Þjóðviljinn - 19.04.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.04.1955, Blaðsíða 1
Lögreglan kemur í veg fyrir að læknar, Ijósmæður, slökkvilið ofl. fái benzín á bifreiðar sínar B.S.R. og B.B.S. hugðust stöðva benzín til verkfallsvörzlunnar! Jóhannes úr Kötlum Um kl. 1 í gær söínuð- ust biíreiðastjórar aí B.S.R. og B.B.S. og slags- málalið þeirra við aí- greiðslutank Esso í Hafn- arstræti og höfðu í hótun- um að beita afgreiðslu- menn og verkfallsmenn ofbeldi ef benzín yrði lát- ið á bifreiðir verkfalls- vörzlunnar. Til þess að firra óeirð- um framkvæmdi verk- fallsnefndin ekki benzín- afgreiðsluna. Stöðvun þessi hafði þegar í gær þær afleið- ingar að ýmsir læknar gátu ekki komizt í sjúkra- vitjanir sínar í gærkvöld. Þar sem verkfallsnefnd vildi komast hjá óeirðum sneri hún sér tíl lögreglunnar og óskaði að- stoðar hennar til að benzínaf- greiðslan á undanþágubíla gæti farið fram. Samkomulag deiluaðila Samkomulag er milli deiluað- ila í vinnudeilunni um að veita ákveðnum bifreiðum undanþágu á benzín og eru bifreiðir verk- fallsvörzlunnar þar á meðal en nokkrir bifreiðastjórar á Hreyfli hafa lánað bíla sína og ekið þeim fyrir verkfallsvörzluna. Hefur verið samkomulag milli bifreiðastjóra þessara og verk- fallsnefndar að þeir fengju und- anþágu fyrir benzíni gegn því að greiða benzínið sjálfir og aka hjá verkfallsnefnd 4—5 klst. á sólarhring. Hefur þetta fyrir- komulag sparað Dagsbrún mikið fé, því nauðsynlegt hefur verið Samþykktu að slást í dag! Bílstjórar á BSR og BBS héldu fund í gærkvöld. Kusu þeír 6 manna nefnd til að ta-ia við olíufélögin og verk- failsnefndina kl. 10 f.h. í dag, og fái þeir ekki fram- gengt vilja sínum að stöðva benzín til verkfallsvarða, skuli smalað slagsmálaliði til að stöðva benzínafgreiðsl- una með valdi. Á fundi þess- um var Arnljótur Ólafsson, einn illræmdasti kosninga- smali Ilialdsins einn aðalfor- ustumaðurinn. Mannpröngin viö benzínafgreiðsla ESSO í Hafnarstrœti í gær. að hafa marga bíla við verkfalls- , hring fulltrúa vinnuveitenda á staðnum! vörzluna, sérstaklega til að hindra bílstjóra á B.S.R. og B.S.B. í verkfallsbrotum. Boðið bifreiðastjórum allra stöðva Öllum bifreiðastjórum, á hvaða stöð sem þeir vinna, liefur verið boðið upp á sömu kjör og bif- reiðastjórum á Hreyfli. Tilgang- ur aðfararinnar í gær er því sá að koma í veg fyrir að verk- fallsnefndin geti haldið uþpi eins j strangri vörzlu, og nauðsyidegt j er til að hindra verkfallsbrot nefndra bifreiðarstjóra. Forðað slagsmálum hjá benzíntanki Þar sem verkfallsnefndin vildi ekki láta hefja afgreiðslu á ben- zini vegna geysilegrar hættu sem hefði getað skapazt við benzín- tankinn, ef til óeirða hefði komið, kaus hún þann kostinn að leita aðstoðar lögreglunnar,. enda þótt verkfallsnefndin hefði nægan mannafla til að halda uppi reglu sjálf. Taldi hún það enda skyldu lögreglunnar, þar sem hér er um að ræða fram- kvæmd á samkomulagi beggja deiluaðila um undanþágubíla. Fulltrúi Vinnuveit- endasambandsins Lögreglan stakk upp á því að slagsmálalið B.S.R. og B.S.B. veldi fulltrúa til viðræðna við verkfallsnefnd um benzínaf- greiðslu, en foringi slagsmála- liðsins var Gvendur sólarhring- ur, og var helzt á lögreglunni að skilja að hún áliti Gvend