Þjóðviljinn - 06.09.1955, Síða 11
Þriðjudagur 6. september 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Hans Kirk:
morgunverð áður en ég- fór að heiman.
Inni í stofunni sat Gregers og beið meðan hann
hlustaði á útvarpið drynja.
— Lokaöu fyrir þessar bölvaðar lygar, þrumaöi Har-
aldur. Og gefðu mér eitthvaö setilegt, þaö er sama hvað
þao er.
Karen flýtti sér út að sækja mat og meöan Haraldur
mataðist sagði hann frá samtali sínu við lögregluþjón-
irm á skiifstofu blaösins.
— Fáið mér þetta blað, háfði liann sagt, svo að ég geti
skrifað kvenmanninum.
25. KAFLI
Sumarið líður og fœrir hinum riku auð og hinum
snauðu fátœkt. Það er tímabil stórra sigra, einnig
hvað snertir hið sívaxandi Jyrirtæki
Klitgaard og Syni.
Grejs gamli gekk um hverfið og fylgdist af áhuga
með gróðri jarðar, því að sjálfur hafði hann eitt sinn
verið bóndi og hjarta hans gladdist yfir frjósömum ökr-
um og þriflegum búpeningi, en annars var hann orð-
inn þögull maður sem spjallaði ekki lengur við það fólk
sem hann mætti á leið sinni. Hann var orðinn vitund
álútur, rétt eins og hann bæri smánarbyrði sem böm
hans höfðu lagt honum á herðar, en ööru hverju rétti
hann úr sér og hugsaði:
— Nú er röðin komin að þeim og þau bera ábyrgðina.
Eg hef gert allt sem mér var unnt til að vera heiðarleg-
ur maðm’.
En æ oftar leituðu hugsanir hans aftur í fortíðina
og það var eins og hann ætti tal við Kjestínu um börn-
in og hina löngu sambúð þeirra.
— Höfðu mágamir rétt fyrir sér, Kjestín? spurði
hann. Var þetta illur fengur? Er ég maður sem aðeins
hefur reynt að dýrka hinn óréttláta mammon? Nei, ég
held þeir hafi ekki haft rétt fyrir sér. Þessu er öðru
vísi háttað. Það var ekki sunnudagsvinnan, því hvaða
máli skiptir hún? Drottinn ber sjálfsagt meiri virðingu
fyrir daglegu brauöi alþýðumannsins en staglinu í
prestunum, svo mikið álit hef ég nú á honum, Kjestín.
— Þú hefur alltaf verið heiðarlegur maður, Grejs,
heyröi hann milda rödd Kjestínar segja.
— Eg hef reynt aö vera þaö, Kjestín litla, en vald
peninganna er mikið. Maður festist auöveldlega í neti
þeirra eins og flugan í köngulóarvef og börn okkar
hafa gert þaö. Peningarnir eru snörm djöfulsins. Og sé
maður einu sinni kominn í snömna er ekki hægt að
losa sig úr henni. Og nú em bömin í snömnni.
Öðm hverju kom Kaas í heimsókn, hann var ekki enn
búinn að fá vinnu og einn góðan veðurdag birtist Greg-
ers. Grejs tók alvarlegur á móti sonarsyni sínum.
— Á efth* fór ég á ýmsa staði, sagði hann. Mér kom
til hugar að ég gæti ef til vill aðvarað einhverja. En allt
er um garð gengiö.
— Hafa þeir tekið marga? spmði Gregers.
— Já, bæði hér og úti á landi að því er vh’ðlst. Lög-
reglustöðin er að springa utanaf samanþjöppuðum
kommúnistum, en sumir þeirra sleppa sennilega þaöan
þegar búið er að vinza úr. Axel er í sumarleyfi, hann:
sleppur sjálfsagt og Alfreö var á fyrirlestraferö uppi í
sveit og engimi veit hvernig honum hefur reitt af. Börge
hefur lengi farið huldu höfði, en þeir tóku Martin og
Svend og Jóhannes og fjölmarga aðra fomstufélaga.
— Hver er tilgangurinn? Ætla þeir að senda þá til
Þýzkalands?
— Já, ef Þjóðverjarnir krefjast þess. En fyrst
sinn fá þeir víst að dúsa í Vestra fangelsi. Það var
að við vorum búnir að skipuleggja ólöglegu
í tíma. Og hún heldur áfram þótt margir hafi
teknir. Þeir skulu fá að finna að við emm til. Nú verða
allar línur skarpari og andspyrnan vex með hverjum
degi sem líður, það getið þið reitt ykkur á.
— Eg skil þetta ekki. Þeir nota dönsku
til að handtaka danska borgara í trássi við lögin — eftir
þýzkri skipun, sagði Gregers.
