Þjóðviljinn - 19.04.1955, Síða 7
Þriðjudagur 19. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Þegar Ólafur Thors var
ungur maður og var að hefja
stjómmálaferil sinn, lýsti
hann yfir því að hann og fjöl-
skylda hans væru „fjárhalds-
menn fjöldans" — og var sú
tilvitnun i heild birt í síðasta
blaði. Samkvæmt þessari trú-
arjátningu — sem tekin var
að láni frá einvaldskonungum
og lénsaðli — hefur Ólafur
Thors síðan starfað. Nú, þeg-
ar þessi maður og fjölskylda
hans eru komin í allsherjar-
styrjöld við verkalýðssamtök-
in og þjóðina alla, er ómaks-
ins vert að rifja örlítið upp
hvernig „fjárhaldsmennirnir“
hafa hreiðrað um sig í efna-
hagslífi landsmanna.
i
Utanríkismálin.
Thorsararnir hafa lagt á
það ofurkapp að hafa sem
mest yfirráð yfir utanríkis-
málum Islendinga. í Banda-
rikjunum er Thor Thors sendi
herra, og fjölskyldan leggur
þvilíka áherzlu á að halda
þeirri mikilvægu stöðu að
hann hefur verið látinn sitja
þar margfalt lengur en siður
er að sendiherrar dveljist á
einum stað. Hann hefur skipu-
lagt tengsl thorsaranna við
f jármálakerfi Bandaríkjanna,
og var einn helzti meðalgöngu
maðurinn um hernámið. Aðal-
sendiherra. Islands í Evrópu
er Pétur Benediktsson, bróðir
Bjama Benediktssonar og
tengdasonur Thorsaranna.
Hann var um skeið sendiherra
Islands i flestum löndum Evr-
ópu og hagar störfum sínum
i öllu í samræmi við hagsmuni
„fjárhaldsmanna.“ Ræðismenn'
eru skipaðir eftir sömu
grundvallarreglum, og nægir
þar að minna á uppeldisson
Thorsaranna Hálfdán Bjama-
son á ítalíu og Pipinelis á
Grikklandi, sem báðir eru
jafnframt starfsmenn salt-
fiskshringsins.
Saltíisksframleiðslan
Thorsaramir drottria yfir
saltfiskshringnum sem fer
með alla sölu á þessari mikiI-_
vægu útflutningsvöru, enda
þótt það sé hverfandi sem
thorsaramir láta sjálfir fram-
leiða af saltfiski. Formaður
SlF er Richard Thors, bróðir
Ólafs og Kjartans, og starfs-
aðferðir hans hafa sætt ein-
stæðri gagnrýni á undariföm-
um árum og ítrekaðar ásak-
anir verið bornar fram um
mjög víðtækan fjárflótta í
sambandi við þessa starfsemi.
Nýjasta dæmið er „skaðabæt-
ur“ þær sem thorsararnir
greiddu umboðsmanni sínum
á Italíu, Hálfdáni Bjarnasyni,
fyrir það að þeir hefðu ekki
afhent fisk upp í samninga,
á sama tíma og þeir hafa selt
Norðmönnum og Færeyingum
saltfisk til þess að þeir gætu
staðið við sína samninga!
Síldarframleiðslan.
Thorsaramir einoka sildar-
lýsis- og síldarmjölsfram-
leiðsluna, og er aðstaða
þeirra þar mjög mikilvæg
enda þótt hún hafi ekki verið
eins í fyrirrúmi síðustu árin
. og áður vegna veiðibrests.
Þeir eiga Hjalteyri og ráða
; síldarverksmiðjum ríkisins
gegnum fulltrúa sinn Svein
Benediktsson, bróður Bjarna.
Þegar sild kom hér syðra
„Fjárhaldsmenn
fjöldans”
Hann er forsætiatáðherra og
beitir öUu stjómarkerfinu til of-
sókna gegn verkalýðssamtökun-
unt.
lögðu þeir ofurkapp á að fá
hér valdaaðstöðu. Þeir ráða
yfir Faxaverksmiðjunni og
settu tengdason sinn Jóhann
Hafstein yfir Hæringsútgerð-
ina frægu. Þeir hafa jafnan
tögl og hagldir í afurðasöl-
unni, og þar er Richard Thors
enn í fyrirrúmi.
Togaramir.
Thorsararnir drottna yfir
togurunum og þar með yfir
framleiðsluvörum þeirra. Þeir
hafa völdin í Lýsissamlagi ís-
lenzkra botnvörpuskipaeig-
enda, í Samtryggingu ísl.
botnvörpuskipaeigenda; og í
Félagi isl. botnvörpuskipaeig-
enda er Kjartan Thors for-
maður, auk þess sem hann er
eins og allir vita formaður í
Vinnuveitendasambandi Is-
lands. Samningar um sölu á
afurðum togaraflotans eru
jafnan í höndum Richards
Thors og félaga hans.
