Þjóðviljinn - 10.03.1955, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 10.03.1955, Qupperneq 9
Fimmtudagur 10. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9 ÍÞRÓTTIR RTTSTJÓRI FRtMANN HELGASO» Ráðstefna ríkisíþróttasambanda Norðurlanda í Kaupmannahöfn dagana 14.-15. febrúar 1955 Þjóðviljanum hefur borizt ítar- leg skýrsla frá ISÍ um störf 18. ráðstefnu ríkisíþróttasam- banda Norðurlandanna. — Fer fyrri hluti skýrsiunnar hér á eftir, síðari hlutinn verður birt- ur á morgun. 18. ráðstefna ríkisíþróttasam- banda Norðurlanda var haldin í Kaupmannahöfn dagana 14. og 15. febrúar s.l. Fyrir I- þróttasamband íslands mættu þar: Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ, Stefán Runólfsson, ritari ÍSÍ, Gísli Halldórsson, sam- bandsráðsmeðlimur ÍSÍ og for- maður ÍBR og Hermann Guð- mundsson, framkvæmdastjóri ÍSl. " Ráðstefnuna sóttu 5 fulltrú- ar frá sérhverju Norðurland- anna, nema Finnlandi þaðan komu 7 fulltrúar og svo sem áður er frá skýrt 4 frá ís- landi. Helztu gjörðir ráðstefn- unnar voru eftirfarandi: 1. Ráðstefnuna setti forseti hennar Leo Frederiksen, for- maður danska íþróttasambands- ins. 2. Fluttar voru skýrslur um störf íþróttasambandanna og komu þar fram ýmsar athygl- isverðar upplýsingar og þar á meðal: Finnland. 1 Finnlandi eru nú 3 iþrótta- sambönd, 36 sérsambönd, 41 héraðssamband, 4000 íþróttafé- lög með um 800.000 meðlimum. Árið 1954 fékk íþróttahreyf- ingin til starfsemi sinnar 218. 000.000 mörk og þar að auki 382.000.000 mörk til íþrótta- jnannvirkja, og allt þetta fé kom frá finnskum getraunum. Island. I íþróttasambandi íslands eru fimm sérsambönd, 23 hér- aðssambönd, 235 félög með 25.300 meðlimum. Til íþróttasjóðs samþykkti Alþingi að greiða kr. 1.000.000 árið 1955 en kr. 750.000 árið áður. árunum 1948 til 1953 kr. 29. 600.000.00 Svíþjóð. I sænska íþróttasambandinu eru nú 9.700 félög með 870.000 meðlimum. Á þessu ári fær sænska í- þróttasambandið ríkisframlag sem nemur einni milljón króna. Danniörk. 1 danska íþróttasambandinu er nú 31 sérsamband 34.425 fé- lögum með 817.315 meðlimum. Frá dönsku getraununum fékk íþróttasambandið árið 1954 kr. 1.543.204,80. Sameiginleg norræn sjónarmið, vegna Olympíuleikanna í Melbourne 1956. Framsögumaður í því máli var Poul Ingholt, Danmörk. Mikið var rætt um samstarf milli Norðurlandanna um ferða- lagið til Ólympíuleikanna i Ástralíu 1956. Allt er í óvissu um farkost, en fullvíst þó að flogið verður og er áætlað verð fyrir manninn kr. 8.000,00 (danskar). Ákveðið var að halda ráð- stefnu um mál þetta í Stokk- hólmi í byrjun apríl n.k. og boði sænska íþróttasambandið til hennar. Þar verður endan- leg ákvörðun tekin. Iþróttir og sjónvarp. Framsögumaður um það efni var Hilding Hallgren, Sví- þjóð, rakti hann þróun þessara, mála í Svíþjóð. Urðu miklar umræður og að lokum eftirfar- andi ályktað: „Umræður um afstöðu íþrótta anna til sjónvarps, sýndu að Norðurlöndin eru sammála um að standa saman, um afstöðu sína, til þeirrar þróunar er verð- ur í máli þessu. Þar sem Danmörk er land það sem þessi mál eru mest á dag- skrá, var danska íþróttasam- bandinu falið að fylgjast með þroun sem verður í máli þessu á Norðurlöndum sem annar- staðar, og láta hin íþróttasam- böndin fylgjast með.