— Og lögregluþjónninn sem ég var að spjalla við
virtist hæstángegður með þetta.
— En stjómarskráin? sagði Gregers, og hann
þreytulegur og svipþungm. Þeir elta uppi þingmenn og
setja þá í fangelsi, liandtaka friðsamlega borgara af
því. að þeir em félagar í löglegum stjórnmálaflokki, þeir
gera húsrannsóknir og fara í ránsferðir. Og samt sem
áður halda þeh’ því fram aö þeir séu að verja lýðræðið.
— Þetta er allt í fuhkomnu lagi, drengur mhm, svar-
áði Haraldur. Bíddu hægur, áður en langt um líður
koma lögfræöingamir á vettvang með skýringar sem
leiða í ljós að stjómarskráin feli einmitt í sér að
elsa beri þingmenn og handtaka saklausa borgara. Þig
vantar enn ýmislegt til þess að veröa þvottekta komm-
únisti. Þú verður áð læra aö skilja að þegar til kastanna
kemur fylgja hinir aldi’ei leikreglunum. Þú heldur aö
við lifum í réttarríki — ófullkomnu að vísu — en þegar
um fjárhagslega velgengni þeii*ra er aö ræða eru lög
og réttur að engu höfö. Allt er stéttarbarátta, sonur
minn, og nú er baráttan aö hefjast fyrir alvöru ...
Tékkneskur kjóll handa hávöxnum
sfúikum
Kjóllinn er blár
í grunninn og
rriynstrjð dauL
bleikt. Hanzkar
og belti eru sam
lit mynstrinu. —
Víða pilsið er i
rykkt í mittið j
og beltið tals- (
vert þröngt og
ermalíningarnar
breiðar og
þröngar. Risa-
slaufa fóðruð
einlitu efni sam-
litu mynstrinu
er höfð í háls-
inn. Og svo er
alpahúa.
íslenzk bókagjöf
Framhald af 6. síðu.
voru flutt yfirlitserindi um það
sem markverðast hafði komið
fram í hverjum hópi. Englend-
ingur að nafni Fry sagði frá
umræðunum hjá okkur og
lét í ljós mikla undrun yfir
þvi að Islendingar í dag gætu
lesið verk frá 12., 13. og 14.
öld í upprunalegum búningi.
Hann sagði að Englendingar
mundu þykjast góðir ef
Chaucer væri þeim jafneftir-
látur.
B. B.
íþróttir
Framhald af 9. síðu.
spretturinn byrjaði voru Pól-
ver jar um '15 m á undan. Ignat-
éff, sem hljóp síðasia sprett
fyrir Rússa, hljóp stórglæsilega
og komst naumlega fram *úr
síðustu metrunum.
tJrslit.
1. Sveit Sovét. 3.11.6 mín
2. Sveit Pólverja 3.11.8 mín.
3. Sveit Þýzkal. 3.14.2 mín.
4 X100 m boðhlaup karla.
1. Sveit Ungverjal. 40,7 sek.
2. Sveit Sovét 40.8 sek.
3. Sveit Póllands 40.9 sek.
Stangarstökk — IJrslit.
1. Czemobaj Tékk. 4.35 m
2. Wazny, Pólland 4,30 m
3. Bulatoff, Sovét., 4.30 m.
Hlífið höndunum
Við erum farnar að laera að
nota form og skálar úr eldföstu
gleri við matartilbúninginn, en
við höfum sjálfsagt ekki laert
enn að vara okkur á hinu
brennheita gleri. Margar hús-
mæður taka pottaleppana sem
þær nota venjulega þegar þær
taka eldföstu skálina út úr ofn-
inum og brenna sig illiiegg á
fingrunum. Notið ekki prjón-
aða eða heklaða pottaleppa, þeir
eru of gisnir. Það er betra að
nota stóra frottélclúta úr þykku,
þéttu frottéefni. Búið til sér-
staka pottaleppa til að nota þeg-
ar þið handfjatlið eitthvað se:r»
|er sérlega heitt.
lílgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sóslalistaflokkurinn. — Ritst jóiar: Magnús Kjartansson (áb), Sigurður Guðmundsson — Fréttarit-
gjVagBgt|MM stióri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Behedíktsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús' Toríi
vlf* Ótafsspn. —..Angí/singésúúrit Jtoteinn Haraldsson. — Ritstjórn, af grei.ðsla^.apgjýsingar, .prgntsmiðj.a: Skólnvörðustig 19. — Sími: 7500 t3
linur)! — Áskriftarverð kr 2« & K\éi»ittði í Raykjavík #e »á»renni; kr. 17 annárs staðar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsm. Þjóðviljan*