Bankarnir
Thorsararnir hafa undirtök-
in í Landsbankanum og hafa
haft þau lengi. Menn muna
milljónalánin fyrir stríð, og
fyrir skemmstu lýsti Ólafur
Thors yfir því að hann væri
einn af skuldugustu mönnum
landsins. Því hefur ekki verið
mótmælt opinberlega að skuld
ir Kveldúlfs nemi 100 millj.
króna. Ölafur Thors á sjálfur
sæti í bankaráði, og flokks-
bræður hans hafa þar hrein-
an meirihluta. Einn af banka-
stjórunum er Gunnar Viðar,
mágur Thorsaranna. 1 útvegs-
bankanum hafa thorsararnir
einnig stöðugt verið að
styrkja aðstöðu sína; síðasti
bankastjórinn sem þar var
kjörinn er Jóhann Hafstein,
tengdasonur thorsaranna.
Einkareksturinn.
Jafnhliða þessu víðtæka
valdakerfi sem fengið er fyr-
ir pólitískan atbeina Sjálf-
stæðisflokksins hafa thorsar-
amir bein og óbein tengsl við
flest meiriháttar fjármálafyr-
irtæki á íslandi. Eru engin
tök á að rekja þau sambönd
hér, en minna má á að þeir
em mægðir jafn voldugum
fyrirtækjum og Shell, Eim-
skipafélagi Islands og Flug-
félagi Islands. Ekkert fjár-
aflafyrirtæki er ósamboðið
„virðingu" þeirra eins og Tí-
volí sýnir.
Saltíiskframleiðslan.
Mikilvægasta og arðvænleg-
asta eign thorsaranna er þó
Sjálfstæðisflokkurinn. Þeim
flokki hefur jafnan verið beitt
til þess að efla auð og völd
thorsaranna og bandamanna
þeirra. Fyrir hverjar kosning-
ar er safnað fylgi með ó-
hemjulegum áróðri, f járaustri,
loforðum og lýðskrumi um
„flokk allra stétta.“ I raun
birtist starfsemi flokksins í
verkföllunum miklu sem nú
eru háð, og þá er hann orð-
inn valdatæki örfámennrar
klíku, og einskis er svifizt til
að kréppa kosti þess fólks
sem lét blekkjast til að kjósa
flokkinn. Til þess að tryggja
aðstöðu sína hefur flokkurinn
beinlínis kevpt upp valda-
menn innan Framsóknar-
flokksins og hægri klíkunnar
í Alþýðuflokknum; þeir eru
fyrir löngu orðnir þinglýst
eign thorsaranna.
Reikningsskil.
Þetta er í örstuttu máli
myndin af „fjárhaldsmönnum
fjöldans“, en um það efni væri
hægt að skrifa heila bók. Við
Hann er formaður Vinnuveit-
endasambandsins og hefur beygfc
meö harðri hendi alia þá afc-
viimurekendur sem viidu semja
við verkalýðsfélögin.
þessa klíku er þjóðin nú að
berjast, og það er því hin
brýnasta nauðsyn fyrir allan
almenning að gera sér 'grein
fyrir því hvernig helzt verða
dregnar úr henni vígtennurn-
ar til frambúðar. Lykillinn
er Sjálfstæðisflokkurinn . og
fylgi hans. Um leið og Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur misst
valdaaðstöðu sína eru thors-
ararnir einnig hættir að vera
„fjárhaldsmenn fjöldans." Al-
menningur verður að draga
þann lærdóm af verkföllunum
miklu að hætta að efla fjand-
menn sína til yfirráða yfir
efnahagslífinu og leyfa þeim
að deila og drottna í þjóðlíf-
inu. Þess í stað þarf almenn-
ingur til sjávar og sveita,
öll framsækin öfl, að samein-
ast í eina /ylkingu og stjórna
sjálfur málum sínum af sama
einhug og festu og birtist í
framkvæmd verkfallsins. Þetta
er það eina sem „fjárhalds-
menn fjöldans" óttast og það
sést greinilega af skrifum at-
vinnurekendablaðanna að sá
ótti magnast nú dag frá degi,
Þegar hann er orðinn nægi-
lega ríkur verður samið við
verkalýðsfélögin; reiknings-
skilin við Sjálfstæðisflokkinn
eru einnig lykillinn að lausn
verkfallanna.
VERKFALLSÞANKAR
Það eru nú liðnar nærri
fimm vikur siðan eitt hið við-
tækasta verkfall, sem háð hef-
ur verið hér á landi hófst. Að
sjálfsögðu hljóta þær aðstæð-
ur, er slíkt verkfall skapar að
vekja miklar umræður og
margháttaðar hugleiðingar
manna á meðal. Við, sem í
þessu verkfalli höfum staðið,
höfum haft gott tækifæri til
þess að hlusta á og íhuga raddir
fjöldans. Andstæðingarnir hafa
reynt að þyrla upp margvís-
legu moldviðri um verkfalls-
menn, eins og við var að bú-
ast. Hinar furðulegustu sögur
eru búnar til og ganga ýktar og
margfaldaðar manna á meðal.