“ Norræn samvinna. Framsögumaður var Benedikt G. Waage, Islandi, ræddi hann um nauðsyn góðrar samvinnu milli íþróttasambanda Norður- landa, gat hann um erfiðleika Islands til slíkrar samvinnu, sérstaklega að ekki væri tek- ið nægilega tillit til fjarlægðar íslands frá hinum Norðurlönd- unum og þess hefði gætt að það væri sniðgengið. Taldi hann gagnkvæm íþróttasamskipti heppilegust, enda nauðsynleg ef norræn samvinna og sam- skipti ættu að haldast í fram- tíðinni. Umræður urðu nokkrar og lýstu fulltrúar hinna Norður- landanna að þeir vildu gjarn,- an gera meira til þess að auka samvinnu við ísland. Gísli Halldórsson, ísland, tók einnig þátt í þessum umræð- um og þakkaði góða samvinnu við hin norrænu íþróttasam- böndin, gat hann þess meðal annars að viðskiptin á íþrótta- sviðinu frá íslands hálfu færu vaxandi. og ræddi um hversu íslendingar yrðu að kosta meiru til þess að þessi íþróttasam- vinna gæti átt sér stað, en hin- ar Norðurlandaþjóðirnar. - I Kanadamenn ! ■ ■ í heimsmeistarar i ■ Kauadamenn urðu helms-; ; meistarar í ísknattleik 1955, ; : sigruðu sovézku heimsmeistar- : j ana frá fyrra ári með 5 mörk- J j um gegn engu £ úrslitaleik s.l. j j sunnudag. Sovétríkin lentu í : ; öðru sæti, Tékkóslóvakía í! : þriðja, Bandaríkin í f jórða og j j Svfþjóð í fimmta sæti. Pentlc- j j tonliðið, sem keppti fyrir j j Kanada, var talið vei að sigr- ■ ; inum komið. Noregur. I íþróttasambandi Noregs voru 31. desember 1953 24 sér- sambönd, 2.716 íþróttafélög með samtals 293.826 meðlimi. Frá norskum getraunum hef- ■ur íþróttahreyfingin fengið á Afrekaskrá frjálsiþrélta 1954 3000 m hindrunarhlaup: (Isl. met: Kristján Jóhannsson ÍR, 9:47.4) Hafsteinn Sveinss. Self. 10:32.2 Sigurður Guðnason ÍR 10:49.8 Þórhallur Guðjónsson U. Kefl. 10:53.8 110 m grindahlaup: (ísl. met: 14.7 sek. Örn Clausen IR, Reykjavík, 30/7 1951) Ingi Þorsteinsson 14.9 Pétur Rögnvaldsson KR 15.2 Guðjón Guðmundsson KR 15.6 Vilhjálmur Einarsson UÍA 16.4 Valdimar Örnólfsson IR 16.8 Einar Frímannsson Self. 17.0 Bjarni Linnet ÍR 18.0 Ingimar Jónsson KÁ 18.5 Guðjón ‘B. Ólafsson KR 18.6 Helgi Björnsson ÍR 19.4 Beztur 1953: Ingi Þorsteins- $on KR 15.6 sek. Meðaltal 10 beztu 1954: 17.03.0 — 1953 17.02.0. Bezta ársmeðaltal 10 manna: 16.64 sek. 1950. 400 m grindahlaup: (Isl. met: 54.7 sek. Örn Claii- sen IR, Osló, 28/6 1951). Ingi Þorsteinsson KR 55.6 Þórir Þorsteinsson Á 58.4 Bjarni Linnet ÍR 61.9 Guðjón Guðmundsson KR 62.2 Hjörleifur Bergsteinsson Á 62.4 Pétur Sigurðsson KR 62.6 Björn Jóliannsson U. Kfl. 63.4 Hreiðar Georgsson ÍR 64.8 Trausti Ríkarðsson ÍR 66.7 Jóhannes Sölvason IR 68.9 Beztur 1953: Ingi Þorsteins- son KR 57.1 sek. Meðaltal 10 beztu: 1954: 62.69. Bezta árs- meöaltal 10 manna: 62.69 sek. 1954.................. Gunnar M. Magnúss: Bömin frá Víðigerði „Langintes, langintes, mjóni, mjóni, langintes“.: Geiri var stuttstígur og tifaði ótt og títt, en Stjáni hafði löng skref og glennti sig eins og tröll- skessa á hlaupunum. Báðir urðu móðir og másandi og Stjáni dró alltaf meira og meira á Geira, þangað til hann gat slegið á herðarnar á honum og hrint hon- um áfram. Þá kastaði hann sér yfir Geira eins og villidýr á bráð og grúfði sig yfir höfuð hans. „Nú skaltu fá fyrir ferðina, leppalúðinn þinn. Ég skal berja þið, fletta niður um þig og rassskella þig.