sólar- Ber ábyrgð á stöðvun alls undanþágubenzíns GuðmundUr J. Guðmundsson, formaður verkfallsnefndar fór á fund fulltrúa lögreglustjóra, Friðjóns Þórðarsonar, og krafð- ist þess að lögreglan aðstoðaði við að halda uppi reglu meðan á afgreiðslu stæði, en lýsti yfir þv; að verkfallsnefnd áliti, ef kröfu þessari yrði neitað, að lög- reglan gengi í lið með verkfalls- brjótum og bæri ábyrgð á því að allar benzínundanþágur yrðu af- numdar, þar sem í fyrrgreindu samkomulagi væri undanþága til lækna, slökkviliðs o. s. frv. bundin því skilyrði að bílar verkfallsnefndar fengju einnig benzín. Viðurkenndi lagaleysi verkfallsbrjótanna Fulltrúi lögreglustjóra viður- Verkfallið var samþykkt af Trúnaðarmannaráði Dagsbrúnar, og í bréfi sínu til atvinnurek- enda tekur það fram, að þar sem verkfall Dagsbrúnar og ann- arra verkalýðsfélaga hafi nú staðið í réttan mánuð — frá 18. kenndi að aðgerðir slagsmála- liðsins væru alger lögleysa og þeir hefðu engan rétt til að stöðva afgreiðslu benzínsins. Esso neitar um benzín Um kl. 4 síðdegis tilkynnti fulltrúi lögreglustjóra að ekkert marz — og ekki sé fyrirsjáanleg nein lausn á því, boði félagið nú algert verkfall í hraðfrystihús- unum, þannig að vélstjórarnir leggi einnig niður vinnu. í hraðfrystihúsunum eru Aðalfundur | KÍMíkvöld Kínversk-íslenzka menningarfé- lagið, (KÍM) heldur aðalfund í' kvöld í MIR-salnum, Þiugholts- stricti 27, og hefst liaun kl. 9. Auk aðalfundarstarfa flytur Jó- hannes úr Kötlum erindi, en hann var fararstjóri íslenzku sendi- nefndarinnar til Kína haustið '52. Iðnaíarmenn and- vígir kaupstaðar- bröltinu Yfirgnæfandi meirihluti bygg- ingariðnaðarmanna í Kópa- vogshreppi hefur skriflega lýst yfir því, að þeir séu fylgjandi 'athugun á möguleikum til sam- komulags við Reykjavík um sameiningu byggðarlaganna áð- ur en lagt er út í að stofna sérstakan kaupstað. Um 70% iðnaðarmanna í hreppnum höfðu ritað nöfn sín undir yfirlýsinguna þegar í gær. geymd geysimikil verðmæti, og þegar vélstjórar hætta að keyra frystivélarnar lækkar srhátt og smátt frostið í húsunum, þar til afurðir þær sem þar eru geymd- ar taka að spillast — verði ekki samið áður. Verður fróðlegt að sjá hversu langt Vinnuveitenda- sambands-klíkan gengur enn i því að eyðileggja verðmæti þjóð- arinnar. Framhald á 10. síðu. ! Verkfallssöfnunm orðin ■ ■ Verkfallssjóðurinn er nú orðinn 390 þúsund krónur. : Þessi félög og starfshópar hafa lagt fram fé; Starfs- I | fólk í Veitingahúsinu Laugaveg 28 kr. 1000.00, Starfs- j [ mannafélag Akranesbæjar kr. 1140.00, Verkamannafélag- : ■ ið „Fram“, Seyðisfirði kr. 1000.00, Verkalýðsfélag : ■ Djúpavogs kr. 1000.00, Félag bifreiðasmiða kr. 3000.00, ! E söfnun á Keflavíkurflugvelli kr. 970.00. Söfnun á Toll- jj \ stjóraskrifstofunni kr. 2600.00, framlag frá alþingis- : j mönnum Sósíalistaflokksins, Alþýðuflokksins og Þjóð- j ■ varnarflokksins — ein daglaun — kr. 2625.00. ■ ■ ■ ■ Vélstjórar í hraðirystihúsunum leggja niður vinnu 26. apríl Dagsbrún tilkynnti vinnuveitendum í gær verk- fall vélstjóra í harðfrystihúsunum, og kemur það til framkvæmda 26. apríl næstkomandi, eftir rétta viku. Heyhvíhingar! Leggið allir fram fé tii aðstoðar rerhfalísmönnum2

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.