Þjóðviljinn - 06.04.1955, Qupperneq 9
Miðvikudagur 6. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Skautadans í Kína
Á skautamóti einu miklu, sem haldið var í Harbin í Kína
í vetur, sýndu m.a. nemendur miðskólans í bænum eins-
konar pjóðdansa á skautum. Á myndinni hér fyrir ofan sjást hinir ungu Kínverjar
„dansa“ á skautunum í skrautlegum, marglitum silkiklœðnaði.
A ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI. FRÍMANN HELGASGN
Verða vetrarolympíuleikirnir 1960 í
Bandaríkjunum eða Austurríki?
Það er ekki laust við að mikil
eftirvænting ríki austan hafs og
vestan um það hvar næstu vetr-
arolympíuleikir verði. Ástæðan
er sú að nú fyrir stuttu rann
út frestur sá sem tilskilinn er
til umsóknar um að fá að sjá um
leikina. Lönd þau og borgir sem
sótt hafa eru: St. Moritz í Sviss,
Garmisch-Partenkirchen í Aust-
urríki og Innsbruck í Aust-
urríki; lögðu þau öll fram um-
sókn í tæka tíð. Síðan hefur
komið beiðni frá Squaw Valley
í Bandaríkjunum. Samkv. áreið-
anlegum heimildum er talið víst
að það verði Innsbruck og Squaw
Valley sem valið verður endan-
lega á milli. Síðan vetrarleikirn-
ir voru teknir upp 1924 hafa
þeir aldrei farið fram í Austur-
ríki en einu sinni í Bandaríkjun-
um og þá í Lake Placid 1932.
Á miðju þessu ári mun verða
tekin ákvörðun um það hve-
nær leikirnir fara fram 1960 og
er það alþjóða Olympíunefndin
sem ákveður það.
Því má bæta hér við að sex
borgir hafa sótt um að halda
sumarleikina 1960 en það eru:
Róm, Lausanne, Budapest, Brús-
sel, Detroit og Tokio.
Finnst þér ekki skrýtið?
Til athugunar fyrir hneíaleikaunitanda
Lars Krog setur
norskt met í 100 m
flugsundi
Nýlega efndu Oslo og Borás
í Svíþjóð til sundkeppni sín á
milli og lauk henni með sigri
Osló 89:85.
Á móti þessu setti Lars Krog
nýtt met í 100 m flugsundi, not-
aði hann sama sundstíl og hann
í sambandi við „Álit ensks
læknis á skaðsemi hnefaleik-
anna“ sem birtist hér á I-
þróttasíðunni 27. marz, vill
„Síðan“ krota niður nokkrar
spurningar, rétt til athugunar
og umþenkingar.
Finnst þér ekki skrýtið að
liinn enski læknir skuli 'ekki
vilja láta nafns síns getið?
Finnst þér ekki skrýtið að
læknirinn heldur því fram í
byrjun greinarinnar að skað-
semi hnefaleika sé „hreinac
ýkjur“ en í lok greinarinnar
geta endurtekin rothögg verið
svo alvarleg að heilafrumur
jafni sig ekkit
Finnst þér ekki skrýtið að
læknirinn varar mann við að
fara á hnefaleikapall í mánuð
ef hann hefur fengið rothögg,
og þó eru þetta „hreinar ýkj-
ur“?
Finnst þér ekki skrýtið að
læknirinn skuli segja: „Að
sjálfsögðu er sá maður ekki
fullfrískur sem sleginn hefur
veríð niður aftur og aftur með
stuttu millibili," en heldur þó
fram að kenningin um skaðsemi
hnefaleika sé „hreinar ýkjur“ ?
Finnst þér ekki skrýtið að
læknirinn skuli fullyrða að
„hnefaleikamaður í góðri þjálf-
un bíður ekki minnsta hnekki
af slíkri keppni," (10-15 lot-
um) þegar fyrir liggja óyggj-
andi skýrslur um það að síð-
ustu árin hafa látizt af völdum
hnefaleika fjöldi manna vel
þjálfaðra sem gengið hafa
undir stranga læknisskoðun,
vegna allra slysanna ?