“ En Geiri brauzt um, svo að Stjáni átti fullt' í fangi með að halda honum undir sér. En í hvert' skipti, sem færi gafst, lét hann höggin dynja á Geira, annaðhvort á bakið, herðarnar eða höfuðið. Og Geiri hélt áfram hrópunum, þegar hann gat: „Langi Stjáni, slepptu mér, langintes, lang- intes“. „Þegiðu, lúsablesi. Ég dreg þig út í ána og kaf- færi þig, ef þú uppnefnir mig oftar“. Stjáni stóð upp, greip í annan fótinn á Geira og togaði hann niður að árbakkanum. Þannig dró hann Geira kipp á bakinu. „Slepptu mér, fantur, prakkari, langi-Stjáni, ég skal alltaf uppnefna þig, meðan þú s’tríðir mér“, heyrðist hálfkjökrandi í Geira. Hann var orðinn þrár, eins og hann myndi aldrei láta undan. „Gerðu það sem þig langar til. Kannski þú vilj- ir kæfa mig í ánni og koma svo einn heim í kvöld.“ En Stjáni langi kastaði sér aftur yfir Geira. „Nei, en ég skal kaffæra þig eins og hund, svo að þú hafir þó einu sinni fengið ærlegt bað“. Jélagjöf alþýðutrygginganna Framhald af 4. síðu. þess að þær næðu rétti sín- um eða benda á leiðir til þess. Með svona löguðu framferði valdhafanna er allt fallið í sama farið og áður. Ég á við að bæði einstæðar mæður og eins mæður sem hefur orðið sú „skissa“ á að búa með manni eftir að hún skildi við sinn fyrri mann, eins og í þessu tilfelli, eigi jafn erfitt uppdráttar og var áður en al- þýðutryggingarnar tóku við. Að þær urðu að berjast fyrir sínum eigin börnum án nokk- urs styrks. Hér finnst mér vera ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur á ómann- úðlegan hátt. Undir sömu for- dæminguna lenda sjálfsagt fleiri hundruð mæðra í hin- um ýmsu kaupstöðum lands- ins. Meðan auðvaldið er við völd í landinu er ekki við öðru að búast en að lögin séu sniðin með hag auðmannanna og hinna ýmsu embættismanna fyrir augum til að tryggja þeirra hag, en alþýðunni og þeim lægst settu til óþurftar. Þetta er svo augljóst að hver alþýðumaður hlýtur að hafa rekið sig á það og þarf því ekki frekari útskýringa við. Mætti benda á mörg dæmi því til sönnunar, en skal ekki gert hér. Með áðurgreindum ráðstöf- unum og ýmsum öðrum virð- ist mér að verið sé að eyði- leggja að verulegu leyti al- þýðutryggingarnar, sem búið var að knýja í gegn með margra ára harðri baráttu. En verst er að þetta skuli koma niður á þeim sem sízt mega við því, eða í mörgum tilfellum á bláfátækum, og eins og t.d. í þessu tilfelli og eflaust fleirum, á héilsubiluð- um mæðrum sem hafa til fleiri ára átt við harðan kost að búa. Slíkar ráðstafanir sem þess- ar virðast því óskiljanlegri þar sem vitanlegt er að al- þýðutryggingarnar hafa lán- að til ýmissa fyrirtækja, svo sem sjúkrahúsatrygginga ofl. á sama tíma og réttindi eru skert, eða styrkir teknir af , fólki, greiðsla fyrir ýms dýr- ustu lyf felld niður ofl. Sömu- leiðis voru alþýðutrygginga- gjöld hækkuð gífurlega 1953. En ekkert hækka ellilaunin eða örorkubætur á sama tíma. Ég vildi nú að lokum beina þeirri spurningu til Haralds Guðmundssonar hvort hann hafi ekki hugsað sér neina leið fyrir viðkomandi mæður til að fá þessi barnsmeðlög greidd og eftir hvaða leiðum þær ættu þá að fara til þes3 að fá sinn hlut réttan. Akureyri, 20.-2.-55. ‘ Jón Jak. I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.