Þjóðviljinn - 20.07.1955, Qupperneq 1
Miðvikudagur 20. júlí 1955 — 20. árgangur — 160. tölublað
■ (■■■■••••■■■•••OlllMIMaMIIMatMlllllaittUI
Brezkor lasid- |
helgisbrjótur I
tekinn
■
■
Varðskipið Óðinn tók brezka s
togarann Valafell, G-3383 í j
landhelgi í fyrrinótt. Var:
togarinn að veiðum 1,6 sjó-1
mílu innan fiskveiðitak- j
markalínunnar í Þistilfirði. j
Varðskipið fór með togar- j
ann, sem er frá Grimsby, j
til Akureyrar í gær þar sem j
mál skipstjórans verður j
rannsakað og dæmt.
Vinsemd og alúð ríkjandi á
,broshýra fundinum í Cenf
Samkomulag um Þýzkaland ólíklegt, taliS
aS viSrœSum verSi haldiS áfram siSar Robeson má
Paul Robetou
„Broshýra ráðstefnan“ er það nafn sem fréttamenn í
Genf hafa gefiö fundi æðstu manna fjórveldanna. Andinn
á þessari ráðstefnu stingur mjög í stúf við það sem menn
hafa vanizt þegar fulltrúar stórveldanna hafa hitzt síð-
asta áratuginn. í Genf ríkja alúð og vinsemd í fundarsain-
um og utan hans, eins þótt menn greini verulega á um það
sem verið er aö ræða.
Það þótti góðs viti þegar
utanríkisráðherramir komu sér
saman um dagskrá fundarins á
Sovétríkin bjóða Indlandi
kjarnorkuver og aðstoð
Sovétríkin komin lengra en USA í hag-
nýtingu kjarnorku til íriðarþaría, segir
kjarnorkumálastjóri Indlands
Yfirmaður kjamorkurannsóknastofnunar Indlands-
stjómar í Kalkútta skýröi frá því í gær, aö Sovétríkin
hefðu boðið Indlandi kjamorkuver að gjöf.
Kjamorkumálastjórinn er ný-
kominn heim frá Moskva, þar
sem hann sat ráðstefnu sov-
ézkra kjamorkufræðinga.
Hann kvað Sovétríkin ekki að-
eins fús til að láta Indverjum
í té kjamorkuver heldur einnig
kjamorkuhráefni og sérfræði-
lega aðstoð. Kvaðst hann hafa
skýrt Nehm forsætisráðherra
frá boðinu.
Visindamaður þessi mun vera
sá eini i heimi sem nýlega hef-
ur kynnt sér framíarir í hag-
nýtingu kjamorkunnar til frið-
samlegra þarfa bæði í Banda-
ríkjunum og Sovétríkjunum.
Eftir förina til Moskva kvaðst
hann ekki vera í vafa um að
sovézkir vísindamenn væm
komnir lengra en bandarískir
starfsbræður þeirra í að taka
kjamorkuna f þjónustu at-
vinnulífsins.
Kína ber sæti við
Sverrir Kristjánsson
12 slSna hlaS
WÓÐVILJANS þessa viku
kenrar út á morgun (fbnxntu-
dag). Þar verður mju niðurlag
greinar Sverris Kristjánasonar,
sem hefst í blaðinu nú í dag:
Straumhvörf eða stöðupollur í
stjórnmálum fslands?
Nehm, forsætisráðherra Ind-
lands, sagði blaðamönnum í
gær að hann harmaði það að
Kína skyldi ekki eiga fulltrúa
á stórveldaráðstefnunni í Genf.
Asíumálin eru miklu hættulegra
sprengiefni en Þýzkalandsmál-
in, sagði Nehru. Að því hlýtur
að reka að fundur verði hald-
inn um þau en fyrst þarf að
vinna undirbúningsstarf í kyrr-
þey.
Brezk kúgun
kærð tll $1»
Grískir biskupar á Kýpur
hafa sent SÞ kæmr yfir fram-
komu brezku nýlendustjórnar-
innar á eynni. Hefur brezki
landstjórinn gert grískan klerk
útlægan og tekið sér vald til að
fangelsa menn án dóms og laga
ef honum- býður svo við að
horfa.
„Óskastundin“
kemur í ÞjóövUjtmwn c
morgun, fimmtudag.
stuttúm fundi i gærmorgun.
Dagskráin hljóðar þannig:
1. Sameining Þýzkalands.
2. Öryggismál Evrópu.
3. Afvopnunarmálin.
4. Aukin samskipti austurs
og vesturs.
Síðdegis i gær komu svo
æðstu mennirnir saman og
ræddu Þýzkalandsmálin. Var
Faure, forsætisráðherra Frakk-
lands, í forsæti.
Lokaður fundur
Fundurinn var lokaður en að
honum loknum skýrðu blaða-
fulltrúar sendinefndanna frétta
mönnum frá þvi helzta sem
gerðist.
Eden, forsætisráðherra Bret-
lands, tók fyrstur til máls og
mælti fyrir tillögu sinni um ör-
yggisbandalag stórveldanna
fjögurra og Þýzkalands, tak-
mörkun herafla i Þýzkalandi
og nágrannaríkjum þess og
afvopnað belti í miðri Evrópu.
