Þjóðviljinn - 06.09.1955, Síða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagnr 6. september 1956
Mekf arsnenn ocf máf u r
Framhald af 7. síðu.
haga framkvæmd varnarmála
á allt annan hátt en nú er, þar
eð hún mundi láta gróðann af
dvöl hersins renna til þess að
greiða niður húsaleigu, koma
rentum af lánum til húsa-
bygginga niður í 3—4 prósent
svo og til launabóta handa
bændum, sjómönnum iðnaðar-
mönnum og öðrum er vinna
nauðsynleg störf. Sem sé: ef
svo ótrúlega vildi til að meiri-
hluti þjóðarinnar vildi erlenda
hersetu til langframa, þá ætti
hagnaðurinn af henni að renna
til þjóðarheildárinnar en ekki
til einstakra stjórnargæðinga,
eins og nú tíðkast.
Ef þjóðaratkvæðagreiðsla
leiddi hinsvegar í ljós að
meirihluti þjóðarinnar vildi að
herverndarsamningsins.
Sýnir það ekki glögglega
einræðistilhneigingu þeirra og
fyrirlitningu á vilja og viðhorfi
meirihlutans?
Viðhorf þeirra til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um mál mál-
anna sýnir líka annað, sem
sé það að ríkisstjórnin veit
að það er vonlaust fyrir hana
að meirihluti þjóðarinnar legði
blessun sína yfir áframhald-
andi dvöl ameríska hersins,
ef til kasta kæmi með þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Annars mundi ríkisstjórnin
vissulega styrkja aðstöðu sína
með því að láta þjóðarat-
kvæðagreiðslu fara fram. Ef
hún sigraði í henni gæti hún
alltaf slegið vopnin úr höndum
okkar andstöðumanna herset-
herinn hyrfi af landi brott ,unna! meö ^ að §egj.a að
þegar í stað þá yrði herinn
að fara.
En þótt vinstrimenn hafi
þann stjórnmálaþroska til að
bera að vilja fara að vilja
méirihlutans í einu og öllu
í örlagaríkum málum, eins og
þessu, og laga sig eftir hon-
um og framkvæma hann jafn-
vel þótt hann færi í bága við
skoðanir þeirra, þá skortir
ihaldsstjórnina slíkan þegn-
skap. Hún vill fara sínu fram
og virðir þjóðarviljann að
vettugi. Hún tekur það ekki
í mál að láta fara fram þjóð-
aratkvæðagreiðslu um þetta
mikla deilumál hennar og
þjóðarinnar, svo að megi koma
í ljós í eitt skipti fyrir öll
hvað meirihlutinn vill.
í gamla daga höfðu Bjarni
Benediktsson dómsmálaráð-
herra og Gunnar Thóroddsen
borgarstjóri gaman að því að
sýna stjómfræðikunnáttu sína
með því að tala um ágæti
„referendum" eða skírskotunar
einstakra stórmála til þjóð-
arheildarinnar, með beinni at-
kvæðagreiðslu um þau. Leið-
togar Framsóknarflokksins
hafa líka gaman að því að
tala um virðingu sína fyrir
vilja meirihlutans og þá sjálf-
sögðu lýðræðisskyldu að láta
hann ráða, og samt vill eng-
inn þessara aðila sýna lýð-
ræðisvilja sinn í verki með
því að fallast á þjóðarat-
kvæðagreiðslu um uppsögn
Tveir skólapiltar óska eftir
herbergi
í Austurbænum. Uppl. í
síma 81614
meirihluti þjóðarinnar hafi
með atkvæði sínu samþykkt
að Islendingar leigðu land sitt
Bandarikjamönnum sem flug-
og flotastöð.
Ástæðan til þess að ríkis-
stjórnin þorir ekki fyrir sitt
litla líf að láta kjósa um mál-
ið er sú að hún veit að minnst
85 prósent þjóðarinnar eru
andvígir henni í því. Þetta er
skýringin á því að íhaldsráð-
herrarnir, bæði þeir sem
kenna sig við sjálfstæðið og
hinir sem kalla sig Fram-
sóknarmenn, vilja ekki fara
að lýðræðislegum leikreglum
í þessu stórmáli.
Það er algengt að fólk sem
búið er að fá andstyggð á nú-
verandi stjórnarflokkum, en
heldur samt tryggð við þá af
WHO veitir námsstyrki
Framhald af 5. síðu.
þjóða. Fyrst í stað var um
helmingur styrkjanna notaður
til náms í löndum utan Evrópu,
en nú eru nánísskilyrði fyrir
lækna orðin það góð í Evrópu-
löndum, að minna en 10% af
styrkjunum eru notaðir til
náms utan Evrópu.
Baráttan gegn smitsjúkdóm-
um er efst á baugi hjá Al-
þjóðáheilbrigðisstofnuninni.
Skortir enn nokkuð á, jafnvel
í Evrópulöndum, að smitsjúk-
dómum sé haldið í skefjum
sem skyldi, þrátt fyrir góðan
árangur í baráttunni gegn
berklaveiki, taugaveiki, sárasótt
og öðrum næmum smitsjúk-
dómum.
Dýrategundir að deyja
Framhald af 5. síðu.
dýrategund er útdauð eða ekki.
