Þjóðviljinn - 30.03.1955, Page 12
íhaldið í bæjarráði hindrar
enn samninga við verklýðsfél.
Bæjarstjórn tekur endanlega afstöðu á aukafundi
sem minnililutaflokkarnir hafa krafizt
HlÓÐVILIINN
Miðvikudag-ur 30. marz 1955 — 20. árgangur — 74. tölublað
15o ára afmælis H. C. Ander-
Á fundi bæjarráðs Reykjavíkur í gær bar Guðmundur Vigfús-
son fram svohljóðandi tillögu:
,,B® jarráðið ákveður að hefja þegar samningaumleitanir við
samninganefnd verkalýðsfélaganna um samskonar sérsamninga
af hálfu Reykjavíkurbæjar og stofnana hans og Hafnarfjarðar-
bær hefur nú gert við Verkamannafélagið Hlíf.
Gefur bæjarráð borgarritara heimild til að undirrita slika
samninga að áskildu samþykki bæjarstjórnar."
Við atkvæðagreiðslu um til-
löguna féllu atkvæði þannig að
Guðmundur Vigfússon og Bárð-
ur Daníelsson greiddu henni at-
kvæði en íhaldsfulltrúarnir þrír
sátu hjá! Þýðir sú afgreiðsla að
tillagan er ekki talin fá nægan
stuðning og nær ekki fram að
ganga. íhaldsmeirihlutinn í bæj-
arráði lét bóka þá greinargerð
fyrir hjásetu sinn að bæjar-
stjórn hefði áður fellt að und-
irrita sérsamninga við verka-
lýðsfélögin!
Bæjarstjórnarfundur
á morgun?
Þrátt fyrir þessa afstöðu í-
Samningarnir við Hlíf sam-
þykktir einróma í bæjarstjórn
íhaldið heykist íyrir einhuga almennings-
áliti aí ótta við íylgishrun
Þau athyglisverðu tíðindi gerðust á fundi bæjarstjórn-
ar Hafnarfjarðar í gær að íhaldsfulltrúarnir þorðu ekki að
greiða atkvæði gegn samningum þeim sem gerðir hafa
verið við Hlíf, heldur sátu hjá. Er þetta ágætt dæmi um
þaö hvernig hægt er að beygja auðmannafulltrúana meö
einhuga almenningsáliti.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
undirritaði samninga við Hlíf
s.l. laugardag að því tilskyldu
að þeir yrðu samþykktir í bæj-
arstjórn. Var bæjarstjórnar-
fundurinn haldinn í gær, og
vakti það þegar athyglí að Jón
Gíslason — sem sæti á í samn-
inganefnd atvinnurekerida —
mætti ekki!
Kristján Andrésson ræddi
samningana og gildi þeirra, ekki
aðeins fyrir verkalýðssamtökin,
heldur og fyrir bæjarfélagið og
fyrirtæki bæjarins. Hvatti hann
verkamenn — sem allmargir
voru mættir á fundinum — til
þess að fylgjast vel með þróun
þessara mála og draga af þeim
áPyktanir.
-Þegar til atkvæðagreiðslu
kom fluttu íhaldsmennirnir til-
lögu um að bæjarfyrirtækin
gengu í Vinnuveitendasamband
Einar Arnérsson
látinn
Einar Arnórsson fyrrverandi
prófessor varð bráðkvaddur í
gær.
Einar Arnórsson var fæddur
24. febrúar 1880 og var því 75
ára að aldri. Hann varð stúd-
ent 1001 og lauk lögfræðiprófi
við Kaupmannahafnarháskóla
1906/ Tveim árum síðar gerðist
hanri kennari við lagaskólann
og várð prófessor i lögum við
Háskóla íslands, er hann var
stofnáður 1911 og gegndi því
starfjr til 1932, að undanskildum
tveim árum er hann var ráð-
herra: Hæstaréttardómari varð
hann 1932. Háskóli íslands gerði
hann ; heiðursdoktor árið 1936.
Einar . Arnórsson var forseti
Sögufqlagsins frá 1936 og átti
sæti í stjórn Bókmenntafélags-
ins og var gerður heiðursfélagi
beggja þessara félaga. Samdi
hann mörg rit um lögfræði og
sagnfræðileg efni.
Islands! Þegar hún hafði verið
felld voru samningarnir við Hlíf
samþykktir einróma — íhalds-
fulltrúarnir þorðu ekki annað en
sitja hjá.