Hann kvaðst fús til að ræða
tillögur um öryggisbandalag
allra Evrópuríkja en að sínu
áliti mætti undirbúningur að
því ekki verða til þess að sam-
eining Þýzkalands dragist von
úr viti.
Sameining ekki tímabær
Búlganín, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, sagði að i raun-
inni væri það ekki sameining
Þýzkalands sem fyrst og fremst
þyrfti að ræða heldur Þýzka-
landsvandamálið. Spurningin
sé, hvaða stefnu sameinað
Þýzkaland muni fylgja, hvort
það gerðist aðili að einhverju
hernaðarbandalagi eða hvort
það standi utan 6líkra banda-
laga.
Búlganin kvað sameiningu
Þýzkalands ekki enn vera tíma-
bæra, til dæmis þyrftu ríkis-
stjórnir beggja landshluta að
undirbúa hana í sameiningu, en
það hefði ekki verið gert.
Sovétstjómin gerði sér ljóst að
það væri óraunhæft að krefjast
þess að Parísarsamningar
V esturveldanna. verði numdir
úr gildi nú, þessvegna legði
hún til að Þýzkalandsmálið og
öryggismál Evrópu allrar ‘yrðu
leyst hvað með öðru stig af
stigi.
Um boð Vesturveldanna um
að ábyrgjast að Þýzkaland leiti
ekki á Sovétríkin sagði Búlgan-
Framhald á 12. síðu.
fara úr landi
Eftir margra ára innilokutt
hefur söngvarmn heimsfrægi
Paul Robeson nú loks fengið
vegabréf til að ferðast úr ætfc-
Iandi sínu Bandaríkjunum til
annarra landa. Utanríkisráðu-
neytíð i Washington hefur veitt
honum vegabréf til að fara til
Kanada að halda söngskemmt-
anir. BandarLskur dómstóll úr-
skurðaði nýlega, að utanríkis-
ráðuneytíð hefði enga heimild
til að neita inönnum um vega-
bréf að ástæðulausu.
Bjóða samstarf um að
hindra árekstra
Sovétstjórnin hefur boðið
Bandaríkjastjóm samstarf til
að hindra framvegis árekstra
eins og þann um daginn, þegar
sovézkar orustuflugvélar skutu
niður bandaríska könnunar-
flug\'él yfir .Beringssundi.
Austurrikl mun lýsa yfir
ævarandi hlutleysl
Austurríska stjórnin bar í gær fram á þifigi frumvarp
þar sem lýst er yfir að landiö muni héðan í frá fylgja ein-
dreginni hlutleysisstefnu í hermálum.
Þegar friðarsamningurinn
var gerður við Austurríki í vor
lýsti ríkisstjómin yfir að hún
myndi biðja þingið að lýsa yf-
ir hlutleysi landsins strax og
samningurinn hefði verið full-
giltur.
1 frumvarpinu er kveðið svo
á, að Austurríki muni ævinlega
vera hlutlaust í öllum hemað-
arátökum. Það mun ekki ganga
í neitt hemaðarbandalag, engu
erlendu riki verður nokkru
sinni leyft að koma > sér upp
herstöð á austurrísku landi.
Einnig er það tekið fram, að
á alþjóðavettvangi muni Aust-
urríki beita sér gegn hernað-
arstefnu og styðja alla við-
‘ leitni til að efla frið með
þjóðunum. .
Soltað í
arhöfn í
9000 tunnur á Rauf ■
og fyrradag
Dæmi að síldarstúlkur hafi alit að 890 kránum é
sólarhring — og vantar þó stundum enn fleiri
Raufarhöfn í gærkvöld. Frá fréttaritara. .
Dágóð veiði hefvr verið hér undanfama tvo daga, og
hafd samtals verið saltaðar 8569 tunnur í gær og dag í
6 söltunarstöðvum hér á Raufarhöfn.
Söltunin skiptist þannig á
stöðvamar (í tunnutali):
Óiskar Halldórsson: 750 — 200,
samt. 950.
Viihjálmur Jónsson: 830 — 600
samt. 1430.
Hafsilfur: 1135 — 800, samt.
1935.
Norðursíld: 119€ — 700, samt.
180«.
Skor h.f.: 840 — 600, samt.
1404.
Hóhnsteinn Helgason: 600 —
450, samt. 1050.
Fyrri talan merkir söltun-
ina í gær, hin síðari söltunina
í dag.
Skipin sem lagt hafa hér upp
þessa tvo daga hafa haft 200
til 300 tunna meðaiafla.
.Fitumagnið í síldinni er unS
19%.
Mikil vinna hefur skapazft
hér við söltunina, og eru þess
dæmi að stúlkur sem keppzfc
hafa við og dregið af sér svefu
hafi haft allt að 800 krónum á,
sólarhring. Nokkur skortur er
á verkafólki, einlíum stúlkum.
Veður er hér gott í kvöld,
og mimu öll skipin fara á veið-
ar í kvold og nótt
Það léttist brúnin á fólkE
hér, þegar aflahrotur á boriS
við þessa koœa. )