Og svo að lokum: Finnst þér
ekki skrýtið að til skuli vera
íþrótt sem heimilar þátttak-
endum að lama vitsmunastöðv-
sýndi hér í fyrra. Þó hafði
Krog nýlega haft slæma inflú-
ensu og var ekki fyllilega búinn
að jafna sig.
Hleztu afrek í keppni þessari
voru: 100 m skriðsund kvenna
Liselotta Jonasen Borás 1,13.5
mín. 100 m baksund kvenna:
Silja Hafsaa Oslo 1.20.5. 100 m
skriðsund Öivind Gunnerud Osló
59,6 — 400 m skriðsund karla
Karl Erik Mogren Borás 4.56.6.
ar hvors annars svo að þeir
geta beðið varanlegt tjón á
heilsu sinni og jafnvel látið
lífið ef nógu hraustlega er að
unnið og allt lögum sam-
kvæmt ?
Gunnar M. Magnúss: t
Börnin frá Víðigerði
„Þið getið bráðum séð það, krakkar, hvort það
er allt grobb eða lygi, sem ég hefi verið að
segja ykkur um útlendingana og hitt og þetta.
En ég ætla að biðja ykkur að láta ekki bera
á neinni hræðslu, þegar þið komið um borð. Þið
megið ekki verða lúpuleg, þó að einhver karlinn
horfi á ykkur, eða taki undir hökuna á ykkur.
Þeir gera það nefnilega oft, til þess að horfa inn
í augun á manni. Nei, það er um að gera að
vera nógu ófyrirleitinn, það er ég. Ef þeir skæla
sig framan í ykkur, þá skuluð þið skæla ykkur
á móti, það geri ég. Ef þeir reka út úr sér tunguna
og fitja upp á nefið, þá gerið þið eins, þetta geri
ég. Maður kemst ekki mikið áfram í heiminum,
ef maður gugnar af því að sjá framan í einn
útlending eða svo, og jafnvel þó að það séu
svartmenni eða gulmenni. Fyrst þegar ég sá
svartmenni, lá við sjálft, að ég yrði hræddur, en
þegar ég athugaði þetta betur og fór* að horf-
ast í augu við manninn, sá ég, að þessi augu gátu
alveg eins verið í hvítmenni, til dæmis íslend-
ingi. Það er hvítt í kringum augasteinana á þeim,
eins og okkur. Og þeir hafa hvítar tennur, eins og
við. Ég hugsa, að þeir séu alveg eins og við að
innan. — En það er þó öðruvísi með gulmennin.
Augun í þeim eru svo skrítin.
Unárföt I
■ S
Náttkjólar
Kvenbuxur
Barnabuxur
Millipils
[ úr prjónasilki, nylon og [
og acetate.
Nylonsokkar
[ Crepenylonsokkar
[ Crepenylon-kvenbuxur j
| H. TOFT H.TOFT
[ Skólavörðustíg 8. Sími 1035 [ || Skólavörðustíg 8. Sími 1035 5
Khakiefni
rautt — ljósblátt
— dökkbrúnt.
Hvítar hosur
á börn og fullorðna.
Hvítir
Sportsokkar
nr. 4—9
! Kaupum hreinar léreftstuskur I
i i
Prentsmiðja Þjóðviljans
»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
«■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•
I TILKYNNING I
[ j
| frá Hiiaveitu Reykjavikur |
Ef alvarlegar bilanir koma fyrir ,
um hátíöarnar, verður kvörtunum veitt
viðtaka í síma 5359 kl. 10—14
I I
Hitaveita Heykjavíkur
Hugheilar pakkir flyt ég öllum peim, er á sex-
tugsafmœli mínu heiðruðu mig og glöddu með
dýrmœtum gjöfum og heillaóskum, og á annan
hátt gerðu mér daginn ógleymanlegan.
Steingrímur Magnússon