Flygenring stendur einn.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá
í gær var Jóni Gíslasyni fyrir-
skipað að binda báta sína, en
hann hefur ekki þorað að verða
við þeim fyrirmælum Vinnu-
veitendasambandsins og fóru
tveir af bátum hans á veiðar
í gær. Hins vegar heldur hann
fast við að neita að semja við
Bæjarútgerðina um vinnslu afl-
ans, enda þótt mikið af fiskin-
um í bátum hans eyðileggist
með því móti. Flestir aðrir bát-
ar hafa hins vegar samið við
Bæjarútgerðina, þ.á.m. Sjálf-
stæðisbátarnir svonefndu, sem
eru í eigu kunnra forustu-
manna íhaldsins. Irigólfur Flyg-
enring einn hefur bundið bát
sinn um hávertíðina. Bátar þeir
sem koma í land hafa fengið á-
gætan afla, en þeir geta aðeins
verið skamma stund á veiðum
þar sem þeim er neitað um ís.
Fundur um varnir
gegn umferðaslys-
um á börnum
Barnaverndarfélag Reykja-
vikur gengst í kvöld fyrir fundi
í bíósal Austurbæjarbarnaskól-
ans um varnir gegn umferða-
slysum á börnum. Matthías Jón-
asson, formaður Barnaverndar-
félagsins mun setja fundinn með
stuttu ávarpi, en frummælendur
eru Jón Oddgeir Jónsson, full-
trúi Slysavarnafélagsins, Ólafur
Guðmundsson lögregluþjónn og
Alfreð Gíslason læknir. Að lokn-
um framsöguræðum verða frjáls-
ar umræður. — Allir áhuga-
menn eru velkomnir á fundinn,
sem hefst kl. 20.30.
haldsfulltrúanna í bæjarráði
kemur málið enn fyrir bæjar-
stjórnina þar sem sjö bæjarfull-
trúar hafa krafizt aukafundar
um málið eins og skýrt var frá
i blaðinu í gær. Eru líkur til
að sá fundur verði haldinn á
morgun. Kemur þá í ljós hvort
íhaldsmeirihlutinn heldur enn
fast við þá fráleitu afstöðu að
skipa Reykjavíkurbæ og fyrir-
tækjum hans við lilið þeirrar ó-
svífnu atvinnurekendaklíku sem
nú iiyggst að svelta verkalýðinn
til hlýðni og neitar ölliim samn-
iiigum við verkalýðsfélögin. Sú
afstaða þýðir m. a. stöðvun tog-
ara Bæjarútgerðarinnar strax
og þeir koma af veiðum, áfram-
haldandi stöðvun alls bátaflot-
ans sem bærinn gæti keypt afl-
ann af að gerðum samningum,
svo og áframhaldandi stöðvun
allra annarra framkvæmda sem
bærinn hefur með höndum svo
sem undirbúning nýrra bygging-
arsvæða o. fl. sem sízt er of vel
á vegi statt.
sen minnzt á laugardaginn
Nœstkomandi laugardag eru liðin 150 ár frá fæðingu
danska skáldsins heimsfrœga H. C. Andersens; verður af-
mœlisins minnzt með margvíslegum hœtti víða um heim,
einnig hér á landi.
Kvölddagskrá útvarpsins verð-
ur helguð Andersen: flutt um
hann erindi, lesið úr verkum
hans, flutt tón-
list er samin
hefur verið út
af þeim. Um
kvöldið verður
einnig haldin
afmælishátíð í
Sjálfstæðishúsr
inu. Þar flyt-
Ur Tómas Guð-
mundsson
frumsamið
til Danmerkur,
Einar Ólafur Sveinsson prófessor
flytur erindi, Þuríður Pálsdóttir
óperusöngkona syngur lög við
H. C. Andersen
kvæði: Kveðja
Lánafrumvarp stjórnar-
innar loksins lagt fram
Einn legáii Sjálísiæðisílokksins og annar
legáti úr Framsókn eiga að íá alræðisvald
um byggingarlán næstu sex árin! — Af-
nám nýsköpunarlaganna um útrýmingu
heilsuspillandi húsnæðis
ljóð eftir H. C. Andersen. Þá
lesa séra Bjarni Jónsson og Am-
dís Björnsdóttir leikkona upp úr
verkum hans. Það er íslands-
deild Norræna félagsins og
danska sendiráðið í Reykjavík
sem gangast fyrir þessari hátíð;
skýrði frá Bodil Begtrup, sendi-
herra Dana, og stjórn Norræna
félagsins blaðamönnum frá
þessu i gær.
Þá hafa allir skólar landsins
fengið tilmæli um að minnast
dagsins, og að öllum líkindum
verður sérstök útvarpsdagskrá
fyrir börn af tilefni afmælisins.
