verða að veita börn- unum og sjúklingunum rétt í fyrstu lotu, ef svo mætti segja. Þurfa ekki lögregluþjónar að hafa hinn sama hátt, gefa hin- um handtekna rétt í fyrstu lotu, en síðan athuga málið að nýju. Ég hef bent á margt þessum málum lútandi, sem utan dyra er hverjum vegfaranda til sýn- is. Það, sem innan dyra gerist, hef ég að sumu leyti látið skína í. Það er því tilgangur þings- ályktunartillögu minnar, að væntanleg nefnd athugi þetta mál, og geri tillögur til úr- bóta hið bráðasta, Ég tel það ómómælanlegt, að til vansæmd- ar sé að láta þessi mál afskipta- laus. Ég ætlast til að reynt verði hvorttveggja í senn: að létta og bæta störf og aðstöðu lögreglunnar, — að hinu leyt- inu að bæta aðbúð hinna hand- teknu manna, — og þá fyrst og fremst að lyfta þessum mál- um til samræmis við önnur menningarmál, sem þjóðfélagið leggur rækt við. Ég vænti bess- vegna að háttvirtir þingdéildar- menn veiti tillögunni fylgi sitt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.