Þessi asnategund var til þegar
2400 árum áður en núverandi
timatal hófst. I Sfuður-Asíu
týna ljónin tölunni eftir því
sem stofn tígrisdýra eykst.
Aðalf undur
Verzlunarráðs íslands
verður haldinn í húskynnum ráðsins dagana 7. og 8.
september og hefst á morgun, miðvikudag, kl. 2 e. h.
Dagskrá samkvæmt 12. gr. laga V. L
Stjóm Verzlunarráðs Islands
gömlum vana, segi sem svo;!
„Víst er stjórnin orðin ógeðs-
lega spillt en ætli vinstri-
stjórn yrði nokkuð betri“.
Það er nokkuð til í því að j
erfitt sé að uppræta spilling-
una að öllu á opinberum
vettvangi, og satt er það einn-
ig að hætta er á að löng valda-
seta hafi alltaf nokkra spill-
ingu í för méð sér, en það er
með stjórnmálalega spillingu
eins og vín. Sumir menn geta
drukkið að því er virðist án [
þess að leggjast í stjómlaust
.fyllirí. Aðrír þola ekki áfengi.
Það fær of sterk tök á þeim.
Það verður þeim allt. Til að
fá það fremja þeir glæpi, selja
konur sínar og dætur og gera
hvað sem er til að geta svalað
stjórnlausum áfengisþorsta
sínum. Þeir lifa fyrir áfengi,
og ekkert annað og verða rón-
ar og mannleysur af þess völd-
um. Áfengi, meira áfengi, og
ekkert nema áfengi kemst að
í huga þeirra. Eina keppikefli
þessara manna í lífinu er á-
fengisflaskan. Þeir eru hennar
þrælar.
Við íslendingar höfum lif-
að þá raun að horfa upp á það
að dalir og gróðafíkn hefur
svipuð áhrif á menn — hátt-
setta menn, með valdatauma
í höndum. Þeir þola ekki hinn
fljótandi dollaragróða er her-
inn freistaði þeirra með. Hann
náði of sterkum tökum á þeim
og kveikti í þeim brennandi
gróðafíkn er drap í þeim alla
þá góðu eiginleika er þeir
höfðu áður og urðu til þess
að kjósendur trúðu þeim fyr-
ir völdum og mannaforráðum.
Sál þeirra kallar á her-
mangsgróða og dali — dulbún-
ar mútugjafir — á sama hátt
og sál drykkjusjúklingsins
heimtar sinn áfengisskammt og
engar refjar. Allt annað hverf-
ur í skuggann fyrir þessari á-
stríðu þeirra. Heiður þjóðar-
innar, velferð og líf þegnanna,
æra og sómi, allt þetta er lát-
ið vikja og sitja á hakanum,
til að hægt sé að svala sem
bezt hinni taumlausu gróða-
fýsn. Þessir menn eru þræl-
ar annarlegrar ástríðu —
amerísks gullæðis. Þeir eygja
engar hættur og sjá yfir höf-
uð ekkert annað en dali og
meiri dali og enn meiri dali.
Menn sem þannig er ástatt
með eru ekki færir um að
hafa mannaforráð, frekar en
blindfullur maður er fær um
að aka bíl. Vanræksla þeirra
um allt er lýtur að velferð
þjóðarinnar sýnir svo ekki
verður um villzt að það er
kominn tími til þess að þeim
verði veitt löng hvíld frá störf-
um.
■
Byggingasamvinnufélag starfs-
manna Reykjavíkurbæjar
■
........ .. ........... .,. ... .■
Fundur verður haldinn í V. R.-húsinu við Vonarstræti |
föstudaginn 9. þ. m. kl. 20,30.
■
■
■
Fundarefni: !
■
Væntanlegar byggingar íélagsins
■
Stjórnin :
UPPBOÐ
©pinbert uppboð verður haldið að Hverfisgötu 49,
hér í bænum, miðvikudaginn 14. september n. k. kl. 1,30
e. h. Seld verða ýms áhöld, vélar o. fl. tilheyrtandi
db. Björgvins Jónssonar, glerslípunarmanns, svo sem
'slípivélar, rafmagnsmótorar, borvélar, slípisteinn, hring-
skurðarvél, borðvog, speglar o. m. fl.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavik
0RÐSENDING
til félagsmanna í Byggingafélagi alþýðn
í Hafnarfiiði
F.ín íbúð til sölu. Félagsmenn sendi umsóknir fyrir
fyrir 15. september n. k.
Stjómin
A þessum tímamótum
f
Verzlunar Haraldar Ámasonar viljum við þakka af al- :
hug sýnda virðingu við minningu stofnanda hennar, svo i
og viðskiptavinum öllum ánægjuleg viðskipti um 40 f
ára skeið.
■
„ ■
■
Haraldarbúð h.f.
Haraldur Árnason, heildverzl. kf.;
Skóla-ogskjalatöskur
fyrirliggjandi í miklu úrvali
Davíð S. Jónsson & C0.
Umboðs- og heildverzlun
Þingboltsstræti 18 — sími 5932
• ■■■•■•■•«■■■•■■■■■■■•••■■•■»•'»■■•• ■•■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■iiiiii««i
Tímarítið Vinnan og verkalýðurinn
með nýju
kaupskýrslun-
er komin
ut
Askriftarsímar 7500 og 01077