í Menntaskólanum i Reykjavik
verður Andersen-hátíð árdegis á
laugardag.
Mikil hátíðahöld fara fram
vítt um heim á afmælisdegi
meistarans, en mest verður þó
um dýrðir í Danmörku, ættlandi
hans. Meðal annars flytur Kon-
unglega leikhúsið í Kaupmanna-
höfn nýtt leikrit eftir Kjeld
Abel: „Andersen eller hans livs
Eventyr". Ein höfuðgata borgar-
arinnar, Vester Boulevard, verð-
ur skírð á laugardaginn H. C.
Andersens Boulevard. Flestir
leikara Danmerkur eru ráðnir
til upplesturs víðsvegar um
MargboöaS og marglofað frumvarp ríkisstjómarinnar
um lán'til íbúðarbygginga komst loks í gær alla leið til
Alþingis. •
Nefnist frumvarpið reyndar:
„frumvarp til laga um húsnæðis-
málastjórn, veðlán til íbúðar-
bygginga og útrýmingu heilsu-
spillandi íbúða“. Virðist liið
fyrstnefnda vera talið geysimik-
ið atriði, en þar er ákveðið að
stofna „húsnæðismálastjórn“
þriggja manna, sem ríkisstjórn
skipar til sex (!) ára i senn.
Með frumvarpinu virðist. ætlun-
in að svæla alla lánastarfsemi til
íbúðabygginga beint eða óbeint
undir þessa „stjórn". Á Lands-
bankinn að eiga einn manninn,
en sá á ekki að fjalla um út-.
lán, heldur hinir tveir, eða helm-
ingaskiptareglan alræmda í al-
mætti sinu: Næstu sex ár á einn
legáti frá ihaldi og annar frá
Framsókn að hafa allt aó því
einrædisvald yfir lánunum tii
íbúðarbygginga á íslandi!
Kaflinn um útrýmingu heilsu-
spillandi húsnæðis er að aðalefni
um afuám hinna stórmerku laga-
ákvæða nýsköpunarstjórnarinn-
ar um þetta efni, en í stað sett
ákvæði sem ekki er liklegt að
verði að gagni í þessu skyni.
Frá efni frumvarpsins verður
nánar skýrt næstu daga.
Síðasta sýning
japanska dans-
flokksins í kvöld
Siðasta sýning japanska dans-
flokksins í Þjóðleikhúsinu er í
kvöld kl. 20. Eins og kunnugt
er hafa sýningar flokksins vakið
mikla athygli og hlotið góða
dóma, en aðsókn hefur verið
mjög mikil og uppselt á fjórar
fyrstu sýningarnar. Japanimir
munu fara héðan til Hamborgar
og síðar í sýningarferð til Suð-
ur-Ameríku.
Bandaríkin eiga að hætta á
heimsstyrjöld, segir Knowland
Yill láta beriast út af Kvimo) og Matsú
Formaður þingflokks demókrata í öldungadeild Banda-
ríkjaþings hefur sakað foringja þingflokks republikana
í deildinni um aö vera fyrir þeim hópi bandarískra áhrifa-
manna sem stefna markvisst að’ því að hleypa af stað
heimsstyrjöld.
Deinókratinn Lyndon John-
son frá Texas komst svo að
orði, að bandaríska þjóðin væri
alls ekki á bandi „stríðsflokks-
ins,“ sem lætur svo mjög að
sér k%eða í Washington. Einnig
kvraðst Johnson þess fullviss, að
Eisenliovver forseti muni ekki
láta ánetjast stríðsflokknum.
Blaðamenn í Bandaríkjunum
og Vestur-Evrópu hafa oft
minnzt á stríðsflokkinn í Wash-
ington, en þetta er í fyrsta
skipti sem nafnið er nefnt í
deilum stjórnmálaflokkanna.
Þeir Radford aðmíráll, forseti
yfirherráðs Bandaríkjanna, og
William Knowland öldunga-
deildarmaður hafa verið nefnd-
ir foringjar stríðsflokksins.
Ummæli Jolinsons voru svar
til Knovvlands, sem er for-
maður þingi'lokks republik-
ana. Hafði Knovvland komizt
svo að orði, að Bandaríkin
eigi ekki að liika við að eiga
á hættu að lieimsstyrjöid
brjótist út heldur en að horfa
upp á það að lier Sjang Kai-
séks verði lirakinn af smá-
eyjunum Kvimoj og Matsú
uppi í landsteinum Kína.
Flokksbræður Knowlands þeir
Bridges og McCarthy tóku und-
ir orð hans. McCarthy sagði að
Framhald á 5. síðu