Heilar stéttir manna eru lagðar
i einelti og borið á brýn glæp-
samlegt athæfi. Hitt er þó víst,
að kjarabarátta verkalýðsins
nú, er almennt talin réttmæt,
enda hlýtur hver sá, er gengur
í verzlanir og kaupir nauðsynj-
ar sínar af launum sínum ein-
göngu, að sarinfærast um það,
að verðgildi krónunnar hefur
rýrnað svo verulega á síðustu
árum, að ekki er lengur við-
unandi.
Mjög hefur verið reynt af
hálfu andstæðinga verkalýðs-
ins, að ala á sundurlyndi milli
verkamanna og iðnaðarmanna í
deilu þessari. Því miður virðist
sumt af þeim rógi, sem á borð
hefur verið borinn, hafa síazt
inn í hug þeirra, sem annars
eru ekki óvinveittir launastétt-
um þeim, er nú standa í þess-
ari hörðu baráttu. Ég tel vert
að athuga ýmislegt af þessu
nánar.
Hefur fólk yfirleitt gert sér
grein fyrir, hvað hinar ýmsu
atvinnugreinar í þjóðfélaginu
eru samtvinnaðar hver annarri,
og hve hlutur hins óbreytta
verkamanns er mikill og við-
tækur? Um leið og verkamað-
urinn leggur niður vinnu stöðv-
ast hjól framleiðslunnar að
meira eða minna leyti. Vörun-
um, sem til landsins flytjast er
ekki skipað upp. Þær vörur,
sem liggja í vörugeymslum fást
ekki afgreiddar. Innan lítils
tíma, ef ekki strax, lamast eða
stöðvast iðja og iðnaður að
meira eða minna leyti, þar eð
verkamaðurinn vinnur þar hin
margvíslegustu hjálparstörf.
Lítum á byggingaiðnaðinn. Á
fyrsta degi hvers verkfalls eru
t. d. allir múrarar neyddir til
annaðhvort að hætta störfum
eða vinna það óþokkabragð að
ganga inn á verksvið verka-
mannsins. Og innan lítils tíma
hefur venjulega farið svo, að
hver iðngreinin af annarri hef-
ur stöðvazt. Á þessu litla yfir-
liti sést, hve starf hins óbreytta
verkamanns er víðtækt, og að
á því hvílir miklu meira af öllu
öðru starfi í þjóðfélaginu dn
fólk gerir sér almennt grein
fyrir.
Þá hefur því verið mjög á
loft haldið í yfirstandandi
vinnudeilu, að óþarft hafi verið
fyrir iðnaðarstéttirnar að fara
út í verkfall, þær hafi svo hátt
kaup. Það er ekki tilgangur
þessara þanka að vega það né
meta. Hitt er rétt að benda
þeim á, sem ekki hafa veitt
því athygli, að á síðari árum
hefur bilið milli launa hins fag-
lærða og ófaglærða verka-
manns stöðugt verið að minnka
og að sumir sértaxtar Dags-
brúnarverkamanna hafa á síð-
asta ári verið greiddir með
sömu krónutölu og samnings-
bundið kaup ýmsra iðnlærða
manna er nú. Ekki þykir niér
ólíklegt, að þeir menn, sem
búriir eru að leggja á sig fjög-
urra ára erfitt nám við léleg
kjör, þyki hlutur sinn lítill,
eigi þeir ekki að bera úr být-
um meira en hinn ófaglærði
verkamaður. Þá má og benda á
það, sem áður hefur verið sagt,
hve margir iðnlærðir verka-
menn verða að leggja niður
vinnu samtímis verkamönnum.
Mörgurn þessara manna mundi
þykja sá hlutur harður, að
ganga atvinnulaus margar vik-
ur, án þess að vera í verkfalli
og geta þó haft nóg að starfa,
en fá að því loknu engar bætur
á kjörum sínum. Og væri það
nokkru betra, frá þjóðhagslegu
sjónarmiði, að þessar stéttir
kæmu kannske eftir þrjá mán-
uði, krefðust kjarabóta og
gengju e. t. v. út í verkfall, til
þess að fá laun sín hækkuð,
og af því leiddi nýja stöðvun
á framleiðslu og iðnaði. Nær-
tækt daemi hliðstætt því, sem
hér hefur verið bent á, eru
verkföll fámennra stétta á
kaupskipaflotanum nokkru áð-
ur en yfirstandandi verfall skall
Framhald á 9. siðu.